Tíminn - 25.11.1976, Blaðsíða 16
16
Fimmtudagur 25. nóvember 1976
G.B. Akranesi. Verzlunarfyrirtækiö Bjarg hf. hefur opnaö verzlanir á
tveimur hæöum f húsi sinu aö Skólabraut 21 eftir gagngerar endurbæt-
ur á húsnæöinu.
Á efri hæöinni eru húsgögn og herrafatnaöur, en úrvörp og hljómflutn-
ingstæki á þeirri neöri.
Verzlunarstjóri er einn eigendanua, örlygur Stefánsson.
Reynir Adólfsson, umdæmisstjóri:
Flugfélagið hafði
engin óhrif á ferðir
„skæruliðabílsins"
I tilefni lesendabréfs, sem
birtist i Timanum hinn 17. nóv.
sl., þar sem Kristinn Snæland
fer hörðum orðum um þjónustu
Flugfélags Islands við ön-
firðinga, þykir mér réttað eftir-
farandi atriði komi fram, stað-
reyndir sem Kristinn Snæland
sveitarstjóri á að vita um, eða i
það minnsta gat veitt sér upp-
lýsingar um, áður en hann skrif-
aði bréf sitt.
Bifreið sú, sem Kristinn nefn-
ir „SKÆRULIÐABÍL” Flug-
félagsins, er sérleyfisbifreið,
sem hefur undanfarin 11 ár ver-
ið i ferðum á leiðinni Þingeyri-
Flateyri-lsafjörður á vegum
umferðardeildar Pösts og sima,
til að annast póstflutninga milli
þessara staða innbyrðis og við
Reykjavik.
Flugfélagi Islands þótti sjálf-
sagt að nýta þessar ferðir til
þjónustu við Flateyringa og fór
þvi inn á þá braut að semja við
viðkomandi sérleyfishafa um
vöru- og farþegaflutninga milli
Flateyrar og Isafjarðarflug-
vallar, og heíur það samstarf
verið á hverju sumri s.l. 11 ár.
Þegar svo Vængir h/f hdfu
reglubundið áætlunarflug til
Flateyrar, þótti ekki ástæða til
annars en að fækka þessum
ferðum, og var þá gert sam-
komulag við sérleyfishafa um
flutningá vörum á þeim dögum,
sem leiðabók sérleyfishafa seg-
ir til um. En vöruflutningar til
Flateyrar hafa alltaf verið tölu-
verðir um ísafjarðarflugvöll.
Flugfélag Islands tók þá
ákvörðun sl. vor að hætta þessu
samstarfi nú i sumar, ef Flat-
eyringar óskuðu ekki eftir þess-
um ferðum.
Það var svo i vor, um það
leyti, sem heiðar urðu akfærar,
að Vængir h/f hættu flugrekstri,
og var þá i samráði við Kristin
Snæland, og að hans ósk, ákveð-
ið að Flugfélagið gerði sam-
komulag við sérleyfishafa um
flutning á farþegum og vörum
þrisvar i viku, þ.e.a.s. bætti
einni ferð við auglýstar sér-
leyfisferðir, en jafnframt var
ákveðið, að sú ferð skyldi falla
niður strax og Vængir h/f hæfu
flug að nýju.
Þetta var gert, en Flugfélag
tslands hélt áfram samkomu-
lagi við sérleyfishafa um flutn-
ing á vörum i auglýstum sér-
leyfisferðum, eða til 1. oktöber
s.l.
Síðan þessar ferðir hættu, hef-
ur afgreiðsla Flugfélags íslands
á Isafirði notað eigin bifreið til
að flytja vörur til Flateyringa,
og ekki hefur verið óskað eftir
þvi af hálfu Flateyringa að
hefja reglubundnar ferðir að
nýju, fyrir farþega nú, eftir að
Vængir hættu flugi.
Af þessu ætti öllum að vera
ljóst, að Flugfélag íslands hafði
ekki að neinu leyti áhrif á það,
hvaða daga ferðir þessar
voru farnar, né heldur var
ætlunin að hefja samkeppni við
Vængi, heldur fyrst og fremst að
koma vörum til Flateyrar
reglulega og nýta til þess þær
samgöngur, sem 'fyrir hendi
voru.
Isafirði, 19. nóvember 1976
f .h. Flugfélags Islands
Reynir Adólfsson
Umdæmisstjóri
I
L
Sólaðir
Nýir
amerískir
IERK
Sendum
í póstkröfu
um land allt
snjó-hjólbarðar
flestum stærðum
MJOG
HAGSTÆTT VERO
ATLAS
snjó-hjólbarðar
með
hvítum hring
GOTT VERÐ
SÓlslíStQF HE
Smiðjuvegi 32-34
Símar 4-39-88 & 4-48-80
Hornstrend-
ingabók í
nýrri útgáfu
gébé Rvik — Bókaútgáfan örn
og örlygur hefur sent frá sér
nýja útgáfu af Hornstrendinga-
bók Þérleifs Bjarnasonar fyrr-
um námsstjóra, en hún kom
fyrst út árið 1943 á vegum
Þorsteins M. Jónssonar á Akur-
eyri og vakti þegar mikla at-
hygli. Þessi útgáfa er endur-
skoðuð og aukin frá hendi höf-
undar, og er hún prýdd mörgum
myndum, gömlum og nýjum.
Hornstrendingabók er i þrem
bindum, sem nefnast: Land og
lif . Baráttan við björgin og
Dimma og dulmögn.
1 Hornstrendingabók greinir
frá byggðarlögum og náttúru
Hornstranda og mannlifi þar
um slóðir um langan aldur,
harðri lifsbaráttu fólksins í
þessum afskekkta og hrjdstruga
landshluta, en jafnframt sér-
stæðri menningu þess og ein-
kennilegum háttum. Drjúgur
hluti bókarinnar er sagnaþættir
og þjóðsögur af Hornströndum,
og tekst höfundi að bregða
sterku ljósi á liðnar aldir.
Bókin er filmusett i Prent-
stofu G. Benediktssonar og
prentuö hjá Offsetmyndum h.f.
A kassanum, sem geymir öll
bindin þrjú, er mynd af Horn-
bjargi, sem Hjálmar R. Báröar-
son tók.
íslendingur
forseti Evrópu-
stjórnar Kiwanis
Bjarni B. Asgeirsson, skrif-
stofustjóri hefur verið kjörinn
forseti Evrópustjórnar Kiwanis-
hreyfingarinnar og tók viö
störfum 1. okt. s.l.
Bjarni er annar Islendingurinn,
sem kjörinn er til þessa starfs.
Páll H.Pálsson forstjóri gegndi
þessu starfi fyrir nokkrum árum.
Einnig tók við störfum sem
umdæmisstjóri fyrir tsland 1. okt.
s.l. Bjarni Magnússon banka-
stjóri.
Frá byggingahappdrætti
Nárrúrulækningafélags
íslands
Vinsamlegast gerið skil á heimsendum
happdrættismiðum.
Miðasala er i bilnum i Austurstræti. Dreg-
ið verður l.desember.
Stjórn N.L.F.í.