Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.04.2005, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 05.04.2005, Qupperneq 8
LEIT Leitin að Brasilíumanninum Ricardo Correia Dantas hafði enn ekki borið árangur í gær. Leitað hefur verið að honum á Stokkseyri og nágrenni frá laug- ardagskvöldi en síðast spurðist til ferða hans inni í bænum um hádegi þann dag. Í gær leituðu 90 hjálparsveitarmenn ásamt leit- arhundum að manninum en leit- að hefur verið í fjöru frá Þjórsá að Selvogi og fyrir ofan bæinn í dælum og tjörnum. Þá er búið að fín- kemba byggð- ina sjálfa en ekki þótti úti- lokað að Ricardo hefði farið í felur. Soffía Sig- urðardóttir, for- maður svæðis- stjórnar björg- unarsveita í Ár- nessýslu, segir að ekkert bendi til að maðurinn hafi ætlað að fara í burt. Hann hafi ætlað með fjölskyldu sinni á bíl til Selfoss en hafi lagt af stað á undan. Hann hafi líklega farið á mis við þau í þorpinu en hefði samt sem áður átt að rata heim. Soffía segir ekkert benda til þess að Ricardo hafi farið í felur. Hann hafi þó verið kvíðinn um að fá landvistarleyfi til að geta ver- ið áfram á Íslandi. Hins vegar hafi hann ekki verið það lengi í landinu að komið væri að úrslita- stundu um áframhaldandi dval- arleyfi hans. Lögreglan á Selfossi segir fjöruna við Stokkseyri varhuga- verða með hálum steinum og djúpum hvörfum og því vel hugs- andi að menn lendi þar í vand- ræðum. Til að mynda sé þekkt að búfénaður hafi flætt uppi á þess- um stað. Talið er líklegt að það sem fer í sjóinn við Stokkseyri reki upp í Selvog og er það ástæða þess að leitarsvæðið nær alla leið þang- að. Anna Kristjánsdóttir fóstur- móðir Ricardos segist ekkert geta getið sér til um afdrif hans. Hún hafi töluverðar áhyggjur af honum enda sé hann hluti af fjöl- skyldunni en Ricardo bjó hjá henni í fimm ár í Brasilíu. Hún sagði þó að hann hefði verið sannfærður um að hann fengi ekki að búa á Íslandi þar sem verið var að handtaka menn á Suðurlandi sem voru ólöglega í vinnu. solveig@frettabladid.is 1Hversu stór hluti íslenskra lögreglu-bíla er úreltur samkvæmt viðmiðum nágrannalanda okkar? 2Að hvaða leiti eru sænskar gallabuxursem Sautján býður til sölu frábrugðn- ar venjulegum gallabuxum? 3Hvað heita Íslandsmeistararnir í ein-liðaleik í tennis? SVÖRIN ERU Á BLS. 38 VEISTU SVARIÐ? 8 5. apríl 2005 ÞRIÐJUDAGUR MATVÖRUMARKAÐURINN Verðstríðið hefur lægt, í bili að minnsta kosti. Forráðamenn verslananna eru þó sammála um að vöruverðið sé lægra og samkeppnin sé ekkert minni en áður. Það sé þó misjafnt frá degi til dags. „Við höfum ekki skoðað verðið, þannig að það er erfitt að segja. Ég hef engar tölulegar upplýsingar, þannig að við getum ekki dregið beinar ályktanir ennþá en við mun- um gera það þegar fram í sækir,“ segir Henný Hinz, verkefnisstjóri verðlagseftirlits ASÍ. Guðmundur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Bónuss, segir að miklar verðbreytingar eigi sér stað daglega og vöruverðið sé mun lægra en áður. Guðjón Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Samkaupa, segir að „vitleysan“ sé búin þar sem menn seldu epli á sex krónur og mjólkur- lítrann á krónu eða gáfu hann. Ekk- ert lát sé á samkeppninni, þótt blæ- brigðamunur sé milli daga og versl- ana. Verðkannanir séu úreltar og gefi ekki rétta mynd. -ghs Fornleifasjóður: Öræfingar fá hæstan styrk ÚTHLUTUN Fornleifafélag Öræfa fékk hæstu úthlutun úr fornleifa- sjóði í ár, um 1,1 milljón króna. Fimm milljónum var úthlutað til tíu umsækjenda. Ragnar F. Krist- jánsson, formaður Fornleifafélags Öræfa, segist mjög stoltur af styrknum enda sé félagið rekið af áhugamönnum. Styrknum verður varið í upp- gröft við Fagurhólsmýri, á Bæ við Salthöfða sem fór undir í eldgosi árið 1362. Ragnar segir bæinn vera á borð við Stöng í Þjórsárdal. Bær- inn er fullur af ösku en uppgreftri verður haldið áfram í maí. - sgi FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B FE VERÐIÐ HELST LÁGT Verðstríðið hefur lægt en matvöruverð hefur samt haldist lágt, að sögn forráðamanna lágvöruverslana. Verðstríðið: „Vitleysan“ búin en verðið áfram lágt LEITAÐ Í HÖFNINNI Björgunarsveitarmenn leituðu við bryggjusporðinn á Stokkseyri í gær án árangurs. SOFFÍA SIGURÐ- ARDÓTTIR Mikið var að gera hjá formanni svæð- isstjórnar björgun- arsveita í Árnes- sýslu við að skipu- leggja leitina að Brasilíumanninum. SKOLA AF SÉR Félagar í Björgunarsveit Hafnarfjarðar skola af sér sjó á bensínstöðinni á Stokkseyri. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Óvíst um afdrif Ricardo Enn er leitað að hinum 28 ára Brasilíumanni sem hvarf á Stokkseyri á laugardag. Engar vísbendingar hafa fundist en leitað hefur verið bæði í fjöru, á landi og í húsum og sumarbústöðum á Stokkseyri og í kring. BÆR VIÐ SALTHÖFÐA Hleðslur bæjarins eru mjög heillegar og útlínur skýrar. Myndin er tekin við forn- leifauppgröft á síðasta sumri.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.