Tíminn - 03.02.1976, Side 24

Tíminn - 03.02.1976, Side 24
Þri&judagur 3. febrúar 1976. MET8ÖLUBÆKUR ÁENSKUÍ . VASABROTI í í fyrirgóéan mat ^ KJÖTIDNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Leiðtogar ítalskra kommúnista: Stjórnarsamstarf við kommúnista nauðsynlegt, ef leysa á efnahags- °g stjórnmála- kreppuna Keuter/Kóm. Enrico Berlingu- er, leiötogi kommúnistaflokks- ins á ttaliu sagði að ekki yrði unnt að leysa núverandi stjórn- mála- og efnahagskreppu á italíu, án þátttöku kommúnista- flokksins i stjórnarsamstarfi. Kemur þetta fram i viðtali, sem birtist við Berlinguer i itölsku dagblaði i dag. Þátttaka okkar i stjórn- armyndun mun ekki leiða nein kraftaverk af sér, sagði Ber- linguer. Hins vegar má það ljóst vera, sagði hann, að erfitt verð- ur að leysa aðsteðjandi vanda án stuðnings þess flokks, sem nýtur fylgis 33% atkvæðisbærra landsmanna, þeirra á meðal flestra verkamanna i landinu. Berlinguer Átökin í Vestur-Sahara: Deiluaðila greinir á um mannfallið New York- búar and- snúnir Concorde Rcuter/New York. Það kemur fram i skoðanakönnun, sem birt var i New York i gær, að þrir af hverjum fjórum New York-búum eru á móti þvi að Concorde-þotunni, sem byggð var í sameiningu af Bretum og Frökkum, verði veitt lending- arleyfi i New York. Það var New York Daily Mail scm gekkst fyrir könn- unn þessari. Af þeim 532, sem spurðir voru, viidu 63% banna alit flug Con- corde til Bandaríkjanna. 23% vildu veita þotunni umbeðin ieyfi, en afgangurinn hafði enga skoðun á málinu. 69% spurðra sögðust ekki vilja fijúga mcð vélinni. Af þeim sem vildu fjúlga með Concorde voru kvenmenn i ineirihluta. Idi Amin, forseti Uganda: Reuter/Alsir, Rabat. Talsmenn aisirsku stjórnarinnar sögðu i gær, að hersveitir þeirra hefðu drepið meira en 400 hermenn Marokkostjórnar I átökunum i Amgala eyðimörkinni i Vestur-Sahara i siðustu viku. Það var hið opinbera málgagn alsírsku stjór narinnar, EI Moudjahid, sem birti töiur þessar. Ekkert var minnzt á mannfail i liði Aisirmanna. Heimildarmenn blaðsins fyrir tölu þessari, eru hermenn þeir, sem þátt tóku i átökunum, en eru nú komnir aftur til stöðva sinna, um 300 km. frá þeim stað, þar sem átökin áttu sér stað. E1 Moudjahid gerði engar at- hugasemdir við frétt þá, sem birt hefur verið i Marokko, um að 200 alsirskir hermenn hafi verið drepnir og 109 handteknir. Talsmenn Marokkostjórnar hafa borið þessa fregn E1 Moudjahid algjörlega til baka og segja hana hreinan uppspuna. Sögðu þeir að alsirsku hermennirnir hefðu flúið undan hermönnum Marokkóstjórnar, og þvi harla óliklegt, að þeim hafi unnizt timi til að telja lik fallinna áður en þeir flúðu. Marokkostjórn itrekaði, að mannfall i liði þeirra hefði ekki verið mikið tveir hefðu fallið og 14 særðir. Hins vegar hefðu 200 alsirskir hermenn fallið og 109 verið handteknir. Erlendir fréttamenn sem flugu yfir vigvöllinn i Amgala sögðu i gær, að þeir hefðu ekki séð neina ónýta skriðdreka eða annan vopnabúnað frá Marokkomönn- um, sem alsirskir hermenn hefðu grandað eins haldið var fram af þeirra hálfu. Angóla: Líklegt að helztu borgir UNITA falli innan fárra daga Reuter/Belgrad. Júgóslavneska fréttastofan Tanjug sagði i gær, að MPLA hreyfingin I Angola, sem nýtur stuðnings stjórna Sovétrikjanna og Kúbu, verði innan örfárra daga búin að her- taka þrjár helztu borgir UNITA- hreyfingarinnar. í fréttasendingu frá Luanda, höfuðborg MPLA i Angola, sagði að borgir þessar væru Lu- ambo, höfuðborg UNITA, hafn- arborgin Lobito og Luso, mið- stöð járnbrautasamgangna. UNITA hefur þegar yfirgefið Luambo að hiuta og Luso, að þvi er júgóslavneska fréttastofan hermir. CIA njósnarar í V-Þýzkalandi afhjúpaðir Reuter/Frankfurt. Vinstri sinn- að vestur-þýskt dagblað, In- formationsdienst, birti i gær nöfn 15 bandariskra sendi- ráðsstarfsmanna, sem blaðið segir vera útsendara CIA, leyni- þjónustu Bandarikjanna, i Vest- ur-Þýzkaiandi. Þá birtir blaðið heimilisföng manna þessara og stutt æviágrip þeirra. Informationsdienst kvaðst hafa uppiýsingar sinar frá heimildarmanni innan sendi- ráðsins. Sagðist blaðið hafa birt nöfnin þvi að enginn gæti talizt óhultur vegna starfsemi manna þessara. Blaðið mótmælti þvi harö- iega, að með nafnbirtingunni setti það lif mannanna 15 i hættu. ,,Það sem við erum að skýra frá nú hefur KGB vitað i langan tima,” sagði blaðiö. Leiðtogar FNLA-og UNITA reiðubúnir til samstarfs við stjórn AAPLA í Angola Reuter/London. Idi Amin, for- seti Uganda, og formaður Ein- ingars am taka Afrikurikja, OAU hefur að nýju boðizt til þess að miðia málum svo að koma megi á friði i Angoia. Am- in hefur áður boðizt til að miðla málum I þessari deilu. Frétt um þetta heyrðist i London i útsendingu útvarpsins i Uganda, þegar lesið var tilboð Amins til Neto, forseta stjórnar MPLA i Angola. Sú hreyfing nýtur,eins og svooft hefur verið skýrt frá, stuðnings sovézku og kúbönsku stjórnanna. 1 tilboði Amins sagði, að hann væri tilbúinn til að fljúga til Luanda, höfuðborgar MPLA ásamt sendinefnd, sem skipuð væri fulltrúum vinveittum bæði MPLA og hreyfingunum FNLA og UNITA, sem berjast gegn yfirráðum MPLA. Amin sagði i orðsendingu sinni, að hann hefði upplýsingar um það, að leiðtog- ar FNLA og UNITA væru reiðu- búnir að taka þátt i samstarfi með MPLA um að byggja upp sterkt og sameinað riki i Angola. I orðsendingunni segir Amin einnig, að hann hafi ráðlagt leiðtogum FNLA og UNITA að senda málaliða þá, sem með þeim berjist til sins heima, ella muni þeir glata samúð OAU og þriðja heimsins. ,,Sem núverandi formaður OAU, er ég ákafur i að finna lausn á máli þessu, og er reiðu- búinn að koma til Luanda um leið og ég hef fengið svar frá yður,” sagði Amin loks i orð- sendingu sinni til Netos. í gær hófst í Barcelona ó Spdni: RAÐSTEFNA UM VERNDUN OG HREINSUN MIÐJARÐARHAFSINS Reuter/Barcelona. Sérfræðing- ar frá 18 iöndum komu samaii til ráðstefnu i Barcelona á Spáni i gær og er ætlun þeirra að ræða möguleika á þvi að komast að samkomulagi um hreinsun Miö- jarðarhafsins og að hindra frek- ari mcngun þess, áður en allt verðurum seinan I þeim cfnum. Ráðstefnan mun standa i tvær vikur. Það var umhverfismála- nefnd Sameinuðu þjóðanna, sem kvaddi ráðstefnu þessa saman. Mostafa Tolba, fram- kvæmdastjóri umhverfismála- neftidarinnar, sagði i gær, að undirbúningsviðræður hefðu þegar sýnt, að vel væri hugsan- legtaðkomast að samkomulagi um ráðstafanir gegn frekari mengun Miðjarðarhafsins. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna telja, 'að um 100 milljónir manna búi við sjávar- siðuna úmhverfis Miðjarðar- hafið, og að þangað komi miklu meiri fjöldi til sumarfria ár hvert. Telja sérfræðingarnir liklegt, að um árið 2000 verði 200 milljónir manna búsettir á þessum slóðum og sé þá ekki með talinn allui- sá fjöldi, sem þangað muni koma i frium sin- um. Segja sérfræðingar þessir, að 90% af öllu skolpi og úrgangs- vatni, sem i Miðjarðarhafið renni, renni þangað óhindrað og án þess, að nokkrar ráðstafanir séu gerðar til að fyrirbyggja skaðleg áhrif þess, enda er svo komið að kvikasilfursmagn i mörgum fisktegundum er kom- ið langt upp fyrir það, sem heil- brigðisyfirvöld telja forsvaran- legt.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.