Fréttablaðið - 15.02.2005, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
ÞRIÐJUDAGUR
FJALLAÐ UM EES-SAMNINGINN
Stefán Geir Þórisson lögfræðingur fjallar
um EES-samninginn og fjölmiðlafrumvarp-
ið á Lögfræðitorgi Háskólans á Akureyri
sem haldið er í stofu L201, Sólborg við
Norðurslóð. Fyrirlesturinn hefst klukkan
hálf fimm í dag.
DAGURINN Í DAG
15. febrúar 2005 – 44. tölublað – 5. árgangur
STRÍÐINU ER LOKIÐ Eftir vel heppn-
aðan fund Abbas, leiðtoga Palestínumanna,
og Sharon, forsætisráðherra Ísraels, ríkir
bjartsýni um að friður sé í sjónmáli. Í viðtali
um helgina sagði Abbas að stríðinu við
Ísrael væri lokið. Sjá síðu 2
SVAF EKKI EFTIR RÁNIÐ Starfsfólk í
verslunum þar sem ræningi lét til skarar
skríða í fyrri viku segist vera að jafna sig.
Starfsmaður í söluturni átti erfitt með svefn
í kjölfar ráns. Eigandinn segir fólk almennt
svartsýnt á þjóðfélagsástandið. Sjá síðu 6
FANGELSIÐ EKKI BOÐLEGT Fang-
elsið á Akureyri er ekki mannsæmandi.
Fangarnir hafa ekkert við að vera, aðstaða
til útivistar er ófullnægjandi og loftræsting í
klefum léleg. Taka þarf bygginguna í gegn
frá grunni, segir fangelsisstjórinn. Sjá síðu 8
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
● heilsa
Þögnin um heimilis-
ofbeldi rofin
Brynhildur Barðadóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
ATVINNUMÁL Skattayfirvöld draga
lappirnar í málum þeirra sem
starfa ólöglega hérlendis, að sögn
Sveins Hannessonar, fram-
kvæmdastjóra Samtaka iðnaðar-
ins.
„Mér finnst að skattayfirvöld
eigi að elta þá sem eru með þessa
menn í vinnu,“ segir Sveinn. „Það
er verið að elta þessa erlendu
starfsmenn til að kanna hvort þeir
séu með atvinnuréttindi. Þær að-
gerðir eru bara fyrirsláttur. Mér
sýnist til dæmis ansi lítið gert í því
að skoða hvort Íslendingar séu
með iðnréttindi. Það er mjög
mikilvægt að það sé tekið á þess-
um málum og farið í aðgerðir til að
draga úr þessari svörtu starfsemi
sem er orðin mikil meinsemd hér.
Það er alveg óþolandi fyrir alvöru
fyrirtæki sem stunda heiðarleg
viðskipti að keppa við fyrirtæki
sem eru að svíkjast um, borga laun
sem eru undir almennum töxtum
og gefa ekkert upp til skatts.“
Indriði H. Þorláksson ríkis-
skattstjóri segir meginregluna
vera þá að ef ábendingar berist um
ákveðin fyrirtæki séu þær skoðað-
ar. Skattayfirvöld geti líka tekið
það upp sjálf að skoða fyrirtæki.
Aðspurður hvort skattayfirvöld
muni gera það í þessu tilfelli segist
hann ekki vilja tjá sig um það.
Sveinn segir tiltölulega nýlega
breytingu á skattareglum eina
skýringuna á því hvers vegna það
sé að færast í vöxt að fyrirtæki
gefi ekki upp laun starfsmanna.
„Virðisaukaskattur af vinnu á
byggingarstað var áður endur-
greiddur og það dró þessi viðskipti
mikið til upp á yfirborðið. Síðan
var endurgreiðsluhlutfallið lækk-
að úr 100 prósentum í 60 prósent.
Við vorum mjög uggandi yfir
þeirri breytingu og töldum að það
yrði til þess að auka svarta starf-
semi í byggingariðnaði, sem mér
sýnist að hafi orðið raunin.“
Indriði H. segir það álitamál
hvort ástæða sé til að endurskoða
þessar skattareglur. -th
18-40 ára
Me›allestur dagblaða
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups nóvember 2004
MorgunblaðiðFréttablaðið
62%
38%
Quarashi:
▲
SÍÐA 30
Tekur upp nýtt myndband
● keppir við stúlknagengi
SANDGERÐISHÖFN
Bærinn fékk 145 tonn af byggðakvóta
úthlutað.
Sandgerði:
Fá kvótann
með kvöðum
BYGGÐAKVÓTI Þeim sem fá byggða-
kvóta úthlutað í Sandgerði verður
gert að auka heildarkvóta bæjar-
félagsins. Ekki hefur verið ákveðið
hvort þeim verði gert að kaupa eða
leigja hann.
Sigurður Valur Ásbjarnarson
bæjarstjóri segir menn sameinaða í
að auka veg bæjarins. Styr standi
hins vegar um hvaða leið verði farin
til þess.
Bæjarstjórnin hefur leyfi sjáv-
arútvegsráðuneytisins til kvaðanna.
Fundað verður um málið í kvöld.
- gag
Bandarískt
líftæknifyrirtæki:
Stofnar fyrir-
tæki á Íslandi
VIÐSKIPTI Bandaríska fyrirtækið
Xytos, sem vinnur nú að skráningu
á Nasdaq-markaðinn, vinnur að
stofnun rannsókna- og þróunar-
fyrirtækis hér á landi.
Fulltrúar fyrirtækisins, sem sér-
hæfir sig í geymslu og rannsóknum
á stofnfrumum, hafa átt í viðræðum
við banka, endurskoðendur og hér-
lenda vísindamenn til að stofna hér
fyrirtæki. Þeir segja að megin-
ástæður þess að Ísland varð fyrir
valinu séu sterkt háskólasamfélag,
hagstæðir skattar og að líkur séu á
að löggjöf kringum slíkar rannsókn-
ir hér á landi verði skynsamleg.
- hh/sjá síðu 18
Unnu þrekvirki:
Björguðu
lífi vinar
LÍFSBJÖRG Tveir ungir drengir
björguðu lífi vinar síns á laugardag-
inn.
Róbert Heiðar Halldórsson, sem
er tíu ára gamall, varð skyndilega
mjög veikur þegar hann var ásamt
vinum sínum Alexander Theódórs-
syni og Arnari Þór Stefánssyni í
Kringlunni. Óhætt er að segja að
Alexander og Arnar Þór hafi unnið
lítið kraftaverk þegar þeir hjálpuðu
vini sínum, sem átti orðið erfitt með
andardrátt og var orðinn máttlaus,
heim til sín. Síðar kom í ljós að gat
hafði komið á lunga Róberts.
Sigríður E. Gunnarsdóttir, móðir
Róberts, segir engan vafa leika á
því í hennar huga að Alexander og
Arnar Þór hafi bjargað lífi Róberts.
Líf hans hafi nánast verið að fjara
út þegar hann kom heim.
„Þeir eru ofurhetjur í mínum
huga. Það var alveg frábært að sjá
hvernig þeir brugðust við og komu
vini sínum heim.“ - th/sjá síðu 4
Skattayfirvöld
draga lappirnar
Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins vill að skattayfirvöld rannsaki
fyrirtæki sem grunuð eru um að stunda svarta atvinnustarfsemi. Óþol-
andi sé fyrir heiðarleg fyrirtæki að keppa við fyrirtæki sem svíkist um.
SANNIR VINIR Í BÚSTAÐAHVERFINU Alexander Theódórsson og Arnar Þór Stefánsson unnu þrekvirki þegar þeir björguðu lífi Róberts
Heiðars Halldórssonar, sem situr á milli þeirra. Hundurinn Trítill, sem situr í fanginu á Alexander, var með í för daginn örlagaríka.
INDRIÐI H.
ÞORLÁKSSON
Skattayfirvöld geta
haft frumkvæði.
SVEINN
HANNESSON
Mikilvægt að taka á
svartri starfsemi.
BYGGINGAFRAMKVÆMDIR
Áætla má að meira en fimm prósent verkamanna í byggingariðnaði á suðvesturhorninu
séu útlendingar sem njóta ekki fullra réttinda. Myndin tengist ekki fréttinni á beinan hátt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
VEÐRIÐ Í DAG
VERSNANDI VEÐUR Í KVÖLD,
SKAPLEGT Í FYRSTU Kólnar hratt
síðdegis og í kvöld með hvassviðri eða
stormi. Rigning en slydduél eða él í
kvöld. Sjá síðu 4