Tíminn - 03.02.1976, Blaðsíða 10

Tíminn - 03.02.1976, Blaðsíða 10
10 TÍMINN Þriöjudagur I!. febrúar lí)7(i. Fjöldi manns fylgdist af athygli meö umræðum á Alþingi f gær segja hissa á þvi, ef nokkrum háttvirtum alþingismanni dettur það i hug i raun og veru. En þó veit maður aldrei hvað leynist i hugum manna. Lengi skal mann- inn reyna.” Leiðir Vísir heimildarmann sinn fram? „Haukur Guðmundsson rann- sóknarlögreglumaður kannast heldur ekki við það að vera heim- ildarmaður að þessum rógskrif- um Visis. Það væri ákaflega æskilegt, að sá sem staðið hefur að þessum Visisskrifum, til- greindi heimildarmann sinn. 6g get kannski vitað hver það er, en það er hans að segja til þess, og það væri ekkert slæmt að leiða þann kauða fram i birtuna. Hver veit nema hann hafi eitthvað á samvizkunni. Éghef nú gert efnislega nokkuð grein fyrir þessu máli og skal láta útrættum þætti þess. Mér er mik- ilraun að þvi i sjálfu sér.að hafa þurfi hér á Alþingi, að tala um siðari þátt málsins. Hitt er svo ákaflega fétt, og kemur ekki við mig, að tala um lokun Klúbbsins og niðurfellingu lokunar hans. En að fara að hefja á Alþingi umræð- ur um jafnviðkvæmt sakamál og hér er um að tefla, og um þannig mál yfirleitt, er alltaf varhuga- vert. Við byggjum á þeirri þýð- ingarmiklu grundvallarreglu, að maður skuli talinn saklaus, þangað til hann hefur verið sak- felldur og við ættum að gæta þess, að hverfa ekki frá henni.” Aðferðir Mafíunnar ,,6g hef ekki ætlað að nota þennan dag til þess að skjóta á þúfutittlinga. Vilmundur Gylfa- son er i þessu sambandi ekki nema eitt stórt núll. Gildi hefur r.úll ekkert, ef það stendur eitt út af fyrir sig. Gildi þess fer alveg eftir þvi, i hvaða afstöðu það stendur til annarra talna. Vil- mundur Gylfason skrifar til að lifa. Hann er verkfæri— verkfæri i annarra höndum. Ég ætla ekki að eyða orðum að honum ‘frekar i þessu sambandi. Það eru menn- irnir sem á bak við standa, sem ábyrgðina bera. Það eru menn- irnir sem standa að Visi, sem bera ábyrgð á þvi, hvað birt er i þvi blaði. Þeir geta ekki skotið sér undan þeirri ábyrgð. Þeir bera áhyrgð á þeim skriíum, sem þar hala birzt um mig og aðra og ég hef leyft mér að kalla þann virðulega hóp ef virðulegan skyldi kalla „mafiu”. Ekki i þeim skilningi, að hanr. standi i sambandi við mafiuflokkinn sem á rætur að rekja til Sikileyjar eða einhvers annars staðar á Italiu heldur er þetta samheiti á mönnum og fé- lagsskap sem beita þeim aðferð- um, sem þessir menn telja sér sennilega sóma að leggja fyrir sig, kannski eru það aurarnir sem einhverju ráða. Það eru þessi skrifsumra blaða.sem hafa verið þess háttar, að þau hafa beinzt að þvi, eins og ég áðan sagði, að grafa undan lýðræði i þessu landi.” Allt á eina bók lært „Hvernig hafa þessi blöð, eins og Visir skrifað um þessa virðu- legu stofnun, Alþingi íslendinga, dýrmætustu stofnun islenzku þjóðarinnar, nefnt hana hvers konar ónefnum og óvirt hana á allan háttog eru með þvi að grafa undan traustinu á þjóðfulltrúa- samkomu þjóðarinnar. Sam- komu, þar sem þjóðkjörnir menn sitja, menn sem hafa orðið að sækja traust sitt til kjósenda, menn sem þe'ssir Visismenn mundu aldrei fá, aldrei. Þeir mega þykjast góðir að hafa i krafti' peninga komizt i stjórn Visis. Og hvernig hafa þessi blöð haldið áfram að naga rætur lýðræðisins á íslandi. Jú, jú, ráð- herrar eru náttúrlega landráða- menn meira og minna. Hugguleg- ur vitnisburður. Ég er ráðherra i dag, annar á morgun. Það eiga margir eftir að verða, en hvaða traust verður borið til þeirra manna, sem skipa þessar stöður þegar þannig er búið að grafa undan þeim og hvernig hefur verið talað um framkvæmda- valdið yfirleitt Er það ekki allt á sömu leið. Nú á að byrja á dómstólunum og dómstólakerf- inu, grafa unda þeim, grafa undan dómsmálaráðuneytinu og veikja traust almennings á þess- um stofnunum, sem eru hom- steinar i islenzku þjóðfélagi, hyrningasteinar undir isl, lýð- ræði. Það er óþrifa- og óþverra- verk, sem þessir menn standa I, og þeir mega hafa skömm fyrir. Það þýðir ekkert fyrir þessa menn aö ætla að skjóta sér á bak við Vilmund Gylfason. Það er raunar litilmannlegt af þeim. Þeir bera ábyrgðina, og sjálfur ritstjóri Visisskrifar á forsiðuna i Visi i dag og setur mér kosti: „Dómsmálaráðherra gefinn kost- ur á að draga ummæli sin til baka.” Kannast menn við svona vinnubrögð? Það skyldi nú aldrei vera að „Mafian” viðhefði svona vinnubrögð nokkuð viða, sendi hótanir i blöðum eða hótunarbréf. ef á þarf að halda? Mafia er hún, og Mafi'a skal hún heita. Það er svo annað mál, sem ég ætla ekki að orðlengja um hér, að auðvitað hafa oft verið úfar með Framsóknarflokknum og Sjálf- stæðisflokknum. Framsóknarfor- ystumenn hafa lika oft fengið kaldar kveðjur i blöðum Sjálf- stæðismanna, og það hefur sjálf- sagt verið gagnkvæmt — og það mætti nú rifja upp ýmis tilvik af þvi tagi, allt frá Kleppi og út um eyjar. Ég ætla að sleppa þvi núna, en ég hef það allt geymt, og það fyrnist ekki.” Guðmundur Marteinsson: Enn situr Loki á svikráðum við Baidur Og hvað fær sárar samvizkuna kvalið en svik við það, sem ábyrgð vorri er falið? Tómas Guðmundsson. Vordag einn á siðast liðnu ári var i þessu blaði forsiðumynd af manni riðandi bráðfallegum hesti á harða spretti, og var þess getið, að hesturinn héti Baldur. Undir myndinni stóð: „Þessi hestur selur þúsund islenzka hesta fyrir okkur,” og er það end- urtekið i feitletraðri fyrirsögn á grein inni i blaðinu, þar sem nán- ar er sagt frá Baldri, sjö vetra skagfirzkum gæðingi, sem „fór snemma i morgun flugleiðis héð- an áleiðis til Hollands og Þýzka- lands, þar sem hann tekur þátt i mótum fyrir islenzka hesta.” „Eigandi Baldurs..... frábær hesta- og tamningamaður, fer út- an með hestinum”........Baldur kennir ekki til tslands aftur, þar sem bannaö er mcð lögum að flytja hesta úr landi og heim aft- ur” (leturbreyting min, G.M.) ...,með sömu flugvél og Baldur fór utan hrossahópur. „Þetta er fallegasti hrossahópur, sem ég hef séð fara út landi,” segir selj- andi hestanna, og virðist hreyk- inn af. Og kaupandinn er talinn vera „kunnur unnandi islenzkra hesta.” Hér er tilfært brot úr frásögu af sölu hóps islenzkra hesta til út- landa. I hópnum er frábær gæð- ingurm sem ekki á afturkomu auðið til sinna islenzku heim- kynna, frekar en hinir hestarnir i hópnum, og gæðingunum er borið á brýn (það virðist raunar eiga að vera hrósyrði), að hann muni selja þúsund meðbræðra sinna til útlanda. Það er ekki ætlunin með þvi að tilfæra þetta frásögubrot að beina gagnrýni sérstaklega að þeim mönnum, sem hér koma við sögu, en umrædd blaðagrein er dæmi- gerð um hið fullkomna blygðun- arleysi, sem almennt virðist rikja meðal islenzkra hrossaútflytj- enda og erindreka þeirra. Það vill svo til i þessu tilviki, að nafn hestsins, sem kemur við sögu, er BALDUK, glæsilegur fulltrúi islenzkra hesta. „Loki” er i þessu dæmi maðurinn. nánar tiltekið islenzkir menn, sem taka heslana sina úr hesthúsinu eða sumarhögunum og selja þá i ævi- langa útlegð. Islenzkir hestar eru hluti af is- lenzku samfélagi, rétt eins og is- lenzkir menn. Landnámsmenn- irnir fluttu með sér hesta og önnur húsdýr yfir hafið, þegar þeir námu hér land. Það urðu þeir að gera. til þess að geta lifað i þessu landi. Ilestarnir hafa á- samt kúnum og kindunum haldið lifinu i þessari þjóð gegnum ald- irnar. Þar til fyrir örlaum ára- tugum var hesturinn sannarlega þarfasti þjónninn, og jafnframt, ásamt hundinum. náinn l'élagi og vinur mannsins. En hesturinn er þvi aðeins sjálfbjarga um fæðuöflun, að grasi vaxin jorö sé honum að- gengileg. A manninum hvilir sú skylda að afla fæðu handa hestin- um og fóðra hann á þeim árstima, sem hann er ósjálfbjarga um fæðuöflun, og veita honum aðra aðhlynningu, sem honum er nauðsynleg til þess að geta gegnt sinu hlutverki, manninum til gagns og ánægju. Þannig hafa maður og hestur löngum verið háðir hvor öðrum. Sú breyting varð á fyrir nokkr- um áratugum, að isiendingar urðu „upp úr þvi vaxnir” að nota hestinn við dagleg störf, til burð- ar. dráttar og nauðsynlegra ferðalaga. Nú eiga menn hesta næstum eingöngu sér til skemmt- unar, til likamlegrar og andlegr- ar upplyftingar. En kaldhæðni má það kallast, að jafnframt þvi sem islenzkur landbúnaður er þannig kominn á „hærra plan”, og „þarfasti þjónninn” þar með að verulegu leyti leystur frá störfum, skuli hann gerður að fé- þúfu með þeim hætti, sem hér er rætt um. Hesturinn er skyni gædd skepna, með rikt skap og næmar tilfinningar og afarsterka átt- hagakennd. Þetta vita allir, sem hafa umgengizt hesta, og er það staðfest með fjölda sagna, gam- alla og nýrra. Sá er þetta ritar hefur áður i blaðagrein (Mbl. 15. mai 1973) látið i ljós þá skoðun, að sennilega hafi margur hestaeigandinn (bóndinn) skömm á þessari hestasölu, en úr þvi að þetta við- gangist, sé varla við öðru að bú- ast en að margir þeir, sem til þess hafa aðstöðu, taki þátt i þvi. Svo mikil er freistingin, hátt verð i boði fyrir islenzka hesta selda til útlanda. Þess vegna dugi ekkert minna til að stöðva þennan ósóma en alþjóðasamtök. m.ö.o. að full- trúar þjóðarinnar á Alþingi sam- þykki lög, sem banni útflutning iifandi hesta. Nú er að sjálfsögðu ekki við þvi að búast. að Alþingi rjúki til og setji lög. nema fyrir liggi nokkrar likur á þvi, að verulegur hluti þjóðarinnar (kjósenda) sé hlynntur slikri lagasetningu. Spurningin er þvi, hvenær sóma- tilfinning þjóðarinnar kemst á það stig. að Alþingi fái nægilega hvatningu til þeirrar verndar is- lenzka hestsins. sem i slikri laga- setningu fælist. Væri það ekki verðugt verkefni fyrir dýraverndunarfélög og hestamannafélög viðs vegar um landið :ið kanna hug þjóðarinnar til slikrar lagasetningar, og jafn- framt ljá hestinum fulltingi sitt eftir mætti? Um lög varðandi meðferð hús- dýra almennter mér litt kunnugt. Vitað er. að á liðnum öldum hefur fénaður oft fallið úr hor, þegar hart var i ari. en mannfólkið i landinu varð einatt i hallæri að sæta svipuðum örlögum. En að úligangshrossabúskapur skuli ennþá viðgangast i liinu is- lenzka velferðarriki, er þjóðinni lil litils sóma. Um það skal þó ekki l'rekar fjölyrt að sinni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.