Fréttablaðið - 15.01.2005, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 15. janúar 2005 25
Opið frá kl. 12-16 laugardaga
Söluumboð:
Bílás sf., Akranesi - BSA, Akureyri - Betri bílasalan, Selfossi - SG Bílar, Reykjanesbæ
Mazda3 T 5 dyra 1,6 l kostar aðeins 1.795.000 kr.
Mazda er japanskur bíll, framleiddur í Japan
sem vermir nú toppsætið samkvæmt stærstu gæðakönnun Evrópu
og skarar fram úr hvað varðar endingu og lága bilanatíðni.
Komdu, reynsluaktu og gerðu verðsamanburð.
Gæðin eru augljós.
Aukahlutir á mynd: álfelgur
Gegnheil gæði og gott verð
Kynntu þér fjölda freistandi tilboða!
Sími 540 5400
Mazda3 er sérstaklega ríkulega búinn bíll þar sem saman fara
falleg hönnun, frábærir eiginleikar og einstakt verð.
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
SÍ
A
Allir gerðu miklu meira en þeir gátu
S
igríður Hrönn leið segir
blaðamanni og ljósmyndara
um gömlu byggðina í Súða-
vík og sýnir hvar áður stóðu
hús sem ýmist lentu undir flóðinu
eða voru flutt í nýju byggðina.
Hún þekkir svæðið vel enda hefur
hún búið í Súðavík bróðurpart
ævinnar. Snjóflóðin og það sem
þeim fylgdi reyndu mjög á hana
en hún hugsar ekki mikið um at-
burðina. Ekki lengur. „Ég get ekki
sagt að ég hugsi oft um þetta. En
þetta er alltaf í undirmeðvitund-
inni. Mér og fleirum hefur tekist
að vinna úr þessum málum en
öðruvísi kemst fólk ekki í gegnum
lífið. Við þurfum að taka því sem
að höndum ber og vinna úr því.
Sama hver áföllin eru.“
Og vitaskuld man hún glögg-
lega hversu mikið hörmungarnar
reyndu á hana. „Þetta tók mjög
mikið á mig. Ég hef aldrei, hvorki
fyrr né síðar, þurft að vaka í tvo
eða þrjá sólarhringa og vera með
allt á útopnu. Og þetta tók ekki
bara á mig, allir gerðu miklu
meira en þeir gátu. Þannig var
ástandið.“
Sigríður Hrönn rifjar upp
hvernig aðstæður voru í þorpinu
þegar flóðið féll. Veðrið var vit-
laust, vegir tepptir og sjóleiðin
torsótt. „Hér var björgunarsveit
skipuð heimamönnum. Svo var
bara sveitarfélagið. Það var ekki
Rauðakrossdeild, við vorum ekki
með lækni og ekki hjúkrunarfræð-
ing. Þannig var staðan hjá okkur.
Við notuðum bara það sem við
höfðum og fengum síðan aðstoð
með skipi rétt fyrir tíu um morg-
uninn. Heimamenn voru upp-
gefnir. Þeir höfðu verið úti í kol-
vitlausu veðri og það þurfti að
skipta og koma skipulagi á hlutina.
Allir höfðu verið á útopnu.“
Unnið samkvæmt hættumati
Þegar atburðir á borð við Súða-
víkursnjóflóðin eiga sér stað
skoða menn auðvitað hvort rétt
var að málum staðið. Spurningar
um frekari rýmingu húsa og jafn-
vel hvort þegar hefði átt að vera
búið að færa byggðina undan hlíð-
inni skutu upp kollinum. Sigríður
Hrönn segir að enginn hafi haft
hugmyndaflug til að ráðast í slík-
ar framkvæmdir þó öllum hafi
fundist það sjálfsagt eftir að flóð-
in féllu. „Unnið var eftir gildandi
hættumati, sem var fárra missera
gamalt. Ég held að engum hafi
dottið í hug að það þyrfti að rýma
þar sem flóðið féll, hvað þá að
flytja byggðina. En síðan eru
komnar allt aðrar upplýsingar.
Menn nota tölvuforrit til útreikn-
inga og forsendur hafa gjör-
breyst, ekki bara hér heldur um
allt land. Þar sem eru fjallshlíðar
og snjór, þar getur allt gerst.“
Sigríður Hrönn bendir á að
margt hafi lærst á þeim tíu árum
sem liðin eru og þannig sé það
alltaf. „Við lærum í lífinu.“
Hún minnist líka aðstoðarinn-
ar sem Súðvíkingar nutu í kjölfar
hamfaranna. „Við fundum ein-
staklega vel fyrir hlýhug sam-
félagsins og þetta hefði aldrei
gengið öðruvísi. Við fengum hjálp
frá ríkinu, almenningi, félaga-
samtökum, frá útlöndum, heil-
brigðisstéttinni, bara alls staðar.
Þessi aðstoð var ómetanleg.“
Sálræna aðstoðin skipti sköpum
Sigríði Hrönn finnst sem Súðvík-
ingum hafi flestum tekist að
vinna sig út úr sorginni sem skall
svo harkalega á þessu litla samfé-
lagi fyrir áratug. „Ég held að fólk
hafi tekið á öllu sem hefur komið
upp á og unnið úr því. Þetta hefur
gengið skref fyrir skref, ekki
með stórum stökkum.
Fólk hefur haldið áfram að lifa og
tekið því sem að höndum hefur
borið af æðruleysi. Samheldnin
er mikil og fólk hefur stutt hvert
annað.“
Níu mánuðum eftir snjóflóðin í
Súðavík féll gríðarlegt snjóflóð á
Flateyri og hreif með sér tuttugu
mannslíf. Sárar minningar Súð-
víkinganna helltust yfir. „Þá áttu
margir Súðvíkingar erfitt.
Snjóflóðið hér rifjaðist upp og
allt var þetta svo ofarlega í hugs-
uninni. En fólk hefur lent í áföll-
um hér í gegnum tíðina. Hér fór-
ust skip og menn misstu sína nán-
ustu. Þá var ekki þessi sálræna
aðstoð sem fólk fékk 1995. Við
sjáum það líka í kjölfar flóðanna í
Asíu að sérfræðingar segja að
fólk eigi að sýna tilfinningar til
að geta unnið úr sínum málum.
Fyrir 20 til 30 árum átti fólk að
harka af sér.
Þetta er allt svo gjörbreytt. Ég
held að þessi aðstoð hafi gert það
að verkum að fólk hefur getað
unnið úr þessu, orðið eðlilegar
manneskjur aftur og lifað eðli-
legu lífi.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Sigríður Hrönn Elíasdóttir var sveitarstjóri í Súða-
vík þegar snjóflóðin féllu 1995. Áður hafði hún, í
samráði við sýslumann og sérfræðinga Veðurstof-
unnar, látið rýma nokkur hús í þorpinu enda vofði
snjóflóðahættan yfir. Það dugði ekki til. Flóðið féll
annars staðar en reiknað var með og varð stærra
og ógurlegra en áður hafði sést í Álftafirði.
SIGRÍÐUR
HRÖNN
ELÍASDÓTTIR,
FYRRVERANDI
SVEITARSTJÓRI,
VIÐ KROSSINN
Í MINNINGAR-
REITNUM SEM
VERÐUR VÍGÐUR
Í SUMAR
„Við fundum
einstaklega vel fyrir
hlýhug samfélagsins
og þetta hefði aldrei
gengið öðruvísi. Við
fengum hjálp frá
ríkinu, almenningi,
félagasamtökum,
frá útlöndum, heil-
brigðisstéttinni,
bara alls staðar.
Þessi aðstoð var
ómetanleg.“