Tíminn - 06.03.1976, Page 15
Laugardagur 6. marz 1976.
TÍMINN
15
Aukin
viðskipti
við Ung-
verja
FYRIH skömmu dvaldist Erlend-
ur Einarsson forstjóri I Ung-
verjalandi til viðræöna viö ung-
verska samvinnusambandiö Szo-
vosz. Áöur höföu fariö fram viö-
ræöur hér á tslandi um gagn-
kvæm viöskipti á milli ungverska
samvinnusambandsins og Sam-
bands fsl. samvinnufélaga, og nú
hefur veriö gert samkomulag um
þaö, aö tekin veröi upp gagn-
kvæm viöskipti á milli þessara
tveggja samvinnusambanda.
Helztu islenzkar afuröir, sem
gert er ráð fyrir, að Sambandið
selji til Ungverjalands, eru iönað-
arvörur frá verksmiöjunum á Ak-
ureyri, fiskimjöl og e.t.v. fleiri
sjávarafuröir. Þaö sem reiknaö
er meö, aö Sambandiö kaupi frá
ungverska samvinnusamband-
inu, eru fyrst og fremst nýir
ávextir og vefnaöarvörur, og auk
þess mun verða athugað með
kaup á ýmsum öörum vörum, eft-
ir þvi sem markaösástæöur hér
heima leyfa.
Segir af sér vegna
Lockheed-málsins
Reuter, Ankara.Emin Alpkaya,
yfirhershöfðingi i tyrkneska
flughernum, sagði af sér i gær
vegna afhjúpana, sem fylgt
hafa i kjölfar opinberrar
rannsóknar á fullyrðingum
blaða um að tyrkneskir emb-
ættismenn hafi þegið mútur af
bandariska fyrirtækinu Lock-
heed.
1 yfirlýsingu vegna afsagnar-
innar segir, að atalska fyrir-
tækið Aeritalia, sem framleitt
hefur herflugvélar af gerðinni
Lockheed F-104 og selt til Tyrk-
lands, hafi sent Alpkaya hers-
höfðingja þrjátiu þúsund doll-
ara til að aðstoða þá, sem jarð-
skjálftar höfðu valdið tjóni.
Peningarnir, sem teknir höfðu
verið út af bankareikningi án
vitundar yfirstjórnar hersins,
fundust seinna ósnertir i pen-
ingaskáp hersins, þrátt fyrir að
i opinberum plöggum hafi þvi
verið haldið fram, að þeir hefðu
runnið til byggingar skóla á
jarðskjálftasvæðunum.
I yfirlýsingunni kom ekki
greinilega fram, hvort Alpkaya,
sem var yfirmaður flughersins i
innrásinni á Kýpur 1974, væri
ákærður fyrir að taka pening-
ana út úr banka sjálfur.
FYRIRLESTUR
UMKÚRDA
HHJ—Reykjavík— 1 dag klukkan
17.45 heldur Olof Tandberg, ritari
Sænsku visindaakademiunnar,
fyrirlestur i Norræna húsinu’.
Fyrirlesturinn nefnist: „Kúrd-
arnir eiga enga vini”.
Tandberg er hingað kominn á
vegum fslenzk-sænska félagsins
Norræna hússins.
Leiðrétting
MEÐ mynd frá listdanssýningu f
Þjóðleikhúsinu, sem birtisti Tim-
anum á föstudag, misritaðist nafn
dansmeyjunnar. Hún heitir Guð-
munda H. Jóhannesdóttir. Tim-
inn biðst velvirðingar á þessum
mistökum.
0 Togararnir
Það eru sérstaklega, og aðal-
lega undirmenn á togurunum,
sem eru óánægðir með sitt hlut-
skipti i hinu nýja kjarasamninga-
uppkasti, og er það fyrst og
fremst hlutaprósentan, sem þeim
finnst of mikið skert. Sigfinnur
sagði, að almennt væru aðrir ekki
óánægðir. Samningaviöræður
hófust við útgerðarmenn klukkan
tiu í morgun á Eskifirði.
Q 11 lll SSft í i i
Rangæingar —
Framsóknarvist
Austur-
Skaftfellingar
Arshátið Framsóknarfélags Austur-Skaftfellinga verður haldin
að Hótel Höfn laugardaginn 6. marz. Hátiðin hefst með borðhaldi
kl. 20,00.
Halldór E. Sigurðsson landbúnaðarráðherra og Pétur Einarsson
flytja ávarp. Ýms skemmtiatriði. Húsið opnað kl. 19,00. Að-
göngumiðar seldir við innganginn.
Stjórn Framsóknarfélagsins
Framsóknarfélag Rangárvallasýslu heldur spilakvöld I félags-
heimilinu Hvoli, Hvolsvelli, sunnudaginn 7. marz kl. 21. Góð
kvöldverðlaun og heildarverðlaun sólarlandaferð fyrir tvo. Vil-
hjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra flytur ávarp.
Stjórnin.
Viðtalstímar
alþingismanna og
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Einar Agústsson, utanrikisráöherra, verður til viðtals á skrif-
stofu Framsóknarflokksins, Rauðarárstig 18 laugardaginn 6.
marz kl. 10—12.
Austur-Skaftfellingar
Aöalfundur Framsóknarfélags Austur-Skaftfellinga verður
haldinn i gagnfræðaskólanum Höfn laugardaginn 6. marz og
hefst kl. 15,00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestir fundarins verða Halldór E. Sigurðsson landbúnaðarráð-
herra og Pétur Einarsson stjórnarmaður i SUF.
Akranes
Framsóknarfélag Akraness heldur framsóknarvist i félags-
heimili sinu að Sunnubraut 21, sunnudaginn 7. marz kl. 16.
Þetta er þriðja vistin i fjögra-spila keppni sem lýkur sunnudag-
inn 21. marz. Ollum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Hafnarf jörður
Húsavík
Framsóknarfélag Húsavikur hefur opnað skrifstofu á miðhæð
verzlunarhússins Garða, Húsavik. Skrifstofan verður opin á
þriðjudögum, miðvikud. og fimmtud. kl. 18—19 og á laugard. kl.
17—19.
Ingi Tryggvason alþingismaður verður til viðtals á skrifstofunni
kl. 17—19 laugardaginn 6. marz. Bæjarfulltrúar Framsóknar-
flokksins eru til viðtals á skrifstofunni á miðvikudögum kl.
17—19.
Framsóknarfélag Húsavikur.
Félagsmólanómskeið
Félagsmálaskóíi Framsóknarflokksins gengst fyrir almennu
félagsmálanámskeiði tvær helgar i marz.
19. til 21. marz verður fjallað um félagsstörf og ræðumennsku.
Stjórnandi verður Pétur Einarsson.
26. til 28. marz verður fjallað um ýmsa þættiásviði þjóðmála.
Stjórnandi verður Magnús Ólafsson.
Námskeiðið er öllum opið, og eru flokksmenn hvattir til að
taka með sér gesti.
Námskeiðið verður haldið á Rauðarárstig 18 i Reykjavik.
Tilkynnið þátttöku i sima 24480.
Félagsmálaskólinn
SUF
Miðstjórnarfundur Sambands ungra Framsóknarmanna verður
haldinn að Rauðarárstig 18 Reykjavik 3. og 4. april. Fundurinn
hefst á laugardag kl. 14,00.
Miðstjórnarmenn eru beðnir að hafa samband við flokksskrif-
stofuna, ef þeir geta ekki mætt.
StjórnSUF.
Ábending
o
mörg tonneftir stuttan tima. En
vaxandi framleiðsla sjávaraf-
urða er stærsta framlag gegn
matarskorti heimsins. Svona
gagnstæö er þessi þróun eðli-
legri framvindu sjávarlifsins.
Rányrkjan er óheyrilegt ger-
ræði og heimska þeirra, sem
ábyrgðina bera. Rányrkjan og
mengunin er stærsti glæpur ald-
arinnar.
Þaðeittaö hata Bretabjargar
ekki afkomu fiskstofna, né
háska skipshafna, mildar né
dregur úr tjóni og harmi þjóð-
anna, ef mannskaði veröur, né
þjónar neinum góðum tilgangi.
Það eina sem hjálpar, er að
milda svo óvildina, sem lifinu
ógnar, að hún nái ekki að
granda þvi.
Það sem sigrar ranglætið, er
mótvægi þess. réttlæti.
Bretar eru ekki hundrað
prósent réttlausir, þegar þeir
biðja um fiskveiðikvóta viö
ISLAND, en þeir heimta of stór-
an skammt og fyrir of langan
tima, og beita óheyrilegu rang-
læti við að sækja hann, sem þeir
annars heföu átt ofurlitinn rétt
til.
Tökum eitt dagblað Bretans,
DAILY MIRROR, á orðinu.
Gefum þeim 40 þúsund tonn á
þessu ári og 20 þúsund næsta ár,
En gerum það strax, áður en
þeir fimmfalda þann skammt
og meira en þaö, og hundrað-
falda fyrirfram drápið á við-
komu stofnsins meö æðisgeng-
inni rányrkju (drápi) á friðuöu
svæöunum, sem viturlegir
samningar gætu afstýrt. Haf-
réttarráðstefnan er flókin, getur
tafizt. Bretinn fer aldrei nema
meö andúð meirihluta heimsins
af miöunum viö ÍSLAND, fyrr
en hann veit, að hann „kastar”
ekki lengur I lifandi sjó, heldur
dauðan.
Við verðum aö gjöra okkur
ljóst, hvenær við erum sterk og
hvenær veik í hafróti heims-
þjóðanna. Þau stóru, rlku
heimsveldi eruekkiokkar stétt.
Bretar hafa sett æruna að veði
við lifið. Hvort tveggja getur
glatazt, fái ekki vitsmunir ráð-
ið.
Framsóknarfélögin i Hafnarfirði hefja þriggja kvölda spila-
keppni fimmtudaginn 11. marz kl. 20.30 i Iðnaðarmannahúsinu.
Hin tvökeppniskvöldin verða fimmtudagana 25. marz og 8. april.
Heildarverðlaun verða sólarflug á komandi hausti, þar að auki
verða veitt kvöldverðlaun. öllum heimill aðgangur meðan hús-
rúm leyfir.
Framsóknarfélögin.
Ráðstefna
Framsóknarfélag Reykjavikur gengst fyrir ráðstefnu um
efnahags- og atvinnumál laugardaginn 13. marz að Rauðarárstig
18. Ráðstefnan hefst kl. 9.00.
Ráðstefnustjóri verður Jón Abraham Ólafsson, sakadómari.
Dagskrá:
Kl. 9.00 Markús Stefánsson, formaður Framsóknarfélags
Reykjavikur setur ráðstefnuna.
KI. 9.05 Avarp, Ólafur Jóhannesson, dóms- og viðskiptamála-
ráðherra.
Kl. 9.15 Jakob Magnússon fiskifræðingur, flytur erindi um
breytta tilhögun fiskveiða vegna nýrra viðhorfa um nýtingu haf-
svæða umhverfis landið.
Kl. 9.45 Kristján Friðriksson, iðnrekandi, flytur erindi um val
nýrra iðngreina fyrir dreifbýli og þéttbýli.
Kl. 10.15 Ásmundur Stefánsson, hagfræðingur, flytur erindi um
viðskiptahalla við útlönd og hugsanleg úrræði til bóta i þeim efn-
um.
Kl. 10.45 Páll Pétursson, alþingismaður, ræðir um stefnumót-
un alþingis i atvinnu- og efnahagsmálum.
Kl. 11.15 Þátttakendum skipt i fjóra umræðuhópa undir stjórn
sérstakra umræðustjóra.
Kl. 13.30 UMræðuhópar starfa.
Kl. 15.30 Kaffihlé.
Kl. 16.00 Umræðustjórar gera grein fyrir þvi helzta sem fram
hefur komið i umræðuhópunum.
Frjálsar umræður.
Alþingismönnum Framsoknarflokksins er sérstaklega boðin
þátttaka I ráðstefnu þessari. Allir áhugamenn um efnahags-og
atvinnumál eru velkomnir. Þátttöku er æskilegt að tilkynna til
skrifstofu Framsóknarflokksins að Rauðarárstig 18. Simi 24480.
Undirbúningsnefnd.