Tíminn - 03.02.1976, Page 23
TiMINN
23
þriðjudagur :!. febrúar l!)7(i.
f
m - ffs
.
k
Forseti islands mælti nokkur orð, þegar brjústmyndin var afhjúpuð ' Stjórnarráðinu.
Bolvíkingar,
nágrannar
Bolvikingar, nágrannar.
F'élagsmálanámskeið hefst i Félagsheimilinu i Boljyngarvik i
kvöld. Leiðbeinandi verður Heiðar Guðbrandsson.
Allir velkomnir.
SUF, Kjördæmissamband Framsóknarmanna á Vestfjörðum og
Framsóknarfélag Bolungavikur
Brjóstmynd af Jóni konungsritara í
stjórnarróðinu
HINN annan febrúar
voru hundrað ár liðin frá
fæðingu Jóns Svein-
björnssonar konungsrit-
ara, og var þá brjóst-
mynd af honum komiö
fyrir i gamla Stjórnar-
ráðshúsinu. Mælti dr,
Kristján Eldjárn nokkur
orð við það tækifæri.
Myndin er hingað komin að
frumkvæði sonar Jóns, Erlings
Sveinbjörnssonar hagfræðings,
sem eftirlét Islandi hana, en rik-
isstjórn lét steypa hana i brons.
Hingað tillands er einnig kominn
einkennisbúningur Jónsogkorði.
Jón Sveinbjörnsson var aðstoð-
armaður i stjórnarráðinu árin
1904-1906, en fluttist þá til Kaup-
mannahafnar. Konungsritari var
hann 1918-1944. Hann andaðist 12.
marz 1953.
Korði Jóns konungsritara.
Einar H. Einarsson á Skammadalshóli:
Flug Concorde-þotunnar
kom fram á jarðskjálftamæli
Concorde-þotur hafa nýverið haf-
ið áætlunarflug, þótt enn sé vafa-
samt, hverja framtið þær eigi
fyrir sér, ekki si'zt vegna þess, að
bandarisk yfirvöld hafa meinað
þeim um lendingarleyfi vestra
vegna hávaðamengunar og ann-
arrarhættu, sem stafaraf þessari
gerð flugvéla, sem kostað hefur
offjár að framleiða. Con-
corde-vélarnar fljúga mjög hátt,
ogmargir visindamenn eru þeirr-
ar skoðunar, að þær muni smám
saman eyðileggja þau hinna efri
loftlaga, sem þær fara um, en
þessi lög eru jörðunni nauðsyn
vegna þess, að þau vernda allt
jarðlif gegn geislun utan úr
geimnum.
Einar H. Einarsson sendi
Timanum fyrir skömmu grein þá,
sem hér fer á eftir, en þar segir
frá þeim atburðum, sem urðu,
þegar Concorde-vél sótti ísland
heim i fyrsta og vonandi siðasta
skiptið.
Grein Einars er svolátandi:
,,Að undanförnu hafa verið a 11-
miklar orðræöur i fjölmiðlum um
erfiðleika á þvi að fá lendingar-
leyfi fyrir Concorde-þotur i
Bandarikjunum. Við þessar um-
ræður vaktist það upp fyrir mér,
að aldrei hef ég séð þess getið i
fjölmiðlum, hvað gerðist hér i
Mýrdal, þegar Concorde-þotan
kom til Islands 7. febrúar 1974 og
lenti á flugvellinum i Keflavik
laust eftir kl. 13. Ég fór þvi að
fletta upp i dagbók minni frá um-
ræddum degi. Þar stendur þetta
m.a.:
Eftir matinn hallaði ég mér upp
i divan, allt i' einu heyrðum við
allmiklar sundurlausar drunur.
Héldum að mikið grjóthrun hefði
orðið i Kömbunum upp af bænum
i Skammadal. Hraðaði ég mér út
til að sjá ummerkin, en engin
missmið sást á fjallinu og enga
nýja steinasá ég I túnunum niður
af þvi. Konan min fór vestur i
Einar II. Einarsson á Skanima-
dalshóli er eiiin hinna sjálfmennt-
uðu náttúrufræöinga i isienzkri
bændastétt og hefur skrifað
margar athyglisverðar greinar i
sérfræði rit um náttdrufræðileg
efni.
herbergið þar sem jarðskjálfta-
mælir Orkustofnunar er, og ætl-
aði að sjá úr glugganum þar,
hvað væri að gerast upp af
Skammadal. Varð henni litið á
mælinn og kallaði til min, að
þessar drunur hefðu Jcomið á
hann. Mikið rétt, þarna var ekki
um að villast, mælirinn sýndi
skjálfta með komutima 12-46-00.
Eftir útiiti linuritsins mátti halda
að þetta væri jarðhræring. sem
upptök hefði átt i sem næst 75 km
fjarlægð, og að stærð verið nálægt
2 stigum á Richtersmælikvarða,
en nokkuð var hann sérkenniieg-
ur i útliti.
Mitt fyrsta var að hringja i
Lóranstöðina á Reynisfjalli og
spyrja um hvort skjálftinn hefði
komið inn á jarðskjálftamælinn
þar, en skynjari (geofónn) hans
er við Selfjall austan Múlakvisl-
ar, en sendir inn á mælinn á
Lóranstöðinni. Ekki stóö á þvi að
skjálftinn hefði komið inn á þann
mæli. Siðar talaði ég vi.ð
Skammadal. bað var sama sagan
þar og hjá mér. Fólkið þaut út til
að sjá grjóthrunið sem það taldi
aðdrunurnar stöfuðu frá, en þeg-
ar út var komið sást engin
hreyfing i Kömbunum.
Mér virtist þetta alldularfullt,
þvi ekki hafði ég vanizt þvi að
slikar drunur heyrðust þótt jarð-
skjálftamælirinn sýndi stærri
skjálfta en þetta, svo ég talaði við
jarðeðlisfræðideild Raunvisinda-
stofnunar Háskólans. Þar höfðu
þeir einskis orðið varir, en þenn-
an dag var það mælirinn á Þor-
birni við Grindavik sem sendi inn
á sjálfritann hjá þeim. Það sýndi
að upptök skjálftans gátu tæpast
hafa verið vestan við mig. Datt
okkur þá i hug að setja þetta i
samband við þotuna, grennsluð-
ust þeir fyrir um lendingartima
hennar, og kom þá i ljós, að vel
gat timasetningin á skjálftanum
komið heim við það að þá hefði
þotan verið að slá af hraðanum
yfir hafínu hér suður af og rof
hljóðmúrsins valdið þessum
gauragangi hér i Mýrdal, og ann-
að hefur aldrei sannazt.
Siðar fékk ég þær upplýsingar,
að viðar i Mýrdal og undir Eyja-
fjöllum hefði fólk heyrt umrædd-
ar drunur.
Við umræðurum lendingarleyfi
Concorde-þota i Bandarikjunum
rifjaðist þessi atburður upp fyrir
mér, og hafi þessar ályktanir
okkar varðandi skjálftann og
drunurnar verið réttar, sem við
teljum engan vafa á, furðar mig
ekki að til séu þeir, sem ékki eru
neitt hrifnir af að eiga von á sliku
yíir höfði sér.”
Enginn ó veiðum
ó Berufjarðardl
Gsal-Reykjavik. LandhelgisgæzT^
an kannaöi i gær, hvort nokkrir
bátar eöa skip vaeru að veiðumlT
friðaða svæðinu á Berufjarðarál,
en það svæði er friðað frá og með-
1. febrúar. Að sögn Jóns Magnús-
sonar. talsmamns—Landlielgis-
gæzlunnar, voru engin skip þar að
ve iðu m.
© íþróttir
að la 5 villur, og einnig Armenn-
ingurinn Birgir örn Birgis, og
léku þeir þvi ekki með i framleng-
ingunni. Mikil taugaspenna rikti
siðan i framlengingunni — en hún
gekk þannig fyrir sig.
Armanii — Njarðvik
Itogers
Guðsteinn
Rogers
Jón S.
Jón S.
Haraldur
98:96
100:96
100:98 Kári
102:98
102:100 Jónas
104:100
104:101 Jönas (v)
104:102 Sigurður (v)
104:104 Jónas
106:104
108:104
Ármenningarnir voru sterkari
á lokasprettinum, en þegar stað-
an var 102:98, var Jimmv Rogers
visað af leikvelli — 5 villur. Rog-
ersvar stigahæstur hjá Ármanni
með 44 stig, flest eftir frábærar
sendingar frá Jóni Sigurðssyniog
Guðsteini Ingimarssyni, en þeir
áttu stórgóðan leik. Jón var pott-
urinn og pannan i leik Ármanns-
liðsins — skoraði 21 stig og sýndi
mikið öryggi i vitaköstum. Guð-
steinn skoraði 15 stig. Stefán
Bjarkason var beztur hjá Njarð-
vikingum — var óstöðvandi. þeg-
ar hann komst á skrið, og skoraði
28 stig. Jónas Jóhannsson (20
stig) og Brynjar Sigmundsson 120
stig) voru einnig góðir. Kári
Mariusson átti góða spretti.
—sos
Þessi mynd var tekin á Keflavikurflugvelli, þegar Coneorde-þota kom hingaö til lands.en frá þvi segir i grein Einars
Halogen
framluktir og
þokuluktir.
Speglar
af mörgum gerðum.
Vatns-dælur
fyrir Austin Gipsy
diesel.
AAV-búðin
Suðurlandsbraut 12.
Simi 85052.