Tíminn - 12.02.1976, Blaðsíða 13

Tíminn - 12.02.1976, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 12. febrúar 1976 TÍMINN 13 III ffilSffl.lliH.lli„ TITOrf I É#|' linW^iil Talan 9 fyllir aldrei tug Landfari góður. Ég ætla nú að þessu sinni að biðja þig fyrir fáeinar línur. Svo er n.l. mál með vexti, að ég var að lesa ágæta endur- minningabók Meyvants á Eiði, skráða af Jóni Birgi Péturssyni. Á fyrstu bls. kemur fyrir leiðinleg meinloka. þar stendur: ,,En vikjum að þessum gaml- ársdegi 1899, siðasta degi 19 aldarinnar”. Svo kemur veður- lýsingin: ..Rosaveður með snjó- byljum.... en þegar fór að liða að kveldi. bliðkuðust máttar- völdin” Það liggur beinast við að hugsa sér, að þetta ártal (1899), sem skráð er i bók Meyvants, sé prentvilla, hefði ekki viljað svo til, að um áramótin 1969 og 70. var uppi i blöðum, og jafnvel vikuritum, allhörð deila um hvort með árinu 1970 hefði byrj- að áttundi tugur aldarinnar. Og það voru ekki menn eins og ég, og minir likar, sem aldrei hafa á skólabekk setið, sem héldu þeirri meinloku fram, að með tilkomu ársins 1970 væri byrjað- ur áttundi tugur tuttugustu aldarinnar, heldur jafnvel rit- stjórar og ýmsir aörir mennta- menn. Þó erfitt muni að koma þvi heim og saman, að nokkur tugur eða hundrað endi á tölunni 9. En vikjum nú að öðru: Til er bók sem heitir ,,öldin okkar” og þarf ég ekki að kynna hana. Á bls. 7 i fyrsta bindi stendur skráð með stóru letri efst á siðustu „1901” „Tuttugasta öldin gengur i garð.” „REYRVÍKINGAR KVEÐJA GÖMLU ÖLDINA OG FAGNA ÞEIRRI NÝJU.” Svo kemur veðurlýsingin: „Menn höfðu gert sér vonir um stillu og hreinviðri, en i stað þess blés nú austan landnyrð- ingsstormur, hlóð fönn að dyr- um manna og sveiflaði mold- viðrisstromum i fangið á þeim, sem höfðu kjark til að lita út.” Ég sé nú ekki annað en þetta sé svipuð veðurlýsing og i bók Mevvants. Þó önnur sé frá 1899, en hin frá 1900, Og ég mun að minnsta kosti hafa það fyrir satt, að 19. öldin hafi endað kl. 12 á miðnætti 31. desember árið 1900. Og 20. öldin byrjaði lika á miðnætti sama kvöld eða nótt. Að endingu vil ég svo geta þess, að mér þykir bók Meyvants á Eiði bæði skemmtileg og fróðleg. Guðm. Einarsson, Brjánslæk. Meðalið fæst ekki Ég er einn af þeim mörgu, sem háðir eru augnmeðölum. Þessi meðöl kosta ekkert smá- ræði. En látum það vera. En þegar sá aðili, sem hefur með höndum innkaup á þvi, getur ekki séð um, að apótekin fái það, vaknar sú spurning, hver sé ábyrgð hans. Þetta meðal (heitir.C. diamox dupl., belgir) má ekki falla úr einn dag. 9908-7153. Margt hafa þeir að- hafzt Svo má skilja af fréttum, að helztu rök Breta (ef rök skal telja) séu þau, að brezkur fisk- iðnaður verði fyrir óbætanlegu tjóni, og að fiskimenn þeirra og aðrir þeir, er hafa lifsbjörg sina af fiskveiðum og fiskiðnaði, verði atvinnulausir, ef þeir fá ekki að halda áfram óáreittir að eyða fiskstofnunum á Islands- miðum. Væri ekki ráð að rifja upp nokkur atriði úr sögu brezkrar togveiði við Island frá þvi er Danir leyfðu þeim að veiöa allt upp að þremur sjómilum frá ströndinni (sem Islendingar hafa aldrei viðurkennt). Þá kæmi fram, að Bretar létu sér það ekki nægja, heldur skröp- uðu botninn inn um flóa og firði og upp að fjörusteinum, þar til ekkert kvikt kvikindi var þar lengur að fá, og hefur ekki verið siðan. Það mætti minna Bret- ana á, að þá, og ávallt siðan, hafa það verið islenzkir fiski- menn og þeir, sem við fiskafl- ann unnu, sem misstu lifsbjörg sina. Það mætti geta þess að is- lenzkir menn létu lifið fyrir ti 1- verknað brezkra togaraskip- stjóra, og það mætti minna á mannrán þeirra, þegar þeir hafa tekið til fanga islenzka valdsmenn, löggæzlumenn, og fluttu til Englands, tóku þá i is- lenzkri landhelgi inni á fjörðum og flóum. (Hannes Hafstein, Guðmund Björnsson, sýslu- mann Barðstrendinga, Snæ- björn hreppstjóra i Hergilsey og marga varðskipsmenn). Þá mætti einnig minna á hinar fjöl- mörgu tilraunir brezkra togara til að sigla á islenzk fiskiskip. Allt þetta, og margt fleira, mætti draga fram i dagsljósið, og yrði það Bretum ekki til mik- ils sóma. Ég geri ráð fyrir, að Bretar muni glotta út i annað munnvik- ið að þessu öllu saman. Ofbeld- ishneigð þeirra virðist vera svo sterk, að þeim finnst þetta ekki vera nema sjálfsagt. En ég á bágt með að trúa öðru en það hefði þó nokkuð mikið áróðurs- gildi meðal annarra þjóða. Það er leitt að þurfa að skrifa þannig um Breta, þvi að sem einstaklingar eru þeir flestir á- gætis menn. En enginn er ann- ars bróðir i leik, allra sizt i jafn- gráum leik og hér er i frammi hafður. Ég þakka birtinguna. 5/2 ’76 Jón Eiriksson. Drápuhlið 13, R. Týndur launaseðill Nú nýverið var breytt formi launaseðla Reykjavikurborgar, og hafði þá nafn mitt fallið niður með þeim afleiðingum, að ég fékk ekki greidd laun um leið og vinnufélagar minir. út af þvi kom mér i huga þessi visa: I kerfinu er alltaf einhverju verið að breyta, og útkoman verður þá misjöfn sem vonlegt er. „Hvort er það heldur ég sem að launaseðlinum leita eða er launaseðillinn búinn að týna mér?” Sigriður Gunnarsdóttir. Þorrablót um alla Húnavatnssýslu SJ-Reykjavik— Rækjuveiði gekk stirðlega hér framan af vertið- inni, sagði Brynjólfur Sveinbergs- son mjólkurbússtjóri á Hvamms- tanga i samtali við Timann i gær, — en nú er heldur betri veiði eftir að dag tók að lengja. Bátarnir héðan mega fá 270 tn á vertiðinni og eru ekki hálfnaðir enn. Fyrir áramót komu um 75 tn á land og 45 tn i janúar. Þrir bátar stunda nú rækju- veiðar frá Hvammstanga, en bátarnir voru fimm I vertiðar- byrjun. I desember kviknaði i einum bátnum, svo útgerð hans stöðvaðist og annar bátur fór frá Hvammstanga. Auk þess landa þrir bátar rækju á Hvammstanga, en aflanum er siðan ekið til Blönduóss til vinnslu. Bátar frá Skagaströnd, Hvammstanga og Blönduósi mega fá 750 tn af rækju á vertið- inni, og er skiptihlutfallið 22%, 18% og 10% af 1500 tonnum. Auk þess má landa 60 tn fyrir vinnsl- una í Djúpuvik. Bátar frá Hólma- vik og Drangsnesi mega einnig veiða 750 tn. Oftast hefur siðar á vertiðinni verið leyft að veiða meira, en að sögn Brynjólfs Sveinbergssonar er óvist að svo verði nú. I Húnavatnssýslu blóta allir þorra um þessar mundir og eru þorrablót á einum og tveim stöð- um isýslunni um hverja helgi. Haldin eru þorrablót i hverjum hreppi. Ungmennafélagið og Kven- félagið á Hvammstanga eru að undirbúa leiksýningu, og er ætlunin að frumsýning verði um mánaðamótin. Um áramótin var farið að sækja mjólk á tankbilum til allra framleiðenda á svæði mjólkur- búsins á Hvammstanga. Bændur eru nú að útvega sér heimilis- tanka, þ.e.a.s. þeir fáu, sem ekki höfðu þá fyrir. Tiu manns vinna nú við mjólkurbúið. Nokkrar stúlkur vinna á saumastofu, sem rekin er á Hvammstanga, og vinnur aðal- lega ullarpeysur til útflutnings til Sovétrikjanna. I vetur er unnið á einni vakt i rækjuvinnslunni, en i fyrra var unnið á tveim vöktum. Er þar minni vinna og færra starfsfólk en i fyrra. HANDVERKFÆRI ’w ixjs @ T',° AEG “1 II • » Fjölbreytt úrval AEG handverkfæra til iðnaðar- bygginga- og tómstundavinnu. Vandið valið og notið sterk og vönduð verkfæri. IBRÆÐURNIR ORMSSON % LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820 Fjármálaráðuneytið, 10. febrúar 1976. Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjald- dagi söluskatts fyrir janúarmánuð er 15. febrúar. Ber þá að skila skattinum tii innheimtumanna rikissjóðs á- samt söluskattsskýrslu i þririti. Fjármálaráðuneytið, 10. febrúar 1976. Sérstakt tímabundið vörugjald Viðurlög falla á sérstakt timabundið vörugjald fyrir timabilið október, nóvember og deseir.ber 1975, hafi það ekki verið greitt i siðasta lagi 16. þ.m. Viðurlög eru 2% af vangreiddu sérstöku vörugjaldi fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 10%, en siðan eru viðurlögin 1 1/2% til viðbót- ar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 9. mars. StaKYNNING Bragðmikill 45% Gouda ostur Ódýr 30% Bræddur ostur I DAG OG A MORGUN KL. 14-18 Hanna Guttormsdóttir húsmæðrakennari kynnir ostasalöt, ostadýfur o.fl. — Okeypis nýjar uppskriftir Osta- og smjörbúðin - Snorrabraut 54 ---> i > . ■ <-----

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.