Fréttablaðið - 05.01.2005, Page 38
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Stipe Mesic
Hólmavík.
Hann verður útvarpsstjóri á
nýrri talútvarpsstöð.
30 5. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
Um 4,5 milljónir Þjóðverja
horfðu á fyrsta þátt dönsk-
íslensku spennuþáttaraðarinnar
Örninn, eða Ørnen eins og hann
heitir á frummálinu, á mánudag-
inn var þegar hann var sýndur á
þýsku sjónvarpsstöðinni ZDF.
Það þýðir að um 18% Þjóðverja
hafi horft á þáttinn. Elva Ósk
Ólafsdóttir fer með eitt af aðal-
hlutverkum þáttarins en Bene-
dikt Erlingssyni bregður þar
einnig fyrir.
Að sögn Michale Bille Frand-
sen, framleiðanda þáttarins hjá
Danska ríkissjónvarpinu, fóru
viðtökurnar í Þýskalandi fram úr
björtustu vonum. „Þjóðverjarnir
höfðu búist við 11 til 14% áhorfi
sem er einni milljón minna en
horfði á hann,“ sagði Michale
Bille í samtali við Fréttablaðið í
gær. „Við erum að sjálfsögðu
afar ánægðir með viðtökurnar og
sömu sögu er að segja af Þjóð-
verjunum. Þeir eru búnir að
kaupa átta fyrstu þættina og
vilja nú kaupa næstu átta.“
Þættirnir verða meðal annars
sýndir hér á landi, í Noregi og
Svíþjóð. Þá standa yfir viðræður
við franska sjónvarpsstöð.
Að sögn Michael Bille er búið
að taka upp tólf þætti en seinni
hlutinn af seríunni verður tekinn
upp á þessu ári. „Við byrjum aft-
ur að taka upp á mánudaginn og
ætlum að klára tólf síðustu þætt-
ina. Síðasti þátturinn verður tek-
inn upp á Íslandi,“ segir Michael
Bille sem vill þó ekki gefa upp
hvar hann verður tekinn.
Örninn fékk einnig góðar við-
tökur í Danmörku en um 70%
Dana sáu fyrsta þáttinn. „Þáttur-
inn var á toppnum yfir áhorf
fyrstu átta vikurnar,“ segir
Michael Bille.
Þættirnir fjalla um Hallgrím
Örn Hallgrímsson, uppalinn
Vestmannaeying, sem á danskan
föður. Hallgrímur flutti ungur til
Danmerkur og starfar sem
rannsóknarlögreglumaður í
Kaupmannahöfn.
Danski leikarinn Jens Albinus
fer með hlutverk Hallgríms en
Elva Ósk með hlutverk systur
hans. Leikstjóri er Jørgen
Ramsko.
Fyrsti þátturinn af Erninum
verður sýndur í sjónvarpinu í lok
febrúar.
kristjan@frettabladid.is
Jón Jósep Snæbjörnsson, söngv-
ari hljómsveitarinnar Í svörtum
fötum, mun bregða sér í líki
Imma ananas þegar söngleikur-
inn Ávaxtakarfan verður frum-
sýndur í Austurbæ í febrúar.
Jónsi fer með hlutverk vonda
karlsins Imma en auk hans mun
Birgitta Haukdal leika Geddu
gulrót og Selma Björnsdóttir fer
með hlutverk Evu appelsínu,
svo fáeinir séu nefndir. Sam-
lestur á verkinu hófst í fyrradag
en leikstjóri er Gunnar Ingi
Gunnsteinsson.
Ávaxtakarfan sló í gegn árið
1998 þegar verkið var sýnt í
Íslensku óperunni en þar fór
Andrea Gylfadóttir með stórt
hlutverk sem og Selma Björns-
dóttir.
Búast má við að Ávaxtakarf-
an muni í sumar keppa um hylli
áhorfenda við Kalla á þakinu
sem sýndur verður í Borgarleik-
húsinu. Þar fer sjálfur Sveppi
með aðalhlutverkið sem og
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
en leikstjórn er í höndum
Óskars Jónassonar. ■
Jónsi í hlutverki Imma ananas
JÓNSI Verður klæddur gulum bananabúningi frá toppi til táar þegar Ávaxtakarfan verður
frumsýnd í febrúar.
ELVA ÓSK ÓLAFSDÓTTIR: GERIR ÞAÐ GOTT Í DANSK-ÍSLENSKUM SJÓNVARPSÞÆTTI
MILLJÓNIR HORFÐU Á ÖRNINN
Græðir peninga á út-
sölum
„Já, ég hugsa að ég kíki á
útsölurnar. Ég er reyndar
núna á Ísafirði en ég fer
örugglega þegar ég kem
heim og næ vörunum
sem eru þá eftir. Mér
finnst ég alltaf vera að
græða peninga þegar ég
versla á útsölum. Reyndar
á ég oft frekar lítinn pen-
ing eftir jólatörnina og á
útsölunum enda er ég líka
mjög oft í nýju vörunum.
En ætli ég kíki ekki í upp-
áhaldsbúðirnar mínar
sem eru Centrum, Karen
Millen og kannski ég kíki líka í Zöru.“
Yndislegt á Laugaveg-
inum
„Nei, ég er ekkert beinlínis
búin að plana að fara á út-
sölur. En það getur vel
verið að ég geri það ef ég
á leið framhjá og kíki inn.
Mér finnst þær vera hið
besta mál og ef ég sé
fallega útsölu á Laugaveg-
inum þá getur vel verið að
ég líti á úrvalið. Það er svo
yndislegt að fara í búðir og
ég er alltaf á Laugavegin-
um. Þar eru svo góðar
búðir og yndislegt starfs-
fólk. Ég myndi ekki fara í Kringluna eða Smáralind.
Mér líður best á Laugaveginum.“
Engar útsöluáætlanir
„Ég myndi ekki segja að
ég planaði eitthvað sér-
staklega að fara á útsölur.
Ég geri engar útsöluáætl-
anir. En ég er alltaf með
augun opin og það verður
að segjast eins og er að
það er oft hægt að gera
góð kaup á útsölum.
Hægt að gera góða díla.
Ég myndi þá helst versla
mér einhver föt á útsölun-
um. Kíkja í Sautján eða
eitthvað. Mér finnst samt
svolítið púkalegt hvað
búðirnar setja útsölurnar á
snemma.“ ■
ÆTLAR ÞÚ Á ÚTSÖLUR?
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
...fær hljómsveitin Quarashi sem
hefur selt lög sín í amerískar bíó-
myndir og sjónvarpsþætti og
fengið dágóða upphæð fyrir.
HRÓSIÐ
JENS ALBINUS Danski leikarinn fer með hlutverk Hallgríms Hallgrímssonar í Erninum.
Þátturinn verður sýndur í Sjónvarpinu í lok febrúar.
ELVA ÓSK ÓLAFSDÓTTIR Hún fer með hlutverk systur Hallgríms.
Lárétt: 2 mæra, 6 tveir eins, 8 lengdareining, 9
fugl, 11 í röð, 12 býður vafasama greiðslu, 14
býr til brauð, 16 endalok, 17 skel, 18 vökva, 20 á
fæti, 21 grind.
Lóðrétt: 1 hikst, 3 smáorð, 4 gerði fallega, 5
skammstöfun, 7 trúaður maður, 10 maka, 13
keyra, 15 útstáelsi, 16 læknismeðferð, 19 tónn.
Lausn.
Lárétt:2lofa,6tt,8fet,9ara,11gh,12mútar,
14bakar, 16ko,17aða,18úða,20il,21rist.
Lóðrétt: 1stam,3of, 4fegraði, 5ath,7trúboði,
10ata,13aka,15rall,16kúr, 19as.
Nú er tíminn þegar allar vörur lækka í verði og fólk flykkist í búðirnar
AUÐUR EIR VILHJÁLMS-
DÓTTIR PRESTUR
BIRGIR NIELSEN
PULSUSALI
ÞÓRUNN ARNA KRIST-
JÁNSDÓTTIR LEIKKONA
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR