Tíminn - 14.01.1976, Síða 12
12
TÍMINN
Miövikudagur 14. janiiar 1976.
Óvelkominn qestur
ekki verið svona mikill bölvaður asni, hefði ég ekki verið
hérnanúna. Mig langar til að f lengja hann duglega.
Jane varð gröm. — AAér f innst það ekki réttlátt, sagði
hún. — Að skella skuldinni á Dick vegna þess að þú ert
ekki maður til að halda sjálf um þér í skef jum. Hún rétti
úr sér og horfði hvasst á hann. — Dick er ungur og þú
ættir að taka tillit til þess, þegar þú dæmir hann. Ef þú
hefðir haft vit á því að láta hann hafa bíl sjálfan og
kæmir f ram við hann eins og f ullorðinn mann, er ég viss,
um að þú ættir ekki í neinum erf iðleikum með hann.
— Svo þér finnst ég ekki réttlátur gagnvart Dick?
sagði hann og röddin var svolítið hæðnisleg.
Ef Jane hefði sé andlit hans þessa stundina, hefði hún
valið orð sín með meiri umhyggju, en hann stóð í skugga
og húh sá hann ekki almennilega.
— Þú ferð niðurlægjandi með hann og það er ekki rétta
aðf erðin. Það er ekki nema eðlilegt, að hann þrjóskist við
þig. Nú er ekki langt þangað til hann erf ir þennan búgarð
og hann ætti að hafa svolitla reynslu í að reka
hann....Brjóst hennar gekk upp og niður af æsingi og hún
horfði á hann með fyrirlitningarsvip. Svo hélt hún
áfram: — Hvernig í ósköpunum á hann að vita, hvernig
hann á að reka búið, þegar honum er haldið niðri af
manni, sem er eins valdasjúkur og ákveðinn og þú?
Neil nísti tönnum og munnur hans var eins og strik,
þegar hann sneri sér að henni. Jane varð næstum hrædd,
þegar Ijósið féll á andlit hans aftur. Hvað hafði hún nú
gert? Þessi maður var lögráðamaður Dicks, og hún hafði
móðgað hann af ásettu ráði!
Hún reyndi að sleppa f rá honum og óskaði þess að hún
væri alls staðar annars staðar en hér á Conway, þar sem
hún stóð og rejfst við þennan einkennilega mann.
Hann stakk höndunum djúpt niður í vasana og sagði ís-
kaldri röddu:
— Ertu búin núna?...Þú talar um ýmsa hluti, sem þú
hef ur ekki minnsta vit á. Hann tók að ganga f ram og aft-
ur íæsingi, en svosneri hann sér skyndilega að henni aft-
ur og spurði snöggt? — Ætlarðu að giftast frænda mín-
um?
Þegar hún svaraði ekki, hélt hann þurrlega áfram: —
Allt í lagi, þú þarft ekki að svara. Hann hló hæðnislega.
— Það er alveg greinilegt, hvað þú ætlar þér. Svo þagði
hann um hríð.— Bara í peningaleit, ekki satt?
Jane gaf f rá sér einkennilegt, hálf kæft hljóð og starði
forviða á hann grænu augunum sínum.
Hann horfði andartak í þau, en snerist svo snöggt á
hæli og gekk frá henni.
Hún horfði döpur á eftir honum, meðan hann gekk
þungum skrefum niður verandartröppurnar, leysti
Blakk, sem stóð þar bundinn og þeysti á honum út í nótt-
ina.
Andartak stóð hún og starði annars hugar framundan
sér á stígvélaförin í tröppunum....Wilma yrði ekki hrif in,
þegar hún sæi þau....Hefði hún átt að segja honum, að
hana skorti alls ekki peninga....að hún ætti meira en nóg
af þeim sjálf ? Faðir hennar hafði eftirlátið þeim mæðg-
um mikla fjármuni og amma hennar, sem lézt fyrir
hálfu ári, arfleiddi hana að öllum eigum sínum, sem
voru vægast sagt miklar. Hún þyrfti ekki að gera hand-
tak, ef hún vildi, en henni geðjaðist ekki að tilhugsuninni
um iðjulaust líf og henni líkaði vel að starfa fyrir Dan
Buxton.
Hún hafði ekki sagt neinum frá eignum sínum. Fötin
hennar voru dýr, en ekki áberandi og stúlkurnar á skrif-
stof unni virtust ekkert hafa tekið sérstaklega eftir þeim.
Dick hafði haldið, að hún væri ósköp venjuleg skrif-
stofustúlka og hún hafði ekki séð neina ástæðu til að
segja honum, að hún ætti peninga. Hún vildi vera elskuð
vegna sjálfrar sín, en ekki peninganna. Ef vinir hennar
vissu, að hún var rík, hvers vegna í ósköpunum átti hún
þá að vera viss um að það væru ekki peningarnir, sem
drógu þá að henni?
Hjartað í henni hagaði sér ennþá eitthvað undarlega,
fæturnir voru óstyrkir og heilinn neitaði að starfa.
Hræðilegur grunur tók að læðast að henni, en hún reyndi
að hugsa ekki um hann. Dauðuppgefin, bæði á sál og
líkama, opnaði hún dyrnar hljóðlega og læddist inn í her-
bergi sitt.
4. kaf li.
Sunnudagsmorgunn....! Jane teygði letilega úr sér í
rúminu. Það undarlega var að hún hafði sof ið vel og gat
hugsað um það, sem gerzt hafði kvöldið áður af fullri
skynsemi. Neil yrði eitthvað heima við í dag, þar sem
það voru aðeins smáverk, sem unnin voru á sunnudög-
um. NeiI....! Hjartað sló hraðar, þegar henni varð hugs-
HVELL
G
E
llill
iiili
i
Miðvikudagur
14. janúar
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.15 Til umhugsunar Þáttur
um áfengismál i umsjá
Arna Gunnarssonar.
13.30 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan :
„Kreutzersónatan” eftir
Leo Tolstoj Sveinn Sigurðs-
son þýddi. Árni Blandon
Einarsson les (6).
15.00 Miðdegistónleikar
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.10 Otvarpssaga barnanna:
„Bróðir minn, ljónshjarta”
eftir Astrid Lindgren Þor-
leifur Hauksson les þýðingu
sína (9).
17.30 Framburðarkennsla i
dönsku og frönsku
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 (Jr atvinnulif inu
Rekstrarhagfræðingarnir:
Bergþór Konráðsson og
Brynjólfur Bjarnason sjá
um þáttinn.
20. Kvöldvaka a. Einsöngur
Árni Jónsson syngur, Fritz
Weisshappel leikur á pianó.
b. Eyðibýli í afdölum og af-
réttum Ágúst Vigfússon
flytur frásöguþátt eftir Jó-
hannes Ásgeirsson. c.
Visnaþáttur Sigurður Jóns-
son frá Haukagili flytur. d. t
fjörunni við Leiruna á Akur-
eyri Pétur Pétursson talar
við Gunnar Thorarensen. e.
Staldrað við á Vatnsleysu-
strönd Magnús Jónsson
kennari flytur siðara erindi
sitt. f. Kórsöngur Karlakór-
inn Geysir syngur. Guðrún
Kristinsdóttir leikur á
pi'anó. Stjórnandi: Árni
Ingimundarson.
21.30 (Jtvarpssagan :
„Morgunn”, annar hluti Jó-
hanns Kristófers eftir Ro-
main Rolland i þýðingu
Þórarins Björnssonar. Anna
Kristin Arngrimsdóttir leik-
kona les (5).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Kvöldsag-
an: „t verum”, sjálfsævi-
saga Theódórs Friðriksson-
ar Gils Guðmundsson les
siðara bindi (5).
22.40 Nútimatónlist Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
III
ílititi II!
Miðvikudagur
14. janúar
18.00 Björninn Jógi. Banda-
risk teiknimyndasyrpa.
Þýðandi Jón Skaptason.
18.25 Kaplaskjól. Breskur
myndaflokkur byggður á
sögum eftir Monicu
Dickens. Þruma úr
heiðskfru lofti. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.50 Ballett fyrir alla.
Breskur fræðslumynda-
flokkur. 4. þáttur. Þýðandi
Stefán Jökulsson.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Nýjasta tækni og visindi.
Jarðskjálftarannsóknir.
Sólkönnun úr gervitungli.
Umsjónarmaður örnólfur
Thorlacius.
21.00 Columbo. Bandariskur
sakamálamyndaflokkur.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
22.15 Dagur I lifi Kevins.
Kevin er bæklaður af völd-
um thalidomids, en það var
svefnlyf, sem talið var
hættulitið. Siðar kom i ljós,
að tækju þungaðar konur
það við upphaf meðgöngu-
timans,olliþað örkumlum á
barninu.