Tíminn - 25.07.1976, Page 7
Sunnudagur 25. júli 1976.
TÍMINN
7
HELGARSPJALL
Jón Skaftason:
BETUR MÁ EF DUGA SKAL
Nokkur batier merkjanlegur i
efnahagsbúskap landsmanna
frá þvi' er var s.l. 2 ár og sizt var
vanþörf á þvi. Þetta má þakka
meiri aðhaldsstefnu stjórnvalda
og batnandi viðskiptaárferði.
Mikil verðbólga og vaxandi
viðskiptahalli við útlönd voru
aðalefnahagsvandamálin þessi
ár. Nokkuð mun draga úr verð-
bólguvextinum i ár og likur eru
á aðhann verði á bilinu 25-30%.
Er það umtalsverð bót frá árinu
1974, er verðbólga reyndist 54%
og 1975 er hún rúmlega 40%.
Þessi árangur er þó hvergi næg-
ur. Ennþá er verðbólgan tvisvar
eða þrisvar sinnum hærri hér,
en i helstu viðskiptalöndum
okkar.
Þámá gera sér rökstudda von
um að óhagstæður viðskipta-
jöfnuður við útlönd verði a.m.k.
helmingiminni I ár en i fyrra og
hittifyrra, en þá nam hann um
22 milljörðum, hvort árið.
Þaðer þvi ótvirætt, aðnokkuð
stefnir i rétta átt, þótt enn þá
séum við fjarri æskilegu marki.
Að þvi verður að stefna áfram
miskunnarlaust og hvergi slá
af.
Það er ánægjulegt að þessum
árangri hefur veriðnáð, án þess
að til atvinnuleysis hafi verið
stofnað I landinu, eins og nú er i
mörgum löndum i kring um
okkur.
Rétter hinsvegaraðgera sér
þess fulla grein, að i ýmsum
veigamikum atriðum er grund-
völlur efnahagsbúskapar okkar
afar veikur. Erlendar lántökur
eru geysiháar og hærri en
nokkru sinni, miðað við þjóðar-
tekjur, það bezt ég veit. Staða
surhra aivinnuveganna er lika
tæpog tekjumunur einstaklinga
virðist hafa farið vaxandi sið-
ustu árin. Allt er þetta þó
smáræði hjá þeim ósköpum,
sem leiða munu af útrymingu
þorskstofnsins, ef svoölánlega á
eftir að takast til hjá okkur. Það
má ekki gerast, eftir að við höf-
um unnið striðið um 200 milurn-
.lón Skaltason.
ar — og þá ekki sizt með þvi að
beita þeim rökum á erlendum
vettvangi, að 200 milna fisk-
veiðilandhelgi umhverfis Island
hafi verið nauðsyn vegna rán-
yrkju útlendinga — að þá skuli
þorskstofninn i hvað mestri
hættu vegna skammsýnnar
græðgi okkar sjálfra. Slikt væri
þjóðarhneisa.
Rikisstjórn, alþingi og önnur
stjórnvöld ættu nú i framhaldi
af þeim árangri, sem þegar hef-
ur náðst, að gera ráðstafanir til
þess að styrkja gengi krónunnar
iviðskiptum innanlands. Ekkert
hefur orðið verr úti i hrunadansi
undanfarinna verðbólguára-
tuga, en aumingja krónan okk-
ar. Margt illt hefur af þvi leitt
og ekki þá sizt sú mikla fjár-
málaspilling og eyðslasem mikið
er nú umrædd. Að sjálfsögðu
eykur minnkandi verðbólga
gengi krónunnar. En jafnhliða
baráttunni við verðbólguna ætti
að undirbúa, sem fyrst, útgáfu
nýrrar og þyngri krónu með þvi
að skera a.m.k. eitt, ef ekki tvö
núll aftan af i peningakerfinu.
Þannig yrði 100 kr. að 10
krónum eða jafnvel 1 krónu.
Þetta er ekki vandalaus aðgerð
ogþarf mikinn undirbúning. En •
til mikils er lika að vinna ef
endurvekja á trú almennings á
verðmæti gjaldmiðilsins.
Eitt af þvi,sem leiða myndi af
slikri aðgerð til góðs er, að þá
mætti draga mjög úr „kerfinu”
margumtalaða, sem nú er allt of
dýrt og býður upp á mismunun
þegnanna og pólitisk hrossa-
kaup. Það væri mikið þarfa-
verk, ef slikt mætti takast. Ef
menn gætu treyst þvi, að lánuð
króna fengist endurgreidd með
sama verðgildi og hún var lán-
uð, þá myndi ásóknin á lána-
stofnanir og sjóði minnka veru-
lega, þar sem draga myndi úr
verðbólguf járfestingu og
spákaupmennsku.
Núverandi rikisstjórn hefur
setið hálft kjörtimabilið og
ýmislegt gert vel. Hún tók þó of
seint við sér og of langur tirr i
leið án róttækra aðgerða i efna-
hagsmálum. Ef siðari hluti
kjörtimabilsins verður notaður
til þess að koma á meiri stöðug-
leika i efnahagsbúskapnum og
lagfæra veilur i efnahagsstarf-
seminni, þá verður hennar
minnzt, sem góðrar stjórnar.
unglinga-
hátíð
að úlfIjótsvatni
um verslunar-
mannahelgi
Glœsilegasta dagskrá sem um getur:
Föstudagur:
Kvöld:
Mótssetning
Dansleikir við tvo palla
Experiment leikur f. dansi
Cabarett leikur f. dansi
Laugardagur:
Eftirmiðdagur:
Bátaleiga opin
frá 10.00-16.00
Kvöld:
• Ávarp hátiðargests, Flosa ólafssonar
• Paradis leikur fyrir dansi.
• Galdrakarlar leika fyrir dansi
• Diskótekið Áslákur og Halli og Laddi
skemmta i pásum.
• Varðeldur i umsjón Galdrakaria
• Flugeldasýning.
• Skipulagðar gönguferðir um ná-
grennið
• Tivoli og hæfileikakeppni starfrækt
• Ýmsar iþróttir: m.a. blak, handbolti,
viðavangshlaup.
• Skemmtidagskrá með Randver og
Halla og Ladda.
• Maraþondanskeppni
Bátaleiga opin
frá kl. 10.00-16.00
Sunnudagur:
Eftirmiðdagur:
• Hugleiðing um landvernd.
• Skipulagðar gönguferðir um
nágrennið
• Tivoli og hæfileikakeppni starfrækt
• Skemmtidagskrá með Gísla Baldri
Randver og Þokkabót.
• Uppákoma.
• Maraþonkossakeppni.
Kvöld:
• Dansleikir við tvo palla
• Paradis leikur fyrir dansi.
• Cabarett leikur fyrir dansi.
• Diskótekið Áslákur og Gisli Rúnar og
Baldur skemmta i pásum.
• Varðeldur i umsjá Þokkabótar.
Mónudagur: Bátaleiga kl. 10.00-13.00.
• Mótsslit.
• Þá mun Holberg Másson bjóða upp á
loftbelgsferð á laugardag og sunnu-
dag.
• Athugið að um marga dagskrárliði er
um að velja samtimis
Aðgöngumiði gildir sem
happdrœttismiði. Kr. 3.500,-