Tíminn - 26.08.1976, Síða 15

Tíminn - 26.08.1976, Síða 15
Fimmtudagur 26. ágúst 1976 TÍMINN 15 Endurbætur á ákvæð- um um lífeyrissjóð bænda Forseti íslands hefur gefið Ut bráðabirgðalög um lífeyrissjóð bænda, og miða bráðabirgðalögin að þvi, að lifeyrisgreiðslur þessar verði betur verðtryggðar en hingað til. t fréttatilkynningu frá fjármálaráðuneytinu segir: „Fjármálaráðherra hefur tjáð mér að brýna nauðsyn beri til að setja lög um breytingu á lögum nr. 101 28. desember 1970 um lif- eyrissjóð bænda, sbr. lög nr 35/1972 og lög nr. 67/1974 um breytingu á þeim lögum. ísambandi við lausn kjaradeil- unnar i febrúarmánuði s.l. gerðu Alþýðusamband Islands, Vinnu- veitendasamband Islands og Vinnumálasamband samvinnufé- laganna með sér samkomulag um málefni lifeyrissjóða, þar sem m.a. var gert ráð fyrir, að lif- eyrissjóðir á samningssviði þessara samtaka veittu lifeyris- þegum sinum, sem rétt eiga skv. lögum nr 63/1971, serstaka uppbót árin 1976 og 1977 þannig að h'f- eyrisgreiðslur þessar verði betur verðtryggðar en hingað til. Með lögum nr. 33 20. mai 1976 um breytingu á lögum nr. 63/1971 var þessu áformi hrundið i fram- kvæmd. Jafnframt var gert ráð fyrir, að sambærilegar breyt- ingar vrðu gerðar á lögum um lif- eyrissjóð bænda. Ekki vannst þó timi til þess á s.l. þingi að bera fram sliktfrumvarp þótt ljós væri þörf slikrar breytingar þegar á þessu sumri, en hfeyrisfjárhæðir til aldraðra félaga i lifeyrissjóði bænda hafa ekki hækkað siðan á árinu 1974”. Skýringar þær, sem fylgja bráðabirgðalögunum, leiða bezt i ljós málavexti og breytingar þær, sem gerðar eru. Þær eru svolát- andi: „Við setningu laga um lifeyris- sjóð bænda árið 1970 var i veiga '‘miklum atriðum höfð hliðsjón af reglugerðarákvæðum hinna almennu lifeyrissjóða verkalýðs- félaga, sem tekið höfðu til starfa það ár. Jafnframt voru ákvæði II. kafla laganna um sérstök lif- eyrisréttindi til handa öldruðum bændum og mökum þeirra sniðin eftir ákvæðum laga um eftirlaun til aldraðra félaga i stéttarfé- lögum. Ságrundvallarmunur var þó á bótaákvæðum, að i reglu- gerðum hinna almennu lifeyris- sjóða verkalýðsfélaga var kveðið á um takmarkaða og skilorðs- bundna verðtryggingu hfeyris, og samkvæmt 8. grein laga nr. 63/1971 um eftirlaun til aldraðra félaga i stéttarfélögum hefur ráð- herra heimild til að ákveða ár- lega uppbætur á lifeyrisgreiðslur, en i lögum um lffeyrissjóð bænda eru engin ákvæði af þessu tagi. Þessi mismunur stafaði af þvi, að vegna mjög óhagstæðrar aldurs- skiptingar var fjárhagsgrund- völlur hfeyrissjóðs bænda talinn tiltölulega veikur og útgjöld vegna II. kafla voru hlutfallslega mikh. Þetta kemur m.a. fram i greinargerð nefndar þeirrar, er samdi upphaflegt lagafrumvarp, en hún taldi rétt, að möguleikar á verðtrygginguyrðu athugaðir við endurskoðun laganna siðar. Með lögum nr. 67/1974 voru lifeyris- fjárhæðir samkvæmt eldri úr- skurðum hækkaðar til samræmis við úrskurði ársins 1974, en engin ákvæði voru sett um áframhald- andi hækkanir. 1 sambandi við lausn kjaradeil- unnar i febrúarmánuði s.l. gerðu Alþýðusamband tslands, Vinnu- veitendasamband íslands og Vinnumálasamband samvinnufé- laganna með sér samkomulag um málefni lifeyrissjóða, þar sem m.a. er gert ráð fyrir, að lifeyris- sjóðir á samningssviði þessara samtaka veiti lifeyrisþegum sinum, sem rétt eiga samkvæmt lögum nr. 63/1971, sérstaka upp- bót árin 1076 og 1977, þannig að lifeyrisgreiðslur þessar verði betur verðtryggðar en hingað til. Þessu áformi var hrundið i fram- kvæmd með setningu laga nr.33 20. mai 1976. Höfuðatriði hinna nýju bráða- birgðalaga eru ákvæði um upp- bætur á lifeyri. í fyrsta lagi er sjóðstjórn veitt heimild til að verja hagnaði af verðtryggðum skuldabrefum til uppbóta á lif- eyr isgreiðslur samkvæmt I. kafla, en shk ákvæði eru nú i reglugerðum nokkurra lifeyris- sjóða. t öðru lagi er kveðið á um hækkun lifeyrisgreiðsina sam- kvæmt II. kafla til samræmis við það, sem tiðkazt hefur undanfarin ár um greiðslur samkvæmt lögum nr. 63/1971, sbr. áður- nefnda heimild i 8. gr. þeirra laga, er. útgjöld vegna þessara hækkana verða borin af rikissjóði og Stofnlánadeiid landbúnaðar- ins, svo sem gilt hefur um önnur útgjöld samkvæmt II. kafla til þessa. t þriðja lagi eru i bráða- birgðalögunum bráðabirgða- ákvæði um sérstaka uppbót á lif- eyrisgreiðslur 1976 og 1977, sem sjóðnum er ætlað að standa undir. Er hér um að ræða hækkun á greiðslum samkvæmt II. kafla, hliðstæða þeirri, sem kveðið er á um i áðurnefndu samkomulagi, A.S.t. og vinnuveitenda ásamt hækkun greiðslna til annarra lif- eyrisþega sjóðsins, þannigað þeir geti ekki talizt verr settir. Miðað við sömu hlutfallshækkun og kveðið er á um i samkomulaginu mundu útgjöld lifeyrissjóðs bænda verðamargfalt þung- bærarien þeirra sjóða, sem sam- komulagið nær til. Er þvi i bráða- birgðalögunum gert ráð fyrir nokkru minni hækkun til handa lifey risþegum lifeyrissjóðs bænda, en tekjur sjóðsins hins vegar auknar nokkuð til að mæta útgjaldaaukningunni að hluta. Engu að siður er gert ráð fyrir að ráðstafanir þessar verði mun kostnaðarsamari fyrir lifeyris- sjóð bænda en lifeyrissjóði verka- lýðsfélaga og fyrirtækja”. flokksstarfið Kjördæmisþing Austurlandi Kjördæmisþing Framsóknarmanna á Austurlandi verður haldið dagana 28. og 29. ágúst i Valhöll Eskifirði Þingið hefst laugardaginn 28. ágúst kl. 14. Auk hinna hefð- bundnu starfa þingsins verða orkumál Austurlands rædd. Fram- sögumenn og gestir þingsins verða Jakob Björnsson orkumála- stjóri og Erling Garðar Jónasson rafveitustjóri Austurlands. Héraðsmót ó Austurlandi Héraðsmót framsóknarmanna á Austurlandi verður haldið i Valhöll á Eskifirði, laugardaginn 28. ágúst, og hefst það kl. 21. Avörp flytja alþingismennirnir Tómas Arnason og Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra. Skemmtiatriði annast Baldur Brjánsson töframaður, sem sýnir listir sinar, og aust- firzkir skemmtikraftar syngja með gitarundirleik. Að lokum verður dansað. Ungt framsóknarfólk 16. þing SUF verður haldið að Laugarvatni dagana 27.-29. ágúst n.k. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna sem fyrst og til- kynnið þátttöku. Sætaferöir frá Rauðarárstig 18 kl. 17 föstudag. Stjórn SUF Orðsending til framsóknarmanna í Kjósarsýslu Framsóknarfélag Kjósarsýslu hefur nú náð hagstæðum samn- ingum við Samvinnuferðir, sem gefa félagsmönnum kost á ódýrum ferðum til Kanarieyja i vetur, en ferðirnar hefjast i október. Upplýsingar gefur Kristján B. Þórarinsson Arnartanga 42 Mosfellssveit simi 66406 á kvöldin. ísafjörður Framsóknarfélag Isfirðinga boðar til fundar á skrifstofu félags- ins Hafnarstræti 7, sunnudaginn 29. ágúst kl. 17. Fundarefni: Kosnir verða fulltrúar á Kjördæmisþing. Stjórnin. TRABANT UMBOÐIÐ INCVAR HELCASON Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 84510 og 8451 1 „Mér er mikið ánægjuefni að staðfesta að Trabant Station 1976 er ég keypti hefur kom- ið mér þægilega á óvart með hagkvæmni i rekstri. Billinn fer vel á vegi og er sérlega snarpur i akstri. Trabantinn fer meö benzln fyrir kr. 1.470 til 1.540 á 418 km vegalengd, sem ég ekoft, en þurfti áöur — meöan ég átti nýj- an lúxusbQ — aö greiða kr. 10.500 á sömu vegalengd. Aö lok- um: Stillingar og önnur þjónusta fyrirtækisins Ingvar Helga- sonh.f. hefur reynztmér bæöilipur og örugg. " Leifur Núpdal Karlsson Starhólma 2, Kópavogi (Y-1419). Vorum að fá sendingu af Trabant-bifreiðum Eitt mesta úrval borgarinnar af LEIKFÖNGUM Brúðuvagnar — Brúðukerrur — Brúðu- rúm yfir 20 tegundir — Póstsendum. Leikfangahúsið Skólavörðustíg 10, sími 14806

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.