Fréttablaðið - 05.04.2005, Síða 30
KÖRFUBOLTI Snæfell tók á móti
Keflavík í öðrum leik lokaúrslit-
anna í Intersportdeildinni í
körfuknattleik. Keflavík vann
fyrsta leikinn og því lykilatriði
fyrir Snæfellinga að fara með sig-
ur af hólmi. Það hafðist eftir
mikla baráttu og lokamínútur
leiksins voru æsispennandi. Loka-
tölur urðu 97-93.
Snæfell byrjaði betur, leitaði
meira inn í teiginn en í fyrsta
leiknum og ef til tvídekkunar kom
rataði boltinn til bakvarða Snæ-
fells sem nýttu færin vel. Pálmi
Freyr Sigurgeirsson skoraði 9 af
fyrstu 17 stigum Snæfells sem
náði mest 10 stiga forystu í fyrsta
fjórðung. Gestirnir áttu erfitt
uppdráttar gagnvart varnarleik
Snæfells til að byrja með en voru
þó aldrei langt undan. Snæfelling-
ar misstu einbeitinguna um stund-
arsakir, Keflavík hjó í muninn og
staðan eftir fyrsta leikhluta var
27-24. Það tók Keflavík innan við
mínútu að ná forystunni í öðrum
fjórðungi. Elentínus Margeirsson
kom inn á hjá Keflvíkingum, spil-
aði sterka vörn og barði sína
menn áfram. Þá var Gunnar Ein-
arsson drjúgur og skoraði nokkr-
ar góðar körfur. Leikurinn hélst
nokkuð jafn á þessum tíma og
staðan í leikhléi var 44-42 Snæ-
felli í vil.
Snæfell hóf seinni hálfleikinn
með 9-2 áhlaupi og jók forystuna í
7 stig. Töluverður hiti færðist í
leikinn um miðjan þriðja fjórðung
og voru bæði lið föst fyrir í vörn-
inni. Nick Bradford átti margar
laglegar hreyfingar þar sem hann
sneri á vörn Snæfells, gríðarlega
fjölhæfur leikmaður þar á ferð
sem lætur sér ekki nægja að
gleðja áhorfendur með þristum,
troðslum og sendingum heldur
samkjaftar allan leikinn, bæði við
áhorfendur og leikmenn. Keflavík
náði mest 8 stiga forystu í þriðja
fjórðung. Staðan eftir þriðja, 68-
73.
Æsispenna í lokin
Lokamínútur leiksins voru
æsispennandi. Mike Ames kom
Snæfelli einu stigi yfir, 92-91, þeg-
ar ein mínúta og 20 sekúndur voru
til leiksloka. Gunnar Einarsson
kom Keflavík yfir úr hraðaupp-
hlaupi. Þegar hálf mínúta var eft-
ir skoraði Sigurður Þorvaldsson
þriggja stiga körfu og breytti
stöðunni í 95-93. Magnúsi Gunn-
arssyni voru mislagðar hendur
þegar Keflvíkingar gerðu tilraun
til að jafna leikinn og Sverrir Þór
Sverrisson braut á Ames þegar 16
sekúndur voru eftir. Lokatölur
urðu 97-93.
„Þetta var hörkubaráttuleikur
og þeir unnu. Gott hjá þeim. Við
vorum óheppnir í lokin og þetta
hefði getað dottið okkar megin.
Við vorum ekki nógu skynsamir á
síðustu sekúndum en svona er
þetta bara,“ sagði Sigurður Ingi-
mundarson, þjálfari Keflavíkur.
„Þetta var baráttuleikur út í
gegn og mér fannst menn vera
mjög einbeittir þó þetta hafi ekki
allt rúllað fyrir okkur. Þetta var
hörkuleikur í hörkueinvígi og við
spiluðum vel í kvöld. Við vorum
afslappaðri í þessum leik og við
ætlum að halda því áfram.“
smari@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
2 3 4 5 6 7 8
Þriðjudagur
APRÍL
■ ■ LEIKIR
19.15 ÍR og KA mætast í
Austurbergi í úrslitakeppni DHL-
deildar karla í handbolta.
19.15 Haukar og FH mætast á
Ásvöllum í úrslitakeppni DHL-deildar
karla í handbolta.
19.15 Valur og HK mætast í
Valsheimilinu í úrslitakeppni DHL-
deildar karla í handbolta.
19.15 ÍBV og Fram mætast í
Vestmannaeyjum í úrslitakeppni
DHL-deildar karla í handbolta.
■ ■ SJÓNVARP
18.00 Meistaradeildin í fótbolta á
Sýn. Fréttaþáttur um
meistaradeildina í fótbolta.
18.30 Meistaradeildin í fótbolta á
Sýn. Beint frá leik Liverpool og
Juventus í meistaradeildinni.
18.30 Meistaradeildin í fótbolta á
Sýn 2. Beint frá leik Lyon og PSV
Eindhoven í meistaradeildinni.
20.40 Meistaradeildin í fótbolta á
Sýn. Útsending frá leik Lyon og PSV
Eindhoven í meistaradeildinni.
22.30 Olíssport á Sýn.
23.45 Meistaradeildin í fótbolta á
Sýn. Útsending frá leik Liverpool og
Juventus í meistaradeildinni.
Snæfell jafnaði metin í spennuleik
22 5. apríl 2005 ÞRIÐJUDAGUR
> Við gleðjumst yfir ...
... körfuboltanum sem er boðið
upp á þessa daganna í úrslita-
einvígi Keflavíkur og
Snæfells. Tvö frábær lið
setja á svið körfubolta-
sýningu í hver skipti sem
þau mætast og næsta
sýning verður sett á svið í
Keflavík á fimmtudaginn.
sport@frettabladid.is
> Við hrósum ...
... hinum 17 ára unglingalandsliðs-
markverði Gróttu/KR sem lokaði
markinu í öðrum leik liðsins gegn
Stjörnunni í átta liða úrslitum
DHL-deildar kvenna í gær.
Íris Björk Símonardóttir
kom inn í markið í
hálfleik í stöðunni 4–11
fyrir Stjörnuna, varði 12
af 16 skotum í seinni
hálfleik og lagði grunninn
að 17-15 sigri
Aðal leikur dagsins
Hafnarfjarðarslagur í handboltanum
Haukar og FH mætast á Ásvöllum,
heimavelli Hauka, í úrslitakeppni
DHL-deildar karla í handbolta í kvöld.
Haukar urðu deildarmeistarar en FH-
ingar tryggðu sér sæti í úrslitakeppn-
inni eftir sigur á Víkingi í umspili en
það skiptir ekki máli þegar þessi lið
mætast. Þá snýst allt um heiðurinn.
LEIKIR GÆRDAGSINS
Mikla athygli vakti þegar leikmönnum
úr körfuknattleiksliði ÍR var hótað með
SMS-sendingum meðan á undanúrslit-
unum í Intersportdeildinni stóð þar
sem liðið átti í höggi við Keflavík. Þetta
er annað árið í röð þar sem stuðnings-
menn úr röðum Keflvíkinga eru staðnir
að slíkum sendingum en Hlynur Bær-
ingsson, leikmaður Snæfells, mátti þola
hótanir með sama hætti á síðasta ári
þegar Snæfell mætti Keflavík í úrslitum.
„Við gerum allt sem í okkar valdi stend-
ur til að tækla þetta mál,“ sagði Her-
mann Helgason, formaður körfuknatt-
leiksdeildar Keflavíkur.
„Þetta viljum við ekki sjá í körfuboltan-
um, hvort sem það er tengt okkar liði
eða einhvers annars. Við höfum orðið
okkur úti um þessi símanúmer sem
hringt var úr til leikmanna ÍR-liðsins
en því miður voru
engin nöfn skráð þar
á bak við.“
Hermann segir at-
hæfið setja dökkan
blett á íþróttina og
að stjórn
Keflavíkur harmi að þetta hafi átt sér
stað. „Þetta er því miður alþekkt þegar
menn eru komnir í úrslitin og líklegt að
þarna séu á ferðinni aðilar sem að
sækja ekki leiki. Það þarf ekkert endi-
lega að vera að þetta séu Keflvíkingar
heldur,“ sagði Hermann sem fullyrti að
þetta væri ekkert
nýtt af nálinni.
„Menn á
borð við
Teit Örlygs-
son og Jón Kr.
Gíslason þurftu
að þola símhring-
ingar á nóttu sem degi
þegar Keflavík og Njarðvík mættust í úr-
slitum hér áður. Svona mál á náttúrlega
að útkljá á vellinum en ekki með svona
leiðindum. Við stöndum ekki fyrir svona
hlutum,“ sagði Hermann.
Snæfell vann annan leik lokaúrslita Intersportdeildarinnar með fjórum stigum, 97–93, í æsispennandi
leik í Stykkishólmi í gær. Snæfell vann lokaleikhlutann með 9 stigum og tryggðu sér sigurinn í lokin.
KEFLAVÍK Í KÖRFUNNI: HÓTANIR MEÐ SMS-SENDINGUM OG SÍMTÖLUM ORÐIÐ DAGLEGT BRAUÐ
Gerum allt til að stoppa þetta
Kennt þri., fim. og lau.
Reiðskólinn Þyrill
Næstu námskeið byrja 5. apríl
Fyrir börn kl. 16.30
Fullorðnir byrjendur kl. 18.30
Fullorðnir framhald kl. 17.30
REIÐSKÓLINN ÞYRILL
Uppl. og
skráning
í síma
896 1248
Kvennahandboltinn
GRÓTTA/KR–STJARNAN 17–15 (4–11)
Grótta/KR: Ragna Sigurðardóttir 5, Eva Margrét
Kristinsdóttir 4, Arna Gunnarsdóttir 3/2, Gerður
Rún Einarsdóttir 2, Inga Dís Sigurðardóttir 2/2,
Anna Úrsula Guðmundsdóttir 1. Sóley
Halldórsdóttir varði 6 skot í fyrri hálfleik en Íris
Björk Símonardóttir varði 12/1 í þeim seinni. sem
Grótta/KR vann með 9 mörkum, 13–4.
Stjarnan: Kristín Guðmundsdóttir 4/2, Hekla
Daðadóttir 4/4, Anna Blöndal 2, Hind
Hannesdóttir 2, Kristín Clausen 2, Ásdís
Sigurðardóttir 1 Jelena Jovanavic varði 24/3 skot,
15 þeirra í fyrri.
FRAM–HAUKAR 17–30 (8–16)
Markahæstar: Ásta Birna Gunnarsdóttir 5/1,
Sigurbjörg Jóhannsdóttir 4/2 – Hanna G.
Stefánsdóttir 11/3, Anna Halldórsdóttir 4, Harpa
Melsted 4, Martha Hermannsdóttir 4/3, Inga
Fríða Tryggvadóttir 3. Haukar eru komnir í
undanúrslit ásamt Val og ÍBV.
Úrslitakeppni DHL-deildar karla í handbolta byrjar í kvöld með fjórum leikjum:
Gaflarar berjast á banaspjótum
HANDBOLTI Lokahnykkurinn á
löngu handboltatímabili byrjar í
kvöld þegar átta liða úrslit í DHL-
deild karla hefjast en öll átta liðin
verða í eldlínunni í kvöld. Íslands-
meistarar Hauka hefja sína bar-
áttu gegn nágrönnunum og erkifj-
endunum í FH en fyrsti leikurinn
fer fram á Ásvöllum.
FH-ingar eru ekki taldir líkleg-
ir til afreka í þessari rimmu enda
tryggðu þeir sér sæti í úrslita-
keppninni með naumum sigri á
Víkingi í umspili en á sama tíma
sigruðu Haukar úrvalsdeildina.
Styrkleikamunurinn er því ansi
mikill en allt getur gerst í úrslita-
keppninni þar sem lítið svigrúm
er fyrir mistök.
Sú rimma sem fyrir fram er
talin mest spennandi er viðureign
Vals og HK. Bæði lið hafa verið
frekar óstöðug í vetur en miklar
væntingar voru gerðar til HK-
liðsins og þeim var meðal annars
spáð Íslandsmeistaratitlinum af
forráðamönnum liðanna síðasta
haust. Það hefur hallað undan fæti
hjá Kópavogsbúum í síðustu leikj-
um en Valsmenn hafa verið að
styrkjast frekar en annað upp á
síðkastið.
Rimma ÍR og KA verður einnig
áhugaverð en bikarmeistarar ÍR
mæta til leiks með laskað lið en
landsliðsmaðurinn Ingimundur
Ingimundarson mun reyna að
leika meiddur í úrslitakeppninni
en hann þarf að fara í speglun
fyrr frekar en síðar.
ÍBV hefur verið á stöðugri upp-
leið í allan vetur og þeir eru marg-
ir sem spá því að þeir fari langt í
vetur. Sérstaklega eftir að þeir
fengu stórskyttuna Tite Kalanda-
dze í sínar raðir. Eyjamenn taka á
móti Fram sem tryggði sér sæti í
úrslitakeppninni með því að sigra
1. deildina. Framarar tefla fram
frekar ungu liði og mat sérfræð-
inga er að þeir verði auðveld bráð
fyrir lið ÍBV. - hbg
HVAR Á ÉG AÐ SETJA BOLTANN? ÍR-ingurinn Ragnar Helgason sést hér í leik gegn ÍBV
fyrr í vetur. Hann verður í eldlínunni með sínum mönnum gegn KA í kvöld.
Kvennahandboltinn:
Íris breytti
öllu á Nesinu
HANDBOLTI Haukakonur tryggðu
sér sæti í undanúrslitum DHL-
deildar kvenna með 13 marka
sigri á Fram, 17-30, í öðrum leik
liðanna í 8 liða úrslitum í gær en á
Nesinu vann Grótta/KR 17-15
sigur á Stjörnunni og liðin mætast
því í úrslitaleik á miðvikudaginn.
17 ára markvörður Gróttu/KR,
Íris Björk Símonardóttir, lokaði
markinu í seinni hálfleik, varði þá
12 af 16 skotum og sá til þess að
Grótta/KR vann upp sjö marka
forskot og tryggði sér oddaleik á
miðvikudag. Íris varði öll skot
utan af velli nema eitt.
„Ég er í skýjununm og
hálforðlaus yfir þessu, því það á
ekki að vera hægt að koma svona
til baka. Stelpurnar sýndu mikinn
andlegan styrk, ég sá engan
uppgjafarsvip á neinni í liðinu
þótt við værum sjö mörkum undir
í hálfleik og etta var síðan
ótrúlega glæsileg innkoma hjá
Írisi,“ sagði Kári Garðarsson,
þjálfari Gróttu/KR. ■
Intersportdeildin - úrslit
SNÆFELL–KEFLAVÍK 97–93
Stig Snæfells: Mike Ames 20 (6 stoðsendingar),
Calvin Clemmons 20, Hlynur Bæringsson 18 (17
fráköst, 7 stoðsendingar), Sigurður Þorvaldsson
15, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 11, Magni
Hafsteinsson 9, Helgi Reynir Guðmundsson 2.
Stig Keflavíkur: Nick Bradford 24 (8 fráköst, 6
stoðsendingar), Jón Nordal Hafsteinsson 16 (11
fráköst, 6 í sókn), Gunnar Einarsson 16, Magnús
Þór Gunnarsson 14, Anthony Glover 13, Sverrir
Þór Sverrisson 6, Arnar Freyr Jónsson 2.
Staðan er jöfn í einvíginu, 1–1, og næsti leikur
fer fram í Keflavík á fimmtudaginn kemur.
ALLT JAFNT Á NÝ Bárður Eyþórsson stjórnaði lærisveinum sínum í Snæfelli til sigurs í
öðrum leiknum í úrslitaeinvíginu gegn Keflavík og því er allt jafnt eftir tvo leiki.
Snæfellingar voru sterkari á lokamínútunum í Hólminum í gær en það var mikil spenna í
leiknum allt frá upphafi til enda. Fréttablaðið/E.Ól.