Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.02.2005, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 15.02.2005, Qupperneq 8
1Hvaða Íslendingur vann bresku kvik-myndaverðlaunin fyrir klippingu? 2Hvað er Svanur Halldórsson búinnað vera leigubílstjóri lengi? 3Hvað lið vann bikarkeppni karla íkörfuknattleik? SVÖRIN ERU Á BLS. 30 VEISTU SVARIÐ? 8 15. febrúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR HIV-veiran: Nýtt illvígt afbrigði komið fram SJÚKDÓMAR Læknar í New York hafa fundið nýtt afbrigði af HIV- veirunni sem engin lyf vinna á. Þeir sem fá veiruna virðast veikjast mun fyrr af alnæmi en hinir sem smitast af hefðbundn- um stofni. Ástæða er til að hafa áhyggjur af þessum tíðindum, segir Haraldur Briem sóttvarna- læknir. HIV-afbrigðið fannst í banda- rískum karlmanni í síðustu viku og segja læknar sem rannsakað hafa manninn að það sé nánast ónæmt fyrir hefðbundnum al- næmislyfjum. Það sem veldur læknunum sérstökum áhyggjum er hversu skammur tími leið frá því að maðurinn smitaðist af veirunni þar til ein- kenni alnæmis tóku að koma fram. Yfir- leitt tekur þetta ferli um áratug en hjá manninum komu ein- kennin fram strax eftir nokkra mánuði. H a r a l d u r Briem sótt- varnalækn- ir segir að þótt ekki megi álykta um of af einu tilfelli sýni þetta að fólk verði að gæta vel að sér hér eftir sem hingað til. Yfirleitt stökkbreyt- ast veirur í fólki sem er þegar á lyfjum en Haraldur segir eftir- tektarvert að maðurinn sem um ræðir hafi ekki verið í meðferð. Það bendir til að hann hafi fengið nýja afbrigðið ann- ars staðar frá. - shg Bílsprengja í Beirút: Rafik Hariri ráðinn af dögum BEIRÚT, AP Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, beið bana í öflugri sprengjuárás í Beirút í gær. Níu manns dóu í sprengingunni í gær auk Hariris og hundrað særð- ust. Enginn hef- ur lýst árásinni á hendur sér en talið er að hún tengist and- stöðu Hariris við afskipti Sýr- lendinga af málefnum Líb- anons. B í l a l e s t Hariris var á ferð um Beirút í gærmorgun þegar sprengingin varð. Í það minnsta níu manns lét- ust og hundrað særðust, þar á meðal fyrrverandi efnahagsráð- herra landsins. Hariri gegndi forsætisráðherra- embættinu drjúgan hluta tíunda áratugarins og átti mikinn þátt í að endurreisa landið eftir borgara- styrjöld sem stóð í tæp tuttugu ár. Síðastliðið haust sagði hann af sér embætti vegna deilna um afskipti Sýrlendinga af stjórn Líbanons en friðurinn í landinu er í raun í skjóli sýrlenskrar hersetu. Mikil spenna er í landinu af þessum sökum og óttast stjórnmálaskýrendur að morðið á Hariri leiði af sér frekari ólgu og átök. ■ FANGELSISMÁL Sigurður Eiríksson, fangelsisstjóri í fangelsinu á Akur- eyri, tekur undir með Valtý Stefáns- syni fangelsismálastjóra að umrætt fangelsi sé ekki mannsæmandi. Fangarnir hafi ekkert við að vera, útivistarstaða sé ófullnægjandi, loftræsting í klefum léleg og áfram megi telja. „Ég held að þetta hafi oft verið í umræðunni í gegnum árin,“ sagði Sigurður. „En það er ekkert annað að gera ef taka á á þessu í alvöru en að taka það alveg frá grunni eða þá að loka því.“ Eins og kom fram í máli Valtýs í Fréttablaðinu um helgina hefur ver- ið lokið við drög að stækkun fang- elsisins og nemur kostnaðaráætlun 150 milljónum króna. Þar af er breyting á húsnæði lögreglu upp á um 50 milljónir. Fangelsið verður stækkað um tvo klefa þannig að þar verði tíu klefar en megináhersla lögð á að gera það rekstrarhæft sem fangelsi, að sögn Valtýs, þar sem föngum verði sköpuð aðstaða til vinnu og útbúin aðstaða til heim- sókna, sem engin er í dag. „Fangelsið er hvorki fugl né fiskur,“ sagði Valtýr um ástand þess nú. „Að mínu mati á að loka því ef það verður ekki gert mannsæm- andi.“ Sigurður sagði að atvinnumálin í fangelsinu og heimsóknaraðstaðan hefðu verið helstu vandamálin. Fangar hefðu ekki mikið við að vera, nema það sem hver og einn fyndi sér sjálfur að gera innan fang- elsisveggjanna. Spurður um að- stæður til útivistar sagði hann að þær væru ekki góðar. „Það má segja að þeir hafi ekki komist út úr húsinu. Þetta er garður sem er girtur, þannig að þeir sjá ekki neitt nema upp í heiðan himin- inn. Síðan má segja að loftræsting í klefunum sé léleg.“ Fangelsið hefur hýst karlmenn á undanförnum árum, að sögn Sigurð- ar. Áður var þar rekið kvennafang- elsi í einhvern tíma, en það er löngu aflagt. „Þetta er yfirleitt fullt hérna, því miður,“ sagði Sigurður. „Það er tal- að um átta klefa en það eru ekki nema sjö sem eru notaðir. Það geng- ur ekki að hafa átta manns, það er of mikið.“ jss@frettabladid.is – kraftur til flín! – hefur þú séð DV í dag? „VIÐ STÖNDUM MEÐ OKKAR MANNI“ Fyrirliði íslenska landsliðsins tekinn fyrir meintan ölvunarakstur RAFIK HARIRI Myndin var tekin í gærmorgun í þann mund sem Hariri settist upp í bíl sinn. Nokkrum mínútum síðar var hann allur. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P FANGELSIÐ Fangelsið þarf nánast að byggja frá grunni, eigi það að vera mannsæmandi, segir fangelsisstjórinn. Maðurinn á myndinni er Egill Hermannsson fangavörður. HARALDUR BRIEM „Ég er á launum við að hafa áhyggjur,“ segir hann aðspurður um hvort ástæða sé til að óttast nýja afbrigðið. Bandarísk kennslukona: Giftist nem- anda sínum SEATTLE, AP Bandarísk kennslukona sem á sínum tíma var dæmd í fang- elsi fyrir að nauðga nemanda sínum hyggst nú giftast honum, tæpu ári eftir að afplánuninni lauk. Mary Letourneau var 34 ára gömul fjögurra barna móðir þegar hún hóf ástarsamband við nemanda sinn, Vili Fualaau, árið 1996 en hann var þá tólf ára gamall. Hún var fljótlega handtekin fyrir athæfið og hlaut vægan dóm enda ófrísk. Ári síðar var hún aftur handtekin fyrir sömu sakir og fékk þá sjö og hálfs árs dóm, þá aftur ófrísk. Nú er þau skötuhjúin loks sameinuð á ný með börnunum sínum tveimur. ■ Fangelsið ekki boðlegt Fangelsið á Akureyri er ekki mannsæmandi. Fangarnir hafa ekkert við að vera, aðstaða til útivistar er ófullnægjandi og loftræsting í klefum léleg. Taka þarf bygginguna í gegn frá grunni, segir fangelsisstjórinn. HERBERGI Í svona vistarverum dvelja fangarnir. Þeir hafa enga vinnuaðstöðu og verða því að hafa ofan af fyrir sér sjálfir.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.