Fréttablaðið - 18.04.2005, Qupperneq 70
26 18. apríl 2005 MÁNUDAGUR
Hinn sigursæli þjálfari
Vals, Willum Þór Þórs-
son, segir mikinn metn-
að ríkja á Hlíðarenda og
þar á bæ hugsi menn
stórt þessa dagana.
Þjálfarinn hefur mikla
trú á því liði sem hann
hefur í höndunum.
FÓTBOLTI Frammistaða karlaliðs
Vals í vetur hefur vakið verð-
skuldaða athygli enda hefur liðið
unnið öll þau þrjú mót sem það
hefur tekið þátt í. Valur hefur
ekki unnið marga titla í karlabolt-
anum síðustu ár og því vekur ár-
angur liðsins mikla athygli og
menn eru þegar farnir að spá því
góðu gengi í Landsbankadeildinni
í sumar.
Það eru kannski ekki óraun-
hæfar spár því félagið hefur sank-
að að sér sterkum leikmönnum í
vetur og við stjórnvölinn er nú
einhver sigursælasti þjálfari
landsins, Willum Þór Þórsson,
sem vann tvo Íslandsmeistaratitla
með KR.
Hann fékk ekki að halda starfi
sínu áfram í Vesturbænum og
erkifjendurnir hinum megin við
lækinn voru fljótir til og tryggðu
sér þjónustu þessa kraftmikla
þjálfara sem iðulega lætur mikið
til sín taka á hliðarlínunni.
Mikill hugur í Valsmönnum
„Við erum ekki búnir að setja
okkur markmið fyrir sumarið en
það er mikill hugur í Valsmönnum
og leikmenn eru mjög hungraðir í
að standa sig í deild þeirra bestu,“
sagði Willum Þór en stjórn Vals
gaf það út fljótlega eftir að úr-
valsdeildarsætið var tryggt að fé-
lagið ætlaði sér ekki að vera í
botnbaráttu næsta sumar. Stefnan
væri að koma Val aftur í hóp
þeirra bestu og það strax. Sá
metnaður hefur endurspeglast í
kaupum á sterkum leikmönnum
og síðan í þjálfaranum sigursæla.
Eðlilegt að vilja ná árangri
„Það er eðlilegt markmið að
vilja ná árangri. Svo er spurning
hvernig gengur að ná þeim ár-
angri,“ sagði Willum en er hann
búinn að spá í það hvað sé eðlilegt
að fara fram á mikið af þessu liði
næsta sumar? „Ég hef eitthvað
leitt hugann að því en við höldum
okkur við tímatengd markmið og
erum ekkert að fara fram úr sjálf-
um okkur í því,“ sagði Willum eins
og góður pólitíkus.
Willum hefur ekki farið leynt
með það í gegnum tíðina að hann
er ákaflega metnaðarfullur þjálf-
ari og í ljósi þess hlýtur hann að
setja stefnuna hátt á sínum nýja
vinnustað.
„Ég get fullyrt að við erum
ekki að fara í næsta leik til að tapa
honum,“ sagði Willum en hefur
hann trú á því að þetta Valslið geti
farið alla leið í sumar? „Já, við
trúum því. Það eru líka 10% líkur
á því þegar mótið er flautað á.
Metnaðurinn, hungrið og
mannskapurinn er til staðar. Ég
ætla samt ekki að lýsa því yfir að
við verðum Íslandsmeistarar. Það
hef ég aldrei gert og slíkar yfir-
lýsingar skila engu.“
Sérstaklega góður andi
Þrátt fyrir gott gengi í vetur
segist Willum ekki hafa fundið
fyrir því að menn á Hlíðarenda
séu farnir að byggja skýjaborgir.
Þótt mikið sé af nýjum mönnum í
hópnum hefur Willum gengið vel
að púsla liðinu saman.
„Þetta hefur allt gengið mjög
vel og þessi hópur er alltaf að
hristast betur og betur saman.
Það er sérstaklega góður andi í
þessum hópi. Það var fyrir í liðinu
ákveðinn kjarni og svo er búið að
blanda við þann kjarna reynslu-
miklum og félagslega sterkum
einstaklingum. Þetta eru metnað-
arfullir einstaklingar sem hafa
sett sér háleit markmið og við
erum að hrista saman mjög þéttan
hóp,“ sagði Willum.
Ekki erfitt að fara í Val
Það vekur alltaf athygli þegar
leikmenn og þjálfarar fara á milli
Vals og KR. Þegar tilkynnt var um
ráðningu Willums hjá Val skiptust
stuðningsmenn félagsins í tvennt
– þeir sem fögnuðu komu hans til
félagsins og þeir sem vildu ekki
sjá „einhvern KR-ing“ stýra lið-
inu. Það liggur því beinast við að
spyrja hver sé helsti munurinn á
að starfa fyrir þessi tvö félög.
„Það er ekkert svo ólíkt enda
eru bæði félög með mjög sterka
og ríka hefð. Þau eru einnig bæði
byggð upp af fólki sem hefur mik-
inn metnað,“ sagði Willum en
hvernig var það fyrir harðan upp-
alinn KR-ing að ganga til liðs við
Val?
„Það var ekki erfitt. Mér
fannst þetta vera spennandi tæki-
færi og þurfti ekki að hugsa mig
tvisvar um þegar kallið kom. Ég
er Valsari í dag en ég er líka KR-
ingur. Maður afneitar ekki upp-
runanum og það mun ég aldrei
gera,“ sagði Willum Þór, sem bíð-
ur spenntur eftir því að leiða sína
menn til leiks gegn KR í Frosta-
skjólinu í sumar.
henry@frettabladid.is
Trúum því að við getum orðið meistarar
LÍÐUR VEL Í VAL Willum Þór Þórsson
segist ekki hafa þurft að hugsa sig tvisvar
um þegar Valur falaðist eftir starfs-
kröftum hans. Willum hefur mikla trú á
hópnum sem hann hefur undir höndum
hjá Val og trúir því að Valur geti farið alla
leið í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Juventus og AC Milan höfðu sæta-skipti á toppi ítölsku A-deildarinn-
ar í knattspyrnu í gær þegar síðar-
nefnda liðið tapaði
óvænt fyrir Siena,
2-1, á meðan
Juventus valtaði yfir
Lecce, 5-2. Sænski
landsliðsmaðurinn
Zlatan Ibrahimovic
var óstöðvandi fyrir
Juventus í leiknum
og skoraði þrennu. AC Milan er nú
þremur stigum á eftir Juventus þeg-
ar sjö umferðir eru eftir af leiktíð-
inni.
Frjálsíþróttakonan Silja Úlfars-dóttir hafnaði í þriðja sæti í 200
metra hlaupi á móti í Suður-Kar-
olínu um helgina. Silja hljóp á 24,27
sekúndum og kom
í mark tæpum
tveimur sekúndum
á eftir bandarísku
landsliðskonunni
LaTasha Colander
sem varð í fyrsta
sæti á 22,52 sek-
úndum. Silja lenti
hins vegar í fyrsta sæti ásamt boð-
hlaupssveit skóla síns í 400 metra
boðhlaupinu.
Petr Cech, markvörður Chelsea,greindi frá því um helgina að
litlu hefði munað að hann gengi til
liðs við Arsenal fyrir fjórum árum
síðan. Þá var hann til mála hjá
Sparta Prag en það var eingöngu
vegna þess að
Cech fékk ekki at-
vinnnuleyfi sem að
kaupin gengu ekki í
gegn. „Ég var ekki
nema 19 ára og var
ekki í landsliðinu.
Ég hefði þurft að
vera búinn að leika
75% landsleika síðustu tveggja ára
til að fá leyfið. Þetta var mikið áfall
fyrir mig á þessum tíma,“ sagði
Cechsem þess í stað fór til Rennes í
Frakklandi. „Eftir á að hyggja þá
held ég að ég hafi ekki verið tilbú-
inn fyrir Arsenal. En ég sé ekki eftir
neinu. Ef ég hefði farið til Arsenal
væri ég ekki hjá Chelsea í dag. Nú
spila ég í frábæru liði og spila að-
eins stóra leiki. Ég get ekki beðið
um meira,“ segir Cech.
ÚR SPORTINU