Tíminn - 24.11.1976, Page 7

Tíminn - 24.11.1976, Page 7
Miðvikudagur 24. nóvember 1976 7 Samvinnumenn hafa haft algera forystu um nýtingu innlendra hróefna til iðnaðarframleiðslu Kaupfélagsstjórafundur, haldinn i Reykjavik 19. og 20 nóvember, samþykkti svohljóð- andi ályktun: „Fundur nær allra kaup- félagsstjóra landsins, haldinn i Reykjavik dagana 19. og 20. nóvember 1976, lýsir undrun sinni yfir þeim ómaklegu árásum, sem samvinnuhreyf- ingin hefur að undanförnu orðið fyrir i nokkrum dagblaðanna. Af þessu tilefni leyfir fundurinn sér að minna á eftirfarandi: 1. Kaupfélögin og Sambandið eru eign 40 þúsund samvinnu- manna i landinu og þjóna eng- um hagsmunum öðrum en hags- munum almennings og þar með þjóðarinnar allrar. 2. Samvinnuhreyfingin hefur jafnan stutt að byggðaþróun og byggðajafnvægi og hefur þvi lagt sérstaka áherzlu á þjónustu við landsbyggðina og atvinnu- uppbyggingu viðs vegar um landið, jafnt á sviði verzlunar, iðnaðar,landbúnaðar og sjávar- útvegs. Nýjustu dæmin um iðn- aðaruppbyggingu samvinnu- manna er að finna á Akureyri i stækkun Gefjunar, á Egils- stöðum i Prjónastofunni Dyngju og á Sauðárkróki, en þangað flutti Sambandið nýlega eina af framleiðslugreinum Gefjunar. 3. Ein sterkasta félagsmanna- heildin innan samvinnuhreyf- ingarinnar er bændastéttin. Það hlýtur þvi að teljast eðlilegt, að samvinnusamtökin hafi fest mikið fjármagn i vinnslustöðv- um landbúnaðarins og I iðn- fyrirtækjum, sem vinna úr hrá- efnum frá landbúnaði. A sama hátt hlýtur það að vera fullkom- lega eðlilegt, að iðnfyrirtæki samvinnufélaganna fái til frekari vinnslu þau hráefni, sem til falla i sláturhúsum og öðrum vinnslustöðvum félaganna, enda leitast þessi iðnfyrirtæki við að fullvinna hráefnin sem mest i landinu, þannig að starf- semin skapi sem mesta atvinnu og sem mestar gjaldeyris- tekjur. 4. Með stefnu sinni um upp- byggingu vinnslustöðva og iðn- fyrirtækja hafa samvinnumenn haft algera forystu um nýtingu innlendra hráefna i landinu sjálfu til framleiðslu iðnvarn- ings fyrir innanlandsmarkað og til útflutnings. Iðnfyrirtæki samvinnumanna eru óumdeilanlegir brautryðj- endur i útflutningi á iðnvarningi úr hráefnum landbúnaðarins, enda er hlutdeild þeirra i þessum útflutningi mjög stór. 5. Samvinnumenn telja rétt að brýna fyrir fólki að gjalda var- hug við þeim taumlausa áróðri, sem um þessar mundir er rek- inn gegn einum höfuðatvinnu- vegi þjóðarinnar, landbúnað- inum. Landbúnað þjóðarinnar ber vissulega að rökræða sem hvern annan af atvinnuvegun- um, en augljóst hlýtur að vera sanngjörnum gagnrýnendum, að vandamál landbúnaðarins i dag stafa fyrst og fremst af þeirri óðaverðbólgu, sem tröll- riðið hefur islenzku efnahagslifi á undanförnum árum. Jafn- framt hefur mat manna á gildi einstakra atvinnuvega ruglazt um sinn vegna þeirrar nýorðnu þróunar erlendis, að sjávaraf- urðir hafa stórhækkað i verði á sama tima og niðurgreiðslur á landbúnaðarafurðum hafa verið auknar i ýmsum þeirra landa, sem tslendingar selja land- búnaðarafurðir til. Hitt ber jafnframtað hafa i huga, að þótt sölu- og vinnslukostnaður land- búnaðarvara hafi vissulega hækkað mikið hér á landi af völdum verðbólgunnar, er milli- liðakostnaður á þessum vörum hérlendis með þvi lægsta sem þekkist á Vesturlöndum. Við umræðu um málefni landbúnað- arins ber að minna sérstaklega á, að hráefni frá honum eru nú orðin undirstöðuþáttur i út- flutningsiðnaði landsmanna. Þúsundir heimila eiga allt sitt undir þvi að hann megi eflast og dafna. 6. Fundurinn visar algerlega á bug þeim órökstudda ein- okunaráróðri, sem einstök dag- blaðanna hafa rekið gegn sam- vinnusamtökunum. Það er vafalaust engin tilviljun, að áróðri sem þessum er beint gegn hreyfingunni einmitt nú, þegar hún er i sterkri sókn i at- vinnuuppbyggingu sinni viðs- vegar um landið. Slikar áróðursherferðir gegn sam- vinnuhreyfingunni eru þekktar i sögunni, þegar sérhagsmunaað- ilar hafa óttazt að hreyfingin kynni að draga spón úr aski þeirra. Samvinnuhreyfingin mun láta órökstuddar árásir sem vind um eyrun þjóta, en er ávallt reiðubúin að taka við rök- studdriog sanngjarnri gagnrýni og til þess að gefa sem ýtarleg- astar upplýsingar um málefni sin. Kaupfélagsstjórafundurinn hvetur þvi til málefnalegrar umræðu um stefnu og störf samvinnuhreyfingarinnar”. MILLI 110 OG 120 NEMENDUR VIÐ KVÖLDSKÓLANN Á ÍSAFIRÐI LátíÖ rafmagns- AÐVENTULJÓS lýsa upp Frá starfi Kvöldskólans á tsafirði. KVÖLDSKÖLINN á Isafirði — fræðsla fullorðinna — er nú orð- inn fastur liður i vetrarstarfi Is- firðinga. Sú breyting varð á starfsemi skólans nú i haust, að fræðsluráð tsafjarðar tók við stjórn og rekstri skólans, en honum var komið á fót haustiö 1974 fyrir tilstilli nokkurra menntaskólakennara og hvildi þungi starfsins að mestu á hérðum Bryndisar Schram. Forstöðumaður Kvöldskólans er nú Lára G. Oddsdóttir. Starfsemin nú i haust hófst 4. október og er með liku sniði og undanfarna vetur. Kennt er i bókfærslu, dönsku, ensku (3 flokkar), frönsku, spænsku, stærðfræði (námsefni grunn- skóla), vélritun, þýzku og is- lenzku fyrir útlendinga. I fram- angreinda flokka eru innritaðir milli 110 og 120 nemendur. Kennarar Kvöldskólans eru 10 og láta þeir mjög vel af náms- gleði nemenda, sem eru á aldr- inum 15-68 ára, segir i frétt frá skólanum. Kennsla fer fram i Gagnfræðaskólanum á mánu- dags-, þriðjudags- og miðviku- dagskvöldum frá kl. 19:30 til 22:30. I undirbúningi eru námskeið i meðferð og viðhaldi bifreiöa, ljósmyndun/ framköllun, al- mennum smiðum, myndlist, fundarstjórn/ fundarsköpum, siglingafræði, er veiti réttindi til stjórnar fiskiskipum allt að 30 lestir o.fl. Kanaríeyjar Þeir, sem ferðasttil Kanaríeyja at- hugi, að verzlunin Kanta s.l. er ein vinsælasta verzlunin, sem íslend- ingar eiga viðskipti við i Kaspah verzlunarhverfinu á Playa del Ingles. Verzlunin selur m.a.: Or, klukkur, vasatölvur, Ijós- myndavélar, linsur, sýningarvélar, rafmagnsf löss, filmur, kasettur, kveikjara, ilmvötn, minjagripi, stereosett, segulbönd, kasettutæki í bíla með útvarpi, talstöðvar í bíla, labb-rabb tæki, sjónvarpstæki lita- og svart/hvít. Ábyrgð veitt á seldri vöru. Leggjum mikla áherzlu á lipra og góða þjónustu. Lægra verð fyrir Islendinga. Verið velkomin! heimíliö í skammdeginu. / C/tutnm S$>%eiióóan h.f. KANTA S. L. Nónari upplýsingar: KASPAH 34 Pósthólf 273 PLAYA DEL INGLES Reykjavík Akureyri og umboósmenn Vestmannaeyjum

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.