Fréttablaðið - 05.04.2005, Side 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
Frjáls íbúðalán
4,15% verðtryggðir vextir
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar.
Þú getur litið inn í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000
eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
Engin sk
ilyrði
um önn
ur
bankav
iðskipti
100%veðsetningarhlutfall
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Málið er dautt
Útvarpsstjóri bjargaði sér fyrirhorn og snaraði fram nýjum
fréttastjóra í einum grænum. Van-
trausti virðist hafa verið breytt í
traust á einum sunnudegi og allir
eru menn til þess að sættast. Búið
er að grafa stríðsaxir og málið er
dautt. Gott og vel, styrjaldarástand
er ekki gott til lengdar og ljóst að
allir ganga draghaltir frá þessu
undurfurðulega máli. Enn og aftur
sannast að enginn vinnur í stríði og
eftir því sem styrjaldir dragast á
langinn því fleiri verða fórnarlömb-
in.
HVAR er réttlætið? spyrja sjálf-
sagt margir og einhverjir eru jafn-
vel enn að klóra sér í hausnum og
velta því fyrir sér um hvað þetta
fjaðrafok snerist eiginlega. Flestir
eru þó sammála um að ofurstóra
fréttastjóramálið hafi fyrst og
fremst snúist um sjálfsstæði frétta-
stofu í almannaeigu og fjarlægð
hennar við stjórnmálaöflin. Þar á
bæ er í raun alls ekki hægt að
stjórna skútu með gæðastimpil
stjórnmálaflokka á bakinu og það
er ógreiði við hvern mann að veita
honum slíka stimpla.
ÚTVARPSRÁÐ hefur fengið sterk
skilaboð um að setjast á sína klístr-
uðu, pólitísku putta og fyrir liggur
að það eru afar fáir sem vilja af-
skipti flokkshestanna af ráðningum
á fréttastofu – þrátt fyrir það laga-
lega hlutverk sem gæðingarnir í
ráðinu telja sig hafa. Mörgum
finnst illt þeirra ranglæti en verra
þeirra réttlæti og taka undir með
Jón Hreggviðssyni og biðja um að
vera bara lausir við réttlætið.
EFTIR STENDUR að einn starfs-
maður – og annar sem vann sér það
til saka að vilja verða starfsmaður
– liggja í valnum. Ópólitíski og hlut-
lausi útvarpsstjórinn nýtur að því
er virðist traustsins góða enn á ný
og allt er með kyrrð og spekt. Þeir
sem kalla eftir umræðu um frjálsar
og óháðar fréttastofur í almanna-
eigu og einkaeigu verða að bíða enn
um sinn. Slík umræða er of loðin og
víðtæk og ekki eins dramatískt út-
sendingarefni. Stutt er síðan fjöl-
miðlamenn á stöð númer tvö óku
um götur höfuðborgarinnar á lim-
mósínu með fréttirnar í aftursæt-
inu og kannski er það stíllinn sem
koma skal hjá þeim frjálsu. Þá sæk-
ir að manni hroll og landsmaðurinn
finnur yfirþyrmandi þörf fyrir
frjálsa og óháða fréttastofu í al-
mannaeigu.
BAKÞANKAR
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR