Fréttablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 12
12 1. september 2005 FIMMTUDAGUR
Kajakmenn ósáttir við að fá ekki að æfa í Ölfusá:
Vi› megum hvergi vera
FRÍSTUNDIR Þótt lögreglusamþykkt
Árborgar banni umferð farar-
tækja um Ölfusá notar
Kayakklúbburinn hana gjarnan
fyrir æfingasvæði. Nokkrir ungir
félagsmenn frá Hveragerði voru
sektaðir fyrir nokkru og hefur
klúbburinn nú beðið lögfræðing
að kanna lögmæti samþykktarinn-
ar. „Við teljum að þessi lögreglu-
samþykkt stangist á við Vatnalög-
in,“ segir Þorsteinn Guðmunds-
son, formaður klúbbsins. Félagið
hefur áhuga á að sett verði upp
æfingasvæði í Ölfusá. „Við meg-
um eiginlega hvergi vera.“
Að sögn Þorsteins eru 50 til 80
manns í félaginu sem leggja stund
á straumróður í ám. Það er eink-
um hópur ungmenna í Hvera-
gerði, á aldrinum 14 til 20 ára sem
notar Ölfusána. „En við höfum
skotist í hana með þeim.“ Hann
segir Ölfusá ekki hættulega fyrir
kajakræðara.
Hjá lögreglunni á Selfossi
fengust þær upplýsingar að leyfi
lögreglustjóra þurfi til þess að
fara um ána. - grs
Engar reglur um gæslu
barna í verslunarhúsum
Engar regluger›ir vir›ast vera til um einkarekna barnagæslu, nema hjá dagmæ›rum sem eru
undir nokku› ströngu eftirliti, í sumarbú›um barna og um barnagæslu í tengslum vi› skipulag›ar
hátí›ir. Engar opinberar reglur gilda um barnagæslu á líkamsræktarstö›vum e›a í verslunum.
BARNAGÆSLA „Ég hef fengið mikið
af hringingum frá foreldrum sem
eru að spyrjast fyrir um þetta,“
segir Herdís L. Storgaard, verk-
efnastjóri barnaslysavarna hjá
Lýðheilsustöð. „Ég veit að Heil-
brigðiseftirlitið hefur verið að
skoða þetta líka.“ Herdís segist
hafa farið á fund Árna Magnús-
sonar félagsmálaráðherra í fyrra
og tekið málið upp. „Hann lofaði
að reglugerð yrði samin, en ég hef
ekkert heyrt frá honum síðan.“
Herdís telur þó ekki endilega
að eitthvað sé að, en bendir á at-
riði eins og tilkynningar á slysum
og hvort þau séu skráð og hvort
gera eigi kröfur um það að starfs-
menn skili inn sakavottorði.
Hún tekur líka fram að sum
fyrirtæki sem annast barnagæslu
hafa að eigin frumkvæði sett sér
strangar öryggiskröfur.
Hjá Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkurborgar fengust þær
upplýsingar að það kannaði hús-
næði þar sem barnagæsla fer
fram. Engin sérstök ákvæði giltu
þó nema almenn húsnæðisákvæði
um hreinlæti, loftræstingu og
þess háttar, en einnig væri gerð
krafa um að ekkert væri þar sem
hættulegt gæti talist fyrir börn.
Eftirlitið hafi ekki þrýst á stjórn-
völd um að setja reglugerðir.
„Þetta hefur nokkrum sinnum
komið til tals innan ráðuneytis-
ins,“ segir Árni Magnússon fé-
lagsmálaráðherra. „Ég hef ákveð-
ið að láta fara fram úttekt á því
hvar þetta er og meta í framhaldi
af því þörfina á setja sérstakar
reglur.“
Árni telur þetta þó ekki vera
stórmál. „En þetta er mál sem er
ástæða til að fara yfir.“ Hann á
frekar von á því að úttektin leiði
til þess að einhverjar reglur verði
settar.
grs@frettabladid.is
Bresk hjúkrunarkona:
Myrti flrjá
sjúklinga
BRETLANDI Bresk hjúkrunarkona
sem ákærð var fyrir að hafa ráðið
að minnsta kosti þremur sjúkling-
um sínum bana fannst látin á
heimili sínu í vikunni.
Anne Grigg-Booth, frá Vestur-
Jórvíkurskíri, átti að mæta fyrir
rétt í vetur vegna morða á þremur
rosknum konum, morðtilraunar á
miðaldra karli og fyrir að hafa
byrlað tólf sjúklingum til viðbótar
eitur. Grigg-Booth neitaði hins
vegar ávallt sök og er dauði henn-
ar ekki talinn hafa stafað af óeðli-
legum orsökum.
Lögregla segir mögulegt að
mun fleiri hafi látist af völdum
konunnar. ■
FÁNASTÖNG Á BÍLDUDAL Virðuleg fána-
stöng á Bíldudal verður eitt af viðfangsefn-
um væntanlegs flaggara í Vesturbyggð.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar:
Augl‡sir eftir
flaggara
ATVINNA Bæjarstjórn Vestur-
byggðar auglýsir á vefsíðu sinni
eftir áhugasömum manni til að sjá
um að draga fána að húni á fána-
stöngum á Bíldudal og Patreks-
firði þegar tilefni er til flöggunar.
Hingað til hafa bæjarstarfs-
menn séð um að draga fána að
húni og taka þá niður aftur en því
getur fylgt nokkur kvöð þar sem
oft þarf að vakna eldsnemma á
frí- og hátíðardögum að sögn Elín-
borgar Benediktsdóttur bæjar-
stafsmanns sem hafði þetta verk
með höndum í sumar.
Að sögn Guðmundar Guðlaugs-
sonar bæjarstjóra Vesturbyggðar
hafa nokkrir haft samband vegna
starfans en frestur til að sækja
um rennur út á morgun. - jse
KAJAK RÓIÐ Í ÖLFUSÁ
Guðmundur Vigfússon úr Kayakklúbbnum
sést hér róa kajak sínum í Ölfusá.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
Ö
LU
N
D
U
R
VANTAR REGLUR UM BARNAGÆSLU
Félagsmálaráðherra hefur ákveðið að
láta fara fram úttekt á þörfinni fyrir
reglugerð um barnagæslu sem rekin
er af einkaaðilum. Myndin er úr safni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
G
AR
Ð
U
R