Tíminn - 25.11.1976, Page 7
lA'A'A ;iK i1
Fimmtudagur 25. nóvember 1976
Frá fundi sambandsstjórnar Landssambands iðnaðarmanna.
VILJA MIKLAR BÆTUR í
LÁNAMÁLUM IÐNAÐARINS
eitt mikilvægasta hagsmunamdl Landssambands
iðnaðarmanna
gébé Rvik. — Nýlega hélt sam-
bandsstjórn Landssambands
iðnaðarmanna fund sinn á Akur-
eyri og sátu hann fulltrúar viðs
vegar að af landinu. Sú venja
hcfur komizt á að halda annan
hvorn sa mbandss t jórn arf und
utan Reykjavikur, og að þessu
sinni varð Akureyri fyrir valinu.
Aðalumræðuefni fundarins voru
iðnlöggjöfin, lánamál fðnaðarins
og iðnfræðslumál in. Forseti
landssambandsins, Sigurður
Kristinsson, gerði grein fyrir
þeim málefnum, sem efst eru á
baugi i iðnaðinum i dag, og Þór-
leifur Jónsson, framkvæmda-
stjóri sambandsins, skýrði frá
þeim verkefnum, sem nú er unnið
að á vegum iandssambandsins
ýmist i samvinnu við aðra eða á
eigin vegum.
Miklar umræður urðu um lána-
mál iðnaðarins i heild og lögð
áherzla á, aö úrbætur i þeim
efnum væri eitt mikilvægasta
hagsmunamál landssambands-
ins. Auk eflingar sjóðanna var
talið nauðsynlegt, að starfssvið
þeirra væri aukið. Fram kom, að
Iðnlánasjóður, sem er helzti lána-
sjóður aðila innan lands-
sambandsins, hefur til ráðstöf-
unar705 millj. kr. á árinu 1976, en
áætlað er, að heildarfjárhæð láns-
umsókna til sjóðsins muni nema
um 2800 millj. kr. A næsta ári má
búast viö, að umsóknir nemi um
3200-3500 millj. kr., en til ráðstöf-
unar verði um 800 millj. kr. fyrir
utan lántökur sjóðsins.
Verkalýðsfélög Borgarness d móti drögum að
vinnulöggjöf
A FUNDI Verkalýðsfélags
Borgarness var samþykkt and-
staða við meginatriði draga til
nýrrar vinnulöggjafar, og skoraöi
fundurinn á rikisstjórnina að
leggja slikt frumvarp ekki fyrir
Alþingi.
Þá var samþykkt á fundinum á-
skorun til Hótel Borgarness h.f.
að leyfa ekki aðgang að vinbar
öðrum en föstum dvalargestum
og gestum á lokuðum samkom-
um.
A sama fundi var samþykkt á-
lyktun um kjaramál, þar sem
m.a. er harðlega mótmælt árás-
um rikisvaldsins á lifskjör laun-
þega i landinu og skorað á verka-
fólk að risa upp og hefja kröftug
mótmæli.
7
Seljum í dag
1976 Chevrolet Blazer Cheyenne 6 cyl. beinskiptur.
1976 Chevrolet Pick Up með framdrifi
19 76 Volvo 244 DeLuxe
1975 UAZ 452 Rússa jeppi
1 9 74 Ford Bronco al sport V8 beinskiptur vökvastýri (skulda-
bréf)
1 974 Vauxhall Víva DeLuxe
1 974 Scout 2 V8 sjálfskiptur með vökvastýri
1974 Saab 99 4ra dyra
1 974 Chevrolet Blazer Cheyenne
1 9 74 Plymouth Valiant sjálfskiptur með vökvastýri
1 9 74 Chevrolet Nova sjálfskiptur með vökvastýri
1 974 Ford Bronco 6. cyl. beinskiptur
1974 Citroén GS 1 220 Club
1973 Chevrolet Blazer Custom V8 sjálfskiptur með vökva-
stýri
1973 Chevrolet Nova
1 973 Scout 2 V8 6 cyl. beinskiptur vökvastýri
1973 Chevrolet Blazer beinskiptur (vökvastýri með stálhúsi)
1973 Peugeot 404
1973 Pontiac Grand Am með öllu
19 72 Chevrolet Cevelle sjálfskiptur með vökvastýri
1972 Vauxhall Victor sjálfskiptur
1971 Chevrolet Malibu
1970 Vauxhall Viva Deluxe
1972 Volkswayen 1 300
1970 Saab 96
1969 Vauxhall Victor
1967 Ford Bronco
1974 Ford Mustang
Véladeild
ÁRMÚLA 3 • SÍMI 38900
Bílasalar lýsa furðu
á FIB
TIMANUM hefur borizt eftirfar-
andi yfirlýsing, sem undirrituð er
af forsvarsmönnum nlu bilasala 1
Reykjavik:
Við lýsum stuðningi okkar við
starfsmenn Bifreiðaeftirlits rikis-
ins I baráttu sinni um bætta
starfsaðstöðu og breytingar á
skráningu bifreiða. Einnig viljum
við lýsa furðu okkar á FIB fyrir
afstöðu slna við tillögur dóms-
málaráðherra um breytingar á
umferðarlögum. Fróðlegt væri að
vita, hve margir félagsmenn
innán FIB styddu fréttatilkynn-
ingu þá, sem FIB hefur gefið út
eftir landsþing sln slðastliðin tvö
ár. Með þeirri afstöðu, sem
fréttatilkynningin felur I sér, telj-
um við, að félagiö sé aö vinna á
móti hagsmunum hins almenna
bifreiðaeigenda. Við álitum okkur
þekkja vel þá fyrirhöfn og þau
vandamál, sem upp koma vegna
núverandi fyrirkomulags á um-
skráningum bifreiða og erum
sannfærðir um, að breytingar þar
að lútandi yrðu til mikils hagræð-
is og sparnaðar.
AFHENTI
TRÚNAÐARBREF
HINN 20. nóvember 1976 afhenti
Pétur Thorsteinsson Fakhruddin
Ali Ahmad, forseta Indlands,
trúnaðarbréf sitt sem sendiherra
íslands i Indlandi.
Utanrikisráðuneytiö,
Reykjavik, 22. nóvember 1976.
VTO FLYTJ
ámorguní
húsnæði\ið
Strandgötuna
Önnumst alla almenna bankaþjónustu.
Höfum tryggingaumboó fyrir
Samvinnutryggingar g.t. og
Líftryggingafélagið Andvöku.
Opið alla daga kl. 9.30—12.30 og
13.00—16.00 nema laugardaga.
Ennfremur á föstudögum kl.17.30—18.30
Nýtt símanúmer:
5-39-33
Samvinnubankinn
STRANDGÖTU 33, HAFNARFIRÐI SÍMI 53933
Auglýsingadeildin