Fréttablaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 33
25ÞRIÐJUDAGUR 15. febrúar 2005 Stangarhyl 3 · 110 Reykjavík · Sími: 591 9000 www.terranova.is · Akureyri Sími: 461 1099 Stangarhy l 3 · 110 R eykjavík · Sími: 591 9000 · ww w.terranov a.is · Aku reyri sími: 461 1099 Su m ar 2005 Barcelona Frakkland Kempervenn en Kýpur Portoroz Sérferðir Skemmtisigl ingar Þýskaland Salou frá kr. 45 .595 Portúgal frá k r. 47.695 Lignano frá kr . 47.395 Nú b ókar þú b eint á net inu á www .terra nova .is NÝT T Sp en na nd i v al ko st ur í yf ir 25 á r! Terra Nova er stolt af að kynna glæsilegt framboð ferða á nýju ári, á lægra verði en nokkru sinni fyrr. Um leið og við óskum þér ánægju- legs og spennandi ferðaárs, erum við stolt af að byggja á yfir aldar- fjórðungs reynslu. Njóttu glæsileg- asta ferðaúrvals okkar frá upphafi sumarið 2005. Portúgal frá kr. 47.695 Salou frá kr. 45.595 Lignano frá kr. 47.395 10.000 kr.afsláttur ef þú bókar strax.Tryggðu þér lægsta verðið. Nú bó kar þ ú bein t á neti nu á www .terra nova. is NÝTT Barcelona Frakkland Kempervennen Kýpur Portoroz Sérferðir Skemmtisiglingar Þýskaland Aðrir áfangastaðir FRÁBÆRT SUMARFRÍ - LÆGRA VERÐ E N N E M M / S IA / N M 15 19 2 Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: Útdráttur húsbréfa Húsbréf Koma þessi bréf til innlausnar 15. apríl 2005. 1. flokki 1991 – 53. útdráttur 3. flokki 1991 – 50. útdráttur 1. flokki 1992 – 49. útdráttur 2. flokki 1992 – 48. útdráttur 1. flokki 1993 – 44. útdráttur 3. flokki 1993 – 42. útdráttur 1. flokki 1994 – 41. útdráttur 1. flokki 1995 – 38. útdráttur 1. flokki 1996 – 35. útdráttur 3. flokki 1996 – 35. útdráttur Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800 www.ils.is Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt í Morgunblaðinu, þriðjudaginn 15. febrúar. Upplýsingar um útdregin húsbréf má finna á heimasíðu Íbúðalánasjóðs: www.ils.is. Alvöru leiklist Marina Carr er leikskáld. Fengur fyrir íslenska áhorfendur að sjá verk hennar á sviði. Fædd og upp- alin á Írlandi við sterka sagnahefð og álíka trú á fjölkynngi, fordæðu- skap og furðuverur eins og við þekkjum best. Leikrit sitt byggir hún á gríska harmleiknum Medeu eftir Evripídes. Verk Marinu Carr er feiknavel skrifað. Sá heimur sem hún skap- ar verki sínu og hugblær er bæði trúverðugur og heillandi. Litríkar persónur sem eiga allar þátt í framvindu sögunnar holdgast á sviðinu, vekja upp kenndir hjá áhorfandanum sem að jafnaði mara í hálfu kafi og allt litróf mannlegra tilfinninga speglast í þeim. Allt gengur upp. Búningar, gervi, litir, tónlist, ljós og skuggar; allt í jafnvægi. Sviðið er opið eins og til að sýna innstu kviku manneskj- unnar. Jón Axel Björnsson dregur fallega en látlausa mynd í rýmið og leikararnir fylla það með nær- veru sinni. List leikarans í sinni tærustu mynd kristallast í vel út- hugsaðri sýningu. Leikstjórinn sprengir upp verkið með stílbrigðum sem hefja leikrit- ið upp yfir hefðbundið raunsæi. Enginn óþarfi yfirskyggði þann galdur sem leikarar Þjóðleikhúss- ins frömdu svo stórkostlega fallega á frumsýningu. Halldóra Björnsdóttir fór á slík- um kostum í hlutverki Hesterar Svan að unun var að upplifa. Slík einbeiting og ástríða var í túlkun hennar að aðrar leikkonur mættu öfunda hana af. Kristbjörg Kjeld sýndi enn og aftur að hún er heimsklassa leikkona. Persóna hennar var óþolandi en samt svo innilega sympatísk og heillandi. Stjörnuleikur. Ekki síðri var ömmubarnið Krist- björg Jensdóttir sem lék litlu Jósí af slíkri skapfestu og einurð að undrum sætti. Baldur Trausti var firnagóður og loksins fékk maður að sjá hvers hann er megnugur sem leikari. Sá flottasti sem ég hef séð á sviði lengi. Kristján Franklín átti líka gott kvöld í hlutverki stór- bóndans sem glúpnaði fyrir hinni kynþokkafullu Hester Svan. Edda Arnljótsdóttir spilaði á kómíska strengi og samspil henn- ar með þeim Lilju Guðrúnu og Ragnheiði Steindórsdóttur í grímuleik í þriðja þætti heppnað- ist sérlega vel. Bráðsnjallt atriði. Guðrún Gísladóttir lék Kattar- konuna og það verður að segjast að túlkun hennar var einfaldlega tær snilld. Vigdís Hrefna Pálsdóttir fór með erfitt hlutverk ungu brúð- arinnar en komst vel frá því með því að nálgast það af barnslegri einlægni og uppskar mikla sam- úð. Siggi Sigurjóns var í litlu hlut- verki en tókst samt að stela sen- unni. Hinn ungi Arnmundur Ernst skilaði sínu vel og eins Ívar Örn sem afturganga. Leikstjórinn Edda Heiðrún hefur gefist listinni heilshugar á vald og náð fram því besta hjá öllum. Strengirnir stilltir hárfínt saman, en það eru fyrst og fremst átök persónanna sem eru í brennidepli og hvergi skorti á að hreinum til- finningum væri komið til skila. Þessi sýning Þjóðleikhússins er hreinasti gullmoli sem allir verða að sjá. LEIKLIST VALGEIR SKAGFJÖRÐ Þjóðleikhúsið Stóra svið: Mýrarljós eftir: Marinu Carr Þýðing: Árni Ibsen / Leikstjóri: Edda Heiðrún Backman / Radd- og grímuleik- stjórn og sviðshreyfingar: Giorgos Zam- boulakis / Tónlist: Atli Heimir Sveinsson / Leikmynd: Jón Axel Björnsson / Bún- ingar, grímur og gervi: Þanos Vovolis / Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson og Hörður Ágústsson / Leikarar: Halldóra Björnsdóttir, Baldur Trausti Hreinsson, Bríet Ólína Kristinsdóttir, Kristbjörg Jens- dóttir, Kristbjörg Kjeld, Edda Arnljótsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Kristján Franklín Magnús, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Ívar Örn Sverrisson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Ragnheiður Stein- dórsdóttir og Arnmundur Ernst Backman. / Hljóðfæraleikarar: Hjörleifur Valsson og Tatu Kantomaa. NIÐURSTAÐA: Þessi sýning Þjóðleikhússins er hreinasti gullmoli sem allir verða að sjá. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI MÝRARLJÓS Guðrún Gísladóttir og Halldóra Björnsdóttir í hlutverkum sínum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.