Tíminn - 20.11.1976, Síða 11

Tíminn - 20.11.1976, Síða 11
Laugardagur 20. nóvember 1976 11 sem fjallar um Kúbu. Ingi- björg Haraldsdóttir segir frá landiog þjóð. Flutt verð- ur kúbönsk tónlist o.fl. Lif og lögkl. 11.15: Guðmundur Jónsson les úr bók Sigrúnar Gisladóttur um Sigfús Einarsson og kynnir lög eft- ir hann. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 A seyði. Einar Orn Stefánsson stjórnar þættin- um. 15.00 i tónsmiöjunni. Atli Heimir Sveinsson sér um þáttinn (5.). 16.00 Fréttir 16.15 Veðurfregnir. islenzkt mál. Dr. Jakob Benedikts- son talar. 16.35 Frá Perú. Alda Snæhólm Einarsson flytur erindi (áð- ur útv. i febrúar i fyrra). 17.05 Staldrað við i Ólafsvik: — fyrsti þáttur. Jónas Jónasson litast um og spjallar við fólk. 18.00 islandsmótið í hand- knattleik: — fyrsta deild. Grótta—IR og FH—Haukar. Jón Asgeirsson lýsir. 18.25 Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 tlr atvinnulifinu.Viðtals- þáttur i umsjá Bergþórs Konráðssonar og Brynjólfs Bjarnasonar. 20.00 Úrdráttur úr óperunni: Madama Butterfly” eftir Giacomo Puccini. Flytjend- ur: Mirella Freni, Christa Ludwig, Luciano Pavarotti, Robert Kerns og Michel Sénéchal, kór óperunnar i Vinarborg og Filharmoniu- sveit Vinarborgar: Herbert von Karajan stjórnar. 21.00 Frá Grænlandi. Dag- skrárþáttur sem Guðmund- ur Þorsteinsson tekur sam- an og flytur ásamt fleirum. — Fyrri hluti. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög. 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. sjonvarp Laugardagui’ 20. nóvember 17.00 iþróltir Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.35 Haukur i liorni Breskur nyndaflokkur. 5. þáttur. Þýðandi Jón O. Edwald. 19.00 iþróttir lllc 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglvsingar og dagskrá 20.35 Maður til taks Breskur gamanmyndaflokkur. Gakktu i bæinn. Þýðandi Stefán Jökulsson. 21.00 Heimsókn Virkjunar- svæðið við Kröflu er sem stendur með allra sérstæð- ustu vinnustöðum hér á landi og þótt viðar væri leit- að. Sjónvarpsmenn heim- sóttu starfsmenn Kröflu- virkjunar dagana 13.-16. október, örskömmu eftir að nýi gufuhverinn myndaðist, skoðuðu virkjunarfram- kvæmdirog ræddu við fólk á staðnum. Kvikmyndun Baldur Hrafnkell Jónsson. Hljóðsetning Oddur Gústafsson. Klipping Isidór Hermannsson. Umsjónar- maður Magnús Bjarnfreðs- son. 21.45 Apaspil (Monkey Buis- ness) Bandarisk gaman- mynd frá árinu 1952. Leik- stjóri Howard Hawks. Aðal- hlutverk Cary Grant, Ging- er Rogers, Marilyn Monroe og Charles Coburn. Efna- fræöingurinn Barnaby Ful- ton uppgötvar yngingar- meðal' Hann gerir árangursrikar tilraunir á öpum, en siöan reynir hann lyfið á sjálfum sér. Þýðandi Jón O. Edwald. 23.20 Dagskrárlok Hinrik konung konur hans Eftir Paul Rival stjórn er alltaf vinsæl/ en til allrar ógæf u aldrei langlíf. Hinrik myndaði mislita ríkisstjórn, sem í voru bæði hermenn og kirkjunnar menn. Þessir stjórnarherrar komu sér saman um eitt mál, en það var að skipta með sér eignum hinna tveggja f jármálaráðherra, sem voru f allnir í ónáð, allir f engu sinn hlut, ekki sízt prestarnir og hinir lærðu. Guðrækinn ungur lögf ræðingur, var gerður af sýslumanni, nafn hans var Tómas More, hann var undir verndarvæng klerkastéttarinnar. Einn ágætur hirðprestur, Wolsey að nafni fékk i sinn hlut, stórglæsi- legt sveitasetur, sem annar hinna föllnu ráðgjafa hafði átt. Wolsey var upprennnandi stjarna, sem hafði verið á uppleið í nokkur ár. Hinir gagnlegu vinir, Compton og Brandon fengu vel- launuðog ábatasöm embætti, sem kröfðust ekki of mik- illar vinnu. Herforingjarnif heimtuðu stríð, þeir voru orðnir þreyttir á f riði, þeir voru ólmir í herferðir og rán. Fremstur í þeirra f lokki var gamli Howard, faðir Elísa- betar Boleyn. Hann átti marga sini, sem voru orðnir geð- stirðir af aðgerðarleysi og þyrsti í manndráp. Howardarnir bæði f aðir og synirnir, reiddu sig á Elísa- betu sína, hún varð þeim þó að litlu liði, þar sem Hinrik var að missa áhugann fyrir henni. Þar sem hann var nú orðinn konungur, fannst honum það skylda sín að verða hreinlífari og snúa sér að þýðingarmeiri málefnum. Hann var í sorg og varð að vera án hinna venjulegu skemmtana sinna. Hann var einangraður og jarðneskar leyfar föður hans voru enn á næstu grösum, því enginn hafði enn f lutt þær til hinztu hvilu. Hinrik var því undir stöðugum áhrifum sálmasöngs og sálumessa. Hugur hans dvaldi við dyggðir og skyldur einvaldans. Hinrik fannst léttlyndur konungurslæmtfordæmi, hann vissi að það yrði honum ávinningur að láta Elísabetu fara, og jaf nvel hin hugvitsamasta kona endar með því að endur- taka sjálfa sig, Hinrik hafði líka fengið áhuga fyrir annarri ástkonu. Lönd, sem liggja handan hafsins eru konungum ávallt nytsöm sem dvalarstaður fyrir nærgöngult fólk, sem slikir herrar vilja þó sýna nokkurn sóma. England hafði tapað öllum erlendum yfirráðasvæðum nema Calais, í þeirri borg fékk Boleyn virðingarstöðu og konu hans var sagt að yfirgefa konung. En ungur maður, sem er ekki lengur hreinlifur getur ekki endurheimt sakleysi sitt, Guð krefst þess heldur ekki af honum, heldur hins að hann löggildi háttalag sitt, til þess var hjónabandið f undið upp. Því ákvað Hinrik að kvænast, sú ákvörðun hans f ékk einróma viðurkenningu, þar sem krúnan þurfti að eignast erfingja. Festar Hinrik þurfti ekki að kvænast Katrínu, þegar hann var tólf ára og þau trúlofuðust, þá var það aðeins innantóm athöfn, sem hann hafði svo ógilt tveim árum seinna. Það var ekkert auðveldara en að senda Katrínu aftur til Ferdinands en þá þurfti líka að skila heimanmundi henn ar. En hvar var aðra brúði að f á? Það var aðeins hægt að fá franskar konur og þær vildi enginn, trúað fólk taldi þær of léttúðugar og ævintýramennirnir vildu vera á- fram í bandalagi við Ferdinand en fara með ófriði á hendur Frökkum. Lávarðarnir voru þvi með Katrínu og biskuparnir voru hrifnir af trúrækni hennar, hinni hálf- heilöguömmu Hinriks fannst Katrín reglulegt óskabarn og það, sem þyngst var á metaskálunum, Hinrik sjálf um fannst hún aðlaðandi, hann bar virðingu fyrir dyggð og frá því hann var barn, hafði Katrin verið honum tákn hreinleikans og því hinn f ullkomni maki. Þegar hann sá hana fyrst, þá tíu ára gamall, hafði hann í fyrsta sinn fundið að hann sjálf ur var karlmaður, f rá þeirri stundu hafði hann hætt að sýna systrum sínum yfirgang. Hann hafði skynjað innra með sér kvenlega dulúð Katrínar og hrifizt af hinni ókunnu stúlku. Hann hafði hatað bróður sinn fyrir aðtaka hana f rá sér, og fyrsteftir að þau gift- ust og hann hlýddi á klúrar athugasemdir þjónanna, henni til smánar, þá varð það aðeins til að glæða ímynd- unarafl hans og auka á þann hlýhug sem hann bar til hennar, seinna leit hann dálítið niður á hana fyrir hve illa búin hún var, f yrir ekkjustand hennar og jaf nvel fyr- ir trúræknina, en hann hætti aldrei að virða hana. Það var mynd Katrínar, sem sveif fyrir augum hans þegar hann sat yfir tónsmiðum sínum, aðrar konur voru vafa- laust henni fremri að fríðleika. Elisabet var fjörmeiri, en Katrín hreyf hann með þögn sinni. Hinrik hafði verið mikið einn síðan faðir hans dó, hann hafði hugsað um dauðann, hann hafði hlýtt á söng prestanna og organ- hljómana, hann hafði grátið og hugsað um eilífa lif ið og allt þetta hafði beint huga hans aftur að hinni vanræktu prinsessu. Hann þráði nú að tilbiðja hana og ef til vill líka ða beita hana ofbeldi, að krjúpa við fæt- ur henni og einnig að gera henni miska. Katrín var nú tuttugu og f jögurra ára en Hinrik átján, honum fannst hann smádrengur samanborið við hana, hann langaði til að sýna henni manndóm sinn, hann elskaði hana. Gamli konungurinn var grafinn hinn níunda mái. Lík hans var borið frá Richmondtil Westminster, líkfylgdin var glæsileg, leiðin lá um sveitir og borgir. Mannf jöldinn hreifst af brennandi blysunum í sólskininu og af fugla- söngnum sem rann saman við sálmasönginn, þetta var forvitnileg samstilling vors og dauða. Hinrik vakti hrif n- ingu f jöldans, hann var hávaxinn, rjóður í vöngum og rauðjarpur á hár. Hann var ef til vill of sterklegur til að vera goðá stalli, en allavega augnayndi kvenna. Gamlar konur sögðu hann líkjast afa hans, Játvarði IV, en þann konung hafði engin ensk kona staðizt. Þessa nótt dreymdi marga konuna ástardrauma, er þær voru gengnar til hvílu, heima hjá sér í London, og margur eig- inmaður undraðist atlot kvenna sinna. Katrin var alsæl. Guð hafði bænheyrt hana, hún var búin að bíða í sex ár hún hafði oft verið miður sín af þrá. Hún staðhæfði að hún væri enn ósnortin mey, atlot Arth- urs höfðu aðeins megnað að vekja hana, en sextán ára stúlka, er ekki langt frá að verða fulltíða kona, eftir að hafa verið gift í f imm mánuði og hversu barnalegt, sem hjónabandið er , skilur það þó alltaf eitthvað eftir. Ætt- menn Katrínar voru ástríðuheitir. Jón bróðir hennar hafði dáið vegna ástríðuofsa og Jóhanna systir hennar hafði misst vitið vegna þess að hún hafði ekki taumhald á ofsa sínum. Isabella móðir hennar hafði elskað Ferd- inand til hinztu stundar og Ferdinand sjálfur var nú að telja út í örmum ungrar franskrar konu. Katrín var lík ættingjum sínum, hún hafði vaxið úr grasi í Toledo og Sevilla, hún hafði verið í Alhambra og hlýtt á tónlist Máranna. Hún hafði valið sér granadaeplið að einkunn- artákni, þennan sætbeiska blóðlita ávöxt, sem var svo táknrænn fyrir lífið sjálft. Ást hennar til Hinriks var óttablandin þrá, nokkurs konar ófullnægð móðurtilfinn- ing. Litli tólf ára gamli drengurinn, sem lét trúlofunar- hringinn á fingur henni hafði snert hjarta hennar, hún hafði þá þegar átt sínar vonir um að verða móðir, hún hafðikomiztviðaf sakleysi hans, hana hafði langaðtil að móta skapgerð hans, en hann hafði verið tekinn frá henni og neyddur til að ógilda trúlofun þeirra. Hún sá hina guðlausu hirðmenn tæla hann til syndalifernis,

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.