Tíminn - 25.02.1976, Síða 12
12
TÍMINN
Miövikudagur 25. febrúar 1976
hluti, þá getur allt verið f sæmilegu lagi með vitið. En sé
allt „undarlegt", sem þeir gera, þá fer mann að gruna
ýmislegt. Ég held, að hugsunin um Derby veðreiðarnar
og áhyggjur af Prinsinum hafi ruglað hann í kollinum.
— Er Prins folinn, sem þér eruð að temja og þjálfa?
— Já, og sá bezti á öllu Englandi, hr. Holmes. Það ætti
ég að vita betur en allir aðrir. Ég vil nú tala opinskátt við
yður, því að ég veit, að þér eruð heiðursmaður, og að það,
sem ég segi fer ekki lengra. Sir Robert verður að vinna í
þessum Derby-veðreiðum. Hann er f læktur í skuldir upp
fyrir höf uð, og þetta er síðasta von hans um að rétta við.
Allt, sem hann fær lánaðeða getur veðjað um, er byggt á
voninni um þennan hest. Veðmálin voru hagstæð í fyrst-
unn! fyrir Prins, nærri því hundrað gegn einum. Nú er
þetta aðeins f jörtíu gegn einum, síðan Sir Robert gerðist
hlédrægari með hestinn.
— En hvernig er því háttað, ef hesturinn er svona góð-
ur?
— Alþýða manna veit ekki hve góður hann er. Sir Ro-
bert er slægari en mann varir. Hann á annan hest, sem er
hálfbróðir Prins, og hefur hann í spretthlaupaæf ingum.
En f lýtismunur hestanna er mikill, þóað þeir séu svo lík-
ir, að hvorugan má frá öðrum þekkja. En Sir Robert
hugsar ekki um annað en hesta og veðreiðar. Hann lifir
og hrærist í hugsuninni um það tvennt. Hann leitar lána
hjá Gyðingum nú í bili. Ef Prins skyldi svo bregðast á
veðreiðunum, þá er Sir Robert búinn að vera.
— Þetta sýnist vera nokkuð áhættusamt f járhættuspil.
En hvernig lýsir svo þessi vitfirring sér?
— Nú, í fyrsta lagi á útliti hans. Ég held, að hann sofi
ekki á nóttunni. Hann er öllum stundum niðri við hest-
húsin. Augnaráðið er æðislegt, svo auðséð er, að taug-
arnar eru ekki í góðu lagi. Svo er nú f ramkoma hans við
lafði Beatrice.
— Hvað er um hana að segja?
— Þau hafa alltaf verið miklir vinir. Þau höfðu bæði
sama smekk, hún elskaði hesta engu síður en hann. Á
hverjum degi ók hún um sama leyti dags til hesthúsanna
til að sjá hestana, einkum þótti henni vænt um Prins.
Hann var líka vanur að sperra eyrun, þegar hann heyrði
vagnhjólin urga á mölinni, og hann brokkaði út að vagn-
inum til þess að fá sykurmola. En allt er þetta breytt nú.
— Og hvers vegna er það breytt?
— Hún virðist hafa misst allan áhuga á hestum. [ heila
viku hefur hún ekið fram hjá hesthúsunum án þess að
seg ja svo mikið sem góðan dag, hvað þá meira.
— Haldið þér, aðsystkinin haf i lent í deilu?
— Já, og sú deila hefur verið hörð og vægðarlaus.
Hvers vegna mundi hann annars hafa farið að gefa í
burtu eftirlætisloðhundinn hennar, sem hún dekraði við
líkt og hann væri hennar eigið barn? Fyrir fáum dögum
gaf hann hundinn Barnes gamla, sem hefur ,,Græna-
drekann", þrjár mílur héðan.
— Það er vissulega undarlegt.
— Hún þjáist af vatnssýki og hefur veikt eða bilað
hjarta. Hann var þó þrátt fyrir allt vanur að sitja hjá
henni tvær stundir á hverju kvöldi í herbergi hennar.
Ekki var það neitt ofgert, því hún hefur verið reglulega
góð við hann. En einnig þetta er nú alveg breytt. Hann
leitar nú aldrei á fund hennar, og það gengur henni víst
hjarta nærri. Hún er fálát og hnuggin og drekkur. Hún
drekkur eins og svampur, hr. Holmes.
— Gerði hún það áður en þessir fáleikar hófust milli
þeirra systkina?
— Nei, hún kann að hafa fengið sér glas við og við, en
nú er þaðoft heil f laska á einu kvöldi, eða svo segir Step-
hens kjallaravörður mér. Allt er gjörbreytt þarna, það er•
eitthvað rotið og óheilbrigt, sem hér á sér stað. Hvað get-
ur húsbóndinn t.d. verið að sýsla í gömlu grafhvelf ing-
unni að næturlagi? Og hver er maðurinn, sem hann hittir
þar?
Holmes neri á sér hendurnar.
— Haldið áfram, hr. Mason. Þetta verður sífellt fróð-
legra og skemmtilegra.
— Það var kjallaravörðurinn, sem sá til ferða hans.
Klukkan var tólf að kvöldi og hellirigning. Næsta kvöld
var ég sjálf ur úti við húsið. Það stóð heima. að húsbónd-
inn var að leggja af stað. Við Stephens fylgdum honum
eftir, en það var áhættusamt atferli, því illa hefði farið
fyrir okkur, hefði hann orðið okkar var. Hann hefur
harða hnefa og kann að beita þeim. Skiptir ekki máli,
hver á í hlut, ef hann er móðgaður. Við vörðuðumst því
að koma of nærri honum, en fórum í humátteftir honum.
Hann hélt beina leið til grafhvelfingarinnar, þar sem
reimleikinn er, og þar beið maður eftir honum."
— Hver er þessi reimleikastaður?
Þetta var alveg öruggt) Hann sleit
fangelsi, þeir voru
allir i keöjurn....
keðjurnar
/{yðar hágöfgi,
rneð berurn
höndurn!
Allir fangarnir eru
horfnir i lög reglu
bilunurn okkar!
X Farnir
I hvert?
/Þið verðið
að finna þá,
þeir skulu
allir deyja!
MIÐVIKUDAGUR
25.febrúar
7.00 Morgunútvarp. \.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.15 Til umhugsunar. Þáttur
um áfengismál i umsjá
Sveins H. Skúlasonar.
13.30 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Hofs-
staðabræður” eftir Jónas
Jónasson frá Hrafnagili Jón
R. Hjálmarsson les (2).
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Njósnir að næturþeli” eftir
Guðjón Sveinsson.
Höfundur les (9).
17.30 Framburðarkennsla i
dönsku og frönsku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Úr atvinnulifinu.
Rekstrarhagfræðingarnir
Bergþór Konráðsson og
Brynjólfur Bjarnason sjá
um þáttinn.
20.00 Kvöldvaka. a. Einsöng-
ur. Sigurður Björnsson
syngur lög úr lagaflokknum
,,1 lundi ljóðs og hljóma”
eftir Sigurð Þórðarson,
Guðrún Kristinsdóttir leikur
á pianó. b. Um islenska
þjóöhætti. Frosti Jóhanns-
son stud mag. flytur þátt-
inn. c. Visnaþáttur Sigurður
Jónason frá Haukagili tekur
saman og flytur. d. Hann afi
minn á Ekru. Torfi Þor-
steinsson bóndi i Haga i
Hornafirði segir frá. e. Þar
dali þrýtur.óskar Halldórs-
son lektor flytur fyrri hluta
frásögu Jóns Kr. Kristjáns-
sonar á Viðivöllum i
Fnjóskadal um skáldin á
Arnarvatni. f. Kórsöngur
Þjóðleikhúskórinn syngur
fslensk lög, Carl Billich
st jórnar og leikur jafnframt
undir á pianó.
21.30 Útvarpssagan: „Kristni-.
hald undir Jökli” eftir
Ilalldór Laxness. Höfundur
les (14).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (9).
22.25 Kvöldsagan: „1 verum”
sjálfsævisaga Theódórs
Friðrikssonar. Gils Guð-
mundsson les siðara bindi
(23).
22.45 Nútimatónlist. Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
Miðvikudagur
25.febrúar
18.00 Mjásiog Pjási.Tékknesk
teiknimynd. Þýðandi Óskar
Ingimarsson.
18.20 Robinson-fjölskyldan.
Breskur myndaflokkur
byggður á sögu eftir Johann
Wyss. 3. þáttur. Bruno.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.45 List og listsköpun. Hug-
myndir að listsköpun. Þýð-
andi Hallveig Thorlacius.
Þulur Ingi Karl Jóhannsson.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.40 Nýjasta tækni og visindi.
öry ggisútbúnaöur. Loft,
ýmis áhrif þess og notkun.
Umsjónarmaður Siguröur
H. Richter.
21.05 „Land veit ég langt og
mjótt......” ltalskur
skemmtiþáttur. Listamenn
frá ýmsum löndum
skemmta með söng og
dansi. Meðal þeirra sem
koma fram i þessum þætti,
eru Mina, Middle of The
Road, Adriano Celentano,
Erroll Garner og Mireille
Mathieu.
21.55 Baráttan gegn þræla-
haldi.
22.45 Dagskrárlok