Tíminn - 21.01.1977, Side 9

Tíminn - 21.01.1977, Side 9
Föstudagur 21. janúar 1977. 9 tJtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Augiýsingastjóri: Steingrimur GIslason.Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu viö Lindargötu, sfmar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aöal- stræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — auglýsinga- simi 19523.. Verö I lausasölu kr. 60.00. Askriftargjald kr. 1.100.00 á mánuöi. Blaöaprenth.f., Guðbjarts- málið Að undanförnu hefur orðið nokkurt umtal um mál Guðbjarts Pálssonar, sökum þess að reynt hefur verið að bendla það við Framsóknarflokk- inn og utanrikisráðherra þó alveg sérstaklega. Orðrómur þessi er m.a. þannig til kominn, að Kristján Pétursson tollvörður hefur látið svo ummælt við f jölmiðla, að Guðbjartur væri riðinn við ýmis vafasöm fjárbrallsmál og hefði notið við þá iðju stuðnings og hjálpar háttsettra embættis- manna og bankamanna. í framhaldi af þvi hefur þeim sögusögnum verið komið á kreik, að hér sé sérstaklega átt við utanrikisráðherra. Það hefur nokkuð hjálpað til að gefa þessum sögusögnum vængi, að mál Guðbjarts hefur borið að með nokkuð sögulegum hætti. Hann er hand- tekinn af Hauki Guðmundssyni lögreglumanni með þeim hætti, að gildra virðist hafa verið lögð fyrir hann. Hefur það leitt til sérstakra mála- ferla, sem Haukur Guðmundsson hefur dregizt inn i. f framhaldi af handtökunni var Guðbjartur úrskurðaður i 20 daga varðhald i Keflavik, en bæjarfógetinn taldi mál hans ekki eiga þar heima, þar sem lögheimili hans væri i Reykjavik og þegar hefði verið höfðað mál gegn honum þar. Yfirsakadómarinn i Reykjavik vildi hins vegar ekki veita Guðbjarti móttöku, en saksóknari úr- skurðaði, að mál hans ætti heima i Reykjavik. Mál hans var svo falið ungum og vöskum rannsóknardómara þar. Um likt leyti ógilti hæstiréttur varðhaldsúrskurðinn yfir Guðbjarti, sem hafði verið k/ eðinn upp i Keflavik. Þessi gangur málsins hefur allur verið hinn sögulegasti og þvi tilvalið fréttaefni fyrir blöð, sem leggja megináherzlu á götusölu. Við þvi er ekkert að segja, ef ekki hefði verið bætt við aðdróttunum um, að embættismenn þeir, sem hér koma við sögu, hefðu farið eftir fyrirmælum Framsóknar- flokksins, og þar á meðal þeir fjórir hæstarétt- ardómarar, sem ógiltu gæzluvarðhaldsúrskurð inn. Langt mun siðan slik árás hefur verið gerð á hæstarétt. Hér hefur verið gerð hin ómaklegasta árás á dómstóla landsins og það eru einmitt slik- ar árásir f jölmiðla, að dómarar hagi sér pólitiskt og hlutdrægt, sem veikja mest virðingu fyrir lög- um og rétti, og hafa viða orðið lýðræðinu að falli. Vegna þess, að reynt er að bendla Framsókn- arflokkinn og utanrikisráðherra við þetta mál, er það að sjálfsögðu sérstakt áhugamál þeirra aðila, að mál þetta verði upplýst til fulls. Þvi ber að fagna þvi að það er nú i höndum dómara, sem er vænlegur til að gera þvi full skil. En jafnframt verður að kref jast þess, að þegar embættismaður eins og Kristján Pétursson ber fram þungar ásakanir á hendur öðrum embættismönnum, að hann standi við ásakanir sinar og láti rannsókn- ardómaranum i té þær sannanir, sem hann telur rökstyðja þessar ásakanir. Embættismenn eiga ekki að fara með dylgjur, nema þeir geti staðið við þær. Vafalitið verður fylgzt vel með rannsókn þessa máls og þó ekki sizt með þvi, sem Kristján Pétursson telur sig geta upplýst, ef hann lætur ekki sitja við orðin ein. Heilbrigt réttarfar krefst þess, að embættismenn fari ekki með dylgjur, heldur standi við orð sin. Spartak Beglof, APN: 500 röksemdir mæla með slökun spennu Frá nýlokinni friðarráðstefnu í Moskvu Rússnesk blöö birta nú öbru hverju myndir af Brésnjef meb barn I fanginu, en margar svipabar myndir voru birtar af Carter I ameriskum blöbum meban á kosningabaráttunni stób. Nýlega er lokib I Moskvu einni alþjóblegri fribarráb- stefnunni enn, en af umræb- um, sem þar fara fram, og ályktunum þeirra, má oft- ast vel rába vibhorf Sovét- rikjanna til alþjóbamála á hverjum tima. Rétt þykir þvi ab birta frásögn Beglofs af þessari sibustu fribarráb- stefnu. FROSTIÐ i Moskvu hafbi engin áhrif á fulltrúa almenn- ingssamtaka i 115 löndum, sem komu þangaö til þátttöku i alþjóðlegri friöarráöstefnu. Þeir lýstu þvi yfir fyrir hönd samtaka sinna, að þau væru staðráðin i að koma i veg fyrir afturhvarf til kalda striðsins. Þessi ráðstefna var haldin i framhaldi af friðarráðstefn- unni 1973, og hún verður lengi i minnum höfð vegna þeirra yfirgripsmiklu og djúptæku umræðna, sem þar urðu um friðarmálin. Fjöldi þátttak- enda og fjölbreytileiki bendir til þess, að friðarhreyfingunni aukist nú fylgi meðal hinna ýmsu skoðanahópa. Meðal fulltrúa 220 þjóðlegra og 70 al- þjóðlegra samtaka bar enn meira en áður á fulltrúum sósialista- og sósialdemó- krataflokka, miöflokka, verkalýðsfélaga, þingmanna (80 þingmenn frá ýmsum löndum sóttu ráðstefnuna), trúflokka og þjóðernisflokka frá Asiu og Afriku. Fulltrúar sameinaðs Vietnams tóku þarna i fyrsta sinn þátt i svo almennri alþjóðlegri ráö- stefnu. Annað einkenni Moskvuráð- stefnunnar var sú mikla at- hygli, sem heimsmálunum var veitt. Þátttakendur, sem voru 500 talsins, skiptust i 13 starfshópa i þeim tilgangi að fá fram sem áþreifanlegust og frjálsust skoðanaskipti. En hvert sem umræðuefnið var i hverjum einstökum starfshópi, hvort sem rætt var um afvopnun, nýtt efnahags- kerfi, sjálfstæði rikja, mann- réttindi, félagsleg vandamál eða friðsamlega sambúð og umhverfisvernd, varð loka- niöurstaöa umræðnanna ávallt sú sama: áframhald- andi þróun þeirrar stefnu, sem kennd er við slökun spennu, er undir þvi komin að lausn fáist á þeim vandamálum, sem nú eru efst á baugi á alþjóðavett- vangi. SLÖKUN spennu var tvi- mælalaust aðalmáliö á ráð- stefnunni. Röksemdir þessara 500 fulltrúa frá 115 löndum hljómuðu sem áhrifarikt and- svar i garö þeirra stjórnmála- manna á Vesturlöndum, sem höfðu uppi mikla tilburði á ár- inu 1976 — einkum meðan kosningabarátta stóð yfir — I þá veru að rangtúlka tilgang og markmið spennuslökunar og gera litið úr henni með alls kyns bollaleggingum um „ein- stefnugötu fyrir Rússa” o.s.frv. Hver eru helztu markmið spennuslökunar? Ég vitna hér i umsagnir fulltrúa á ráöstefn- unni I Moskvu: Þingmaður frá Kolumbiu: „Slökun spennu er leiðin til al- þjóðlegrar lausnar á við- kvæmum vandamálum”. Fulltrúi afriska þjóðþings- ins (S-Afrika): „Slökun spennu auðveldar einangrun þeirra stjórna, sem stunda kynþáttakúgun og færir okkur nær þeim degi, þegar réttur og frelsi afriska meirihlutans vinna sigur”. Verkalýðsleiðtogi frá Bret- landi: „Slökun spennu hefur i för meö sér aukna atvinnu- möguleika vegna aukinna viö- skipta austurs og vesturs”. Hver man ekki æsinginn I Ronald Reagan i fyrra, þegar hann reyndi að telja fólki trú um að slökun spennu væri „lúmsk gildra fyrir Banda- rikjamenn”? En hér er svar sem byggir á heilbrigðri skyn- semi og kom frá Saundra Gra- ham, þingmanni frá Massa- chusetts: „Framkvæmd á spennuslökunarstefnunni er leið út úr þeim vitahring vandamála, sem ógna Ameriku, og gætu annars haft i för meö sér efnahagslegt hrun stórborganna og eftirlits- lausa sóun fjármagns til hernaðarnota”. STARFSHÓPAR ráðstefn- unnar, sem fjölluöu um áhrif spennuslökunar á heims- póitikina, komust m.a. að eftirfarandi niðurstöðum: Slökun spennu hefur haft i för meö sér stöðugleika i milli- rlkjasamskiptum og upp aö vissu marki heft ævintýra- mennsku heimsvaldasinna. Á nokkrum svæðum (Evrópa, Suður- og Suðaustur-Asia) hefur hún stuðlað að eðlilegu ástandi og komiö i veg fyrir styrjaldarátök. Slökun spennu staðfestir trú manna á þvi, að unnt sé að koma i veg fyrir kjarnorkustyrjöld, og eykur jafnframt möguleika á gagn- kvæmt hagstæðum samskipt- um og samstarfi rikja, sem búa við mismunandi stjórnar- far. Jafnframt var bent á, að enn væru svæði i heiminum, sem slökun spennu hefði ekki náö til: Miðausturlönd, Kýpur og Kórea. Helzta hindrun á vegi spennuslökunar er vig- búnaðarkapphlaupið, sem ekkert lát virðist á. Þetta kapphlaup gæti veikt eða jafn- vel stöðvaö þá þróun, sem náðst hefur á sviði pólitiskrar spennuslökunar, en þeirri þró- un verður að fylgja eftir meö slökun hernaðarlegrar spennu. Fulltrúar á ráðstefn- unni mæltu eindregiö gegn öll- um hugmyndum um óhjá- kvæmileika vigbúnaðarkapp- hlaupsins, en þær hugmyndir endurspegla fyrst og fremst hagsmuni hergagnaiðnaðar- ins, sem hefur komið af staö alls kyns goösögnum um svo- nefnda „sovézka hættu”. Einkum ber að fordæma það, að almenningi er innrætt hug- myndin um „bættan hag með auknum vigbúnaði” I sumum rikjum Vesturlanda. Næsta skrefið I baráttu friðaraflanna veröur áreiðan- lega stofnun fastanefndar, sem hafi þaö að markmiði að efla og þróa samtökin i nýjum áfanga baráttunnar. 1 þessum samtökum verða fulltrúar hinna ólikustu skoðanahópa og stefnt verður að siauknu sam- starfi þeirra innbyröis á grundvelli viðræðna og skoöanaskipta. Slökun spennu er hnattrænt fyrirbæri og stuðlar að lausn ávandamál- um er snerta allt mannkyn. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.