Tíminn - 21.01.1977, Side 10

Tíminn - 21.01.1977, Side 10
10 ilMEM Föstudagur 21. janúar 1977. KS-Akureyri — Eins og fyrr hefur komiö fram i fréttum, eru nú miklar breytingar framund- an hjá vikublaöinu Degi á Akur- eyri. Keypt hefur veriö ný off- set-prentvél, sem blaöiö veröur prentaö i, og einhvern næstu daga er væntanlegur til Akur- eyrar bandariskur sérfræöingur til þess aö setja upp vélina og tengja hana til notkunar. Nýja prentvélin veröur I ný- byggöu prentsmiöjuhúsi sem Prentverk Odds Björnssonarer i þann veginn aö taka I notkun. Þá hefur Dagur einnig fest kaup á óinnréttuöu skrifstofuhúsnæöi aö Tryggvabraut 12, og mun fiytja þangaö ritstjórn og af- greiöslu biaösins þegar viöeig- andi breytingar hafa veriö geröar. Dagur veröur því fyrsta blaöiö utan höfuöborgarsvæöis- ins sem veröur offsetprentaö. Dagur hefur komiö reglulega út frá þvi aö blaöiö hóf göngu sina áriö 1918, og er eina bæjarblaöiö sem náö hefur þvi marki. Dagur hefur undanfarin ár veriö til húsa aö Hafnarstræti 90 á Akureyri útkomu sinni og sinnt sinum margvislegu verkefnum sem best. Hverju þakkar þú ööru frem- ur vegengni Dags? — Aö Degi völdust i öndverðu hinir ágætustu menn, svo sem Ingimar Eydal, og Jónas Þor- bergsson en siðar tók Haukur Snorrason við ritstjórninni. Þótt fleiri mætti nefna I þessu sam- bandi mótuðu þessir þrir menn stefnu blaðsins og unnu þvi vin- sæidir og útbreiðslu. Dagur hefur frá fyrstu tið verið norölenzkt fréttablað og norðlenzkt málgagn, ennfremur opinn vettvangur til skoðana- skipta um hin fjölmörgu mál, sem ofarlega eru á baugi hverju sinni. Þá hefur blaðið verið i fararbroddi umræðna um ýmis framfaramál og oft driffjöður þeirra almennt séð, jafnframt þvi sem það hefur auðveldað mannleg samskipti, svo sem blöð eiga að gera hvert eftir sinni getu. Fólk hefur metið þessa viðleitni og einnig það að útkoma blaðsins hefur verið regluleg og það hefur getað treyst þvi. Erlingur Daviösson á ritstjórnarskrifstofu Dags. Fyrsti ritstjóri Dags var Ingi- mar Eydal, en slöan hafa rit- stýrt blaöinu þeir Jónas Þor- bergsson, Haukur Snorrason og nú siöustu 20 árin Erlingur Daviösson. 1 tilefni þessara mérku tlma- móta hjá Degi, sneri frétta- maöur Timans á Akureyri sér til Erlings Davíössonar ritstjóra og baö hann aö svara nokkrum spurningum. Hvaöa áhrif hafa þær nýjung- ar, sem þiö eruö aö tileinka ykk- ur á útgáfu Dags? — Það kemur ekki til meö að hafa veruleg áhrif á útgáfu blaðsins þótt sett sé upp ný off- setprentunarvél, nema prentun- in verður væntanlega betri, og blaöið á að geta litið betur út. Hins vegar er þetta stórt stökk i prentiðnaöinum, og breytingin veröur mest i iðnaðarvinnunni, þar sem offsetvél gefur ýmsa nýja möguleika. Dagur hefur lengi átt blaða- pressu, sem vissulega var hraö- virk á sínum tima en er nú oröin gömul og óhentug. 1 stað hennar keypti Dagur nýja offsetvél — eins og fyrr sagði — og bindum við miklar vonir viö þessa nýju vél. Aðrar vélar til offset- prentunar kaupir Prentverk Odds Björnssonar. Þar sem P.O.P. flutti alla sina starfsemi I nýtt húsnæði viö Tryggva- braut, — en eins og fyrr sagöi veröur offset-vél Dags staösett þar, — réðist blaðstjórnin I kaup á nýju húsnæði, sem er að- eins steinsnar frá Prentverkinu. Þetta eru nú helztu breyting- arnar. Eru uppi hugmyndir um stækkun blaðsins eöa fjölgun út- gáfudaga? — Dagur hefur alla tlð verið norðlenzkt vikublað sem þó hefur komið oftar út ööru hverju. Stækkun á blaðinu og fjölgun útgáfudaga er auövitaö alltaf á dagskrá. En þar sem veröur að standa á eigin fótum verður fjárhagsafkoman aö Norðlendingar fá bráðlega offset prentað blað Rætt við Erling Davíðsson, ritstjóra Dags á Akureyri, en Dagur er fyrsta blaðið utan höfuðborgarsvæðisins sem verður offsetprentað. Nýja húsnæöiö sem Dagur hefur fest kaup á er efri hæö Tryggvabraut 12 og flytur blaöiö þangaö á næstunni meö alla slna starfsemi. Tlmamyndir Karl. ráöa ferðinni aö verulegu leyti, þó fullur vilji sé hins vegar fyrir hendi til að stækka blaðið og auka útkomudaga. Er þaö rétt, aö Dagur sé lang- útbreiddasta vikublaö, sem gefiö er út utan höfuðborgar- svæöisins? — Upplag blaösins er nú hálft sjötta þúsund og áskrifendum fjölgar stööugt. Blaöiö hóf göngu slna 1918 og hefur alla tiö siöan komið reglulega út. Mikil og sivaxandi útbreiðsla er auðvitað ánægjuefni þeim er aö sliku blaði standa. Það er hins vegar ekki mitt að tiunda út- gáfu annarra víkublaöa. Alltur þú ekki hæpið aö gefa út fjögur blöö I ekki stærri bæ en Akureyri er, hvaö fjárhagsieg- an grundvöll snertir? — Hópar fólks með sameigin- leg áhugamál sem telja sér nauösyn að gefa út blöð, þurfa að eiga þess kost, ef þeir hafa dugnað og áhuga til þess. Blöðin keppa auðvitaö um hylli fólksins og gengur mis- jafnlega. En blaðadauði er mér siður en svo ánægjuefni, og vona ég að sem flest vikublöö á lands- byggðinni geti haldið áfram Er þaö rétt sem oft heyrist, aö Dagur sé eitt fárra blaða hér- lendis sem rekið sé meö hagnaöi? — Jú, þetta hefur maður heyrt, en ég veit ekki hvers vegna þetta hefur verið sagt. Hitt veit ég, aö við höfum ekki alltaf veriö réttu megin við strikið þegar upp hefur verið gertum áramót, þótt sum önnur vikublöð hafi e.t.v. átt i enn meiri fjárhagserfiðleikum. Nú hefur Dagur t.d. stofnað til mikilla skulda vegna nýjustu fjárfestinga. En við treystum þvi að blaðið standi nægilega traustum fótum til þess að gegna hlutverki sinu og helzt betur en áður. Liklega hafa ýmis merkileg atvik skeö á ritstjórnarferli þln- um Erlingur? — Já, tæplega fer hjá þvi. Merkilegast er þó e.t.v. það að ég minnist þess ekki að nokkru sinni hafi komið til árekstra við starfsfólk prentsmiðjunnar á þvi aldarfjórðungsskeiði sem ég hef átt samskipti við það. Hið sama gildir um starfsfólk mitt á skrifstofum Dags. Liklega er þetta nokkuö óvenjulegt, en um leið hið skemmtilegasta I starf- inu. Nú hefur þú ritað bækur jafn- framt þvl sem þú gegnir rit- stjórastarfi. Hvernig finnuröu þér tlma til þess aö skrifa blaöið og svo bækur á ritstjórnarskrif- stofu þar sem aldrei er friöur? — Sumir þurfa algjört næði til að skrifa, aðrir ekki. Svo gefur nú forsjónin okkur 52 sunnu- daga, jafn marga laugardaga og enn nokkra fridaga að auki. Spurningin er þvi ekki um dugnað og þess háttar, heldur um skipulag á vinnutima og fri- tima. Mitt starf hefur verið að skrifa og mitt tómstundagaman hefur einnig veriö aö skrifa, og þvi hafa nokkrar bækur orðið til nú siðustu árin. Viltu segja nokkuö aö siöustu um framtiö Dags, viö þessi timamót? — Ekki gengur maður þess dulinn, að framiöin færir bæði skin og skugga, svo sem jafnan hefur verið I útgáfunni. Fjár- hagshliðin verður eflaust erfið fyrst i stað, en ný prentsmiðja og möguleikar i sambandi við hana gefa fyrirheit. En það sem mestu máli skiptir fyrr og siðar er þaö, að blöð þjóni hinum margþætta tilgangi slnum I þágu fólksins, séu I senn frjáls- lynd og heiðarleg i málflutningi og vinni meö umbótaöflunum á sviði framfara og menningar — séu jákvæð og hvetjandi, og horfi ekki I gegnum þrönga sjónpipu stjórnmálaflokkanna. — Vikublöðin hafa mikilvægu hlutverki aö gegna fyrir sina landshluta, og Dagur mun enn reyna aö halda vöku sinni.'

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.