Tíminn - 06.03.1976, Page 6

Tíminn - 06.03.1976, Page 6
6 TÍMINN Laugardagur 6. marz 1976. Frumvarp um rannsóknarlögreglu ríkisins: Markvert skref til nýtískulegri hátta og skjótari vinnubragða við rannsóknir mála Herra forseti. Frumvarp þaö, sem hér er lagt fyrir háttvirta neöri deild um rannsóknarlögreglu rlkisins, er samiö af nefnd, seimég skipaöi I okt. 1972 til aö endurskoða dóm- stólakerfi landsins á héraösdóms- stiginu og gera tillögur um, hvernig breyta mætti reglum um málsmeðferö i héraði til að af- greiösla mála yröi hraöari. 1 greinargerö með frumvarpinu segir, hverjir voru skipaðir I þessa nefnd og hafa starfað þar. En þaö eru menn meö mjög fjöl- breytta reynslu á þessu sviöi. Þaö eru þeir Björn Fr. Björnsson sýslumaöur, sem ég hygg, aö sé elztur starfandi sýslumaöur i embætti hér á landi nú, var auk þess formaöur Dómarafélagsins eöa sýslumannafélagsins, þegar nefndin var skipuð. Það er I öðru lagi Sigurgeir Jónsson, bæjar- fógeti I Kópavogi, sem hefur að baki mjög langa reynslu við emb- ættisstörf i einum stærsta kaup- staö landsins, en haföi auk þess áöur starfað i dómsmálaráðu- neytinu. Það er i þriöja lagi Björn Sveinbjörnsson hrl., sem er for- maður nefndarinnar, en hann hafði og hefur aö baki langa reynslu, bæði i dómarastörfum og sem lögmaður, og i fjórða lagi er það Þór Vilhjálmsson, nýskipaö- ur hæstaréttardómari, sem hefur aö baki alllanga reynslu i dóm- arastörfum við borgardóminn hér i Reykjavik, en hefur auk þess gegnt dósentsenibætti og prófess- orsembætti um allmörg ár, og kennslugrein hans hefur ein- mitt verið réttarfar, þannig aö ég tel, aö hjá þessari nefnd sé saman komin viötæk þekking og reynsla varöandi það málefni, sem nefnd- inni var faliö að fjalla um. Nefnd- in hefur unnið mikiö undirbún- ingsstarf aö hinu umfangsmikla verkefni sinu, og er þess vænzt, aö innan tiöar, og hugsanlega á þessu þingi, veröi unnt að leggja fram i lagafrumvarpi tillögur nefndarinnar um höfuöverkefni hennar, þ.e.a.s. endurbætur á dómstólakerfi landsins á héraðs- dómsstiginu. Ég get búizt viö, aö um þær tillögur veröi skiptar skoöanir. Umdæmaskipting landsins, sem bundin er viö þau embætti, sem hér er um aö tefla, er oröin ákaflega gömul og á sér djúpar rætur. Ég get þess vegna búizt við þvi, að menn verði nokk- uö fastheldnir á þá umdæma- skiptingu. Miklarþjóðfélags- breytingar Hins vegar segir heilbrigð skynsemi okkur-, að þaö er ekki hægt aö loka augunum fyrir þvi, aö umfangsmiklar breytingar hafa orðiö i þessu þjóöfélagi frá þvi aö þessi umdæmaskipun komst á, og aö hún er I ýmsum til- fellum þannig, aöhún svarar ekki til þeirra þarfa, sem nú eru fyrir hendi á þessu sviði. Ég hygg, að hér veröi aö reyna að brjdta upp á nýrri leið til þess að leysa þetta mál. En þaö er ekki ástæöa til þess að fara að ræða það á þessu stigi, þar sem þaö liggur ekki hér fyrir, og það er þá fyrst timabært að ræöa þær tillögur, þegar þær hafa séð dagsins ljós og veröa lagðar fýrir hæstvirt Alþingi. í frumvarpi þvi, sem hér liggur fyrir, er aðeins fjallað um af- markaðan þátt málsmeðferðar i opinberum málum. En nefndin taldi efni þess svo skýrt afmark- að, að unnt væri aö ljúka fyrr meöferö þessa mikilvæga mál- efnis meö þvi aö greina þaö frá öörum verkefnum, sem nefndin vinnur aö. Þaö má segja, aö flutn- ingur frumvarps I þessa átt eigi sér nokkuö langan aðdraganda, þótt ekki hafi það áöur verið boriö fram meö þvi nafni, sem þaö nú hefur, það er um rannsóknarlög- reglu rikisins. Meö frumvarpi til laga um meðferð opinberra mála, sem lagt var fyrir Alþingi áriö 1948, var stefnt að mjög umfangs- mikilli endurnýjun á réttarfari i opinberum málum. Var meö þvi frumvarpi ráðgert, að ákæru- valdiö skyldi fengið sérstökum embættismanni, saksóknara rikisins. Einnig var gert ráð fyrir þvi, aö sérstakur embættismaö- ur, rannsóknarstjóri, er lyti sak- sóknara rikisins, skyldi taka viö yfirstjdrn rannsóknarlögreglu i Reykjavík, en einnig skyldi hann fjalla um rannsóknirmála annars staöar á landinu, þegar sakstíkn- ari teldi þess þörf. Þessar tillögur náðuekkifram aöganga, fyrstog fremst af kostnaðarástæöum. vegna hinnar fyrirhuguðu emb- ættaskipunar. Réttarfarsbálkur- inn var siðan lögtekinn 1951. Embætti saksóknara rikisins fékkst fyrst stofnað 10 árum siö- ar, áriö 1961. í lagafrumvarpi, sem lagt var fyrir Alþingi 1969—1970 á grundvelli þings- ályktunartillögu frá 1968, var ráð- gert, aö stofnað yröi embætti rannsóknarstjóra, er lyti lög- reglustjóra I Reykjavik og skyldi stýra lögreglurannsókn brota- mála og fara með stjórn rann- sóknarlögreglu. Verkefnið viö yfirstjóm og framkvæmd lög- gæzlu og framkvæmd sérstakra þátta löggSlu eða lögreglu- rannsókna utan Reykjavikur mátti einnig fela þessum aðil- um.Frumvarp þetta náði ekki fram að ganga. Aukinn kostnaður Ýmsár ástæöur hafa valdið þvi, hve treglega hefur gengið aö afla stuðnings viö þá nýskipan á stjórn rannsóknarlögreglu, sem greint hefur verið frá. Hafa kostnaöar- sjónarmiö ráöiö mestu, þótt fleira hafi komið til. 1 greinargerð þessafrumvarpser bentá nokkur atriöi hinna áformuðu breytinga, sem valda þvi, að frumvarpiö horfir engan veginn alfariö til aukins kostnaðar. Telja höfundar frumvarpsins jafnvelekki vist, að stofnun rannsóknarlögreglu rikisins i þeirri mynd, sem frumvarpiö gerir ráö fyrir, heföi I för meö sér aukinn kostnað. Ég skal hins vegar hreinskilnings- lega játa, aö ég tel liklegra, að af Dreytingum þessum muni leiöa aukinn kostnað, sérstaklega við pá þróun málsmeöferöar, sem af oreytingunum mun leiða. Ég tel lins vegar ekki áhorfsmál, aö eita beri lögfestingar á hinum yrirhuguöu skipulagsbreyting- am á rannsóknarmeöferö opin- Derra mála, þar sem meö þeim /rði stigið markvert skref i átt til nýtizkulegri hátta i réttarfars- legri meðferð opinberra mála og til bættra, hagkvæmari og skjót- virkari vinnubragða við rann- sóknir mála. Tveir höfuðþættir Höfuöþættir frumvarpsins eru ;veir. Með stofnun rannstíknar- ögreglu rikisins skapast betri nöguleikar en áður á aö beina sérhæföum starfskröftum sér- 'róöra rannsóknarmanna að meðferð þeirra mála, sérstaklega oæöi i Reykjavik og annars stað- ar á landinu. Þaö sem mestu varöaði, aö hinir færustu menn, jafnvel I sérgreindum verkefn- um, gætu þegar á frumstigí rann- sókna veriö til taks, bæöi til sjálf- stæðrar rannsóknar á vandasöm- um málum og til stuðnings starfs- félögum við önnur lögreglustjóra- embætti. Mér þykir rétt að benda á það, að þegar sagt er i 1. gr. frumvarpsins aö rannsóknarlög- regla rikisins lúti yfirstjórn dómsmálaráðherra, þá er þar aö sjálfsögöu átt við embættislega yfirstjórn. Hinn höfuðþáttur frumvarps þessa er, aö meö þvi er yfirsaka- dómarinn I Reykjavik leystur frá þvi að vera yfirmaöur rannsókn- arlögreglunnar i Reykjavik. Er með þvi stigiö markvisst skref I átt til þess aö skilja aö dómsvald og rannsóknarstjórn i opinberum málum, og meö þvi enn stigið skref i átt frá hinu forna rann- sóknarréttarfari til ákæruréttar- fars. Þótt dómarar utan Reykja- vikur yröu áfram stjórnendur lögreglumanna, mundi þátttaka rannsóknarlögreglu rikisins I meöferð þeirra veigameiri máls- rannsókna einnig þar stuðla aö þvi, aö dómararnir stæöu nokkru meira en nú er utan við rannsókn- arstjórnina. Straumhvörf í meðferð opin- berra mála Eins og ég sagði áöan, á mál þetta nokkuö langa forsögu og er i sjálfu sér eðlilegt, aö öll slik þró- untakisinn tima,ekki siztiokkar landi, þar sem svo mjög þarf aö gæta þess, vegna fámennis, að reisa sér ekki huröarás um öxl. Ég tel þó vist, aö háttvirtir al- þingismenn ættu að geta fallizt á, aö timabært sé, að fljótlega veröi enn eitt skref stigið til úrbóta á dómsmálakerfi landsins, og mér býöur I grun, að miðað viö það, hve takmörkuð sú umbreyting þó er, sem hér er fyrirhuguð, muni hún geta valdið meiri straum- hvörfum I meðferð opinberra mála, en auðvelt er aö þreifa á fyrirfram. Það hefur nokkuö boriö á gagn- rýni á meðferð dómsmálayfir- valda og lögreglu á rannsókn mála. Það er út af fyrir sig ekki ný bóla. Sjálfsagt er sú gagnrýni I ýmsum tilfellum á rökum reist. Hins vegar getur nú verið, aö hún sé stundum nokkuð úr lausu lofti gripin og stundum getur hún e.t.v. stafað af misskilningi og nokkurri vanþekkingu á þvi, hvernig meðferð þessara mála er háttað. Þaö er auövitaö svo, að jafnan er manna á milli i gangi umtal um það, aö eitthvert i- myndaö eða raunverulegt mis- ferli hafi átt sér stað, einhver Imynduö eða raunveruleg afbrot hafi verið framin. Þá er oft fundið að þvi, aö skorti á frumkvæöi af hálfu dómsyfirvalda og lögreglu að skerast hér i leikinn. Ég held, að oft geti veriö erfitt fyrir dóms- yfirvöld og lögreglu að fara eftir slfkum sögusögnum. Ég er hræddur um, aö þaö þætti oft og tiöum vera nokkuð mikil hnysni, sem i þvi fælist um einkahagi manna. Ég efast um, aö þvf yröi alltaf vel tekið. Ég ætla aö vona, að við hér á Islandi lifum aldrei þá tið, aö hér risi lögregluriki heldur réttarriki, þó aö viö verð- um þá jafnframt aö þola þaö, að nokkur seinagangur geti fylgt af- greiðslu mála. Gagnrýnin er oft byggð á vanþekkingu En eins og ég sagði áöan, held ég, aö sú gagnrýni, sem fram er borin, eins og ég sagði lika, oft sjálfsagtmeö rökum,sé einnig oft á vanþekkingu byggö. Það er auðvitaö ekki hægt aö ætlazt til þess, að almenningur eöa jafnvel hæstvirtir alþingismenn geti farið að lesa langar bækur um réttar- far og kynna sér það, hvernig þessum málum er fyrir komiö og hefur verið fyrir komið. En ég get bent mönnum á ákaflega stutta og glögga grein um þetta efni, að minu mati. Það er grein sem Bjarni heitinn Benediktsson skrifaði á sínum tima um á- kæruvaldiö i tímaritiö Úlfljót, timarit laganema, áriö 1955. Auö- vitað hefur sú breyting orðið á siðan að sil grein var rituð, að saksóknari er kominn til sögunn- ar og ákæruvaldið ekki lengur að neinu leyti I höndum dómsmála- ráðherra eða dómsmálaráðu- neytis. En að breyttu breytanda held ég, að sú lýsing, sem þarna er gefin i mjög stuttu máli, geti veitt nokkurn fróðleik um það, hvernig meðferö þessara mála er og hefur oftast verið. Og ég held llka, að margar skynsamlegar at- hugasemdir, sem greinarhöfund- ur gerir varðandi þetta efni, séu enn Ifullu gildi og þær erum.a. á- reiðanlega byggðar á alilangri reynslu hans þá sem dómsmála- ráðherra. Ég býst við þvi, að það, sem hann segir m.a. um ákæru- valdið og saksóknaraembættið i þvi sambandi, eigi nokkurt erindi til manna og það hafi sýnt sig, að hann sá þar nokkuð rétt, þó að flestir eða kannski allir séu sám- mála um það, að með stofnun saksóknaraembættisins hafi ver- ið stigið spor I rétta átt. Afbrotum hefur fjölgað En hvað sem um það er, þá er það leiðinleg staðreynd, sem við verðum að horfast I augu við, að afbrotum hefur fjölgað hér á landi siðustu árin. Ég held, aö til þess liggi nú ýmsar og mismun- andi ástæöur. Ég held t.d., að á þeim árum hafi komið til tiltölu- lega nýtt vandamál, sem menn ekki áður þekktu og það eru fikni- efnin og smygl á þeim, og þau af- brot, sem unnin eru i sambandi við þau og undir áhrifum þeirra. Þetta var sem betur fer óþekkt áður. Þá er það einnig svo, að þvi miður á sjálfsagt vaxandi áfeng- isþamb okkar Islendinga sinn þátt f ýmsum þeim afbrotum, sem unnin eru, ekki sizt ofbeldis- og hryðjuverkum og slysum, sem þar hljótast einatt af. Þjóðfélagið hefur lika tekið margvislegum breytingum á siðustu árum. Það er orðið umfangsmeira. Ýmiss konar viðskiptastarfsemi hefur vaxið, og það er rétt, að i sam- bandi við það hafa sjálfsagt skot- ið upp kollinum meiri fjársvika- mál en áöur og h'tt þekktar teg- undir af þeim, eins og t.d. það ó- skaplega tékkamisferli, sem nú á sér oröið stað I viðskiptum, sem nú er reynt að gera ráöstafanir til þess að reisa nokkra rönd við, vegna þess að að þeim málum starfar nú sérstök nefnd af hálfu bankanna og viðskipta- og dóms- málaráðuneytis og er vonandi, að það takist að setja þar einhverjar skorður við. Varnarllðið bætir ekki stöðu Kefla- víkurflugvallar Þessar ástæður og margar fleiri eigasjálfsagt sinn þátt I þvi, að við veröum að horfast I augu viö þá staðreynd, að ýmiss konar afbrotum hefur fariö fjölgandi og ný afbrot hafa komið til sögunn- ar, sem áður voru litt þekkt. Þá verðum við auðvitað lika að hafa i huga, að við erum komin i meiri þjóðbraut en áður. Það er alþekkt fyrirbæri, að sumar tegundir brota eiga sér stað ekki hvað sizt i sambandi við flugvelli, alþjóða- flugvelli, t.d. smygl. Sjálfsagt bætir það ekki aðstöðu Kefla- vikurflugvallar i þessu sam- bandi að hann hefur þá sér- stöðu, að þar dvelst jafnframt er- lent varnarlið. Þessi orð min ber náttúrlega ekki að skilja á þá lund, að ekki hafi þekkzt afbrot hér á landi fyrr en allra siðustu árin. Afbrot hafa verið framin á Islandi sjálfsagt frá þvi að sögur hófust, en I misjöfnum mæli. Smygl hefur t.d. þekkzt lengi vel hér á landi. Ætli það sé nema svo sem áratugur sfðan gert var út al- veg sérstakt skip til þess að flytja þann varning til landsins, þannig að þó að menn festi sjónir á þvi nú, að um allmikil afbrot sé að ræða, þá er alveg óþarfi að gleyma þvi, sem á undan var gengið. Þvi miður áttu sér lika stað, við skulum segja á sl. ára- tug, 1960—1970, manndráp og morð hér á landi, morð, sem þvi miður upplýstist ekki og er ekki upplýst enn þann dag i dag. Rétt er að menn hafi þetta i huga. Hitt er skiljanlegt, að háttvirtir þing- menn séu áhyggjufullir yfir þeirri þróun, sem átt hefur sér stað i þessum efnum. Er allt í lagi með uppeldismálin? Það breytir engu þótt hægt sé að rekja rætur þeirrar þróunar á ýmsan hátt, eins og ég hef hér gertog e.t.v.værinúekki ofaukið að bæta hér við einni ástæðunní eða a.m.k. spurningunm. Hun er sú, hvort allt sé i lagi i uppeldis- málum okkar, hvort meðferð okkar á ungmennum þessa lands i okkar glæsilegu skólum eigi kannski ekki einhvern þátt i þvi, að þeir lenda því miður of margir á villigötum. Þetta er a.m.k. I- hugunarefni. En allt ber hér að einum brunni, að mér sýnist, að háttvirtir alþingismenn hljóta að vera fullir áhuga á aö reyna að bæta úr þessu á allan þann hátt, sem kostur er. Þess vegna vona ég, að þeir taki þessu frumvarpi vel. Það er viðleitni I rétta átt. Það er sannfæring min, að það sé stórt spor I rétta átt. Þegar svo er, mega menn ekki stara um of á kostnað, sem er þvi samfara. Samfara þessu frumvarpi eru borin fram tvö lagafrumvörp til samræmingar við efni þessa frumvarps. Er annað þeirra um breyting á lögum um meðferð opinberra mála 1974 og 1975, en hitt um breytingu á lögum um skipun dómsvalds I héraði, lög- reglustjdrn tollstjórn o.fl. nr. 74 frá 1972. Ég tel ekki ástæðu til að geta þeirra lagafrumvarpa frek- ar I þessu sambandi, en mun segja um þau aðeins örfá orð hér á eftir að lokinni umræðu um þetta frumvarp. Ég tel rétt að benda á, að þótt ég hafi að sjálf- sögðu mikinn áhuga á fljótum framgangi þessa máls, þá muni það vera rétt fyrir þá háttvirtu nefnd, sem fær þetta mál til með- ferðar, að leita umáagnar ýmissa aðila um efni þess, svo sem rikis- sakstíknara, lagadeildar Háskól- ans og annarra, sem henni þætti rétt að fjölluöu um málið. Slikrar formlegrar umsagnar hefur dcki verið leitað af réttarfarsnefndinni né dómsmálaráðuneyti, þó að nefndin að sjálfsögðu hafi efa- laust borið saman ráö sin við ein- staka aðila um einstaka þætti málsins. Ég vil svo, herra forseti, óska þess, að frumvarpinu verði, að lokinni þessari umræðu visað til 2. umræðu og visað til háttvirtrar allsherj arnefndar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.