Fréttablaðið - 15.01.2005, Blaðsíða 32
24 15. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Þ
að var dimmt yfir Álfta-
firði fyrri part viku. Kalt í
veðri og strekkingsvindur.
Alhvítur snjórinn hafði
ekki aðeins lagst af þunga yfir
byggðina heldur líka á sálir fólks-
ins. Það minntist hamfaranna
ógurlegu 1995. Hafði ekki séð ann-
an eins snjó síðan þá.
Og ekki var nóg með að erfiðar
hugsanir leituðu á fólk vegna
veðursins, náttúran lét finna
áþreifanlega fyrir sér. Snjóflóð
féllu og tepptu vegi og Súðavík var
símasambandslaus í nærri hálfan
sólarhring.
Sigríður Rannveig Jónsdóttir,
sem missti eins árs dóttur sína og
tengdaforeldra fyrir tíu árum, ók
fram á flóð sem fallið hafði á veg-
inn milli Ísafjarðar og Súðavíkur
seinni part mánudags. Hún var á
leið heim frá Ísafirði þar sem hún
vinnur. Vanlíðanin steyptist yfir
hana og hún stífnaði undir stýri.
Hélt reyndar að hún myndi ekki
lifa þetta af.
Vegagerðin var snör á vettvang,
ruddi flóðinu frá og hleypti bílum
sem biðu í gegn. Veginum var svo
lokað og hann ekki opnaður aftur
fyrr en morguninn eftir.
Um sama leyti og Sigríður
Rannveg kom að flóðinu frá Ísa-
firði óku blaðamaður og ljósmynd-
ari að því Súðavíkurmegin. Snjór-
inn sem áður hafði hvílt í fjallinu
en ruddi sér braut niður hlíðina
skildi fólkið að sem ætlaði að
hittast morguninn eftir.
Óttinn við að fleiri flóð myndu
falla, hugsunin um að liggja undir
snjófarginu, jafnvel hafa sveipast
með því í sjó fram, leitaði á huga
þeirra sem komu að.
Óveðursskýin hrannast upp
Óvenjudjúp lægð kom upp að land-
inu að morgni sunnudagsins 15.
janúar 1995 og gekk norður með
austurströndinni. Vindurinn var
gríðarlegur og til marks um það
hafði vindhraði ekki áður mælst
jafn mikill á Hveravöllum og
þennan dag. Um leið var fann-
fergið ógurlegt.
Vindurinn sneri sér úr austri í
norðvestan og skilyrði urðu öll hin
fátíðustu. Snjór safnaðist upp í
fjallshlíðarnar ofan Súðavíkur sem
aldrei fyrr.
Um þetta voru sérfræðingar
Veðurstofunnar og heimamenn í
Súðavík meðvitaðir. Snjóflóða-
hætta vofði yfir staðnum og af-
ráðið var að gera fólki í tilteknum
húsum að yfirgefa þau. Við þá
ákvörðun var stuðst við þá þekk-
ingu og reynslu sem menn höfðu af
þeim snjóflóðum sem fallið höfðu
úr Súðavíkurhlíð, Traðargili og
Sauradal, þekktum farvegum snjó-
flóða í Álftafirði.
Heimildir voru til um snjóflóð
sem fallið höfðu ofan byggðarinn-
ar í Súðavík allt frá árinu 1884.
Árið 1973 féll flóð úr Traðargili og
braut hlöðu. Árið 1983 féll flóð úr
Súðavíkurhlíð sem hafnaði á fjár-
húsi. 50 fjár drápust. Í desember
1994 féll flóð úr Traðargili á
bæinn Saura. Einn maður var inn-
andyra og bjargaðist talsvert þrek-
aður. Íbúðarhúsið og tvö fjárhús
eyðilögðust og fimm kindur
drápust.
Hið ótrúlega gerðist
Það snjóaði allan sunnudaginn
fyrir áratug og vindurinn blés af
kappi. Þegar vindáttin breyttist
um kvöldið vofði hættan yfir.
Sveitarstjórinn í Súðavík var í
símasambandi við sýslumann og
sérfræðinga á Veðurstofunni og að
ganga tvö um nóttina var orðið
ljóst að mikil hætta var á flóði.
Hús voru rýmd þar sem hættan
var talin mest. Það var undan
Traðargili, á þeim slóðum sem flóð
hafði fallið tæpum mánuði áður.
Atburðir þeir sem síðar urðu
kenna mönnum að aldrei er of var-
lega farið. Sagan má sín lítils þeg-
ar óblíð náttúran er annars vegar.
Þegar klukkan var sautján mín-
útur gengin í sjö að morgni mánu-
dagsins 16. janúar 1995 féll
gríðarlegt snjóflóð úr Súðavíkur-
hlíð. Flóðið ruddi sér braut yfir 16
íbúðarhús. Í þeim voru alls 48
manns. 22 sluppu ómeiddir, 12
slösuðust. 14 létust.
Um kvöldið féll annað flóð, að
þessu sinni úr Traðargili, og rudd-
ist yfir þrjú hús. Enginn var innan-
dyra.
Snjóflóð höfðu áður fallið niður
báða farvegina; bæði úr Súða-
víkurhlíð og Traðargili. Þau höfðu
aldrei náð jafn langt, aldrei verið
jafn ógurleg. Aldrei hrifið með sér
mannslíf.
Leit og björgun hefjast
Björgunarstörf hófust þegar í stað
og voru unnin af heimamönnum
einum fyrstu klukkustundirnar
þar sem óveðrið teppti samgöngur
til Súðavíkur. Skyggnið var lítið og
aðstæður allar hinar verstu.
Miðstöð björgunarstarfs og að-
hlynningar slasaðra var komið upp
í frystihúsinu og þaðan var aðgerð-
um stjórnað.
Ástandið var skelfilegt. Margra
var saknað og margir voru alvar-
lega slasaðir. Flestir voru klæða-
litlir enda undir hlýjum sængum
þegar flóðið kom.
Aðhlynning slasaðra var erfið
og Sigríður Hrönn Elíasdóttir, sem
var sveitarstjóri í Súðavík vetur-
inn 1995, minnir á það í viðtali við
Fréttablaðið í dag að hvorki var
læknir né hjúkrunarfræðingur á
staðnum. Ekki heldur Rauðakross-
deild.
Heimamenn sinntu öllu leitar-
og hjálparstarfi fyrstu klukku-
stundirnar en klukkan tíu um
morguninn lagðist Fagranesið að
bryggju með á fimmta tug
björgunarsveitarmanna, lækna og
hjúkrunarfræðinga. Að auki voru
fjórir leitarhundar með í för sem
skiptu sköpum við björgunar-
störfin.
„Heimamenn voru uppgefnir.
Þeir höfðu verið úti í kolvitlausu
veðri og það þurfti að skipta og
koma skipulagi á hlutina. Allir
höfðu verið á útopnu,“ segir
Sigríður Hrönn.
Atburðirnir spyrjast út
Fréttir af snjóflóðinu í Súðavík
tóku að berast milli manna víðs
vegar um land fljótlega eftir
að það féll. Tíðindin bárust sím-
leiðis fyrstu klukkustundirnar því
Almannavarnanefndin vestra
meinaði fréttaflutning fjölmiðla af
atburðunum þar til klukkan hálf
ellefu. Voru þá rúmar fjórar
klukkustundir liðnar frá því flóðið
féll. Engu að síður var það á
margra vitorði og erlendar frétta-
stofur höfðu meira að segja haft
spurnir af hörmungunum.
Tíðindin höfðu meðal annars
borist út á sjó og til eyrna áhafnar-
innar á togaranum Bessa. Þar um
borð voru meðal annarra Súðvík-
ingarnir Hafsteinn Númason og
Ómar Már Jónsson.
Fyrstu upplýsingar voru óljósar
og misvísandi.
Um tíma héldu þeir að um lítið
flóð væri að ræða en síðar skildist
þeim að enn stærri hluti byggðar-
innar hefði farið undir en raunin
var.
Báðir áttu Hafsteinn og Ómar
fólk í Súðavík; Hafsteinn eigin-
konu og þrjú lítil börn og Ómar
foreldra, systur og hennar fjöl-
skyldu. Börn Hafsteins og konu
hans létust, systurdóttir Ómars
lést.
Átta af þeim fjórtán sem létust
í snjóflóðunum í Súðavík voru
börn.
Leitað í 36 tíma
Ekkert lát var á óveðrinu. Áfram
var leitað af kappi í snjófarginu og
rústum húsa. Liðsauki bættist
leitarmönnum með fleiri skipum
og íbúar Súðavíkur voru fluttir
sjóleiðina til Ísafjarðar.
Fyrst eftir að flóðið féll fundust
fjórir á lífi. Fyrri part mánudags-
ins fundust ellefu, þar af fimm
látnir. Á mánudagskvöldinu fund-
ust fjórir. Þrír voru látnir en fjórt-
án ára stúlka var á lífi. Hún hafði
legið undir snjónum í sextán
klukkustundir. Aðfaranótt þriðju-
dagsins fannst einn látinn en
undir morgun gerðist nokkuð sem
margir töldu kraftaverk. Tíu ára
piltur fannst á lífi. Hann hafði
þá verið í snjónum í 23 klukku-
stundir. Á þriðjudeginum fundust
þeir fimm síðustu sem saknað var,
allir látnir.
Leit stóð linnulaust í einn og
hálfan sólarhring frá því að flóðið
féll og þar til yfir lauk. Á þriðja
hundrað manns kom að leit og
björgun og vann við gríðarlega
erfiðar aðstæður; í aftakaveðri,
rafmagnsleysi og með hættuna á
frekari snjóflóðum yfir höfði sér.
Ný Súðavík rís
Loks rofaði til. Fólk reyndi að ná
áttum en gekk misjafnlega. Áfallið
var skelfilegra en orð fá lýst.
Við tók óvissa um framtíð
byggðar í Súðavík, óvissa um hagi
fjölda fjölskyldna, óvissa um lífið í
kjölfar hamfaranna og þess sára
missis sem svo margir urðu fyrir.
Þjóðin fylgdist með og reyndi
að leggja sitt af mörkum. Afráðið
var að flytja byggðina í Súðavík
innar í fjörðinn og reisa þar nýtt
þorp. Þeir sem vit hafa á og að
komu segja þann gjörning þrek-
virki. Slíkt hafði aldrei verið gert
og verður sjálfsagt aldrei gert
aftur.
Áfram stendur gamla byggðin
og þar er dvalið í hverju húsi yfir
sumarmánuðina. Í gömlu byggð-
inni miðri stendur minningar-
reitur um þá sem fórust og verður
hann vígður í sumar, þegar grasið
er grænt.
Fyrirsögnin er fengin úr lagi
Bubba Morthens, Með vindinum
kemur kvíðinn.
REYKJAVÍKURVEGI 66 • HAFNARFIRÐI • SÍMI 565 4100
ÚTSALA
10%-50%
AFSLÁTTUR
Opið til 16 í dag
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
KOMIÐ INN Í LITLA ÞORPIÐ VIÐ ÁLFTAFJÖRÐINN Gamla byggðin blasir við og yfir gnæfir fjallið Kofri. Snjókoman á dögunum var sú mesta í tíu ár.
Og fjallið það öskrar
Á morgun, sunnudag,
eru tíu ár liðin frá því að
snjóflóð féllu á Súðavík í
Álftafirði. Þau hrifu með
sér fjórtán mannslíf, ger-
eyddu mörgum híbýlum
og öðrum eigum fólks og
skildu eftir sig sár sem
aldrei gróa. Björn Þór
Sigbjörnsson blaðamað-
ur og Pjetur Sigurðsson
ljósmyndari heimsóttu
Súðavík í vikunni.