Tíminn - 26.08.1976, Síða 6
6
TÍMINN
Fimmtudagur 26. ágúst 1976
Elvar Thorarenssen, 4 ára gam-
all drengur tekur fyrstu skóflu-
stunguna aö nýju byggingunni.
►
/
Sjálfsbjörg á Akureyri hefur
byggingu nýrrar og fullkominnar
endurhæfingarstöðvar
KS-Akureyri. —
Síðastliðinn laugardag
var tekin fyrsta skóflu-.
stungan að byggingu
nýrrar endurhæf ingar-
stöðvar á vegum Sjálfs-
bjargar, félags lamaðra
og fatlaðra á Akureyri.
Fyrstu skóf lustunguna
Frú Heiðrún Steingrimsdöttir
form. Sjálfsbjargar flytur ávarp
við upphaf athafnarinnar. y
tók f jögurra ára gamall
drengur Elvar Thorar-
ensson, sem verið hefur
fatlaður frá fæðingu.
Nýja byggingin verður um 1700
ferm. að stærð, mjög fullkomin i
alla staði og búin öllu þvi
bezta, sem völ er á. Auk endur-
hæfingar og þjálfunarstöðvar, er
gert ráð fyrir leikfimissal, sund-
laug, verksmiöjuhúsnæði og fé-
lagsaðstöðu i þessari nýju bygg-
ingu. Einnig verður aðstaða fyrir
lækna og sérhæft starfsfólk.
Helztu nýjungar, sem fyrirhug-
aðar eru i nýju byggingunni, eru
að ætlað er i henni rúm og aöstaöa
tilýmissa fyrirbyggjandiaðgerða,
einkum i sambandi við atvinnu-
sjúkdóma. Verður það i þvi fólgið
aö teknir verða starfshópar til
meðferðar i hreyfileikfimi (sund
og böð) og einnig veröur þar önn-
ur sú meðferö, sem þörf er talin á.
1 tengslum við Endurhæfingar
stöðina er ætlað að koma upp
ibúðum fyrir fatlaöa, þar sem
jafnvel fólk, sem ekki er úr bæn-
um getur dvalizt á meðan það
nýt.ur meðferðar.
Til ráðstöfunar til fram-
kvæmda á þessu ári eru um 20
milljónir króna til byggingar
Endurhæfingarstöðvarinnar, en
siðar veröa árlegar fjárveitingar
til byggingarinnar.
Að sögn Heiðrúnar Steingrims-
dóttur form. fél. var mjög knýj-
andi að byrja á nýju húsnæði fyrir
starfsemi Sjálfsbjargar, sem nú
þegar hefur sprengt utan af sér
það húsnæði, sem félagið starfar
Siðan árið 1960 hefur starfsemi
félagsins farið fram að Bjargi við
Hvannavelli. Þá voru félagar i
Sjálfsbjörg um 70, en siðan hefur
þeim fjölgað jafnt og þétt, og eru
þeir nú um 240 talsins, auk um 200
styrktarmeðlima.
Endurhæfingarstöð hefur verið
starfrækt siðustu 5 árin og er að-
sókn orðin það mikil að ávallt eru
margir á biðlista Magnús Ólafs-
son sjúkraþjálfari hefur veitt
stöðinni forstööu frá upphafi.
Siðan árið 1969 hefur Sjálfsbjörg
starfrækt plastiðju aö Bjargi, þar
sem framleiddar hafa verið
margs konar vörur til raflagna
auk annars úr plasti. Eftirspurn
eftir plastvörum frá Bjargi er nú
miklu meiri en unnt er að anna,
en væntanlega stendur það allt til
bóta með tilkomu nýs og stærra
húsnæðis.
Viö athöfnina siðastliðinn laug-
ardag bárust Sjálfsbjörg margar
gjafir og heillaóskir, og m.a. af-
henti form. Berklavarnar á Akur-
eyri, Sigrún Bjarnadóttir félaginu
100 þús. kr. að gjöf.
1 stjórn Sjálfsbjargar eru:
Heiðrún Steingrimsdóttir form.
Haíliði Guömundsson, varaform.,
Helga Jónsdóttir ritari, Valdimar
Pétursson gjaldkeri og Elinóra
Rafnsdóttir vararitari. Aðalverk-
taki við byggingu nýju Endur-
hæfingarstöðvarinnar er Jón
Gislason byggingameistari
Akureyri. Teikningar gerði Jón
Geir Agústsson.
Stórvirk tæki hófu þegar störf við
framkvæmdirnar.
y Timamyndir Karl.