Tíminn - 20.11.1976, Qupperneq 5
Laugardagur 20. nóvember 1976
5
Byggung í Reykjavík:
3ja herbergja íbúð kostar 3.361 þúsund
— sambærileg íbúð auglýst á tæpar 8 milljónir
gébé Rvik — Fyrstu Ibúbirnar hjá
Byggingasamvinnufélagi ungs
fólks, voru afhentar nýlega I fjöl-
býlishúsinu við Hagamel 51-53 i
Reykjavik. ibúöir þessar eru mun
ódýrari en aðrar sambærilegar
ibúöir sem auglýstar eru tii söiu
við Eiðsgranda i Reykjavlk.
íbúðunum er skilað tilbúnum
undir tréverk, með sameign aö
mestu frágenginni, en þær ibúðir
sem verðsamanburður er gerður
á, eru einnig tilbúnar undir tré-
verk en með sameign fullfrá-
genginni. Þriggja herbergja Ibúð,
72 fermetrar, hjá Byggingasam-
vinnufélaginu kostar 3.361 þús.
kr., en hjá hinum aðilanum 7.975
þús. kr., einnig 72 ferm. og er þvi
munurinn 4.614 þús. kr.i
Húsið að Hagamel 51-53 er ekki i
hinum hefðbundna stil fjölbýlis-
húsa, heldur samanstefnur þaö af
þrem átthyrningum, sem tengdir
eru saman. Allt húsið 6708
rúmmetrar, kostar tilbúiö undir
tréverk, meö sameign að mestu
frágenginni, 86.203 þús. kr., en
fullbúið ca. 125.000þús kr., sem er
14% undir byggingavisitölu, sem
kom útreiknuð af Hagstofu ts-
lands þann 1. september s.l.
1 húsinu eru 6 tveggja herb.
ibúðir, 6 70 ferm. ibúðir, 6 72
ferm. íbúðir og 6 81 ferm. ibúöir,
eða samtals 24 ibúðir. Kostnaður
viö fullnaðarfrágang á 3 herb.
ibúö er um 800-900 þús. krónur, en
það er sá kostnaður sem einn
ibúðareigenda hefur þurft við
fullnaðarfrágang á sinni ibúö.
Byggingameistari og verktaki
við byggingu fjölbýlishússins er
Gunnar M. Sigurösson, en tilboð
hans var þaö lægsta af fjórum
sem bárust. Sagöi hann m.a. i
viötali viö Timann, að sparnaöur
hefði t.d. verið gifurlegur i þvi að
nota stór krossviöarmót við
steypuna.
— Ég steypti burðarveggina
upp i krossviðarmótum, og
sparaði við það um 2-3 millj. kr.
heldur en að nota timbur, sem
mikill kostnaður er i að hreinsa.
Þetta eru stórar heilar plötur sem
notaðar voru, sagði Gunnar. Við
notuðum lika krossviðarmót I
loftin, sem gerir það að verkum
að ekkert þarf að múrhúða eða
pússa þau, aðeins litillega að
sparsla. Þá sagði Gunnar að raf-
lögnum hefði verið öðru visi hátt-
að en venjulega, t.d. hefði verk-
taki raflagna, Grétar Kristjáns-
son, komið raflagnadósum fyrir i
steypu i veggjum, i stað þess að
venjulega er fyrst komið fyrir
trékubbum, þar sem raflögin á að
koma og dósirnar siðan settar i
seinna. Þetta hefur sparað
mikinn kostnað, segir hann.
Byggingasamvinnufélag ungs
fólks var stofnað i ársbyrjun 1974
og voru stofnendur 158, en i dag
427 að tölu.
r
MIKLABR.
u 0 ]
1 HÖFÐA&AKK! 9
OPIÐ
HUS!
/ tilefni iðnkynningar er
verksmiðjan opin í dag
frá kl. 10-16.
Þar gefst almenningi kostur
á að skoða hin ýmsu
framleiðslustig við gerð
leirmuna.
GLIT
HÖFÐABAKKA9
SIMI85411
Byggung-húsið Hagamelur 51-53.