Fréttablaðið - 01.09.2005, Side 31
3FIMMTUDAGUR 1. september 2005
Kínverskur varningur streymir til Evrópu í meira magni en nokkru
sinni fyrr. Það á við um vefnaðarvöru, fatnað, skó og fleira. Sam-
keppnin við ódýrt vinnuafl í Asíu er ekki auðveld í heimi þrjátíu og
fimm vinnustunda, verkalýðsfélaga og verkfalla. Milljónir peysa og
bola eru í höfnum í Evrópu vegna þess að innflutningskvótar Evr-
ópusambandsins hafa verið notaðir upp í topp. Fataiðnaðurinn ber
sig illa hér í Frakklandi, sérstaklega í lægri verðflokkum en í lúxus-
iðnaðinum eiga kínversku framleiðendurnir litla möguleika enn sem
komið er, eitthvað verður að réttlæta verðið.
Skógerð er nánast að deyja út í Frakklandi, landi tískunnar. Fyr-
ir tíu árum voru framleiddar hér í landi 155 milljónir skópara á ári
en á síðasta ári var þessi tala komin niður í 55 milljónir. Í síðustu
viku lögðu tveir þekktir skóframleiðendur í lúxusgeiranum upp
laupana og lokuðu verksmiðjum sínum, Charles Jourdan og Stép-
hane Kélian. Búðirnar eru þó enn opnar. Þar með missa um 500
manns vinnuna. Að auki eru þessar verksmiðjur, líkt og frystihús í
sjávarþorpum á Íslandi, eina vinnan í boði fyrir heimafólk og ekkert
nema atvinnuleysi sem bíður. Smám saman hafa búðir með kín-
verska skó komið í staðinn fyrir þær sem áður seldu franska skó.
Fyrir utan alla skóframleiðslu sem kemur frá Ítalíu. Eins franskt og
tískuhús Yves Saint Laurent getur verið, þá eru allir skór þar fram-
leiddir á Ítalíu. Þetta á reyndar við um fleiri frönsk tískuhús. En
meira að segja á Ítalíu, í landi leðurvöru og skóframleiðslu, bera
menn sig illa vegna kínversku samkeppninnar og segja skófram-
leiðslu á undanhaldi. Því er ekki ólíklegt að sama þróun eigi sér stað
þar og í Frakklandi.
Einn af örfáum sem er eftir, ef ekki sá eini sem enn framleiðir
lúxusskó hér í landi, er Robert Clergerie. Þessi hönnuður segir sjálf-
ur að það sé vegna þess að hann er enn til staðar í fyrirtækinu og
fylgist með öllu, frá hönnun til framleiðslu að sölu. Þau tvö fyrirtæki
sem hættu í vikunni sem leið höfðu einmitt verið seld og sett í hend-
urnar á öðrum sem ekki þekktu haus né sporð á skógerð. Þau höfðu
verið gleypt í sameiningarferli stórfyrirtækja þar sem fjárfesting á
að skila arði til eigenda. Hjá Clergerie er hver einasti skór handunn-
inn frá upphafi til enda eftir aldagömlum hefðum. Þar er sömuleið-
is lykillinn að tilvist hans sem og í stöðugri endurskoðun og nútíma-
legri hönnun.
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Hver einasti skór handunninn
Stjörnurnar í Hollywood keppast
nú við að hanna föt undir sínu
nafni og nýjustu fregnir herma að
Justin Timberlake sé að fara af
stað með eigin fatalínu í sam-
starfi við besta vin sinn Trace
Ayala. Að sögn Justins verður
fatalínan hönnuð með uppruna
þeirra Trace í huga. Sveitastíllinn
verður áberandi en töffaraskap-
urinn og götustíllinn mun einnig
svífa yfir vötnum.
Fatalínan verður seld undir
merkinu William Rast. Nafnið er
sett saman úr fornafni afa hans
Justins og eftirnafni afa Trace.
Aðspurður um nafnavalið sagði
Justin að þeir félagar hefðu bara
valið persónur sem hefðu haft
mest áhrif á þá og það væru afar
þeirra beggja.
Skartgripir betri
fjárfesting en föt
JADE JAGGER TEKUR ADIDAS-SKÓ
FRAM YFIR HÁTÍSKUFATNAÐ TÍSKU-
HÚSANNA.
Tískudrósin og skartgripahönnuðurinn
Jade Jagger hefur viðurkennt að hún sé
ekki mikill aðdáandi hátískufatnaðar á
borð við þann sem stóru tískuhúsin
láta frá sér.
„Ég held ég
gæti ekki
keypt mér kjól
fyrir tugi þús-
unda. Held
það sé ekki
góð fjárfest-
ing, ólíkt
skartgripum,“
sagði Jade í
samtali við
Vogue á dög-
unum. Hún er
þekkt fyrir frjálslegan fatastíl og hugsar
meira um hvað henni þykir fallegt og
þægilegt fremur en að elta tískuna.
Máli sínu til stuðnings benti hún á Adi-
das-skóna sína sem hún segist ganga í
öllum stundum.
Jade Jagger telur hátísku-
fatnað ekki góða fjárfest-
ingu.
Justin Timberlake er mikill töffari. Nú hann-
ar hann föt undir nafninu William Rast.
Justin Timberlake me› fatalínu
Justin Timberlake er að fara af stað með eigin fatalínu ásamt
vini sínum Trace Ayala.