Fréttablaðið - 05.04.2005, Side 13
TILKYNNING
um sölu á hlutabréfum íslenska ríkisins
í Landssíma Íslands hf.
Söluhlutur.
Framkvæmdanefnd um einkavæðingu, f.h. fjármálaráðherra, hyggst selja allan eignarhlut ríkisins í Landssíma Íslands hf.
(Símanum), alls að nafnverði 6.949.732.496 kr., í einu lagi til eins hóps kjölfestufjárfesta. Um er að ræða 98,767666%
af útgefnu heildarhlutafé í félaginu.
Sala á eignarhlut ríkisins verður háð eftirfarandi skilyrðum:
a) að enginn einn einstakur aðili, skyldir eða tengdir aðilar, eignist stærri hlut í Símanum, eða í félagi sem stofnað er til
kaupa á hlut ríkisins í Símanum, en 45%, beint eða óbeint, fram að skráningu félagsins á Aðallista í Kauphöll.
b) að tiltekinn hluti keyptra hlutabréfa og ekki minna en 30% af heildarhlutafé félagsins verði af hálfu kaupanda boðinn
almenningi og öðrum fjárfestum til kaups fyrir árslok 2007, og sala á hlutum í félaginu til annarra eigi sér ekki staða
fyrr en að lokinni slíkri sölu.
c) að Síminn verði skráður á Aðallista Kauphallar hér á landi að uppfylltum skilyrðum Kauphallarinnar samhliða sölu til
almennings og annarra fjárfesta, og innlausnarrétti verði ekki beitt gagnvart núverandi hluthöfum í Símanum
(1,233%) fram að skráningu félagsins á Aðallista Kauphallar.
d) að kaupandi fari ekki með eignaraðild, beina eða óbeina, í fyrirtækjum í samkeppni við Símann hér á landi.
Athygli er vakin á því að hér er ekki um almennt útboð að ræða samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti nr. 33/2003.
Kynningargögn
Áhugasamir bjóðendur geta óskað eftir kynningargögnum með því að senda umsjónaraðila útboðsins, Morgan Stanley Ltd. í
Lundúnum, skriflegt erindi þess efnis. Nánari upplýsingar er jafnframt unnt að nálgast hjá umsjónaraðila.
Erindi til umsjónaraðila útboðsins skulu merkt:
Morgan Stanley Ltd.
European Media & Communications Group
att. Bertrand Kan
25 Cabot Square, Canary Wharf
London E14 4QA
UK.
Aðferðafræði við sölu
Allir áhugasamir aðilar, sem hafa til þess getu, nægjanlega reynslu og fjárhagslegan styrk til að ljúka kaupum, koma til
greina sem kaupendur. Upplýsingar um gang söluferlisins verða gefnar út með reglulegu millibili, en eðli máls samkvæmt
verða ákveðnar upplýsingar varðandi söluferlið bundnar trúnaði, sem og til að viðhalda forsendum til samkeppni.
Stefnt er að því að ljúka söluferlinu í júlí n.k. Framkvæmdanefnd um einkavæðingu áskilur sér rétt til þess að hafna öllum
tilboðum. Ráðherranefnd um einkavæðingu tekur ákvörðun um við hvaða aðila verður samið, að fengnum tillögum
framkvæmdanefndar um einkavæðingu.
Við mat á tilboðum verður meðal annars horft til verðs, fjárhagslegs styrks og lýsingar á fjármögnun, reynslu af rekstri
fyrirtækja, hugmynda og framtíðarsýn varðandi rekstur Símans, starfsmenn fyrirtækisins og þjónustu í þéttbýli og dreifbýli
næstu fimm árin, og annarra viðeigandi þátta.
Skil á óbindandi tilboðum
Þeir aðilar sem áhuga hafa á að koma til álita sem kaupendur eignarhlutar íslenska ríkisins í Landssíma Íslands hf. skulu
skila inn tilboðum til Morgan Stanley fyrir kl. 16.00 föstudaginn 6. maí 2005.
Nöfn tilboðsgjafa verða kynnt opinberlega að tilboðsfresti liðnum og verða óskir um nafnleynd ekki virtar.
ÞRIÐJUDAGUR 5. apríl 2005 13
SÁTT UM AFSÖGN
Askar Akajev, hinn landflótta forseti
Kirgisistans, og þingforsetinn Omurbek
Tekebajev í Moskvu í gær.
Kirgisistan:
Akajev und-
irritar afsögn
KIRGISISTAN, AP Askar Akajev undir-
ritaði afsagnarbréf sitt sem forseti
Kirgisistans í gær. Þetta staðfestu
þingmenn ellefu dögum eftir að
hann flýði land í kjölfar alþýðuupp-
reisnar sem leiddi meðal annars til
þess að mótmælendur ruddust inn í
stjórnarráðið í höfuðborginni Bis-
hkek.
Afsögnin, sem tekur gildi í dag,
var undirrituð í sendiráði
Kirgisistans í Moskvu, daginn eftir
að Akajev hitti sendinefnd bráða-
birgðavaldhafa landsins. Fyrir
henni for þingforsetinn Omurbek
Tekebajev. Vonast er til að afsögn-
in reynist mikilvægur áfangi að því
marki að koma á sáttum og stöðug-
leika í Kirgisistan. Akajev hafði
stýrt landinu í fjórtán og hálft ár,
eða allt frá því Sovétríkin liðuðust í
sundur. ■
Svíþjóð:
Femínistar
bjóða fram
SVÍÞJÓÐ Nýr femínistaflokkur mun
bjóða fram til þings í næstu þing-
kosningum í Svíþjóð. Þetta var til-
kynnt á blaðamannafundi í Stokk-
hólmi í gær. Fremstar í flokki fyrir
framboðinu fara Gudrun Schyman,
fyrrverandi formaður sænska
Vinstriflokksins, og samherjar
hennar.
„Við ætlum að byggja upp fé-
lagsskap sem er stefnt gegn feðra-
veldinu,“ hefur fréttavefur Dagens
Nyheter eftir Sofiu Karlsson, sem
á sæti í stjórn undirbúningsnefnd-
ar nýja framboðsins. Að hennar
sögn sé þess vegna hugsanlegt að
flokkurinn verði formannslaus. ■
■ DÓMSMÁL
SKILORÐ VEGNA HÓTANA Ungur
maður á Austfjörðum fékk tveggja
mánaða skilorðsbundinn fangelsis-
dóm fyrir húsbrot, eignaspjöll og
hótanir í garð félaga síns. Viður-
kenndi maðurinn sök sína en hann
hefur ekki áður komið við sögu lög-
reglu.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
VOR KOMIÐ Í ÖKUMENN Lögregl-
an í Borgarfirði stöðvaði sjö bíla
í fyrrakvöld vegna hraðaksturs
og mældist sá er hraðast ók á
tæplega 150 kílómetra hraða.
Segir lögregla að um fleiri sé að
ræða en venjulega og kennir
hækkandi sól um.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Töluverðar
líkur eru á því að meirihlutasam-
starf framsóknarmanna og sjálf-
stæðismanna í bæjarstjórn
Grundarfjarðar hefjist að nýju
en slit urðu á samstarfinu 23.
mars síðastliðinn. Þetta kemur
fram í máli Gísla Ólafssonar,
varaforseta bæjarstjórnar og
fulltrúa Framsóknar í bæjar-
stjórn.
Samstarf hefur verið með
flokkunum í ellefu ár en upp úr
slitnaði þegar ósamkomulag
myndaðist vegna skipulagsmála
varðandi leikskóla. Segir Gísli að
Framsóknarflokkurinn hafi vilj-
að láta fara betur yfir öll rök fyr-
ir viðbyggingu leikskóla sem
áður hafði verið samþykkt. Hins
vegar hafi sjálfstæðismenn ekki
viljað láta endurskoða fyrri
ákvörðun.
Að sögn Gísla höfnuðu hinir
listarnir í bæjarstjórn viðræðum
um meirihlutasamstarf. Því
neyðist sjálfstæðis- og fram-
sóknarmenn til að setjast niður
og komast að samkomulagi um
þetta mál en fundur verður hald-
inn á þriðjudag. Gísli segist
bjartsýnn á að samstarf flokk-
anna hefjist að nýju.
- sgi
Kosningabarátta:
Lofa ódýru
húsnæði
ENGLAND Allir sem þess óska munu
eiga færi á að eignast þak yfir höf-
uðið á viðráðanlegu verði gangi
kosningaloforð breska Verka-
mannaflokksins eftir en með slíkri
yfirlýsingu hófst formlega kosn-
ingabarátta flokksins fyrir næstu
þingkosningar.
Flokkurinn hyggst beita sér sér-
staklega í húsnæðismálum. Hefur
húsnæðisverð á flestum þéttbýlis-
stöðum landsins hækkað svo mjög
hin síðari ár að ungt fólk og efnam-
inna er nánast útilokað frá því að
kaupa sér fasteign en vísir að þessu
sama hefur átt sér stað á suðvestur-
horni Íslands undanfarna mánuði. ■
GRUNDARFJÖRÐUR
Í mars slitnaði upp úr meirihlutasamstarfi framsóknarmanna og sjálfstæðismanna í bæjar-
stjórn sem hafði staðið í ellefu ár.
Bæjarstjórn Grundarfjarðar:
Líkur á að meiri-
hlutinn haldi út
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P