Tíminn - 06.03.1976, Page 11

Tíminn - 06.03.1976, Page 11
TÍMINN 11 Laugardagur 6. marz 1976. Tvísýn barátta í Eng- landi — Fimm lið berjast þar um meistaratitilinn BARATTAN um Englandsmeist-j aratitilinn er geysilega hörð ogj tvisýn og má búast við glfurlegri lokabaráttu, þar sem fimm lið, Liverpool, Manchester United, Queens Park Rangers, Derby og Leeds, verða þátttakendur. Liverpool og QPR verða i sviðs- ljósinu i dag, en þá mætir QPR Coventry á heimavelli og Liver- pool mætirMiddlesborough á heimavelli. Manchester United og Derby leika I bikarkeppninni, en Leeds-liðið á frí i dag. Eftirtalda leiki eiga toppliðin fimm eftir að leika: LIVERPOOL: — Middlesborough (H), Birmingham (Ú), Norwich (U), Burnley (H), Everton (H), Aston Villa (Ú), Leicester (H), Stoke (H), Manchester City (Ú) og Wolves (Ú). MANCHESTER UNITED: — Norwich (Ú), Leeds (H), New- castle (Ú), Middlesbrough (H), Manchester City (H), Ipswich (Ú), Everton (H), Burnley (Ú), Stoke (H) og Leicester (Ú). Q.P.R.:— Coventry (H),Everton (Ú), Stoke (ú), Manchester City (H), Newcastle (Ú), Middles- borough (H), Norwich (Ú), Arsenal (H) og Leeds (H). DERBY: — Norwich (H), Middlesborough (Ú), Birming- ham (H), Aston Villa (Ú), Ever- ton (H) og Ipswich (Ú).LEEDS: — Manchester United (Ú), Ever- ton (Ú), Arsenal (H), Burnley (H), Tottenham (Ú), Sheffield United (H), Manchester City (H), Leicester (Ú), QPR (Ú), West Ham (H), og Newcastle (Ú). (H) — er heimavöllur og (Ú) — útivöllur. STAÐAN Staða efstu liðanna i 1. deildar- keppninni, er nú þessi: Liverpool ... .32 15 13 4 49:25 43 QPR.........33 16 11 6 47:25 43 Manútd...... 32 17 9 6 53:42 43 Derby...... 33 17 9 7 53:42 43 Leeds ......31 16 7 8 48:32 39 Middlesboro . .32 12 10 10 35:29 34 ManCity.....30 12 9 9 47:28 33 Everton.....31 11 11 9 48:53 33 WestHam ... .32 13 7 12 40:48 33 Ipswich.....30 10 12 8 37:32 32 — og staða neðstu liðanna er þessi: Norwich.....30 1 0 8 12 44 : 46 2 8 Burnley ....33 7 9 17 37:52 23 Birmingh....31 9 5 17 42:58 23 Wolves......32 7 8 17 34:53 22 Sheff.Utd. ...32 2 9 21 22:60 13 PALL BJÖRGVINSSON. stóð sjg mjög vel I æfingaleikjum lands liðsins i Frakklandi og V-Þýzkalandi. Hann skoraði alls 19 mörk i fjór- um leikjum. LANDSLIÐIÐ KOMIÐ TIL JÚGÓSLAVÍU — eftir erfiða keppnisferð um Frakkland og V-Þýzkaland, þar sem það lék gegn sterkum félagsliðum á hverju kvöldi ★ Jón Ásgeirsson mun lýsa ólympíuleiknum gegn Júgóslövum ó morgun íslenzka landsliðið í hand- knattleik er nú komið til Þórsarar á höttum eftir þjólfara.... Akureyrarliðið Þór er nú á hött- unum eftir knattspyrnuþjálfara, og eru Þórsarar nú að leita fyrir sér um möguleika á enskum þjálfara. Þórsarar reyndu að fá Danann Jack Johnson, sem þjálf- aði 1. deildar lið Akureyrar 1974 — en þeir fengu endanlegt afsvar frá honum fyrir stuttu, þar sem hann sá sér ekki fært að koma til islands i sumar. Zagreb í Júgóslavíu, þar sem það mun mæta Jógó- slövum á sunnudaginn í síðari leik liðanna í undan- keppni ólympíuleikanna. Landsliðið hefur búið sig vel undir leikinn — ferðazt um Frakkland og V-Þýzka- land og leikið erfiða leiki. Róðurinn verður örugglega þungur hjá landsliðsmönnum okkar, en þeir þurfa að vinna 7 marka sigur yfir Júgóslövum til að tryggja sér farseðilinn til Munchen. Leikmennirnir eru ákveðnir i að gera sitt bezta til að reyna að vinna upp 6 marka for- skotið, sem Júgóslavar tryggðu sér i Laugardalshöllinni. Hvort þeim tekst það? — svarið við þvi fæst á morgun. Landsliðið kom i gær til Júgó- slaviu, eftir æfinga- og keppnis- ferðalag um Frakkland og V- Þýzkaland, þar sem það hefur leikið fjóra leiki gegn frönskum og v-þýzkum 1. deildarliðum. Landsliðið gerði jafntefli (25:25) gegn franska liðinu Metz en siðan sigraði það Nancy 26:17. Þá sigr- aði landsliðið v-þýzka liðið Hutt- enberg 24:16, og á fimmtudags- kvöldið lagði liðið Munchenarliðið Milbertshofen að velli — 19:17. Þar með var hinni ströngu æfingaferð lokið — liðið férðaö'ist á daginn, og lék siðan leiki á hverju kvöldi. Landsliðsmennirn- ir mæta Júgóslövum á morgun i Novomesta, smábæ fyrir utan Zagreb. Þess má geta, að Jón As- geirsson mun lýsa leiknum — kl. 16 — i útvarpinu. Jóhann stjórnar skíðakennslu — fyrir almenning við skíðaskólann í Skólafelli næstu helgar Skíöadeild KR mun um næstu helgi standa fyrir skíðakennslu fyrir al- menning undir stjórn Jó- hanns Vilbergssonar skíðakappa, en honum til aðstoðar verða nokkrir skíðamenn, er kenna sem sjálfboðaliðar á vegum KR. Kennslan fer fram við lyftu 5, sem er austasta lyftan i Skála- felli, og eru brekkur þar mjög hagstæðar til kennslu fyrir al- menning. Kennt verður i þrem flokkum, eftir getu hvers og eins. Þátttak- endur verða sem næst 10 i hverj- um flokki. Kennslugjald er kr. 300 fyrir hverja önn og er 100 kr. fyrir börn innan 12 ára. Fyrri önn er frá kl. 11.00-12.30. Siðari önn er frá kl. 15.00-16.30. Skráning fer fram við lyftu 5. Kennsla hefst næst komandi sunnudag. Reynt verður að kynna al- menningi allt það nýjasta, sem kennt er i skiðaiþróttinni, og eru nokkrir KR-ingar erlendis um þessar mundir i þeim tilgangi að fylgjast með nýjungum. PUNKTAR • BRADFORDí SVIÐSLJÓSINU LONDON. — Leikmenn Brad- ford-liðsins, sem hafa komið skemmtilega á óvart I ensku bik- arkeppninni, verða i sviðsljósinu á Valley Parade Ground i dag, þegar >,eir fá Dýrlingana frá Southampton i heimsókn — i bik- arkeppninni. Fróðir menn telja sigurmöguleika Bradford-Iiðsins mikla, þar sem Southampton-Iið- ið hefur sýnt, aðþað er ekki sterkt á útivelli. Leikirnir i 8-liða úrslitum bik- arkeppninnar verða allir leiknir i dag, en þá mætast: Sunderland — Crystal Palace Derby — Newcastle Man United. — Wolves Bradford — Southampton • OPIÐMÓT í BADMINTON Á AKRANESI AKRANES — Badmintonráð tþróttabandalags Akraness held- ur opið mót I badminton laugar- daginn 13. marz 1976. Keppt verður i einliðaleik og tviliðaleik karla og kvenna og I tvenndarleik i A- og B-flokki. Keppni hefst kl. 11.30, og verður henni lokiö á laugardeginum og þau félög sem senda keppendur á þetta mót verða látnir vita, hvenær áætlað er að það verði, þegar fjöldi kepp- enda liggur fyrir. Þátttöku þarf að tilkynna til Hinriks Haralds- sonar I sima 93-2117 ekki seinna en laugardaginn 6. marz. Hinrik mun einnig veita nánari upplýs- ingar um mótið. Byrjuðu með trillubát.... — en eiga nú yfir glæsilegum bátakosti að ráða SIGLIN-GAFÉLAGIÐ Ýmir var stofnað 4. marz 1971 af 14 siglingaáhugamönnum og kon- um, sem áður höfðu starfað i siglingaklúbbi á vegum Æskulýðsráös. Ýmir hélt upp á 5 ára afmæli sitt i gærkvöldi I Kópavogi, þar sem félagið hefur siglingaaðstöðu við Vesturvör. Þegar félagið var stofnað, var bátakostur þess fremur rýr — lánsbátur frá Æskulýðs- ráði, einn seglbátur og trillubátur, sem haföi verið breytt i seglbát. Breytingar hafa orðið miklar og áhuginn á siglingaiþróttinni aukizt, siðan trillubáturinn klauf öldurnar með fé- lagana i Ými. Tæplega 100 félagar eru nú i félaginu, og hafa þeir yfir að ráða glæsilegum bátakosti, sem þeir eiga sjálfir — en á vegum félagsins eru eftirtaldir bátar/ 1 Cresent, 2 Flipper, og 8 Fireball seglbátar, 2 25 feta Quarter toner, 1 27 feta Vega og 1 38 feta Ohlson.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.