Fréttablaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 18
Út að hlaupa
Nú þegar tekið er að birta er tilvalið að draga fram hlaupaskóna og fara út
að hlaupa. Hádegishléið í vinnunni getur nýst vel til að hlaupa og á mörgum
vinnustöðum er sturta svo hægt sé að skola af sér svitann á eftir.[ ]
Byggir upp liðbrjósk.
Glúkósamín 500gm
og Kondróitín 400 mg
fæst í apótekum og stórmörkuðum.
LIÐA PLÚS
- gott fyrir liðina -
Laugavegi 2 - 101 Reykjavík - Sími 552 1103 - www.jurtaapotek.is
Opið: Virka daga 10-18
Laugardaga 11-14
21 febrúar "Smyrsla- og olíugerð".
24 febrúar "Allt fyrir andlitið krem, maskar og fleira".
28 febrúar "Spavörur- baðsalt, skrúbb, olíur og vafningar".
Farið vel í hvað þetta gerir fyrir húð, líkama og sál.
Viltu læra að búa til 100%
hreinar náttúrulegar snyrtivörur?
Færð sýnishorn með heim.
Hvert námskeið kostar 4900 kr.
Skráning í síma 552 1103
Kolbrún grasalæknir kennir eftirtalin námskeið.
Umbo›s- og sölua›ili
sími: 551 9239
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
Arka • sími 899-2363
Smoothies
drykkirnir eru:
100% ÁVEXTIR
1 flaska = tveir ávextir
Engin aukaefni
Enginn viðbættur sykur
Máltíð í flösku!
Úði eykur kynhvöt
TILRAUNIR MEÐ TESTÓSTERÓNÚÐA
ÞYKJA LOFA GÓÐU Í ÁSTRALÍU.
Tilraunir með nýjan úða sem á að
auka kynlífsnautn kvenna ganga vel í
Ástralíu. Að sögn ástralskra vísinda-
manna er lítill áhugi kvenna á kynlífi
oft af líffræðilegum toga en afleiðing-
arnar geta síðan verið miklar áhyggj-
ur af ástandinu og jafnvel þunglyndi.
Úðinn inniheldur meðal annars karl-
hormónið testósterón. Hann er settur
á húðina og á að virka innan sólar-
hrings. Úðinn er talinn munu gagnast
mörgum konum en neikvæð áhrif
úðans eru þau að hárvöxtur kann að
aukast með notkun hans.
Hjálparsími Rauða krossins
leggur í þessari viku sérstaka
áherslu á að aðstoða þá sem
búa við heimilisofbeldi.
Þolendur þess eru hvattir til
að hringja í 1717.
„Heimilisofbeldi er eitt af best
geymdu leyndarmálum íslensks
samfélags og það getur átt sér stað
á ólíklegustu heimilum. Tilgangur
þessarar þemaviku Hjálparsíma
Rauða krossins er að rjúfa þá þögn
sem þolendur slíks ofbeldis búa við
og aðstoða þá við að komast út úr
þeim vítahring sem þeir eru í,“
segir Brynhildur Barðadóttir, verk-
efnastjóri Reykjavíkurdeildar
Rauða krossins.
Bryndís segir þolendur heimilis-
ofbeldis oft það bælda og niður-
brotna að þeir eigi erfitt með að
gefa sig fram. „Einkenni þeirra sem
beita ofbeldi er að útiloka fórnar-
lambið frá eðlilegri umgengni við
vini og fjölskyldu, þannig að það
hefur engan að leita til,“ segir hún.
Hjálparsíminn 1717 vill þarna grípa
inn í og hvetja fólk til að segja frá
reynslu sinni, fá andlegan stuðning
og vonandi varanleg úrræði.
Svarendur hjálparsímans hafa í
nokkrum mæli orðið varir við
heimilisofbeldi til þessa en Bryndís
telur tilfellin ekki vera það mörg að
þau séu í réttu hlutfalli við vanda-
málið í þjóðfélaginu.
„Við teljum að mun fleiri þyrftu
að leita sér aðstoðar því þó svo að
fjöldi kvenna komi í Kvenna-
athvarfið er það bara toppurinn á
ísjakanum,“ segir Brynhildur og
tekur fram að sjálfboðaliðarnir
sem svari í símann 1717 hjá Rauða
krossinum hafi fengið ákveðna
þjálfun til að koma til hjálpar í
svona tilfellum og benda fólki á
leiðir út úr vandanum. Hún vill líka
geta þess að Hjálparsími Rauða
krossins er opinn allan sólarhring-
inn og að hringingar í hann eru
gjaldfrjálsar og ekki skráðar á
símareikning.
gun@frettabladid.is
Til atlögu við ofbeldi á heimilum
Brynhildur Barðadóttir, verkefnastjóri Reykjavíkurdeildar Rauða krossins.
Heimilisofbeldi er böl sem snertir alla
fjölskylduna.