Tíminn - 03.02.1976, Qupperneq 12

Tíminn - 03.02.1976, Qupperneq 12
12 TÍMINN Þriðjudagur 3. febrúar 1976. Nona Gaprindasjvili heimsmeistari kvenna í skák - fyrsti stórmeistarinn meðai kvenþjóðarinnar í viðtali við Nonu Gaprinda- sjvili, sem um langt skeið hefur verið fremst kvenna i skák- heiminum, var fyrst að þvi spurt, hvernig háttað væri sam- bandi skákkvenna viö FIDE, al- þjóða skáksambandið. — Við skákkonur höfum ekki staðið i striði við FIDE eins og karlar, enda þótt við höfum ærna ástæðu til. Til dæmis voru ólympiumót fyrir konur tekin upp 30 árum á eftir karlamót- um. Enn er ekki efnt til Evrópu- meistaramóta eða heims- meistaramóta fyrir stúlkur. Stórmeistaratign fyrir konur var tekin upp fyrir nokkrum dögum, ef svo má segja. Eins og eðlilegt er, keppa kon- ur ekki við karla i flestum iþróttum : þær hlaupa styttri vegalengdir, kúla þeirra er létt- ari, blaknetið er lægra o.s.frv. Það er aðeins i skák, að við mætum körlum sem jafningj- um. En skák er reyndar mjög erfið iþrótta. Það er ekki að ástæðulausu að Petrosjan horaðistum sex kiló i fyrsta ein- vigi sinu við Spasski. Konu veit- ist mjög erfitt að þola hið mikla sálræna og likamlega álag fimm stundir á hverjum degi, kannski þrjár-fjórar vikur i einu. Að ógleymdum mörgum smáum og stórum vandamálum kvenna. — En karlar hafa lika sinn djöful að draga. Samanber vig- orðiö: „spörum karlana”. — Gott og vel, spörum karla, en ekkiþá sem tefla, segir Nona brosandi. Ég get leyft mér að segja þetta, þvi ég hefi mikla reynslu af þvi að tefla við karla og veit, að þvi fer fjarri að þeir sýni riddaramennsku við tafl- borðið. I fyrsta iagi skammast þeirsin mikið fyrir að tapa fyrir konu, og ieggja sig þvi alla fram. Meistari nokkur, sem tapaði fyrir mér, móðgaðist svo, að hann heilsaði mér ekki i nokkra daga. Gott og vel, þetta getur maður skilið. En af hverju láta þeir fara i bið og leika til enda stöður, sem eru bersýni- lega jafnteflisstöður, einmitt þegar þeir eru að tefla við mig — það er algjört hneyksli.... Sem fyrr segir hefur Nona Gaprindasjvili, sem er frá Grúsiu, sigrað hvern áskorand- ann af öðrum. Siðast glimdi hún við kornunga skákkonu, sem einnig er frá Tblisi i Grúsiu, Nönu Alexandriu. Heims- meistarinn játar, að það hafi verið erfið viðureign, og ekki bara taflið sjálft, heldur lika vegna þess „að mér hefur verið spillt af þeim, sem halda með mér. Ég man árið 1956, þegar ég var fimmtán ára skólastelpa, þá varð ég Grúsiumeistari með 15,5 vinninga af 16 mögulegum. Þegar ég gekk út úr leikhúsinu, þar sem teflt var, þurfti tvo lög- reglumenn til að koma mér i gegn um þyrpingu æstra aðdá- enda. Þegar ég gekk á milli þeirra, þá hrópaði kona ein skelfingu lostin: Drottinn minn, hvað hefur stelpugreyið gert af sér”. — En þurfti engan lifvörð núna? — Nei, ég var með eigin lif- vörð, eiginmanninn, son minn og bræður. En aðdáendurnir höfðu ekki bara min vegna þyrpztsaman. Nana Alexandria nýtur mikilla vinsælda og i fyrsta sinn varð ég þess vör, að jafnvel i Tblisi, halda ekki nærri allir með mér. Fyrst gramdist mér þetta. Til dæmis þegar einn meðhaldsmaðurinn spurði mig i miklum barnaskap : Gætirðu nú ekki leyft stelpunni að vinna? Þú getur hirt af henni heims- meistaratitilinn aftur eftir þrjú ár. En svo skildi ég, að þetta er allt eðlilegt. I gamla daga „stal” ég vinsældum frá öðrum, og það er timi til þess kominn að ég fari að greiða þá skuld. Mér er annars heldur vel við þessa „aðdáendur”. Og mér hefur alltaf þótt gott að tefla i margmenni. Kiiðurinn og hvisl- ið úr salnum hressir mig. Mér þykir gaman, þegar áhorfendur klappa fyrir fallegum leik. Ekki fyrir sigri kannski, en fyrir fal- legum leik. Á slikum augnablik- um finnur maður greinilega, að það er listrænn þáttur i skák, sem getur veitt fagurfræðilega ánægju. En það versta við að- dáendurna er, að þeir eru alveg sannfærðir um að heims- meistarinn verði að vera efst á öllum mótum. Einu sinni lenti ég i öðru sæti á alþjóðamóti kvenna i Belgrad, og strax fóru menn að hrista hausinn : Hvað hefur komið fyrir hana Nonu? En satt bezt að segja, þá finn ég, að ég býst lika alltaf við sigrum einum af knattspyrnuliðum eða körfuboltaiðum Tblisiborgar — liklega eru allir meðhaldsmenn eins og verður ekki breytt. — Hefurðu nokkurn tima fundið til andstyggðar á skák? — Það hefur komið fyrir. 1 siðustu umferð sovézka meistaramótsins 1964 tefldi ég við Olgu Andréévu. Mér var þá þegar tryggt fyrsta sætið, en Olgu hafði gengið illa, og úrslit- in skiptu hana ekki máli. Sama dag áttu handboltamenn frá Tblisi að leika við Júgóslava i keppni meistaraliða Evrópu, og ég var búin að kaupa mér miða. Ég tefldi hvitum, hafði drottn- ingaskipti og stakk upp á jafn- tefli. Ég var viss um að Olga myndi samþykkja þetta, en hún vildi tefla við heimsmeistarann og neitaði. Og þessi lika stór- spennandi handboltaleikur að byrja, sem ég vildi ekki með neinu móti missa af. Æ, æ! Ég bað um kaffibolla og.reyndi að gleyma handboltanum. Við tefldum til máts. Kannski þótti Olgu gaman, en ekki henni mér! — Stundum eruð þið Vera Mentsjík (um langan aldur heimsmeistari kvenna) bornar saman, og sagt að þér hafið þegar skyggt á frægð hennar? — Hvernig er hægt að bera saman skákkonur, sern aldrei hittust, og tefldu ekki einu sinni viðsömu andstæðinga? Það get- ur engin farið i föt Veru Ment- sjik, þótt ekki væri nema vegna þess, að það var hún, sem sýndi fyrst fram á það, að konur geta náð mjög langt á þessu erfiða sviði. En ég vona það verði ekki talið mér til grobbs þótt ég segi, að kannski hafi ég með skákstil minum, með stöðugri sóknar- viðleitni og þvi að tefla til sigurs við sterka skákmeistara, að nokkru orðið til þess að kvenna- meistarar tefla nú djarfar en áður, eiga fleiri úrræði, að ótti þeirra við að tefla við karla er að hverfa. Og nú eruð þér sjálfir aftur komnir inrr á „karla- þemað”. — Finnst yður, að þér séuð alveg sanngjarnar við karlpen- inginn? — Ég ólst upp með fimm bræðrum og lék þeirra leiki. Enn hitnar mér um lófana, þeg- ar ég man, hvernig ég stóð i marki og varði vitaspyrnu. Ég eignaðist mina fyrstu brúðu, þegar ég var orðin heimsmeist- ari — það voru stúdentar, sem gáfu mér hana. Sambúð min við manninn minn er i allra bezta lagi og Datiko litli, sonur minn, er min stærsta gleði. Ég er bara að halda uppi málsvörn fyrir sannleikann. Min uppáhalds- lesning er t.d. ræður málflutn- ingsmanna- Ég reyni bæði i skák, sem móðir og sem þing- maður að finna réttlátar lausn- ir, hvernig get ég látið sem mig varði engu, hvernig konum vegnar i skák? — Og að lokum? — Ég skil. Ég skal taka það fram, að ég hef mætur á tölunni þrettán. Hún eltir mig á rönd- um. Það eru 13 stafir i nafninu minu. Númerið á ibúðinni, sem ég bjó áður i og þeirri sem ég bý i núna, er 13. Ég fékk 13 vinn- inga i áskorendamótinu 1961, og i tveim næstu einvigjum um heimsmeistaratitilinn, sem ég vann, voru tefldar 13 skákir. Tvisvar hef ég unnið allar min- ar skákir á alþjóðlegu móti — og þær voru 13 i báðum tilvikum. Einu sinni vann ég allar minar skákir i hraðskákmóti karla i Hastings — en meðal keppinaut- anna var sjálfur Tal. Það er rétt til getið, að þessar skákir voru þrettán talsins.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.