Fréttablaðið - 09.08.2005, Síða 21
ÞRIÐJUDAGUR 9. ágúst 2005
Vísindamenn gætu hjálpað fólki
að borða meira af heilsusamleg-
um mat með því að setja lygar í
hausinn á því. Þetta kemur fram
í nýrri rannsókn við háskólann í
Kaliforníu í Bandaríkjunum þar
sem vísindamenn halda því
fram að sá matur sem fólki líkar
sé tengur við æskuminningar.
Vísindamennirnir halda að þeir
geti sett ósannar minningar í
hausinn á fólki og tengt óhollan
mat við vondar minningar.
Í grein sem gefin var út í
bandaríska blaðinu Proceedings
of the National Academy of Sci-
ences kemur fram að vísinda-
menn við háskólann í Was-
hington og Kwantlen-háskólann
í British Columbia létu fólki
finnast jarðarberjaís vondur
með því að láta það halda að því
hefði orðið óglatt af ísnum í
æsku. Þeir sem tóku þátt í rann-
sókninni voru beðnir um að
fylla út spurningalista um
reynslu þeirra af mat og hvað
þeim líkaði við. 47 nemendum
var sagt að þeim hefði orðið
óglatt af jarðarberjaís í æsku og
næstum tuttugu prósent sögðu
eftir rannsóknina að þeim hefði
orðið óglatt af ísnum og ætluðu
að forðast að borða hann fram-
vegis.
Þetta gæti því orðið nýr
megrunarkúr, hver veit?
Pólarolía er hreineimuð
náttúruolía sem er nú fá-
anleg hér á landi. Olían er
framleidd úr spiki af
grænlenskum sel og
hefur verið rannsökuð í
þaula af norskum vís-
indamönnum. Niður-
stöður rannsóknarinnar
benda til þess að olían
gagnist sjúklingum með
þarmavandamál og gigt og hafa
þeir jafnvel upplifað meðferð-
ina sem kraftaverk. Olían
virkar á auma og stífa liði, er
styrkjandi fyrir ónæmis-
kerfið, hjálpar til við melt-
inguna auk þess sem hún
hefur örvandi áhrif á vöxt
hárs og nagla. Pólarolían
fæst í lyfja- og náttúrulækn-
ingabúðum um allt land.
Með lækkandi sól og haustið
á næsta leiti er spurning
hvort huga þurfi að breyttum
næringarþörfum. Sumarið og
haustið eru besti tíminn til að
fá næringarríka og ferska
fæðu og því tilvalið að grípa
tækifærið.
„Næringarþarfir eru ekki árs-
tíðabundnar,“ segir Brynhildur
Briem næringarfræðingur, sem
starfar sem sérfræðingur hjá
Umhverfisstofnun. „Aftur á móti
er fæðan sem er á boðstólum
misjöfn eftir árstíma og eru sum-
arið og haustin albesti tíminn,
þar sem fæðan er fersk,“ bætir
Brynhildur við. Á þessum tíma
er verið að taka upp nýtt og
ferskt grænmeti og úrvalið því
mikið og verðlag gott. „Þetta er
næringarríkasta fæða sem völ er
á og því tilvalið að nota tækifær-
ið og borða sem mest af fersk-
metinu sem er á boðstólum, og
bráðum förum við að fá kjöt af
nýslátruðu,“ segir Brynhildur.
Hún bætir einnig við að fólk eigi
að nota þennan tíma til að elda
grænmetisrétti því ekki sé alltaf
nauðsynlegt að borða kjöt og
fisk.
Brynhildur segir ekki vera
sérstaka þörf á fæðubótarefnum
fyrir fullfrískt fólk en á haustin
sé ágætt að byrja að taka lýsi og
halda því áfram yfir veturinn.
„Með því að borða fjölbreytt
fæði getur venjulegt fólk upp-
fyllt næringarþarfir sínar en
mælt er með að taka lýsi yfir
vetrartímann til að fá D-vítamín.
Yfir sumartímann erum við vel
sett af D-vítamíni eftir að hafa
verið úti í sólinni,“ segir Bryn-
hildur.
Á haustin taka margir sig til
og fara að sinna líkamsrækt að
nýju og ekki er óalgengt að fólk
sinni henni eftir vinnu. „Það er
vont að fara orkulaus í líkams-
ræktina og því er ágætt að fá sér
til dæmis einn banana í kaffitím-
anum svo maður hafi smá orku,“
segir Brynhildur. „Gömlu góðu
reglurnar gilda alltaf, borða fjöl-
breytta fæðu og borða oft á dag
og reglulega.“ kristineva@frettabladid.is
Á þessum árstíma er mikil grænmetisupp-
skera og mikið úrval í verslunum af fersku
og næringarríku grænmeti.
Nú þegar grænmetið er ferskt og dásam-
legt er tilvalið að elda grænmetisrétti.
Ósannar minningar gætu hjálpað fólki að
forðast skyndibita og annan óhollan mat.
Fæðan næringarrík á haustin
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Lygar og ósannindi
nýr megrunarkúr?
Vísindamenn telja að þeir geti sett ósannar minningar í haus-
inn á fólki til þess að það hætti að borða óhollan mat.
Olía af grænlenskum sel
Pólarolía er nú fáanleg hér á landi en hún hefur gefið gigtar-
og magasjúklingum góða raun.