Tíminn - 14.01.1976, Síða 1
Leiguflug—Neyöarf lua
HVERTSEM ER
HVENÆR SEM ER
FLUGSTÖÐIN HF
Símar 27122-11422
MNGIRÍ
Áætlunarstaðir:
Blönduós — Sigiuf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
hólmur —Rif Súgandafj.
: Sjúkra- og leiguflug um
,allt land
Simar:
2-60-60 &
2-60-66
£3
Konur, börn og -gamal
menni flutt burtu
Mó-Reykjavik. — Miklar
skemmdir urðu á Kópaskeri i
jarðskjálfta kl. 1.30 i gær. Flest
hús á Kópaskeri eru meira og
minna skemmd. Börn, konur og
gamalmenni voru flutt burt úr
þorpinu til Raufarhafnar,
Leirhafnar eða Húsavikur. Ekki
urðu umtalsverð meiðsl á fólki.
Stöðugir kippir voru siðdegis i
gær á Kópaskeri, þótt enginn
þeirra yrði eins sterkur og sá
fyrsti. Viða er jörð sprungin, og
mikið er um jarðsig. Vegurinn
vestur frá Kópaskeri var var-
hugaverður, og þrjár brýr á
veginum höfðu skemmzt. Sex
kindur drápust i fjárhúsi á Kata-
Upptökin 12 km
frá Kópaskeri
MÓ-Reykjavik. — Upptök jarðskjálftans sem var valdur að
skemmdunum á Kópaskeri voru 12 km. suðvestur af Kópaskeri,
og mældist hann 5,5 til 6 stig á Richterkvarða. Þetta er lang-
sterkasti kippurinn, sem komið hefur siðan jarðskjálftarnir
byrjuðu fyrir jólin, sagði Þórunn Skaptadóttir hjá jarðeðlisdeild
veðurstofunnar i samtaii við Timann i gær. Kippurinn fannst um
allt Norðurland og austur á firði.
Sterkasti kippurinn sem mælzt hefur hér á landi átti upptök sin
á Málmeyjargrunni, i Skagafirði 1963. Sá var 7 stig á
Richterkvarða. Ekki urðu miklar skemmdir af völdum hans.
Árið 1934 urðu miklar skemmdir á Dalvik af völdum
jarðskjálfta, sem mældist 6 1/4 stig, en 1929 varð sjafnsterkur
jarðskjálfti skammt frá Reykjavik. 1968 varð svo jarðskjálfti,
sem mældist 6 stig og olli hann sprungum á húsum i Reykjavik.
Krossinn á kortinu sýnir hvar jarðskjálftinn i gær átti upptök sin.
stöðum við Kópasker þegar milli-
veggur i húsinu brast.
Brennisteinslykt fannst á Kópa-
skeri i gær.
Kristján Armannsson kaup-
félagsstjóri á Kópaskeri sagði
siðdegis i gær, að fólk hefði orðið
geysilega óttaslegið, þegar þessi
mikli jarðskjálfti kom. Allt hefði
leikið á reiðiskjálfi, og vörur
fallið úr hillum. Vatnsleiðslur
hefðu farið 1 sundur og flest hús
sprungið meira og minna. Ekki
væri hættulaust að vera nema i
sumum húsanna og reiknað er
með, að karlmenn verði i Kaup-
félaginu i nótt og jafnvel viðar.
Konur og börn voru farin áleiðis
til Raufarhafnar og Húsavikur.
Ekki urðu önnur meiðsl á fólki,
en að tveir menn i frystihúsinu
meiddust litilsháttar.
Guðjón Petersen frá Almanna-
vörnum var kominn til Raufar-
hafnar og stjórnaði björgunar-
aðgerðum ásamt almanna-
varnarnefnd Kópaskers.
Björgunarsveitin á Húsavik kom
til Kópaskers i gær.
öll jörð i kringum Kópasker er
meir og minna sprungin. Vegur-
inn vestur frá Kópaskeri er nær
ófær og stór sprunga hefur
myndazt i Katastaðafjalli.
Simasambandslaust var við
Kópasker frá þvi jarðskjálftinn
reið yfir og langt fram eftir degi.
Rafmagnslaust var i hluta af
þorpinu.
Vegurinn frá Raufarhöfn til
Kópaskers var ruddur i gær,
strax eftir jarðskjálftann.
Viðbúnaður var á Raufarhöfn til
að taka við fólki, en þar er hótel
sem rúmar 70 manns. Aðallega
var þó ætlunin að koma fólkinu
fyrir f heimahúsum.
Björn Karlsson oddviti i Hafra-
fellstungu i Oxarfirði sagði i gær,
að þegar jarðskjálftakippurinn
kom hefði isinn á Skógarkilnum
sprungið og vatnið spýtzt hátt
upp i loftið. Þá var nýbúið að
rjúfa vatninu úr lóninu leið fram i
sjó og jókst rennsli þess verulega
i skjálftanum.
Búið er að flytja allt fé úr fjár-
húsinu á Skógum, sem vatnið er
komið i, en nú óttast menn að enn
hækki verulega við þennan mikla
jarðskjálfta.
Seint i gærkvöld flutti fólkið
burt frá Skógum og Ærlækjarseli
og dvaldi i nótt á bæjum i ná-
grenninu.
Mér fannst húsið
ætla á hliðina
MÓ-Reykjavik —i.Mér fannst hús-
ið ætla að fara á hliðina og allt
lauslegt hentist til,"sagði Krist-
veig Jónsdóttir á Bakka á Kópa-
skeri i viðtali við Timann i gær-
kvöld. Þá var Kristveig komin
ásamt fleira fólki frá Kópaskeri
til Iiúsavikur. —„Þetta er i raun
ólýsanlegt og var alveg agalegt.
Skjálftinn byrjaði fyrst hægt en
siðan smájókst hann þar til allt
ætlaði um koll að keyra. Þetta
kom öllum á óvart því allir bjugg-
ust við að það gerðist frekar eitt-
hvað upp i Kelduhverfi.
— Maður er ennþá eins og fest-
ur upp á þráð og i raun liður
manni miklu verr á eftir. Meðan
ósköpin gengu yfir gerði maður
sér ekki grein fyrir hvað var að
gerast. Það er eins og lenda i bil-
slysi. Þaðpr ekki fyrr en á eftir að
maður áttar sig á hvað hefði i
raun getað gerzt.
Ég var i eldhúsinu og var að
drekka kaffi þegar ósköpin byrj-
uðu. Við vorum þar tvær saman.
Leirtau datt úr skápum og ljósa-
króna datt niður og brotnaði. Nið-
ur i kjallara var frystikista og
hentist hún um hálfan metra og
glös og flöskur á gólfinu brotnuðu.
Húsið er gamalt timburhús og
það elzta á Kópaskeri. Ég veit
ekki hvort það skemmdist mikið,
en viða sprungu steinhús mjög
mikið og gluggar brotnuðu i ein-
hverjum húsum. Viða komu
sprungur i jörðina og fólk datt um
koll. Maður einn ætlaði að halda
sér i jeppabil, en þá hentist billinn
á loft og ætlaði á hliðina. Svona
voru ósköpin mikil.
Börn voru verulega hrædd,
nema þau, sem voru innan við
þriggja ára aldur.
Við yfirgáfum Kópasker um kl.
16,30. Ég fann enga brennisteins-
fýlu, en fólk var að tala um að það
hefði fundið hana.
1 Presthólahrauni virtist hafa
orði.ð sprenging og var jörðin þar
upptætt á litlu svæði. Viða eru
sprungur i jörðina, en ég fór litið
um þorpið og veit þvi litið um
skemmdir eða jarðrask.
Það var mikil hrið á leiðinni,
sérstaklega þegar við nálguð-
umst Húsavik. Gekk ferðin þvi
fremur seint,//sagði Kristveig
Stjórnmálasamband-
inu slitið í dag?
Gsal-Reykjavik. — Ég vil ekki timasetja það, hvenær stjórn-
málasambandinu við Bretland verður slitið, en hins vegar má
telja öruggt, að þvi verði slitið, ef engin ný viðhorf koma til,
sagði Ólafur Jóhannesson, dómsmálaráðherra i samtali við
Timann i gærkvöldi.
Fundur verður i utanrikismálanefnd Alþingis i dag kl. 10.30,
þar sem fjallað verður um stjórnmálaslitin við Bretland. Endan-
lega ákvörðunum stjórnmálaslitin mun rikisstjórnin taka, og þá
ennfremur um timasetningu þeirra og hversu vitæk þau eiga að
vera. 1 einstaka tilvikum er viðkomandi sendiráðum hreinlega
lokað og allir sendiráðsstarfsmenn kvaddir á burt, en algengara
er þó að aöeins sendiherra sé kvaddur á burt.
Þegar stjórnmálasambandinu verður slitið við Breta mun
norska sendiráðið i London gæta hagsmuna Islendinga, en
franska sendiráðið hér mun gæta hagsmuna Breta.