Tíminn - 21.12.1976, Qupperneq 19
Þriðjudagur 21. desember 1976
19
r ^
Hreinn
setti met
— kastaði kúlunni vel
yfir 19 m
Slrandamaöui inn sterki — llreinn lialldórsson, setti
glæsilegt mel i súluvarpi innanhuss um helgina, þeg-
ar hann kastaði kúlunni \fel yfir 19 metra — 19.16.
Hreinn, sem er nu korninn i mjög góða ælingu, átti
fyrra metið — 1H.9S. Metkast Hreins er örugglega
sma forleikur aö þvi sem koma skal —ef hann heldur
álram a þessari braut i vetur, má húast \ ið miklu al'
þessum sterka kúluvarpara na'sta sumar.
L___________________________A
„Mikil vinna
framundan...
— hjd strdkunum", sagði
Januz Cerwinsky
— Höfuðverkurinn hjá okkur er varnarleikurinn —og
hann verður að lagfæra, sagði Januz Cerwinsky
landsiiðsþjálfari eftir leikinn gegn Dönum á sunnu-
daginn f Laugardalshöllinni. Januz sagði, aö lands-
liðsstrákarnir þyrftu að leggja mikið á sig á næstunni
— æfingar yrðu auknar og varnarleikurinn tekinn í
gegn og lagfærður.
Januc sagði, að hann væri að vissu leyti ánægöur
tneð sóknina. — Það vantar þó meiri „keyrslur” í
sóknarleikinn, og strákarnir þurfa að láta knöttinn
ganga hraðar, sagöi Januz.
Stórsigur
Dankersen
Liðið mætir 1. maí í
Evrópukeppni bikarhafa
AXEL Axelsson, ólafur H. Jónsson og félagar þeirra
i Dankersen skutust upp í efsta sæti, þegar þeir unnu
stórsigur (22:14) yfir Rheinhausen sem áður var efst
Axel og ólafur skoruðu 2 mörk hvor í ieiknum sem
var vel ieikinn af Dankersen-liðinu.
Dankersen drógust gegn 1. ntaí frá Moskvu i
Evrópukeppni bikarhafa unt helgina.
Punktar
Ólafur gefur á Björgvin
Hólmbert
þjálfar
Keflavík
— og Theódór tekur við
Þróttarliðinu
HÓLMBERT Friðjónsson hefur
verið róðinn þjólfari Keflavfkur-
liösins Iknattspyrnu. Hólmbert er
ekki ókunnugur f herbúöum Kefl-
vfkinga — hann var sóknarleik-
maður f hinu harbsnúna Keflavik-
ur-liði sem tryggöi sér Islands-
meistaratitiiinn 1964 og skoraði 12
1. deildarmörk á keppnisferli sfn-
um. Þá var Hólmbert þjálfari
Keflavlkuriiösins, þegar það varö
lslandsmeistari 1969.
Hólmbert hefur þjálfað 2. deiid-
arlið Ármanns undanfarin ár með
góðum árangri.
Theódór Guömundsson var um
helgina ráðinn þjálfari 2. deildar-
liðs Þróttar. Theódór hefur þjálf-
að Fylki og unglingalandsliðið
undanfarin ár. Theódór hefur
ráðið sér aöstoöarmann— Lárus
Loftsson, sem þjálfar unglinga-
landsliðiö með honum.
—SOS
VONBRIGÐI..
• Sigur
í Færeyjum
Blaklandsliðið lék tvo landsleiki
gegn Færeyingum f Þórshöfn um
helgina og vann sigur f þeim báö-
um — 3:2 og 3:1.
• Tap hjó
landsliðinu í
körfuknattleik
Islenzka landsiiðið f körfuknatt-
leik lék gegn bandarfsku háskóla-
liði frá Tennessee um heigina —
og lauk leiknum með sigri (79:64)
Bandarikjamanna, sem eru hér á
keppnisferðalagi. Jón Sigurðsson
skoraði flest stig landsliðsins —
16, en þeir Kristinn Jörundsson
(14), Jón Jörundsson (12) og Ein-
ar Bollason 10 stig.
• Einar
með 38 stig
Einar Bollason skoraöi 38 stig,
þegar KR-ingar unnu naumann
sigur (76:70) yfir Fram I 1. deild-
arkeppninni i körfuknattleik.
Framarar, sem léku án landsliðs-
mannsins Guðmundar Böðvars-
sonar, veittu KR-ingum harða
keppni. Þá unnu ÍR-ingar auð-
veldan sigur (87:59) yfir Breiða-
blik.
• Union
ó toppinn
Marteinn Geirsson og félagar
hans hjá Royale Union hafa tekið
forystuna i 2. deildarkeppninni I
Belgiu með góöum sigri (2:0) yfir
erkifjendunum Malines. Stand-
ard Liege tapaði 1-2 fyrir FC
Brugge.
VONBRIGÐI. — Það var það,
sem mátti lesa af andlitum hinna
fjölmörgu áhorfenda, sem yfir-
gáfu Laugardalshöllina á sunnu-
daginn, eftir að þeir höfðu verið
vitni að þvf, að íslendingar máttu
þola tap (22:23) gegn erkifjend-
unum frá Danmörku. Það var vel
skiljanlegt, að áhorfendur yfir-
gæfu Laugardalshöilina von-
sviknir, þvf það er sárt að tapa
gegn dönsku liði — og það lélegu
dönsku liöi.
Leikur islenzka liðsins gladdi
heldur ekki áhorfendur — lands-
liðsmenn okkar léku lélegan
varnarleik, og það var einmitt
hann sem reið baggamuninn gegn
Dönum.
Það var oft grátlegt að horfa
upp á leik islenzka liðsins og þá
sérstaklega varnarleikinn, sem
var oft á tfðum eins og gatasikti.
Þá var sóknarleikurinn ekki nógu
ógnandi — að visu sáust margir
góðir sprettir, en þess á milli var
sóknarleikurinn fálmkenndur og
þunglamalegur.
Það eina sem gladdi augað, var
samvinna þeirra Ólafs Einars-
sonar og Björgvins Björgvinsson-
ar i fyrri hálfleik — þá átti ólafur
þrjár stórglæsilegar linusending-
ar á Björgvin, sem Björgvin nýtti
að fullu og skoraöi góð mörk. Geir
Hallsteinsson átti góða spretti og
einnig Jón Karlsson, sem var
hafður úti i horni allan leikinn —
Jón fór á stúfana undir lokin og
skoraði þá tvö gullfalleg mörk
meö langskotum af svæöi, sem
hann fékk ekki athafnafrelsi á i
leiknum. ólafur Benediktsson
varði vel — sérstaklega um tima i
siöari hálfleiknum, þegar Islend-
ingar náðu að vinna upp fjögurra
— beqar Danir
löqðu íslendinqq
að velli í Lauqar-
dals-höllinni
marka (18:14) forskot Dananna
og jafna 19:19 og siðan 20:20. En
það dugði ekki — Danir gerðu úti
um leikinn (22:20) og sigruðu
23:22.
Arangur islenzka liösins i
Laugardalshöllinni var þannig,
að leikmenn liösins skoruðu 13
mörk úr 21 sóknarlotu I fyrri hálf-
leik, en 9 mörk úr 21 sóknarlotu i
siðari hálfleik — alls 22 mörk úr
42 sóknarlotum i leiknum.
Arangur einstakra leikmanna
varö þessi — mörk (viti), skot og
knetti tapað:
JónK...............7 (5)—10—2
Björgvin............4 —5—1
Geir................4 —7—3
Viðar...............3 (D—4—0
Agúst...............2 —3—0
ólafurE.............1 —3—1
Þorbergur...........0 —2—0
Mörk islenzka liösins voru
þannig skoruð — 7 langskot, 6
vitaköst, 4 gegnumbrot, 3 lina, 1
hraöupphlaup og 1 horn.
Ólafur Benediktsson stóð nær
allan leikinn I marki og varöi 10
skot.
Tap í
Eyjum
tsland — Danmörk...... 16:19
(10:13). Mörk íslands: ólafur E.
5, Björgvin 5, Viöar 2, Geir 1, Þor-
bergur 1, Jón K. 1 og Agúst 1.
Leikurinn var afspyrnu lélegur
hjá Islenzka liöinu, sem varö oft á
mjög slæm mistök. Góð mark-
varzla Gunnars Einarssonar und-
irlokin kom I veg fyrir, aö tslend-
ingar fengju verri útreiö, þvi aö
staðan var 16:10 fyrir Dani, þegar
hann kom inn á.