Fréttablaðið - 01.09.2005, Side 79
54 1. september 2005 FIMMTUDAGUR
Fatahönnuðurinn MarínManda Magnúsdóttir
eignaðist stúlkubarn 25.
ágúst síðastliðinn með
kærasta sínum, Danny
Tanggaard Nielsen. Stúlkan
kom í heiminn á Hvidovre
Hospital í Kaupmanna-
höfn en fjölskyldan er
búsett þar. Á heima-
síðu litlu stúlkunnar á
www.barnaland.is
kemur fram að fæð-
ingin hafi tekið á
móðurina enda hafi
hún verið í tuttugu
tíma að reyna að
fæða frum-
burðinn. Það
kom þó ekki
að sök og heilsast öllum vel.
Mörgum þótti lítið fara fyrir jafn-ræði R-lista flokkanna meðal
kjósenda sem spurðir voru í könnun
Fréttablaðsins á mánudag. Fylgi
flokkannna reyndist mismikið svo
ekki sé meira sagt. Samfylkingin
hefði fengið fimm fulltrúa í borgar-
stjórn, Vinstri grænir einn og Fram-
sóknarflokkurinn engann.
Það rifjaðist upp fyrir gárungunumað jafnræðishugsjón Vinstri
grænna í samningaþref-
inu á dögunum virt-
ist vera fólgin í því
að í níu efstu
sætum R-listans
ættu að vera þrír
frá hverjum flokki.
Og svo sprunguviðræðurnar,
nokkru áður en kjós-
endur tilkynntu að
hlutföllin ættu að
vera fimm, einn
og núll!
LÁRÉTT 2 spyrja, 6 kind, 8 bein, 9 tæki,
11 klukkan, 12 byggingareining prótína,
14 sníkjudýr, 16 pípa, 17 hækkar, 18 lág-
vær niður, 20 ónefndur, 21 nabbi.
LÓÐRÉTT 1 rífa upp með rótum, 3 núm-
er, 4 ávanabindandi efni, 5 kraftur, 7 lof-
aður, 10 æviferill, 13 nálægt, 15 bjáni, 16
espa, 19 tveir eins.
LAUSN
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Stór Humar
Medium Humar
Sigin grásleppa
35 íslenskar hljómsveitir og tón-
listarmenn hafa bæst við dagskrá
Iceland Airwaves-tónlistarhátíð-
arinnar sem fer fram 19. til 23.
október.
Á meðal þeirra sem hafa bæst
við eru: Ghostigital, Singarpore
Sling, Stórsveit Nix Noltes, Worm
is Green, The Viking Giant Show,
Lára, Lights on the Highway og
Jakbínarína, sem vann Músíktil-
raunir fyrr á árinu. Núverandi
dagskrá hátíðarinnar sam-
anstendur nú af sjötíu listamönn-
um og hljómsveitum, þar af sextíu
innlendum og tíu erlendum. Á
næstu vikum bætist enn í hóp
þeirra sem þar munu koma fram.
Þrettán af 35 listamönnum og
hljómsveitum sem hafa bæst við
hafa ekki komið fram á hátíðinni
áður. Má þar nefna Stórsveit Nix
Noltes, sem spilar þjóðlagaskotna
Balkan-tónlist, sólóverkefni Heið-
ars úr Botnleðju, The Giant Vik-
ing Show, sem slegið hefur í gegn
með laginu „Party at the White
House,“ og sólóverkefni Jöru, eða
Jarþrúðar Karlsdóttur sem hefur
sungið með sveitum á borð við
Bang Gang og Singapore Sling.
Einnig spilar á hátíðinni Jeff
Who? sem hitar upp fyrir Franz
Ferdinad á tónleikum þeirra í
Kaplakrika annað kvöld. ■
35 hljómsveitir bætast vi›
JAKOBÍNARÍNA Hljómsveitin Jakobínarína, sem vann Músíktilraunir í ár, spilar á Iceland
Airwaves í október.
„Þetta byrjaði á því að kunningi
minn gaf mér tvo miða á frumsýn-
ingu þegar Þjóðleikhúsið var
stofnað,“ segir Guðrún Árnadóttir
sem er 89 ára gömul og hefur ekki
misst úr frumsýningu síðan Þjóð-
leikhúsið var vígt árið 1950.
„Hann sagði mér að láta mig
aldrei vanta á frumsýningar,“ seg-
ir Guðrún sem hefur staðið við
loforðið.
„Sem lítilli stelpu fannst mér
strax gaman að fara í leikhús. Ég
bjó á Stokkseyri og missti aldrei
af sýningum leikfélagsins þar. Á
Stokkseyri var alltaf verið að
biðja mig um að leika í sýningum
en ég hafði engan áhuga á því,“
segir Guðrún sem valdi að verða
hjúkrunarfræðingur og sinnti
starfi sínu af ástríðu. Á seinni
árum hefur Guðrún einnig lagt
stund á bútasaum og hefur skapað
ófá listaverkin í formi veggteppa
og rúmáklæða.
En hvað skildi það vera sem
heillar Guðrúnu við að fara á leik-
húsfrumsýningar. „Það er stemn-
ingin,“ segir Guðrún en tekur það
þó fram að hún heillast ekki af
glamúrnum sem fylgir frumsýn-
ingunum. „Ég fer ekki til að sjá
forsetann heldur finnst mér
skipta máli að sjá leiksýningar
þegar enginn annar er búinn að
sjá þær. Þá getur maður treyst því
að enginn sé búinn að vera að
blaðra um verkin,“ en Guðrún er
ekki alltaf sammála almannarómi
eða leikhúsgagnrýnendum fjöl-
miðla. „Fyrir um sjö, átta árum
las ég til dæmis gagnrýni eftir
konu í Morgunblaðinu og ég var
ekki sammála einu orði sem hún
skrifaði. Það var eins og við hefð-
um ekki séð sömu sýninguna.“
Starfsmenn Þjóðleikhússins hafa í
gegnum tíðina kannast við Guð-
rúnu og treysta á leikdóma henn-
ar. „Einu sinni sagði vinkona mín
að einn starfsmaður Þjóðleikhúss-
ins spyrði hana alltaf sömu spurn-
ingar að lokinni frumsýningu:
„Hvað sagði Guðrún?“ Ef ég var
ánægð með leikritið fullyrti hann
að verkið yrði vel sótt.“
Meðal þeirra leikara sem eru í
uppáhaldi hjá Guðrúnu er Stefán
Jónsson. „Ég sá hann meðal ann-
ars í Veislunni og mér finnst hann
óaðfinnanlegur í öllu sem hann
gerir bæði sem leikari og leik-
stjóri,“ en Stefán leikstýrir jóla-
leikriti Þjóðleikhússins. „Ég var
að enda við að kaupa leikhúsmiða
fyrir allt árið og er spennt fyrir
vetrinum því mér finnst Tinna
vera rétta manneskjan í leikhús-
stjórastarfið. Ég er ekki búin að
skoða alla verkefnaskrána en ég
hlakka mest til að sjá fyrstu frum-
sýninguna,“ segir Guðrún sem
ætlar greinilega ekki að láta sig
vanta í leikhúsið 14. október þeg-
ar verkið Halldór í Hollywood eft-
ir Ólaf Hauk Símonarson verður
frumsýnt.
thorakaritas@frettabladid.is
GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR: DYGGUR ÞJÓÐLEIKHÚSGESTUR Í 55 ÁR
Mætir alltaf á frumsýningu
FRÉTTIR AF FÓLKI
TÓNLISTIN Hef alltaf verið hálf föst í
fortíðinni og öllu frá sjöunda áratugn-
um: Velvet Underground, Stooges og
Standells, Lee Hazlewood og Nancy
Sinatra. Allt sem Jóhann Jóhannsson
Apparat-maður gerir er líka snilld.
Hlusta núna á Clinic, Hudson Wayne,
Beck, Death in Vegas, Singapore Sling
og tangóplötuna Gotan Project.
BÓKIN Byrjaði loksins á Never Let Me
Go eftir Kazuo Ishiguro og er hálfnuð,
sem þýðir að restin verður lesin í
kvöld, enda ofurheillandi bók. Svo er
ég að lesa Kalla og sælgætisgerðina
eftir Roald Dahl með smáfólkinu.
BÍÓMYNDIN Leigði Hotel Rwanda um
síðustu helgi og grét úr mér augun.
Skammast mín gífurlega fyrir að vita of
lítið um þjóðarmorðin í Rwanda og af-
skipti Vesturlanda af ástandinu. Allir
eiga að sjá þessa mynd.
BORGIN Er heilluð af San Francisco.
Borgin er svo lifandi, þar mætast
margir menningarheimar, viss artí-
stemning liggur í loftinu og hippafíl-
ingur í gangi. Æðislegt fólk, matur,
búðir og þessar snarbiluðu og bröttu
götur. Náttúran í kring er stórfengleg,
engin mengun; bara ferskur vindur frá
hafinu. En ég bý í Reykjavík, þannig að
hún hlýtur að vera uppáhaldsborgin.
BÚÐIN Hér heima: Trilogia, Kron, Rokk
og Rósir og Nonnabúð. Erlendis: Agn-
és B, Paul and Joe, Harvey Nichols og
Myla. Er húkkt á Fylgifiskum og Osta-
búðinni á Skólavörðustíg.
VERKEFNIÐ Þessa dagana tekur tíma-
ritið Sirkus RVK mestan tíma og hugs-
un. Afar skemmtileg, krefjandi og lif-
andi vinna að móta nýtt tímarit. Vinn
með góðu fólki sem hefur metnað til
þess að gera vandaða og spennandi
hluti. Höfum fengið virkilega góð við-
brögð sem hvetja mann áfram á enn
betri braut.
..fær leikkonan Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir fyrir að ráðast
inn á nýjan vettvang og ætla að
senda frá sér skáldsögu fyrir jól-
in.
HRÓSIÐ
Apparat, Ishiguro, Ostabú›in og San Francisco
AÐ MÍNU SKAPI ANNA MARGRÉT BJÖRNSSON, RITSTJÓRI SIRKUS RVK.
GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR Er oft ósammála leikhúsgagnrýnendum og kýs að sjá leiksýn-
ingar áður en fólk fer að blaðra um verkin.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/Þ
K
LÁRÉTT:2inna,6ær, 8rif, 9tól,11kl,
12amínó,14afæta,16æð,17rís,18
suð,20nn,21arða.
LÓÐRÉTT:1ræta,3nr, 4nikótín,5afl,7
rómaður, 10líf, 13nær, 15asni,16æsa,
19ðð.
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR