Fréttablaðið - 09.08.2005, Síða 38
9. ágúst 2005 ÞRIÐJUDAGUR
> Við finnum til með ...
... Framaranum Kristjáni Haukssyni sem
fékk afar slæmt högg í andlitið er hann
fékk fót Grétars Sigfinns Sigurðssonar í
höfuðið af fullum krafti. Kristján
var greinilega nefbrotinn eftir
viðskiptin en kláraði engu
síður hálfleikinn. Það er
reyndar stórfurðulegt að
honum hafi verið leyft að
leika áfram en honum
var blessunarlega skipt
út af í hálfleik.
Efast um heilindi Fram
Valsmenn voru æfareiðir yfir því að Bo
Henriksen hafi fengið að spila með Fram
gegn Val í gær en leikmaðurinn skipti yfir
í Fram úr Val fyrr í sumar. Heiðursmanna-
samkomulag mun hafa ríkt um að hann
spilaði ekki gegn Völsurum og segja
Valsmenn samkomulagið hafa verið
brotið. Bo skoraði bæði mörk Fram í
leiknum gegn Val í gær.
sport@frettabladid.is
22
> Við erum hræddir um ...
.... að nú sé nánast formsatriði eitt fyrir FH
að tryggja sér Íslandsmeistara-
titilinn annað árið í röð.
Valur, sem tapaði, 2–1,
fyrir Fram í gær, var eina
liðið sem átti möguleika
á að halda í við Hafnfirð-
inga en nú virðist bilið
orðið einfaldlega of stórt.
Svo vir›ist sem hi› árlega gó›æristímabil Framara sé hafi› en fleir unnu
gó›an 2–1 sigur á Val í gær. Fyrir viki› er sú litla spenna sem ríkti á toppi
deildarinnar or›in a› engu en botnbaráttan er a› sama skapi í algleymingi.
Bo gerði vonir Vals að engu
FÓTBOLTI Bo Henriksen var maður
kvöldsins í gær, en hann skoraði
bæði mörk Fram í 2-1 sigri liðsins
á Val, en Bo fór til Fram frá Val
fyrir skömmu.
Leikurinn fór fjörlega af stað
og náði Fram að komast yfir strax
á áttundu mínútu með marki frá
Bo Henriksen, en hann kom til
Fram frá Val þar sem hann fékk fá
tækifæri með liðinu. Valsmenn
náðu á koma sér inn í leikinn með
góðri baráttu og uppskáru um-
deilda vítaspyrnu á sautjánda mín-
útu, og úr henni skoraði Garðar
Gunnlaugsson, en Ólafur Ragnars-
son dómari leiksins taldi varnar-
mann Fram hafa handleikið knött-
inn innan teigs. Bæði lið héldu
áfram að sækja eftir þetta og voru
Valsmenn nálægt því að bæta við
marki í tvígang það sem eftir lifði
hálfleiksins en Framarar náðu
ekki að skapa sér opið marktæki-
færi þrátt fyrir að leika oft á tíðum
ágætis sóknarleik.
Framarar gerðu tvær breyting-
ar á liði sínu í hálfleik. Inn á komu
Ómar Hákonarson og Johann Kar-
lefjard, og út af fóru Kristján
Hauksson, sem meiddist, og Daði
Guðmundsson. Þessar breytingar
skiluðu sér í meiri sóknarþunga,
þar sem Ómar og Andri Fannar
voru sérstaklega áberandi á upp-
hafsmínútum hálfleiksins.
Sterk vörn Valsmanna gaf þó fá
færi á sér, þótt Bo Henriksen hafi í
eitt skipti komist nálægt því að
skora sitt annað mark í leiknum en
Steinþóri Gíslasyni, hægri bak-
verði Valsmanna, tókst að bjarga
því á síðustu stundu. Kristinn Lár-
usson og Sigurður Þorsteinsson
komu svo inn á hjá Valsmönnum,
fyrir Guðmund Benediktsson og
Sigþór Júlíusson, og í kjölfarið
náði Valur betri tökum á miðjunni.
Á 75. mínútu leiksins tókst Bo
Henriksen að skora annað mark
Fram eftir fallegan undirbúning
Andra Fannars Ottósonar, sem var
í ákjósanlegri stöðu sjálfur en
valdi betri kostinn, að renna bolt-
anum til Bo sem var í dauðafæri
sem hann nýtti. Vel gert hjá Andra
og Bo. Valsmenn sóttu síðan tölu-
vert næstu mínútur á eftir mark-
inu, en náðu ekki að brjóta sterka
vörn Fram á bak aftur.
Framarar léku skynsamlega
það sem eftir lifði leiks og náðu að
halda boltanum ágætlega innan
liðsins meðan leikmenn Vals
pressuðu stíft. Valsmenn voru hins
vegar ólíkir sjálfum sér í seinni
hálfleik og sýndu ekki þá baráttu
og samstöðu sem einkennt hefur
leik liðsins í sumar. Miðjan var
ekki hjá Valsmönnum í dag, og var
greinilegt að liðið saknaði sárlega
fyrirliðans Sigurbjörns Hreiðars-
sonar.
Leikur Fram hefur farið batn-
andi í síðustu leikjum. Sagan virð-
ist ætla að endurtaka sig eina ferð-
ina enn. Fram hefur náð að rétta úr
kútnum í ágústmánuði síðustu sex
ár og miðað við leik liðsins í gær-
kvöldi verður það raunin að þessu
sinni líka. Bo gerði titilvonir Vals
að engu. - mh
Stuðningsmenn Manchester United anda léttar:
FÓTBOLTI Rio Ferdinand, varnar-
maðurinn sterki hjá Manchester
United, batt í gær enda á margra
vikna óvissu um framtíð sína hjá
félaginu er hann undirritaði
framlengingu á samningi sínum
sem nú gildir út leiktíðina 2009.
Forsaga málsins er sú að í vor
mun Ferdinand hafa hafnað
samningstilboði United sem
hefði tryggt honum laun upp á
hundrað þúsund pund á viku.
Stuðningsmönnum félagsins
gramdist það mjög að hann
skyldi ekki skrifa undir, sérstak-
lega eftir að félagið sýndu hon-
um mikla tryggð er hann tók út
átta mánaða langt keppnisbann
sem hann fékk fyrir að mæta
ekki í lyfjapróf.
„Ég hef alltaf sagt að ég vilji
vera um kyrrt á Old Trafford og
nú er þessu máli lokið,“ sagði
Ferdinand í viðtali við heimasíðu
félagsins í gær. „Ég hlakka til
þess að hefja keppni á nýrri leik-
tíð og núna get ég loksins ein-
beitt mér að því að spila fyrir
Manchester United.“ Knatt-
spyrnustjóri liðsins Sir Alex
Ferguson sagði að sér væri mjög
létt að þetta mál hafi loksins ver-
ið til lykta leitt. - esá
Rio skrifa›i loksins undir n‡jan samning
Ólafur Ingi Skúlason lék sinn fyrsta leik
með nýju félagi á laugardaginn er hans
lið, Brentford, bar sigurorð af Scunt-
horpe í fyrstu umferð ensku 2. deildar-
innar. Þetta var fyrsti deildarleikur
Ólafs Inga í Englandi þrátt fyrir að
hafa starfað þar sem knatt-
spyrnumaður síðan 2001. Hann
fékk fá tækifæri með sínu
gamla liði Arsenal og lék
reyndar einn leik með liðinu –
í deildarbikarkeppninni.
„Þetta voru fín úrslit, þótt svo
að gæðin hafi kannski setið á
hakanum,“ sagði Ólafur
Ingi, sem lék allan
leikinn fyrir Brent-
ford. „Mikilvægast
var að ná þremur
stigum og byrja leiktíðina með því að
vinna.“ Mótherjar liðsins, Scunthorpe,
eru nýliðar í deildinni en þeir höfðu fyr-
ir leikinn ekki tapað fimmtán deildar-
leikjum í röð.
Heimavöllur Brentford heitir
Griffin Park og er í Lundún-
um, innan um ekki minni
risa en Chelsea, Arsenal og
Tottenham. „Stemningin á
vellinum var góð þó svo að
ekki nema 6000 áhorfendur
hafi verið á honum sem þykir
frekar lítið. Scunthorpe þykja
kannski ekki skemmtilegir
andstæðingar og því
vonar maður að sóknin
á leikin eigi eftir að vera
meiri,“ sagði Ólafur Ingi
sem lék á miðjunni í 4-4-2 leikkerfi.
Hann er fjórði Íslendingurinn sem leikur
með félaginu á innan við áratug og því
eru stuðningsmenn félagsins Íslending-
um vel kunnugir. „Ég fékk ágæt við-
brögð og gaman að heyra að stuðn-
ingsmenn sungu lög um Óla sem þeir
eiga sjálfsagt enn síðan að Ólafur Gott-
skálksson varði markið hjá þeim. Þeim
finnst örugglega fínt að geta notað þau
lög aftur.“
Ólafur segir að stefna félagsins sé að
gera betur en á síðustu leiktíð en þá
lenti liðið í fjórða sæti. „Menn væru
ósáttir við að vera fyrir utan sex efstu
sætin. Þessi deild er svo jöfn og mörg
lið sem geta vel barist á toppnum. Það
verður örugglega spenna í deildinni
fram á síðustu umferð.“
ÓLAFUR INGI SKÚLASON: FYRSTI DEILDARLEIKURINN EFTIR FJÖGUR ÁR Í ENGLANDI
Stu›ningsmenn grófu upp gömul lög um Óla
2–1
Laugardalsv., áhorf: 1002 Ólafur Ragnarsson (6)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 7–11 (3–5)
Varin skot Gunnar 4 – Kjartan 1
Horn 4–5
Aukaspyrnur fengnar 11–5
Rangstöður 4–1
1–0 Bo Henriksen (8.)
1–1 Garðar Gunnlaugsson, víti (17.)
2–1 Bo Henriksen (75.)
Fram Valur
– vegalengdir við allra hæfi
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
3
4
2
6