Tíminn - 06.03.1976, Síða 8
TÍMINN
Laugardagur G. marz 1976.
Laugardagur 6. marz 1976.
Hver verður næsti forseti Bandaríkjanna?
Stöðugt nálgast sá dagur, aö
Bandarikjamenn kjósi sér for-
seta. Val frambjóöenda og bar-
áttan um útnefninguna er um-
svifamikiö og flókiö, auk þess aö
vera stirt í vöfum. Aö minnsta
kosti tólf frambjóðendur berjast
um bitann. Mánuðum saman hafa
þeir staðið i eldlinu bardagans,
sibrosandi, haldandi ræður viös
vegar og þeir feröast fram og aft-
ur milli landshluta jafnt land-
leiðis sem flugleiöis. Sérhver
þeirra berst um athygli fjölmiðl-
anna, einkum sjónvarpsins. Allir
sem einn biðla þeir til stuðnings-
manna sinna um fjárframlög, þvi
að ekki er á færi nema velstæðra
manna að steypa sér út i jafn
fjárfreka baráttu sem þessa.
Þrátt fyrir eldlegan vilja og þrot-
laust strit er það engu að siður
staðreynd, að til þessa hafa fram-
bjóðendur ekki náð að vekja at-
hygli meginhluta kjósenda á mál-
stað sinum. Ástæða þessa er ein-
föld. Bandarikjamenn minnast
enn Viet-Nam striðsins og hafa
enn ekki jafnað sig eftir Water-
gate-hneykslið, sem olli þvi m.a.
að Nixon varð aö segja af sér
embætti, fyrstur Bandarikjafor-
seta. Ennfremur verður pólitisk
þreyta sifellt meira áberandi
meðal þjóöarinnar.
Nú styttist óðum i lokabardag-
ann og vist er, að i vændum eru
einar sögulegustu kosningar i
Bandarikjunum til þessa. Það
sem mesta athygli vekur er veik
staða aðalframbjóðandans, Ger-
alds R. Ford. Forsetinn er nú 62
ára. Hann átti sæti i fulltrúadeild
Bandarikjaþings samtals 25 ár
fyrir Michigan riki. Hann var
valdaiitill áður en Nixon setti
hann i embætti varaforseta, 1973,
eftir að Agnew var vikið úr em-
bætti fyrir mútuþægni og skatt-
svik.Tæpum ellefu mánuðum sið-
ar varð Ford forseti i kjölfar af-
sagnar Nixons vegna Watergate-
málsins. Ford er þvi fyrsti forseti
Bandarikjanna, sem ekki er kjör-
inn i embættið. Hann á um þessar
mundir mjög i vök að verjast
gegn flokksbróður sinum, Ronald
Regan, sem er mjög ihaldssam-
ur. t bessari baráttu er framtið
Fords og Repúblikanaflokksins i
talsverðri hættu. Sannarlega má
flokkurinn muna sinn fifil fegri.
Yfirleitt hafa repúblikanar staðið
sig vel i kosningum. Uppreisn
Regans vekur nú ægilegar
minningar um afhroð -það sem
Barry Goldwater galt i kosning-
unum 1964. En Ford á undir högg
að sækja á fleiri vigstöðvum. Ber
þá fyrst að nefna velferðaráætlun
hans. Ennfremur er stirðbusaleg
framkoma hans höfð á orði, kú-
vending hans i ýmsum mikil-
vægum málum, m.a. afstaða hans
til fjárhagsörðugleika New York-
borgar og snögg skoðanaskipti
hans i þvi máli. Loks tala menn
um annálaðan klaufaskap hans. t
skoðanakönnunum Gallup-stofn-
unarinnar hefur hann farið hall-
oka fyrir Regan, enda þótt hann
sæki nokkuð á. Mönnum býður i
grun, að haldi Regan áfram að
aukast fylgi á ný, geti það orðiö til
þess aö bola Ford frá keppninni
um útnefninguna fyrir vorið. Ber
þá loks að nefna umdeilda Kina-
för Nixons, sem kom á versta
tima, aðeins þrem dögum fyrir
forkosningarnar i New Hampshire
Þessi heimsókn Nixons var mikiö
áfall fyrir Ford. Kinverjar eru
meö þessu aö gagnrýna forsetann
fyrir að halda illa Shanghai-sátt-
málann. Ennfremur lita Kinverj-
ar illum augum vinahót Banda-
rikjamanna i garð Rússa. Grein
þessi er rituð áöur en forkosning-
ar i New Hampshire fara fram.
Svo gæti fariö aö úrslitin þar skeri
ekki úr um hvor þeirra Regan eða
Ford séu öflugri frambjóðandi.
Þá gæti svo farið að repúblikanar
taki að ihuga þriðja mann, John
Connally, sem Nixon hafði raun-
ar i huga sem eftirmann sinn.
Þó ætla mætti að demókrata-
flokkurinn hlakki yfir þessari
sundrung i herbúðum and-
stæðinganna, þá er deginum ljós-
ara að flokkurinn á við ærinn
vanda að striða i eigin búðum.
Demókratar ættu með réttu að
eiga góðar sigurlikur. Má til
nefna Watergate, verðbólgu,
efnahagskreppu og brokkgengi
Fords, sem er repúblikönum fjöt-
ur um fót. En leitin að traustum
frambjóðanda gengur erfiðlega.
Til þessa hafa um ellefu menn
gefið kost á sér, og sá tólfti, Hu-
bert H. Humprey, biður þess að
flokkurinn snúi sér til hans. Ekki
skortir hæfileikamenn, en of
margir eru þó um hituna. Enginn
þeirra hefur enn skotið öðrum ref
fyrir rass. Þótt George Wallace
sé bundinn við hjólastólinn er
hann enn sem fyrr baráttuglaður.
Fylgi hans er traust og stöðugt.
Wallace gæti þvi skemmt veru-
lega fyrir hverjum hinna, ef hon-
um sýndist svo. Sem stendur
virðast talsverðar likur á þvi, að
sætzt verði á Humphrey sem
málamiðlun. Það yrði i annað
skipti á átta árum sem þessi
gamla striðskempa tekur þátt i
baráttu um útnefningu i forseta-
embættið.
Forystumenn demókrata og
repúblikana óttast mest að litil
þátttaka verði i kosningunum.
Þessi ótti er ekki aö ástæðulausu.
Ariö 1972 neyttu aðeins 54.5 pró-
sent bandariskra kjósenda at-
kvæðisréttar sins. Ekki er búizt
við mikið meiri þátttöku að þessu
sinni. Fyrir repúblikana er meira
i húfi en það hvort þeim tekst að
halda völdum i Hvita húsinu. Jafn
miklu og kannski enn meira máli
skiptir hvort flokkurinn getur
bætt sér upp fylgistapið, sem
fylgdi i kjölfar Watergate-máls-
ins. Þetta á jafnt viö um töpuð
þingsæti á Bandarikjaþingi, auk
fylkisþinganna og fylkisstjóra-
embætti. Þótt flokkurinn haldi
forsetaembættinu án þess að
vinna aftur þingsæti, yrði þaö
beiskur sigur. Margir repú-
blikanar óttast mjög að þeir
Regan og Ford séu ekki þau for-
setaefni, sem verða megi flokkn-
um til sigurs i þing- og rikis-
kosningunum, nema þvi aðeins að
demókrötum verði á mistök likt
og þegar McGovern varð forseta-
efni þeirra. Einkum óttast þeir,
að Regan geti orðið dragbitur á
fylgisaukningu flokksins þá fram
i sækir. Flestir eru þeir þeirrar
skoðunar, að Ford-Regan barátt-
an gæti ráðizt ógnvænlega skjótt i
fyrstu forkosningunum i New
Hampshire (grein þessi er rituð
skömmu áður en þær fóru fram),
Florida og einkum þó Illinois,
þrátt fyrir yfirlýstan ásetning
beggja um að berjast af hörku allt
til þess að flokksþingið verður
haldið i Kansas City. Þá verður
ljóst hvort flokksmenn repú-
blikana styðja Ford eður ei. Svo
gæti farið, að sigur Regans i ein-
um eða tvennum þessara fyrstu
forkosninga hrindi af stað sókn-
þungri árás hans á Ford. Slikt
gæti útilokað frekari framboðs-
möguleika Fords. Svar við slíkum
vangaveltum fæst að likindum
ekki siðar en i aprilbyrjun. Þá eru
i vændum forkosningar i N-
Karólinu, New York og Wiscon-
sin. En verði linurnar ekki orðnar
skýrar um það leyti, þá i for-
kosningunum sem fram fara i
Pensylvaniu og Texas i mai.
RONALD REGAN er 65 ára,
fyrrum Hollywoodleikari og
rikisstjóri Kaliforniu i átta ár,
1966-74. Skoðanir hans eru um
flest svipaðar skoðunum Fords.
Regan hefur að sögn manna yfir
sterkari kosningavél að ráða.
Helzti munur þeirra Fords og
Regans er sá, að hinn siðast
nefndi er öllu ihaldssamari en
forsetinn. Það er litil dyggð i aug-
um frjálslyndra demókrata.
Samt sem áður nýtur Regan
meira álits þeirra en Ford.
Demókratar telja stöðu Fords þó
sterkari, enn sem komið er. t her-
R E G A N
búðum Regans segja menn að nái
hann meira fylgi en 40 prósent i
forkosningunum i New Hamps-
hire, sé það hreinn sigur yfir
Ford. Jafnvel þótt Regan verði i
öðru sæti, en fylgi fast á hæla
Fords, verði það framboði Reg-
ans mjög öflugur stuðningur. Enn
er Regan helzti keppinautur for-
setans. Mesti vandi Regans er sá,
að hann verður að sýna og sanna
að kjósendur flykkist fremur til
hans en Fords, án þess þó að
hann ráðist persónulega á forset-
ann. Þá verður hann að sannfæra
flokksþingið um að það sé ekki
höfuðglæpur að stugga til hliðar
veikum frambjóðanda, þótt
flokksbróðir sé og forseti i ofan-
álag. Haft er eftir flokksforingja i
miðvesturrikjunum, að fylgi Reg-
ans sé traust þar. Flokksmenn
muni ekki svikjast undan merkj-
um við Ford, en fari hann halloka
i fyrstu lotunum, muni þeir
flykkja sér um Regan. I ljósi
þessa hefur Regan einbeitt áróðri
sinum að New Hampshire og
Florida, ásamt N-Karólina og
Wisconsin. Einn kosningaráð-
gjafa Regans lét hafa eftir sér, að
Bandarikjamenn láti sig litlu
varða smáatriðin i stefnuskránni.
En margir áhrifamiklir repú-
blikanar efast um þetta. Regan
hefur einmitt verið fundið það til
foráttu, að hann geti ekki gert
nægilega skýra grein fyrir ein-
stökum atriðum stefnu sinnar.
Hann er sakaður um yfirborðs-
kennda hugmyndafræði. Fyrr eða
siðar telja menn að fréttamiðlar
taki að núa Regan þessu um nas-
ir. Þá gæti vel svo farið, að
hvorugur fái umtalsvert fylgi i
forkosningunum. Slikt væri
reiðarslag. Sá frambjóðandinn
sem mer sigurinn verður Repú-
blikanaflokknum ekki til fram-
dráttar. Sem stendur þora repú-
blikanar ekki að leita til þriðja
manns fyrir forkosningaslaginn.
Slikt gæti orðið Ford dýrkeypt
fremur en Regan. Ástæða þessa
er sú, að Ford hefur gagnrýnt Re-
gan óvægilega, m.a. kallað hann
tækifærissinna og laumusósial-
ista. Nái Regan ekki útnefningu,
má búast við að miöjumenn innan
Repúblikanaflokksins freistist til
að styðja óflokksbundinn þriðja
aðila, eða kjósi frambjóðanda
demókrata, nema þeir sitji með
öllu hjá. Margir repúblikanar
þykjast sjá tilhneigingu til
ihaldssemi meðal kjósehda.
Arið 1976 ætti með réttu að
verða demókrötum blómum
stráð. Repúblikanar eiga sem
fyrr er getið við ærinn vanda að
etja. Fyrst er að nefna bágt efna-
hagsástand, innanflokksdeilur
um forsetaframbjóðendur, sem
orðið gætu til að eýðileggja fram-
boð núverandi forseta. En á næst-
liðnum árum hafa demókratar
verið lagnir við að spilla fyrir
sjálfum sér. Að þessu sinni hafa
þeir att að minnsta kosti tiu yfir-
lýstum frambjóðendum fram á
vigvöllinn, auk tveggja annarra,
sem enn er ekkert hægt að full-
yrða um. Þessi mikli fjöldi slæst
heiftúðlega um atkvæðin og hver
dregur fylgi frá öðrum. Einhvern
veginn verða demókratar að
sættast á lokaframbjóðandann án
þess að kljúfa eigin raðir. Skal nú
gerð nokkur grein fyrir þessum
frambjóðendum:
HENRY JACKSON öldunga-
deildarþingmaður er nú 63 ára.
Kosningavél hans er bezt fjár-
mögnuð og hefir hann skrifstofur
i nær öllum rikjunum. En Jack-
son á við sömu vandamál að
glima og i útnefningarbaráttu
sinni árið 1972. Hann er mikill
vinnuþjarkur en ekki skjótvirkur
að sama skapi. Það dregur veru-
lega úr stuðningi áhrifamikilla
vina hans. Þá er að nefna óvægi-
legar árásir hans á détente-stefnu
Bandarikjastjórnar i garð Rússa.
Sú afstaða hans vekur andúð i
frjálslyndari armi flokksins, sem
að likindum mun ekki styrkja
framboð Jacksons. Þá má nefna
andstöðu hans gegn verzlunar-
samningi Rússa og Bandarikja-
manna. Vitað er, að meðal annars
af þessum sökum lita Rússar
hann miður hýru auga. En Jack-
son lætur ekki deigann siga. Hann
heldur hiklaust fram skoðunum
sinum á ýmsum málum, enda
þótt slikt kunni að reynast honum
dýrkeypt siðar. Jackson er frjáls-
lyndur i innanrikismálum en
harður i utanrikismálum. Eink-
um er tilnefnd tortryggni hans og
nærri þvi fjandskapur i garð
Sovétrikjanna. Ljóst er að Jack-
son verður að minnsta kosti að
vinna einn stórsigur i forkosning-
unum eigi hann að koma til
greina sem forsetaefni. Af þess-
um sökum hefir Jackson nú hert
róðurinn. Hann ætlar sér ekki að
taka þátt i forkosningunum i New
Hampshire en býst við allgóðum
úrslitum i Massachusetts,
Florida og New York. Jackson er
áhrifamestur i hægri armi flokks-
ins, ef Wallace er undanskilinn.
Andstæðingar Jacksons á frjáls-
lynda kantinum gætu spillt fram-
boðum sinum — honum i hag. En
eftir sem áöur er allt undir sigri
hans i forkosningunum komið.
BIRCH BAYH öldungadeildar-
þingmaður er 48 ára. Hann nýtur
mikils stuðnings verkamanna-
sambanda i New Hampshire, auk
þess sem frjálslynd öfl styðja
hann mjög. Þessi stuðningur
frjálslyndra dregur mjög úr von-
um þeirra Morris Udall og Fred
Harris. Bayh ætlar sér fyrst að
sigrast á Udall, þá ætlar hann aö
útiloka Jackson eða hvern þann
annan, sem eftir stendur i útnefn-
ingarbaráttunni. Fyrst þarf Byah
að sigrast á Udall i forkosningun-
um i New Hampshire og Massa-
chusetts. Að svo mæltu getur
hann einbeitt sér að baráttunni
gegn Jackson i New York og
Pennsylvaniu. En Bayh verður
einnig að sigrast á Georg Wallace
i Indiana þann 4. mai. Af ásettu
ráði hefur hann ekki gert itarlega
grein fyrir stefnumálum sinum.
Bayh höfðar til gamla kjarnans i
demókrataflokknum. Þá á hann
einnig miklu fylgi að fagna meöal
blökkumanna og kvenna. Stuðn-
ingsmenn hans telja hann standa
bezt að vigi vegna viðtæks fylgis,
og margir tala um hann sem
Kennedy Mið-Vesturrikjanna.
Udall
MORRIS UDALL frá Arizona
er 53 ára. t áróðri sinum hefir
hann til þessa lagt mesta áherzlu
á djarflegar tillögur um um-
hverfisvernd og skipulagningu
efnahagslifsins. Kosningasjóðir
Udalls eru ekki digrir, og mun
hann þvi einbeita sér aö góðri út-
komu i New Hampshire og
Massachusetts forkosningunum.
Þeir Udall og Bayh eru mjög
svipaðir að styrkleika, og barátta
þeirra takmarkast sem stendur
við þá sjálfa. Annar hvor þeirra
fellur úr lestinhi innan skamms.
Udall reiðir sig fremur á persónu-
töfra en pólitisk afrek sin.
FRED HARRIS fyrrum
öldungadeildarþingmaður Okla-
homa. Hann á stuðning sinn til
sterkra að sækja, er vinsæll
meðal almennings og reiðir sig
mjög á sjálfboðaliða i baráttu
sinni, þar sem lágt er i sjóðum
hans. Helzta vandamál Harris er
að fáir flokksbræðra hans taka
framboð hans alvarlega enn sem
komið er. Þó er ljóst, að hljóti
hann verulegt fylgi i for-
kosningunum breytist það skjótt.
JIMMY CARTER fyrrum rikis-
stjóri i Georgiu er næstur. Fylgi
hans er töluvert meðal sam-
flokksmanna i Demókrataflokkn-
um. Þá virðist hann eiga traust
fylgi i Iowa og Oklahoma. Áhöld
eru um hvar hann verður i dilk
dreginn. Carter getur jöfnum
höndum talizt ihaldssamur og
frjálslyndur eftir málaflokkum.
Þessi óljósa staða gæti komið
honum i koll siðar. Carter er
harður keppinautur Wallace
meðal hvitra verkamanna i
Suðurrikjunum og einnig meðal
ihaldsafla beggja flokka. Carter
tekur kosningabaráttuna mjög
alvarlega og vinnur af kappi. I
Florida á Carter mikið fylgi, en
þar á hann við Wallace að etja.
Óhætt er að fullyrða, að Florida
verði prófraun Carters.
GEORGE WALLACE er 56 ára
og hefir lengi verið rikisstjóri i
Alabama. Nái hann kosningu tel-
ur hann það andúðaryfirlýsingu
demókrata á áberandi vinstri
stefnu i röðum þeirra. Hugmynd-
ir hans i kynþáttamálum gera
hann þó umdeildan. Flestir
demókratar telja að hann muni
ekki hljóta útnefningu flokksins
sem forsetaefni. Staða Wallace er
hins vegar mjög sterk, og gæti
hann notað hana sér til fram-
dráttar. T.d. gæti hann dregið sig
i hlé á siðustu stundu og styrkt
sameiginlegt framboð flokksins.
Þannig gæti hann ef til vill krækt
sér i gott embætti i hinni nýju
stjórn.
LLOYD BENTSEN frá Texas
er af dönsku bergi brotinn. Hann
segist staðfastlega stefna að for-
setaútnefningu, enda þótt flestum
virðisthann vera að styrkja stöðu
sina við samningaborðið, væntan-
lega til að hljóta ráðherrastöðu i
nýrri rikisstjórn — ellegar þá til
að hreppa útnefningu sem vara-
forseti. Hann ætlar að taka þátt i
forkosningunum i Missisippi,
Oklahoma, S-Karólinu og Vir-
giniu. Jafnvel hefir hann hugsað
sér að reyna við New York og Illi-
nois. Þó beinist sóknarþungi hans
fyrst og fremst að Texas-for-
kosningunum gegn Wallace, þann
1. mai. Baráttuaðferð Bentsens er
að láta aðra frambjóðendur úti-
loka hvern annan i fyrstu lotunni,
en að hann verði svo eins konar
málamiðlun. Fjársjóðir hans eru
æði digrir. Hætta er hins vegar á
að einhver frambjóðenda nái
ótviræðri forystu áður en Bentsen
lætur til skarar skriða.
TERRY SANFORD. Sem
stendur skuldar kosningasjóður
hans um 100.000 dali, en þessi
fyrrverandi rikisstjóri N-Karó-
linu er bjartsýnn. Hann veröur þo
að vinna stóran sigur i heimariki
sinu ef framhald skal á verða.
SARGENT SHRIVER þekkja
trúlega margir. Hann var til
skamms tima yfirmaður friðar-
sveitanna og hefir þess utan
gegnt fjölda embætta. Hann er
einniggiftur inn i Kennedyættina.
Margir álita að Shriver sé aðeins
að undirbúa framboð Edwards
Kennedy, en sjálfur harðneitar
Kennedy þvi að hann hyggist gefa
kost á sér. Shriver er eiginlega sá
eini meðal frambjóðendanna,
sem nafnkunnir eru innan Banda-
rikjanna og utan. Barátta Shriv-
ers hefir silazt áfram, og margir
flokksbræðra hans efast um hæfni
hans. Shriver reiðir sig á öflugan
sigur i Massachusetts, heimariki
Kennedys. Undir þeim úrslitum
er komið hvort hann tekur þátt i
forkosningum i New York og Illi-
nois, en i siðastnefnda rikinu var
hann um skeið starfandi sem yfir-
maður fræösluráðsins þar.
MILTON SHAPP rikisstjóri i
Pennsylvaniu segist býast við
sæmilegum árangri i Massachu-
setts, Florida og New York. Þol-
raun hans verður i Pennsylvaniu.
Til þessa hefir framboð hans þó
litinn hljómgrunn hlotið meðal
keppinautanna. Liklegast ætlar
Shapp að tryggja sér sæmilega
samningsaðstöðu á flokksþing-
inu, þvi litlar likur eru á þvi að
hann hljóti útnefninguí
FRANK CHURCH öldunga-
deildarþingmaður fyrir Idaho er
nú vel þekktur um heim allan.
Hann er formaður sérlegrar þing-
nefndar, sem rannsakar leyni-
þjónustuna CIA. Árangur og
skýrslur þeirrar nefndar eru vist
öllum kunn. Má þar nefna hleran-
ir, mútur, innbrot og annað litt
ljósþolið atferli CIA. Af störfum
sinum er Church nú á hvers
manns vörum. Þó hyggst hann
ekki gefa kost á sér meðan nefnd-
in er að störfum. Church mun þvi
likast til ekki taka þátt i forkosn-
ingum fyrr en i april, og þá i Wis-
consin-riki. Eina von hans er að
aðrir frjálslyndir frambjóðendur
spilli svo hver fyrir öðrum, að
hann eigi greiða leið án mikilla
átaka.
Humphrey
HUBERT H. HUMPHRE Y
öldungadeildarþingmaður skal
siðast nefndur. Hann er nú 64 ára
og hefur ekki gefið kost á sér.
Hljóti enginn frambjóðendanna
nægilegt fylgi i forkosningunum,
kann svo að fara að flokkurinn
snúi sér til Humphreys, sem bæði
er reyndur og virtur stjórnmála-
maður. Sjálfur segir Humphrey,
að lokaframbjóðandinn verði
maður, sem gengið hafi gegnum
forkosningaslaginn. Fari hins
vegar svo, að flokkurinn verði að
snúa sér annáð, þá verður hin
gamalreynda striðskempa ávallt
reiðubúin, enda maðurinn bar-
áttuglaður og virtur af öllum
gamalreyndum flokksmönnum.
Auk þess benda skoðanankannan-
ir til þess, að Humphrey hafi
traust fylgi. Sumir leiðtogar
demókrata hafa hvatt Minnesota-
þingmanninn til að taka a.m.k.
þátt i einhverjum forkosning-
anna, t.a.m. Kalifornfu og New
Jersey. Leiði fyrstu for-
kosningarnar ekki fram á sjónar-
sviðið einn frambjóðenda, sem
hefur ótviræða forystu, kann
þessi þrýstingur á Humphrey að
aukast enn. Það er greinilegt, að
Humphrey nýtur þess að vera
hafinn yfir bardagann og striðs-
þjarkið. Haft er eftir Humphrey,
að það bezta sem maður i hans
stöðu geti gert, sé að gera ekki
neitt.
Flokksþingið verður haldið i
Madison Square Garden. Til að
hljóta útnefningu þarf frambjóð-
andi að hafa atkvæði 1505 kjör-
fulltrúa. Enn sem komið er sjást
þess engin merki að einhver einn
frambjóðenda nái sliku fylgi fyrir
þann tima.
Heimildir TimeaNewsweek
islenzkun H. Blöndal.
TÍMINN
Rætt við búnaðarþingsfulltrúa:
Skipuleggja þarf land-
búnaðarframleiðsluna og
gera hana hagkvæmari
— ÞAÐ þarf að stefna að þvi
smátt og smátt með lánafyrir-
greiðslu i sambandi við bygging-
ar og bústofnskaup bænda, að
beina framleiðslu þeirra á hverj-
um staö inn á þær brautir, sem
hagkvæmastar eru fyrir þjóðar-
búið, sagöi Guðmundur Jónasson,
búnaðarþingsfulltrúi frá Ási i
Vatnsdal, i viðtali við Timann.
Guðmundur situr á búnaðar-
þingi fyrir Austur-Húnvetninga,
en hann er kunnur fyrir mikil af-
skipti af félagsmálum, bæði i hér-
aði og viðar. M.a. var hann for-
maður stjórnar Kaupfélags Hún-
vetninga um fjölda ára og á sæti i
sýslunefnd Austur-Húnavatns-
sýslu.
Guðmundur hefur ásamt fleir-
um flutt á búnaðarþingi tillögu
um það, hvort ekki sé timabært
að taka til endurskoðunar ýmsa
þætti búvöruframleiðslunnar,
einkum með það sjónarmið fyrir
augum, að hagnaður bænda verði
meiri. Má þar til nefna markaðs-
skilyrði, jafnvægi i framleiðsl-
unni, flutningskostnað, og heppi-
lega nýtingu jarðanna.
t viðtali við Timann sagði Guð-
mundur, að hann óttaðist þá til-
viljunarkenndu þróun, sem nú
ætti sér stað i landbúnaðarmál-
um. Virtist lítið tillit tekið til þess,
hvað hagkvæmast væri að fram-
leiða á hverri jörð, með tilliti til
nýtingar landsins. Heldur virtust
miklu fleiri bændur hallast að þvi,
að hafa eingöngu fé. Þannig væri
bóndinn lika frjálsari.
Taldi Guðmundur, að mikil
hætta væri þvi á, að af þessu
leiddi þaö, að kúabúin yrðu allt of
fáog allt of dreifð. Gæti það haft i
för með sér,að ekkiyrði nægilega
mikil mjólk framleidd i landinu,
auk þess sem dreifð kúabú geröu
mjólkurflutningana mjög óhag-
kvæma.
Þetta leiddi siðan af sér þá
hættu, að á vissum landsvæðum
væri ekki nægilega mikil mjólk-
urframleiðsla. Nú er mjólk t.d.
flutt frá Akureyri til ísafjarðar.
Slikt er fásinna að gera. Miklu
nær væri að framleiða mjólkina
fyrir vestan og losna þannig við
flutningskos tnaðinn.
Vinnuálag kúabænda
of mikið
— Ein ástæðan fyrir þvi, hve
margir bændur eru nú að hætta
við að hafa mjólkúrkýr, sagði
Guðmundur, er hve vinnuálag
kúabænda er mikið. Sérstaklega
þurfa þeir að vinna mikla nætur-
og helgidagavinnu. Fyrir það
verða þeir aö fá sanngjamlega
greitt.
Guðmundur Jónasson Asi
Ég hef heyrt marga kúabændur
segja,að þeir hefðu aldrei farið út
i þá framleiðslugrein, ef þeir
hefðu vitað hve gi'furlegt vinnu-
álagið væri. Þeir lita lika öfund-
araugum sumarfrelsi sauðfjár-
bænda.
Landið nýtist bezt með
blönduðum búskap
Ég er þess fullviss, að á mörg-
um jörðum hentar blandaður bú-
skapur bezt. Stór fjárbú þurfa
mikið land, en yfirleitt er ekki
hægt að fullnýta jarðir ef þar eru
eingöngu kýr. Þvi er þetta bezt
hvað með öðru. Þannig næst bezt
nýting út úr landinu, og er minnst
hætta á ofbeit.
Með þessu er ég þó ekki að
segja, að einhæfur búskapur eigi
engan rétt á sér. Það geta ýmsar
ástæður legið til þess að hann sé
réttlætanlegur.
En það, sem ég legg aðal-
áherzluna á, er að eitthvað verði
gert til að skipulegg ja landbúnað-
arframleiðsluna áður en tilviljun-
arkenndar framkvæmdir hafa
skapað óyfirstiganleg vandræði.
Að minu áliti væri eðlilegast, að
búnaðarsamböndin væru fengin
til að gera úttekt á bújörðunum,
sem sýndi hagkvæmustu búvöru-
framleiðsluna á hverri jörð fyrir
sig. A grundvelli þeirra úttektar
mætti siðan gera áætlun um bú-
vöruframleiðsluna, svo menn fari
ékki að framleiða eitthvað og eitt-
hvað eftir duttlungum sinum.
Allt of margir
ótryggðir
Guðmundur sagði, að trygging-
armál bænda væru mjög mikið
stórmál og allt of margir bændur
væru ótryggðir gagnvart ýmsum
óhöppum og t jónum. Það má eng-
inn við þvi að vera ótryggður,
þegar óhöpp eigá sér stað, og
standa jafnvel uppi eignalaus,
sagði Guðmundur. I fyrra var
samþykkt á búnaðarþingi tillaga
frá Búnaðarsambgndi Aust-
ur-Húnvetninga um að stjórn B.l.
leitaði eftir tilboði tryggingarfé-
laga i tryggingar, og værimeð þvi
leitast við að fá þær á sem allra
hagkvæmustu verði.
— Þá tel ég, að nauðsynlegt sé
að B.í. hafi mann á sinum vegum
til að leiðbeina bændum við að ná
rétti sinum gagnvart tryggingar-
félögunum, sagði Guðmundur.
Það er alltof algengt að trygging-
arfélög séu með undanbrögð við
að greiða bætur fyrir tjón. Gagn-
vart þvi standa tjónþolar oft ráð-
þrota. Þvi gæti verið mjög mikiö
gagn að þvi að hafa mann á veg-
um Búnaðarfélagsins til að leið-
beina bændum.
Búnaðarþing mikilvægt
Að lokum vékum við Guðmund-
ur talinu að þýðingu búnaðar-
þings fyrir islenzkan landbúnað.
Sagði Guðmundur, að það væri
fyrst og fremst mikilvægt i sam-
bandi við löggjöf uml landbúnað-
armál. — Hér koma öll landbún-
aðarfrumvörp til umræðu, og hér
er fjallað um þau af mönnum,
sembezt þekkja til þessara mála.
En hinn þátturinn i störfum
búnaðarþings er þó ekki siður
mikilvægur. Hér hittast menn og
bera saman bækur sinar og hér
fæðastmargar hugmyndir. Þess-
ar hugmyndir eru oft á tiðum
undirstaðan að setningu merkrar
löggjafar um landbúnaðarmál.
— Ég vil nefna, að á búnaðar-
þingi fyrir nokkrum árum lögðum
við Magnús Sigurðsson og Sig-
mundur Sigurðsson fram erindi
um eignarhald á jörðum. Fyrir
það þing voru einnig lögð fleiri er-
indi um svipað efni. Ég tel, að
þessierindi hafi orðið kveikjan að
jarðalagafrumvörpum þeim.sem
lögð voru fyrir Alþingi 1973. Þvi
miður náöu þau frumvörp ekki
fram að ganga þá, en ég legg
mikla áherzlu á, að þessi frum-
vörp fari nú að sjá dagsins ljós að
nýju.
Landbúnaðarráðherra lýsti þvi
yfir við setningu þessa búnaðar-
þingsað likurbentu til þess, að nú
væri að nást samstaða með
stjórnarflokkunum um þessi
frumvörp. Vona ég að svo reynist,
þvi að ég er fullviss um það, að
þau eiga eftir að verða islenzkum
landbúnaði til heilla.
Vöruskiptajöfn-
uðurinn í janúar
óhagstæður
SJ—Reykjavik— Verðmæti ut-
flutnings i janúarmánuði siðast
liðnum nam 3.028,2 milljónum
króna, en á sama tima var inn-
flutningurinn að verðmæti
4.924,8 millj. kr. Vöruskipta-
jöfnuður var þvi — 1.896,6. 1
sama mánuði i fyrra var flutt út
fyrir 2.307,6 m illjónir en inn fyr-
ir 3.618,4 og vöruskiptajöfnuður-
inn var — 1.310,8 milljónir.
Við samanburð utanrikis-
verzlunarinnar verður að hafa i
huga, að meðalgengi erlends
gjaldeyris i janúar 1976 er talið
vera 36,1% hærra en það var i
sama mánuði 1975.
Á1 og álmelmi var flutt út
fyrir 410,6 milljónir (293,3) i
janúar sl., en innflutningur Is-
lenzka álfélagsins nam 277,8
milljónum (86,8). Innflutningur
Landsvirkjunar (að mestu
vegna Sigölduvirkjunar) nam
241,4 milljónum (20,7). Tölurnar
i svigunum eru frá jan. 1975.
Reykjavíkurmót
í snjó-rally '76
LIONSKLOBBARNIR Njörður og tækjum fyrir björgunarsveitirn-
Freyr hafa i samráði við björg- ar, sem aðstoða Lionsklúbbana
unarsveitirnar, sem unnið hafa
að undirbúningi Snjó-Rally-móts-
ins á Reykjavikursvæðinu ákveð-
ið að flytja mótið, sem ætlunin
var að halda við Sandskeið, — og
halda það núna i dag laugar-
daginn 6. marz við Þingvalla-
veginn, þar sem hann liggur um
Mosfellsheiði. Nægilegur snjór ei
þar og hefst mótið klukkan tvö —
ef veður leyfir.
Fjöldi þátttakenda hefur skráð
sig til keppni og virðist mikill
áhugi fyrir mótinu, en það var á
Hellu á Rangárvöllum um siðustu
helgi. Tókst það með ágætum og
var fjölsótt. Leiðin á mótsstað
verður vel merkt og engin hætta
á að menn finni ekki mótssvæðið.
Aðgangseyrir er kr. 300 fyrir full-
orðna og 100 fyrir börn, en eins og
fram hefur komið i fréttum, fer
ágóði af mótshaldinu til kaupa á
við framkvæmd mótsins.
Keppt verður um tvo bikara i
snjósleðakeppninni, annar er
gefinn af Öliuféláginu Skeljungi
og hinn af Ford-umboðinu.
*