Tíminn - 12.02.1976, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
Fimmtudagur 12. febrúar 1976
Óvelkominn qestur
Jane setti snögglega frá sér bakkann og lét fallast
niður á stól. Bref ið auðvitað.... Neil var búinn að opna
það. Hún horf ði sviplaust á hann í nokkrar sekúndur.
— Hérna, taktu það, Hann rétti henni úrklippuna eins
og blaðið væri glóandi og andlitið var dökkt af reiði.
--- Þetta var allt, sem ég þarfnaðist, sagði hann loð-
mæltur,— Sannanir fyrir því, hvernig þú gerðir allar á-
ætlanirnar. Afar þægilegt fyrir Dick, að ég skyldi biðja
þín á réttu andartaki, ekki satt? Gráu augun voru líkust
is.— Þú hlýtur að hafa skemmt þér kostulega yf ir því að
ég vissi ekkert um auðæfi þín. Hann hló hæðnislega. —
En mér líkar ekk að f ólk f ari á bak við mig, hvorki þú né
Dicks. Lítill vöðvi við munnvik hans kiptist til af,æsingl
og hann hélt áfram þungri röddu, — Svik eru....ófyrir-
gefanleg.
Hann ýtti stólnum aftur á bak með hræðilegum hávaða
og gekk hratt út úr herberginu.
9. kaf li.
Lömuð yfir viðbrögðum Neils sat Jane eins og stytta
við borðið og starði beint fram fyrir sig. Andlitið var
snjóhvítt og hún skalt innvortis. Svo beindust augu henn-
ar að blaðaúrklippunni, sem lá fyrir framan hana.
— Enskur erfingi giftist auðugum búgarðseiganda.
Hún starði á feitt, svarf fyrirsagnarletrið og orðin döns-
uðu fyrir rökum augum hennar. Þegar hún sá skýrt
aftur, las hún áfram: Það var allt þarna, ýkt að sjálf-
sögðu.... menntuð í Englandi..... auðug og þekkt fjöl-
skylda...styrkur frá ömmu hennar... Þeir hötðu meira
að segja grafið upp fjarskyldan ættingja.... skyld Sir
Miles Morton, heimsfrægum landkönnuði.
Hún leit yfir til Davids og stundi. Frú Conway hafði
sannarlega ekki eytt timanum til ónýtis. Hún hafði á-
reiðanlega verið í essínu sínu og allt of fús til.að fræða
blaðamennina um það sem hún hafði komizt á snoðir um.
Skyndilega tókutárin að renna niður vanga hennar og
hún féll fram á handleggi sína á borðinu.
David haf ði horf t á hana, án þess að segja nokkuð. Það
var áhyggjusvipur á viðkvæmu andliti hans. Hann greip
úrklippuna og las hana vandlega. Hann lofaði Jane að
jafna sig i nokkrar mínútur og strauk fingrunum gegn-
um þykkt, úfið hárið. — Svei mér, ef ég skil þetta full-
orðna fólk.
Jane hló skjálfandi og leit upp á hann með tárvott and-
litið.
— Aumingja David. Það er furðulegt fólk, ekki satt?
Nú komst allt í einu aðeins ein hugsun að í höfði henn-
ar, að David skynjaði ekki að líf hennar var að hrynja í
rúst. Hún herti sig upp og sagði ákveðinni röddu: — Við
skulum fá okkur kaffi. Svo getum við kannske spilað
svolítið, ef þig langar til.
Augu drengsins Ijómuðu. — Það væri gaman, Jane.
Ertu viss um að þú getir það?
Hún kinkaði kolli og brosti dauflega. Síðan hellti hún í
bollana og ýtti öðrum til hans. — Drekktu kaffið David,
ég held, að við höfum bæði gott af því. Þegar við erum
búin, skulum við fara með leirtauið fram til Wilmu. Ég
held, að hún haf i ekkert á móti því að þvó ein upp í kvöld.
Við skulum spila þrjú spil og svo er kominn háttatími,
drengur minn.
— Allt í lagi, sagði David ákaf ur.— Hann var f ús til að
gera hvað sem er til að fresta því að fara í háttinn. —
Heldurðu, að ég verði nógu hress til að ríða með þér út í
fyrramálið?
Jane hikaði. David var því miður ekki innifalinn í
þeirri áætlun, sem var að mótast í höfði hennar. — Ekki
á morgun, sagði hún. — Bíddu einn eða tvo daga. Þú ert
ekki nógu sterkur ennþá og læknirinn sagði þér að taka
það rólega.
David varð vonsvikinn á svip, en fór að stokka spilin og
gleymdi að tala meira um útreiðarferðina. Hann vann
fyrstu tvö spilin auðveldlega. Höf uðið á Jane var eins og
býf lugnabú og hún átti erf ítt með að einbeita sér. Dreng-
urinn tók vist ekki eftir því, hugsaði hún, en það var
aldrei hægt að vera alveg viss, þegar David var annars
vegar, hann var svo glöggur. Hún mundi sakna hans,
þegar hún kæmi aftur til Vancouver. Það fór hrollur um
hana. Lífið framundan var dapurt og endalaust að sjá,
Mundi hún nókkurn tíma gleyma Conway? Hún efaðist
um það.
— Jæja, nú ferðu í háttinn, David, sagði hún þegar
hann setti sigri hrósandi út síðasta spilið sitt. — Ég er
uppgef in líka, svoég held, aðég fari líka að hátta.
Hún bauð Wilmu góða nótt, sótti baðsloppinn sinn og
fór f ram á baðið, þar sem hún þvoði sér um hárið og fór
í sturtu.
Er öruggtað flottinn er= ^
:skipulagður eftir tilræðið? <?
Einhver sem
heitir
. 'Walker.
náunginn mei
honum? .
*.Walker er dulnefni Dreka
Framhald: „T
Fimmtudagur
12.febrúar
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnirkl. 7.00, 8.15og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Tilkynningar kl. 9.30. Þing-
fréttirkl. 9.45. Létt lög milli
atriða. Við sjóinn kl. 10.25:
Ingólfur Stefánsson flytur
þáttinn. Morguntónleikar
kl. 11.00: Suk-trióið leikur
Trió i g-moll fyrir pianó og
selló op. 15 eftir Smetana /
Fine Arts kvartettinn leikur
Strengjakvartett i e-moll
op. 44 nr. 2 eftir Mendels-
sohn.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. A frlvaktinni
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.35 Spjall frá Noregi Ingólf-
ur Margeirsson talar við tvo
dýralækna, Eggert
Gunnarsson og Þorstein
Ólafsson, um dýralækning-
ar ytra og heima.
15.00 Miðdegistónleikar Ro-
berto Szidon leikur tvö
pianóverk eftir Alexander
Skrjabin: Sónötu-fantasiu i
gis-moll op. 19 nr. 2 og
Fantasiu i h-moll op. 28.
Ungvérska rikishljómsveit-
in leikur Svitu eftir Béla
Bartók, János Ferencsik
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Barnatlmi: Gunnar
Valdimarsson stjórnar Úr
verkum Jóhanns Magnúsar
Bjarnasonar Lesið verður
úr sögunum „Eiriki Hans-
syni” og „Vornóttum á
Elgshæðum”, svo og sungin
tvö ljóð. Flytjendur: Guð-
rún Birna Hannesdóttir,
Þorsteinn V. Gunnarsson,
Hólmfriður Hafliðadóttir og
Þorbjörg Valdimarsdóttir.
17.30 Framburðarkennsla i
ensku
17.45 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Lesið i vikunni Haraldur
Ólafsson talar um bækur og
viðburði liðandi stundar.
19.50 Gestur i útvarpssal:
Walton Grönroos óperu-
söngvari frá Finnlandi
syngur tvo ljóðaflokka.
Agnes Löve leikur undir. a.
„Ljóð um dauðann” eftir
Yrjö Kilpinen. b. „Söngvar
Eiriks konungs” eftir Ture
Rangström.
20.15 Leikrit: „Beðið eftir
Godot” eftirSamuel Beckett
Þýðandi: Indriði G. Þor-
steinsson. Leikstjóri: Hrafn
Gunnlaugsson, sem gerði
útvarpshandrit. Persónur
ogleikendur: Vladimir: Ró-
bert Arnfinnsson. Estra-
gon: Helgi Skúlason. Pozzo:
Valur Gislason. Rödd:
Sigurður Pálsson. Drengur:
Skúli Helgason.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Kvöldsag-
an: „t verum”, sjálfsævi-
saga Theódórs Friðriksson-
ar Gils Guðmundsson les
siðara bindi (18).
22.40 Létt músik á siðkvöldi
22.25 Fréttir i dagskrárlok.
Kaupið bílmerki
Landverndar
ÍVerjurnK
ídé&óður)
ijfverndumi
^JandQff^f
Til sölu hjá ESSO og SHELL
bensinafgreiöslum og skrifstotu
Landverndar Skólavörðustíg 25