Tíminn - 28.12.1976, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 28. desember 1976
19
Ólafur Sverrisson, kaupfélagsstjóri:
Uppgjörog útborgun
K.B. á sláturafurðum
í siöasta hefti kaupfélags-
ritsins, sem gefið er út i
Borgarnesi, er grein eftir
Ólaf Sverrisson kaupfélags-
stjóra, þar sem fjallað er um
uppgjör og greiðslu á slátur-
fjárafurðuin. Greinin er
skrifuð í tilefni af árásum,
sem gerðar hafa verið að
undanförnu á þá aðila, sem
fara með sölu búvöru. Fyrri
hluti þessarar greinar er hér
endurprentaður.
Undanfarna daga hafa af-
urðasölumál og þá aðallega
uppgjör sláturleyfishafa og
mjólkursamlaga við bændur
verið i sviðsljósinu.
Er svo að sjá, að mörgum
bóndanum þyki hann fá seint
fullnaðaruppgjör fyrir afurðir
sinar og að of stór hluti verðsins
biði til siðasta uppgjörs.
Sérstaklega mun hér vera átt
við sauðfjárafurðir þ.e. kinda-
kjöt, gærur og slátur.
Astæða er til þess að fagna
umræðum um þessi mál á opin-
berum vettvangi. Skrif Morgun-
blaðsins i leiðara sunnudaginn
5. des s.l. eru eðlileg, þar sem
spurt er, hvort afurðasölufélög
bænda liggi á fjármunum bænd-
anna eða skili ekki á réttum
tima andvirði seldra vara,
sama á við um lánsfé það, sem
félögin fá i formi afurðalána.
Afurðalánin eru verulegir
fjármunir, og þau eru veitt af-
urðasölufélögunum til þess, að
þau geti fyrr en ella greitt
bændum fyrir innlagðar búvör-
ur. A okkur, sem veitum for-
stöðu afurðasölufélögum
bænda, hvilir sú skylda, að sjá
til þess að þetta fjármagn gangi
til réttra aðila, en sé ekki notað
til annars.
t sláturhúsi Kaupfélags Borg-
firðinga hefur undanfarin ár
verið slátrað fleiri kindum held-
ur en i nokkru sláturhúsi öðru á
landinu. Enginn sláturleyfishafi
hefur heldur haft eins mikla
slátrun, nema Sláturfélag
Suðurlands sem rekur mörg
sláturhús á Suður- og
Suð-Vesturlandi.
Haustið 1975 var slátrað hjá
K.B. 73.599 dilkum og 7.340 full-
orðnum kindum, samtals 80.939
kindum. Ctborgun til bænda ,,á
haustnóttum”, þ.e. pr. 30.10
1975, miðað við I. verðflokk voru
kr. 365,00 á kg. Þar fyrir utan
lagði félagið út fyrir flutningi
fjárins að sláturhúsinu og skaff-
aði ástöðumenn á fjárflutninga-
bila.En verð til bænda er miðað
við sláturfé komið að sláturhús-
rétt. Þá ber þess að geta, að
K.B. greiðir nokkru meira fyrir
það fé, sem tekið er til slátrunar
fyrstu daga sláturtiðarinnar. Er
það gert vegna þess, hversu
slátrun hefst snemma. Það
snemma, að dilkar eiga þá, að
jafnaði, eftir að bæta við sig
verulegum kjötþunga. Þetta
samanlagt, flutningurinn,
ástöðumenn og aukagreiðslan
fyrstu daga sláturtiðar gerir
alls kr. 13,15 á kjötkiló.
Samtals hefur þá félagið
greitt kr. 378,15útá kiló kjöts i I.
verðflokki strax i lok sláturtið-
ar.
Rétt er að geta þess, sem
félagsmenn raunar vita, að K.B.
greiðir allt andVirði innlagðs
sauðfjár samkvæmt kjötþunga,
þ.e. verðmæti gæru og sláturs er
meðtalið i tilgreindu verði per
kg. kjöts. Þannig út reiknað var
grundvallarverð, miðað við I.
verðflokkhaustið 1975, kr. 457,78
per kg. Raunveruleg útborgun
K.B. kr. 378,15 er sem næst
82,6% af grundvallarverði. 1
mai s.l. voru greiddar til viðbót-
ar kr. 56,00 á kg, sem er um
12,2% af haustgrundvallarverði.
Samtals er þá búið að greiða
94,8% af haustgrundvallarverð-
inu.
Svo sem vænta mátti, hefur
meðalgrundvallarverð fyrir
framleiðsluna frá 1975 orðið
hærra heldur en var haustið
1975. Þvi að nokkrar verð-
hækkanir urðu 1. des 1975, 22.
marz 1976 og 1. júni 1976. Meðal-
grundvallarverðer kr. 474,43 (1.
verðfl.). Upp i það hefur þegar
verið greitt kr. 434,15 samkv.
framanrituðu, eða 91,5%. Eftir-
stöðvar, kr. 40,28, verða nú
greiddar. Að frádr. sjóöagjöld-
um og tillagi til lifeyrissjóðs,
verða nettoeftirstöðvar rúm-
lega kr. 26,00 pr. kg., eða um
5,5% af grundvallarverði. A
verðeftirstöðvar þessara af-
urða, bæði þær, sem greiddar
voru i mai og þær, sem nú er
verið að greiða, verða greiddir
fullir vextir frá 1. jan.
Lokauppgjör er óvenju seint á
ferðinni nú, vegna þess, að enn-
þá eru stórar upphæðir ógreidd-
ar af útflutningsbótum. Mikill
hluti ærkjöts frá siðasta ári er
einnig óseldur. Vegna óselds
ærkjöts og ógreiddra útflutn-
ingsbóta á K.B. ennþá eftir að fá
inn um 30 millj. króna vegna
framleiðslu 1975.
Útflutningsbæturnar verða
greiddar, um það liggur fyrir
yfirlýsing landbúnaðarráðherra
og vonir standa til þess, að ær-
kjötið seljist án teljandi affalla.
Námsmenn í Osló og Edin
borg mófmæla fyrir
komulagi námslánanna
F.l. Rvik. — Timanum hafa
borizt fundarsamþykktir frá is-
lenzkum námsmönnum erlendis,
þar sem lýst er yfir „örvæntingu
vegna þeirrar svivirðilegu
árásar, sem gerð hefur verið á
kjör námsmanna”, eins og það er
orðað i bréfi frá stúdentum i
Edinborg.
Þá benda islenzkir námsmenn i
.Noregi á þá staðreynd að yfirleitt
sé skólavist Islendinga erlendis á
kostnað viðkomandi þjóðar að
undanskildum dvalarkostnaði,
sem er einungis litill hluti alls
kostnaðar.
F.I. Rvik. — Timanum hefur bor-
izt eftirfarandi fréttatilkynning
frá stjórn Lánasjóðs isienzkra
námsmanna:
Að undanförnu hafa i fjölmiðl-
um birzt staðhæfingar um að
menn geti notiö aðstoöar Lána-
sjóðs islenzkra námsmanna án
þess aö uppfylla þau skilyrði,
sem sett eru fyrir veitingu náms-
aðstoðar, þar á meðal um náms-
ástundun og tilskilinn náms-
árangur. Að þessu tilefni vill
stjórn sjóðsins upplýsa eftirfar-
andi.
1. Námsmönnum á fyrsta ári
erlendis er veitt vixillán til bráða-
birgða, enda hafa þeir ekki að
hausti tækifæri til þess að fram-
visa skilrikjum um námsfram-
vindu. Nái þeir ekki tilskildum
árangri á námsárinu falla lán
þeirra sjálfkrafa i gjalddaga eins
Við Statens Spesiallæreskole i
Osló sem er skóli til menntunar
kennara barna með sérþarfir
stunda 16 Islendingar nám og
hafa 111 bekkjarfélagar þeirra af
130 skrifað undir stuöningsyfir-
lýsingu við baráttu islenzkra
námsmanna gegn hinum nýju
lögum og reglum um námslán.
Skólastjóri sérskólans hefur
lýst yfir vonbrigðum sinum með
þá stefnu islenzku rikisstjórnar-
innar að setja islenzkum náms-
mönnum stólinn fyrir dyrnar
fjárhagslega meðan skólinn
hliðrar til fyrir þeim á kostnað
norskra umsækjenda.
og aðrir vixlar..,Ef skilriki þess-
ara námsmanna sýna tilskilda
ástundun og árangur á námsár-
inu er bráðabirgðalániö greitt
með veitingu almennra náms-
lána.
2. Námsmenn á fyrsta ári á Is-
landi hafa enga aðstoð fengið frá
Lánasjóði islenzkra námsmanna
fyrr en sýnt hefur verið fram á
tilskilda ástundun og árangur i
námi meö staðfestum skilrikjum
frá viðkomandi skólastofnun.
3. Námsmenn sem lokið hafa
fyrsta ári fá þvi aðeins námslán
að lögum, til að halda áfram námi
sinu, að framvinda þess sé eðlileg
samkvæmt upplýsingum viökom-
andi skólastofnunar.
4. Lánasjóði islenzkra náms-
manna er ætlað að tryggja að lög-
um og reglum verði réttilega
framfylgt.
® Furðuhlutur...
ur til baka sá ég aö ljósfyrirbrigði
þetta hafði fjarlæzt nokkuð og
virtist jafnframt hafa breytt örlít-
ið afstöðu i loftinu, þannig að
framhlutinn hefði risið örlitið
hærra upp, eftir þvi sem mér
sýndist og eins og sveigzt til i
samræmi við þá stefnu sem það
leið i. Jafnframt var eins og þaö
hefði tekið i sig meiri roða og
jafnframt skýið sem fylgdi. Aö
örlitilli stundu liðinni hvarf það i
fjarska og varð siðast eins og ör-
litill rauðleitur punktur i gegnum
sjónaukann að sjá. Litlu siðar
dreifðist einnig skýið og hvarf i
næturblámann.
Fyrirbærið mun hafa staðiö i
10-15 minútur frá þvi er ég sá það
fyrst, frá kl. um 0.01-0.15. Hálf-
tima siðar leit ég út um sama
glugga en þá var engan vott aö
sjá af fyrrnefndu skýi, hinsvegar
loguðu þá allbjört norðurljós yfir
þeim slóðum sem þetta haföi áöur
gengið um.
— Þetta ljósfyrirbæri var það
bjart-, sagði Stefán að lokum, að
ég taldi að margir mundu hafa
séð það, enda þó nokkuð af fólki á
ferli úti við. Þó virðist það ekki
hafa verið, aö minnsta kosti er
það ekki aö heyra á fréttum.
Tengdamóðir min, sem stödd er
hjá okkur og sá þetta lika, sagði
mér að þegar hún var ung, hefði
samskonar ljósfyrirbrigði sézt og
heföi þá verið kallað Vigabrand-
ur. Atti það að tákna að váleg tið-
indi væru i nánd.
® Á víðavangi
eyrisöflunar þessara svæða og
28% reglunnar er ekki óeðli-
legt að útibúin skuldi aðal-
bönkunum.
Hér er aftur á móti ekkert
samræmi á milli svæöa. Það
má bæta þvi við að ó
Vestfjörðum fækkar fólki, en
fjölgar á Austfjörðum. — A
bankapólitikin þátt i þvi?”
—a.þ.
Aðeins menn , sem
uppfylla sett skilyrði
njóta námsaðstoðar
Frá happdræ.M'i
Framsóknarflokksins
Dregið hefur verið i happdrætti Framsóknar-
flokksins og eru vinningsnúmerin innsigluð á
skrifstofu Borgarfógeta næstu daga, á meðan
skil eru að berast frá þeim, sem ennþá eiga
eftir að greiða heimsendingar. Dregið var úr
öllum útsendum miðum, eins og venja er og á
meðan vinningsnúmerin eru innsigluð geta
þeir, sem eru með miða og giróseðil greitt i
næstu peningastofnun.pósthúsi eða á skrifstofu
happdrættisins, Rauðarárstíg 18.
Umboðsmenn eru eindregið hvattir til að póst-
leggja uppgjör fyrir þá miða, sem þeir eru með
i sölu.
O Kidd sá um...
liðanna. Eftir nokkurn tima
komst samt á ró aftur og á 75.
minútu jafnaði Duncan fyrir
Totténíiaru, jiannig að lokastaðan
varð 2-2.
Newcastle sýndi mjög góðan
leik á St. James Park á móti
Sunderland og mörk frá Kennedy
og Cannell sáu til þess að Sunder-
land er ennþá kyfiilega fast við
botninn, en Newcastle spókar sig
meðal efstu liða deildarinnar.
Lengi vel leit út fyrir sigur
WBA á móti Bristol City. Cross
skoraði mark fyrir WBA i fyrri
hálfleik, og var staöan 1-0 alveg
þar til á siðustu minútu, en Rit-
chie tókst að jafna fyrir Bristol
liðið, og ná þannig i nokkuð óvænt
stig.
Norwichvann góðan sigur á liði
Q.P.R., sem ennþá hefur ekki
fundið þá leikgleði, sem var ein-
kennandi fyrir liðið i fyrra. Leikið
var á Carrow Road i Norwich, og
mörk frá Busby og Boyer sáu um
sigur Anglia liðsins. Lið Q.P.R.
getursamthuggaðsig við þá góðu
frétt, sem liðið fékk fyrir jól,
Gerry Francis byrjar að æfa
aftur með liðinu eftir áramót,
eftir langvarandi meiðsli.
® Liverpool...
það, þegar skot af 25 metra færi
frá Bertschin sigldi i bláhornið,
án þess að Blyth i marki Coventry
hreyfði legg né lið. Ipswich lék i
þessum leik án þeirra Hunters og
Mariners, og léku Roberts og
Bertschin i þeirra stað. Virtist
þetta alls ekkert veikja lið Ips-
wich nokkurn skapaðan hlut,
styrkur Ipswich liggur éinmitt i
þvi hve sterka varnarmenn liöiö
á.
David Milisskoraði „hat-trick”
fyrir Middlesborough á móti
Aston Villa á Ayresome Park, á
fyrsta hálftima leiksins. Mesti
áhorfendafjöldi á keppnistimabil-
inu á Middlesborough eða 31.000
manns sáu leikinn, og var gleði
heimamanna mikil til að byrja
með. En Andy Gray minnkaði
muninn fljótlega i 1-3 og snemma
i seinni hálfleik skoraöi ungur
nýliði hjá Aston Villa, David
Hughes, glæsilegt mark af rúm-
lega 20 metra færi. Það sem eftir
var af leiknum sótti liö Villa
mikið, en tókst ekki að skora,
m.a. vegna glæsilegrar mark-
vörzlu Platt I marki „Boro”.
Middlesborough varð þannig
naumur sigurvegari, 3-2.
Derbymarði sigur yfir Leicest-
er á heimavelli sinum, Baseball
Ground. Leighton James skoraði
mark þeirra, en greinilegt var á
leik liðsins að það á langt i land
með að ná fyrrigetu. Derek Hales
átti enn einn slæman leik með liði
Derby, og er kominn timi til, að
þessi mikli markaskorari fari að
sýna listir sinar meö liðinu.
Birmingham sotti mun meira i
leiknum við' West Ham á St.
Andrews i Birmingham, en góður
leikur Mervin Day i marki West
Ham, sáum aðannaðstigiðfór aö
þessu sinni til London. West Ham
hefur sótt sig mikið að undan-
förnu, og ef liðið slakar ekki á
klónni ætti það að þoka sér frá
fallbaráttunni með tið og tima.
ó.o.
O Erlendar...
grunsemda um að hann hefði
fengið fyrirskipanir um af-
tökur og einnig að hann hefði
sjálfur skotið fóik tii bana.
Sjálfur segir Menten ásak-
anir þessar tilhæfulausar og
fullyrðir að hann hafi ekki
komiötil neins þorpanna siðan
i september 1939 og hafi ekki
verið viðstaddur neinar af-
tökur.
• Flytja vopn
sín úr
borgum
Reuter, Kuwait. —
Palestinu-skæruiiðar eru ,nú
að flytja þung vopn sin úr
borgum og bæjum i Líbanon,
en munu áfram hafa þau stað-
sett I héruöum sem liggja aö
tandamærum Libanon og
tsrael, að þvi er sendimaöur
Yasser Arafat, leiðtoga
Palestinumanna, sagði I gær.
Sendimaöurinn, Mahmoud
Abbas, sagði að þegar hefði
eitthvað af vopnum veriö flutt
frá hafnarborgiuni Tripoli.
— Vopn okkar veröa þó
áfram hjá okkuv. sagði hann,
og viðhöfum alls ekki i hyggju
að gefa þau eftir, þvi i suöur-
hluta Libanon erum við aö
verja málstað okkar og
Libanan sjáift.
Barnavinafélagið Sumargjöf
I' (V*íy \ I Fornhava S. — Simi 27277
\Má/
Forstaða leikskóla
Staða forstöðumanns við leikskólann
Grænuborg er laus til umsóknar. Laun
samkvæmt kjarasamningi borgarstarfs-
manna.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
Sumargjafar, sem veitir nánari upplýs-
ingar.
Umsóknarfrestur er til 17. janúar
Stjórnin.