Tíminn - 03.02.1976, Síða 7
Þriðjudagur 3. febrúar 1976.
TÍMINN
7
§T
Tá
s
■7/7
I
k
m
Aðstoðarlæknar
2 stöður aðstoðarlækna á Lyflækningadeild Borgar-
spltalans eru lausar til umsóknar ein frá 1. marz og ein
frá 1. april 1976 til 6 mánaða.
Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags
Reykjavlkur viö Reykjavikurborg.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrir störf
skulu sendar yfirlækni deildarinnar, fyrir 23. febrúar
n.k.
Frekari upplýsingar veitir yfirlæknirinn.
Reykjavik, 2. febrúar 1976.
Stjórn sjúkrastofnana /f.
Reykjavikurborgar ^
r ■m
A myndinni sjást allmargar af þeim konum, sem vikulega starfa I sjúkrabókasöfnum Borgarspítalans,
stjórnarformaöur, framkvæmdastjóri, aöstoðarframkvæmdastjóri og bókavöröur Borgarspítalans.
Runebergs
kvöld
á fimmtudag
FINNLANDSVINÁFÉLAGIÐ
SUOMI efnir til kvöldfagnaðar i
Norræna húsinu i tilefni af Rune-
bergsdeginum fimmtudaginn 5.
febrúar n.k. 20.30.
Formaður félagsins flytur
ávarp nýr sendikennari, Ros-
marie Rosenberg, boðin velkom-
in, og flytur hún stutt spjall dr.
Finnbogi Guðmundsson lands-
bókavörður fjallar um bréf Ras-
munds Rasks, þar sem hann rek-
ur m.a. ferð sina til Finnlands I
byrjun siðustu aldar. Rask var
einn af fáum, sem bæði kunnu is-
lenzku og finnsku. Þá leikur Skúli
Halldórsson tónskáld syrpu af
lögum eftir sjálfan sig, og sr.
Sigurjón Guðjónsson, fyrrum
prófastur, les úr þýðingum sinum
á ljóðum finnskra skálda. Loks
verður sýnd ný finnsk kvikmynd
um listakonuna Eilu Hiltunen
myndhöggvara.
Kaffiveitingar með Rune-
bergstertu verða á boðstólum.
Aðalfundur félagsins verður
haldinn á undan þessari kvöld-
vöku og hefst kl. 20.
Gunnar
Hannesson
sýnir í
New York
gébé—Rvik — ísienzkar ljós-
myndir, sem Gunnar Hannesson
hefur tekið, verða til sýnis á stórri
ljósmyndasýningu, sem opnuð
verður 3. febrúar n.k. I Nikon
House við Madison Avenue I New
York. Nefnist sýningin „Tvær
eyjar, heit og köld”, og eru þarna
eingöngu til sýnis ljósmyndir frá
eyjunum fslandi og Puerto Rico.
Sýning þessi verður opnuð við
hátiðlega athöfn siðdegis 3. febrú-
ar, en það erskrifstofa Loftleiða i
New York, sem haft hefur veg og
vanda af islenzka hluta sýningar-
innar og sér um opnunarathöfn-
ina.
Ljósmyndirnar frá Puerto Rico
tók bandariski ljósmyndarinn
Ben Fernandez.
AUGLYSIÐ
í TÍMANUM
Tímabær umferðarljós
tekin í notkun í dag
— d mótum Grensdsvegar og Fellsmúla— Skeifunnar
gébé Rvik — Kiukkan tvö i dag,
þriöjudag, verður kveikt á
umferðarljósum á gatnamótum
Grensásvegar og Fells-
múla-Skeifunnar, en umferð um
þessi gatnamót hefur aukizt
verulega síðustu ár, og talsverð
brögð verið að þvi að aðal-
brautarréttur væri ekki virtur.
Þá hefur miðsvæði gatnamót-
anna margoft fyllzt skipulags-
litið af ökutækjum og gert um-
ferðarstjórn lögreglunnar
erfiða, og enn fremur er
vaxandi umferð fótgangenda
um gatnainótin, vegna stór-
verzlana þarna i nánd. Fleiri til-
iögur komu fram um Iagfærinu
á umferð um þessi gatnamót, en
skv. upplýsingum frá gatna-
málastjóranum i Reykjavik,
varð uppsetning umferðarljósa
að lokum niðurstaðan á
umræddum gatnamótum.
Þessi nýju umferðarljós eru
timastýrð og tengd umferðar-
ljósum á Miklubraut og Suður-
landsbraut. Þau eru að þvi leyti
frábrugðin umferðarljósakerfi
Miklubrautar, að þau hafa eng-
an sérstakan vinstri beygju-
tima, enda ekki um sérstakar
beygjugreinar að ræða. Vinstri
beygja úr suðri upp Fellsmúla
hefur þó verið auðvelduð, þann-
ig að grænt ljós slokknar nokkr-
um sekundum fyrr á umferð úr
norðri en suðri, jafnframt þvi
sem græn ör logar með græna
ljósinu móti umferð úr suðri.
Árekstrar á gatnamótum
Grensásvegar og Fells-
múla-Skeifunnar hafa verið
tiðir á undanförnum árum.
Arið 1973 urðu þar 24 árekstrar,
29 árið 1974 og 22 árið 1975.
Flestir hafa þeir haft mikið
eignatjón i för með sér.
fyrir alla
VIKTUN
Tónlistarhdtíð norræns æskufólks:
Fimm íslenzkar stúlkur
leika á hótíðinni
Gébé—Rvik — Fimm ungir is-
lenzkir hljóðfæraleikarar, allt
konnr, taka þátt i árlegri tónlist-
arhátið norræns æskufólks (Ung
Nordisk Musikfest),sem að þessu
sinni verður haldin I Árósum i
Danmörku dagana 7.-13. febrúar
nk. Þar verða að auki fluttar tvær
islenzkar tónsmiðar, eftir þá Jón-
as Tómasson og Rikharö Pálsson.
Gert er ráð fyrir að alls verði
þátttakendur um eitt hundrað og
fimmtlu talsins, þar af fiörutíu
tónskáld, og verður flutt sitt verk-
ið eftir hvert þeirra.
Islenzku hljóðfæraleikararnir á
hátíðinni verða þessir: Agústa
Jónsdóttir, vióla, Hrefna Hjalta-
dóttir, vióla, Júliana Elin Kjart-
ansdóttir, fiðla, Ólöf Sesselia
óskarsdóttir, selló, og Sigriður
Hrafnkelsdóttir, fiðla. Tónsmið
Verlagsróð sjóvarútvegsins:
Fiskverðið gildi
áfram
BH—Reykjavik — Yfirnefnd
Verðlagsráðs hefur ákveðið, að
fiskverð það, sem gilti I janúar
1976, sbr. tilkynningu ráðsins nr. 1
1976, skuli giida áfram dagana 1.
til 15. febrúar 1976. Segir I frétta-
tilkynningu frá Verðlagsráðinu,
að þessi ákvörðun sé tekin, þar
sem sýnt sé, að boðaðar bréyting-
ar á útflutningsgjöldum og sjóð-
um. sjávarútvegsins muni ekki
koma til framkvæmda þegar i
febrúarbyrjun.
Segir i fréttatilkynningunni, að
ákvörðun þessi sé reist á sömu
forsendum og með sömu skilmál-
um og fiskverðsákvörðun fyrir
janúarmánuð.
Einnig segir, að með þessari
ákvörðun sé gefið svigrúm til
þess aö ljúka setningu laga og
reglugerða og samningsgerð,
sem nauösynleg sé vegna fyrir-
hugaðra breytinga á sjóðum sjáv-
arutvegsins.
Borgarspítalinn fær talbækur og peningagjöf
30. desember s.l. afhenti frú
Katrin Hjaltested, formaður
Kvennadeildar Rauða kross Is-
lands, Borgarspitalanum að gjöf
frá deiidinni 100 þús. kr. til kaupa
á bókum til sjúkrabókasafna
spítalans. Við sama tækifæri af-
henti hún Bókasafni Borgar-
spítalans 6 kassettusegulbands-
tæki, sem lánuð verða sjúkling-
um, sem hlusta vilja á upplestur
af böndum, eða svokallaðar tal-
bækur. Tæki þessi eru hluti af
gjöf, sem Kvennadeild RKI barst
á árinu 1975 frá fyrirtækinu
Austurstræti 16 hf.
Úlfar Þórðarson, læknir,
formaður stjórnar Borgarspital-
ans, veitti þessum góðu gjöfum
móttöku og þakkaði sérstaklega
hlýhug til Borgarspitalans og þá
miklu og óeigingjörnu vinnu, sem
Sjúkravinir Kvennadeildar RKI
leggja af mörkum
Jónasar Tómassonar nefnist Só-
nata X, sem er fyrir 2 flautur, 2
óbó, 3 klarinett og 3 hom, en tón-
smið Rikharðs Pálssonar heitir
Beatriz Clara Goya, sem er fyrir
einleiksfiðlu, og mun Júlíana Elin
Kjartansdóttir flytja það verk.
Eins og áður segir, eru þátttak-
endur um 150 talsins, og eru þeir
allir innan við þritugt. Tónsrriið-
arnar eru með ýmsu formi og
hljóðfæraskipan, svo sem hljóm-
sveitar-, kammer-, einleiks-, og
elektrónisk verk. Þá munu tón-
skáldin 40 fjalla eitthvað um verk
sin.
Þátttöku íslendinga i hátiðinni
kosta Menninga mála sjóður
Norðurlandanna og menntamála-
ráðuneyti Islands. Næsta tónlist-
arhátið er fyrirhuguð i Reykjavik
á næsta ári.
Vogir fyrir:
fiskvinnslustöðvar/
kjötvinnslustöðvar/
sláturhús/
efnaverksmiðjur/
verzlanin
sjúkrahús/
heilsugæzlustöðvar,
iðnfyrirtæki,
f lugstöðvar.
Ennfremur hafnar-
vogir,
kranavogir og fl.
Ólafur Gíslason
& Co. h.f.
Sundaborg Reykjavík
Sími 48-800
Vélsleði til sölu
Harley-Davidson 440 c.c. árgerð 1974.
Upplýsingar i sima 99-5840.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
30. janúar 1976.
Lyfsöluleyfi
sem forseti íslands veitir
Lyfsöluleyfi i Reykjavik, Lyfjabúðin Iðunn, er laust til
utnsóknar. Umsóknarfrestur er til 1. mars 1976, en
leyfið veitist frá og með 1. októner 1976. Umsóknir
sendist landlækni.
Viðtakanda er skylt að kaupa vörubirgðir og áhöld
lyfjabúðarinnar sbr. 1. málsgr. 32. gr. lyfsölulaga nr
30/1963.
Jafnframt er viötakanda skylt að gera nauðsynlegar
breytingar á húsakynnum og búnaði, samkvæmt mati
lyfjaeftirlits rikisins.