Tíminn - 26.08.1976, Page 8
8
TÍMINN
Fimmtudagur 26. ágúst 1976
Fimmtudagur 26. ágúst 1976
TÍMINN
Þótt flest ykkar hafi liklega
ekki lagt trtinað á sögurnar um
Gulliver og ferðir hans i Puta-
landi og talið þær uppspuna frá
rótum, er ekki aö efa að margir
hafa látið sig dreyma um að
komast i svipuö ævintýri og
imyndað sér að það, að vera hetja
meðal Putanna hlyti aö vera þaö
hæsta, sem maöur geti komizt á
llfsleiðinni. Það hlýtur að fá
mann til að kenna valds sins, að
ganga um á meöal hluta, sem eru
svo smáir, að ekki þarf nema rétt
að reka tána i þá til að þeir brotni
I spað — hvilikan usla gæti maöur
ekki gert, ef manni byði svo að
horfa.
t dag getur maður fundið Puta-
land viða um heim — mannfélög i
hnotskurn, stofnsett til að draga
að sivaxandi ferðamannastraum-
inn. Danmörk hefur sitt Lego-
land, og i Hollandi er Putabærinn
Madurodam. Þar er allt sem ein
mannvera getur hugsað sér að
leggja I rúst. En við það að standa
mitt I bænum er eins og öll
skemmdarfýsn, sem kynni að
vera fyrir hendi, gufi upp. í stað
þess stendur maður dolfallinn af
undrun yfir þvi hvernig heimur-
inn tekur sig út, séður svona að
ofan. Maður fyllist viröingu fyrir
krHunum, sem eru á ferli og eru
ekki hærri i loftinu en skóhælar
manns, og maður undrast hinar
griöarstóru byggingar og mann-
virki, er hefur verið komið fyrir
þarna i smækkaöri mynd. Maöur
hefur það á tilfinningunni, að
bærinn iði allur af llfi og fjöri.
Þrátt fyrir það veit maöur það
allan timann að fólkiö er bara
brúöur — að þaö séu bara leik-
fangabilar, sem þjóta fram og
aftur á hraðbrautunum — að flug-
vélarnar eru ekki annaö en plast-
hylki, sem knúin eru rafhlööum
og vasaljósaperum hefur verið
komið fyrir i. En það gagnar bara
ekki. Þetta er allt saman of yfir-
þyrmandi. Maður gleymir gjör-
samlega stund og stað og m.a.
þeir elztu meðal risanna, sem
þarna eru, standa og stara meö
tárin I augunum.
Madurodam liggur miösvæðis i
Haag á 18000 fermetra bilastæði.
Upphaflegahugmyndin á bak við
þorpið, var að reisa minnisvarða
um George Maduro, sem lézt i
Dachau, fangabúðum nasista árið
1945, aöeins tuttugu og tveggja
ára að aldri. Það voru foreldrar
hans, sem hófust handa viö bygg-
inguna, en þau fengu siðar ó-
vænta aöstoö frá mikilsmetnu
fólki f Haag, en án þeirrar hjálpar
væri þetta ekki orðiö eins um-
fangsmikið fyrirtæki i dag og
raun ber vitni. Sem dæmi má
nefna, að ár hvert útbýtir það
styrkjum til margra stofiiana og
einstaklinga um gjörvallt Hol-
.... •
’ét
.
StóSlBSfe
■mw%
i. 1 * • v: ^
Eitt stærsta hverfið I Madurodam er ollutankahöfnin, þar gefur að lita öll helztu oliuflutningaskip I heimi,
MADURODAM —
putabær Hollands
Samhliða þvi að þú fáir það á
tilfinninguna að þú sért Gulliver,
gefur göngutúr i gegnum
Madurodam þér einnig innsýn I
margt, sem teljast má einkenn-
andi fyrir Holland og ibúa þess.
Madurodam er sögð vera
nákvæm eftirliking af meöalstór-
um hollenzkum bæ og umhverfi
hans, I hlutföllunum 1:25.
Á kvöldin eftir aö sól er setzt,
biður eftirminnileg upplifun gesta
Madurodam. Um leið og öll ljós
bæjarins hafa veriö kveikt, breyt-
is hann i hránt ævintýraland, og
öllhin örsmáu leiftrandiljós 46000
að tölu, speglast i skinandi
skrauthliðum og sléttum sýkjum.
Hái útsýnistuminn sendir ljós-
geisla sina yfir fótleggi gestanna,
upplýstir sporvagnar þjóta út og
inn um göngin og meöfram stöðu-
vötnum. Ljósaauglýsingar á
blaðahöllinni birta nýjustu
fréttirnar af innlendum og er-
lendum vettvangi. Það er bók-
staflega ekkert sem vantar.
Það liggur gifurlega mikið aug-
lýsingagildi i þvi, að fá að byggja
sitt eigið hús I Putabæ. Þess
vegna sér maður þarna — útibú—
frá flestum stærstu fyrirtækjum i
heimi. Þau hafa hvert sitt auglýs-
ingaskilti eða byggingar. Þarna
eru öll oliufélögin og rafmagns-
fyrirtækin með höfuðstöðvar i
Hollandi. 011 alþjóða flugfélögin
eru þarna, já meira aö segja má
sjá Concorde á upplýstum flug-
vellinum. Ollum finnst þeir þurfa
að vera með og greiða fyrir lóð-
irnar, það sem upp er sett.
.
0*®
ÉWi
Borgarstjórinn i Madurodam er
Beatrix prinsessa. Einu sinni á
ári heldur hún hóf i hátiöasal
borgarinnar. Með henni eru i
borgarstjórn opinberlega kjörnir
nemendafulltrúar frá grunnskól-
unum i Haag, sem kosnir eru til
eins ár i senn.
Eins og svo margt annað hefur
Madurodam vaxið hinni upphaf-
legu hugmynd hátt yfir höfuð. En
svo fast stendur bærinn I hugum
Hollendinga, að hinn tiginborni
borgarstjóri hefur tekið hann meö
á lista yfir embættisskyldur
sinar. Hún hefur nú haft þetta
Svipmynd frá Madurodam, með
forvitnar mannverur i bakgrunn-
inn.
verkefni meö höndum i tuttugu og
fjögur ár, eða frá þvi hún áriö
1952 lýsti yfir stofnum Putarikis,
þá litil stúlka. Og hún á lika eitt
sinn að hafa sagt: „Hvaö gerir
það lika til þótt ég hafi engin völd
i Hollandi, þegar ég riki i
(Þýtt og endursagt JB)