Tíminn - 08.02.1977, Qupperneq 18
18
Þriðjudagur 8. febrúar 1977
ekki
ofmetnast.
— Ég er mjög ánægður með
strákana, þeir börðust vel og gáfu
ekkert eftir, sagði Januz
Czerwinski, landsliðsþjálfari, eft-
ir landsleikina gegn V-Þjóðverj-
um. Januz varaði við of mikilli
bjartsýni, sagði hann: — Við
megum ekki ofmetnast. róðurinn
á eftir að verða þungur i Austur-
riki. Það er mikill hugur i
strákunum, sem eru ákveðnir I að
leggja mikið á sig til að komast tii
Kaupmannahafnar næsta vetur.
Januz sagði að lokaundirbún-
ingurinn fyrir Austurrikisförina
væri nú hafinn — hápunkturinn
veröur, þegar pólska meistara-
liðið „Slask” kemur hingaö,
úsamt nokkrum sterkum lands-
liðsmönnum úr öðrum félögum.
Þá sagöi Januz, að það væri
stórkostlegt að finna, hvernig all-
ir vilja veita landsliðsmönnunum
— því að framundan er erfiður róður",
sagði Januz Czerwinski, landsliðsþjóifari
stuöning. — Þaö er okkur
ómetanleg hjálp, aö vita, að
hugur fólksins er með okkur og
verður með okkur i Austurriki —
þvi miöur er ekki hægt aö taka
áhorfendur með.
A ð lokum agði Januz, að hann
vildi nota þetta tækifæri til að
þakka leikmönnum sinum fyrir
þann mikla árangur, sem þeir
hafa náð að undanförnu. — Þeir
hafa sýnt það og sannað, aö það
er ýmislegthægt, þegarviljinn er
fyrir hendi og þegar allir leggjast
á eitt og vinna vel saman.
— Það er ekki annað hægt en
aö vera bjartsýnn, en það þýöir
þó ekki, að við megum slaka á.
Þetta er aðeins upphafið á erfiöu
íslenzka landsliðið
Óskabarn
þjóðarinnar
Landsliðið fær rausnarlegar gjafir
fró Tólknafirði og Ársæli KE 77
við Birgi, var Steindór Guð-
mundsson — og hann hringdi
siöan aftur til Birgis kl. 17.00 á
Það er óhætt að fullyrða, að
landsliðiö í handknattleik er um
þessar mundir óskabarn
þjóðarinnar. Hvar sem er á
landinu — á heimiium eða á
vinnustöðum, er ekki um annaö
talað þessa dagana, en árangur
landsliðsins gegn sterkustu
handknattleiksþjóðum heims.
Enda ekki nema von — fjórir
sigrar i 6 landsleikjum á stutt-
um tíma, gegn Pólverjum,
Tékkum oe V-Þióöverjum.
Bezta dæmið um hver hugur
fólks er til landsliösins er að á
sunnudaginn kl. 10 f.h. var
hringt frá Tálknafiröi til Birgis
Björnssonar, formanns lands-
liösnefndar, og þann spuröur að
þvi, hvort það væri ekki í lagi aö
fjársöfnun yrði hafin á Tálkna-
firði til stuðnings viö landsliðið.
Birgir sagöi, að þaö væri vel
þegið. Sá, sem haföi samband
sunnudaginn og tilkynnti honum
þá, aö það væri búið að safna 90
þús. krónum, sem Tálknfirðing-
ar myndu senda til H.S.l.
Þetta litla dæmi sýnir bezt
áhuga manna. Þess má geta til
gamans, aö 270 Ibúar eru á
Tálknafirði. Þegar að er gáö, þá
er hlutfallið þannig, aö ef þessi
söfnun — miöað við mannfjölda
— heföi farið fram I Reykjavik,
þá hefðu safnazt 31 millj. króna í
Reykjavik.
Sjómenn gefa
Þá má geta þess, aö áhöfnin á
Arsæli KE 77, sem er 12 manns,
hefur gefið 60 þús. krónur til
landsliösins. Þ.e. 5 þús. krónur á
mann.
verkefni, sem er framundan.
sagöi þessi siðprúöi og rólegi
Pólverji. —SOS
Landsleikirnir
í tölum
ísland-V-Þýzkaland
18:14(9:4)
Arangur islenzka liðsins var
mjög góður I þessum leik — 18
mörk voruskorúö úr 38 sóknarlot-
um. í fyrri hálfleik voru skoruð 9
mörk úr 21 sóknarlotu, en i siðari
hálfleik 9 mörk Ur 17 sóknarlot-
um, sem er mjög góöur árangur.
Arangur einstakra leikmanna
varð þessi—- mörk (víti), skottil-
raunir og kenttinum tapað:
Þorbjörn Guðmundss ... . 4 -5-1
GeirHallsteinss......4 -7-0
Björgvin Björgvinss..3 -5-0
Ölafur Jónsson........3 -5-0
ÞórarinnRagnarss.....1 -1-0
ViöarSímonars........... KD-2-0
Axel Axelsson........ 1 -3-0
ÓlafurEinarsson......1 -3-2
Jón Karlsson......... 0 -2-0
Þá voru tvisvar sinnum dæmd-
ar tafir á Islenzka liðið — þannig
að knötturinn tapaðist.
Mörkin voru skoruð þannig: 6
af línu, 5 með langskotum. 4 eftir
gegnumbrot 2 eftir
hraöaupphlaup og eitt úr vlta-
kasti.
Axel Axelsson átti 3 llnusend-
ingar, sem gáfu mörk, ólafur
Jónsson tvær og Geir Hallsteins-
son eina.
Ólafur Benediktsson varði vel i
leiknum, eða alls 10 skot — 5 lang-
skot, 3 skot af línu, l eftir hraö-
upphlaup og 1 eftir gegnumbrot.
ísland-V-Þýskaland
10:8(6:5)
Tölulega séð var leikurinn ekki
nógu góður — 10 mörkin voru
skoruö úr 33sóknarlotum. 6 mörk
I fyrri hálfleik úr 19 sóknarlotum
og 4 mörk úr 14 sóknarlotum I
þeim siðari. 1 byrjun leiksins
skoraði islenzka liðið aöeins 2
mörkúr fyrstu 11 sóknarlotunum
og I byr jun slðari hálfleiksins ekki
Framhald á bls. 17
BJÖRGVIN BJÖRGVINSSON ,,„ sést hér, þar sem hann „kringlar”
úr horni. Þessum leikna linumanni tókst þó ekki að skora, þvf að
þarna sá hinn snjalii markvörður V-Þjóðverja, Rauer, við honum og
var®*' —Timamyndir Gunnar)
Langþráður sigur
Þá var kátt
í „Höllinni
• II
— ÍSLAND, ÍSLAND... hljómaði
kröftuglega i Laugardalshöllinni
á Iaugardaginn, þegar Islend-
ingar náðu að vinna langþráðan
sigur yfir V-Þjóöverjum á heima-
velli — 18:14. tslenzka landsliðið
var heldur betur i essinu sinu og
leikmenn liðsins sýndu oft stór-
glæsilega spretti og hreinlega
léku sér að V-Þjóðverjum eins og
köttur að mús — sigur þeirra var
aldrei i hættu og óskadraumurinn
rættist. Geysileg fagnaðarbylgja
fór um Laugardalshöllina, þegar
sigurinn — fyrsti sigur yfir V-
Þjóðverjum á heimaveili varð
staðreynd.
Islendingar fóru rólega af staö,
og var leikurinn jafn I byrjun, en
Við erum ákveðnir í að
leggja hart að okkur"
— og ætlum okkur til Kaupmannahatnar ", sagði Björgvin Björgvinsson
— Þetta er mesta vinna/
sem ég hef nokkru sinni
lagt á mig í sambandi viö
landsliðsæf ingar, sagöi
Björgvin Björgvinsson/
línumaðurinn knái, sem
hefur leikið 91 landsleik
fyrir island og tekiö þátt í
undirbúningi fyrir HM-
keppnina í Frakklandi 1970
og A-Þýzkalandi 1974, og
einnig tekiö þátt í undir-
búningnum fyrir Olympíu-
leikana i Munchen 1972.
— Ahuginn hefur aldrei veriö
meiri hjá strákunum, og tel ég
það landsliösþjálfaranum Januz
Czerwinsky að þakka, en það hef-
ur alltaf veriö draumurinn, að fá
erlendan landsliðsþjálfara.
Björgvin sagði, að landsliðs-
mennirnir væru ákveðnir I að
reyna að lyfta handknattleiknum
hærra en hann hefur áður verið á
íslandi. — Við erum nokkrir I
hópnum sem förum að syngja
okkar slðasta sem keppnismenn,
hvaðúr hverju. Við erum ákveðn-
ir I að leggja okkar af mörkum,
hvað sem það kostar, til aö hand-
knattleikurinn verði áfram sú
Iþróttagrein, sem ber hæst á Is-
landi, sagöi Björgvin.
— Þið eruð þá tilbúnir að halda
áfram, ef þið nú I Austurriki
tryggið ykkur farseðilinn til
Kaupmannahafnar?
— Já, alveg tvimælalaust — viö
helgum landsliðinu okkar krafta,
þar til málið er komið I örugga
höfn.
„Halda merki Islands
hátt á lofti"
ÞORBJÖRN GUÐMUNDSSON
er einn af okkar ungu handknatt-
leiksmönnum, sem hefur sýnt
hvað mestar framfarir að undan-
förnu og hann er einn af þeim
leikmönnum, sem mun taka við
af eldri leikmönnunum I landslið-
inu.
— Þorbjörn, nú tekur þú I fyrsta
skipti þátt i ströngum æfingum
með landsliðinu. Hvað viltu segja
um það — er þetta ekki erfitt?
— Jú, allir mlnir frltimar fara I
landsliðsæfingar. Þetta er vinna
og aftur vinna — enda þýðir ekk-
ert að hugsa um annað, ef árang-
ur á að nást. Ég sé ekki eftir þeim
tlmum, sem hafa farið I
æfingarnar — þar hef ég lært
mikið af eldri og reyndari leik-
mönnunum, sem eru allir reiðu-
búnir til að hjálpa og allir leggj-
ast á eitt — þ.e. aö halda merki
tslands hátt á lofti. —SOS
þegar staðan var 2:2 var sett á
fulla ferð, og þegar fyrri hálfleik
lauk, voru tslendingar búnir aö
ná 5 marka forskoti — 9:4. Flest
mörk íslands voru falleg, en eitt
mark er þó minnistæðast — það
var þegarGeir Hallsteinsson fékk
knöttinn frá Ólafi Benediktssyni á
punktalinu á vallarhelmingi
tslands — timinn var að renna út,
þegar Geir sendi knöttinn yfir
endilangan völlinn. Knötturinn
hafnaði i netamöskvum V-
Þjdðverja við glfurleg. fagnaðar-
læti. tslenzka liöið byrjaði með
marki (10:4) i siðari hálfleik og
eftir það var ekkert vafamál,
hvor aðilinn myndi bera sigur úr
býtum. V-Þjóðverjargerðu allt til
að minnka muninn — tóku Geir
Hallsteinsson úr umferð, en allt
kom fyrir ekki. tslendingar voru
of sterkir fyrir þá.
Allir leikmenn islenzka liðsins
áttu skinandi leik. ólafur
Benediktsson stóð allan tlmann I
markinu og varöi glæsilega. Þá
var Geir Hallsteinsson potturinn
og pannan 1 sóknarleiknum'. Olaf-
ur Jónsson, Þorbjörn Guðmunds-
son og Björgvin Björgvinsson
voru einnig mjög góðir.
Það fer ekki á milli mála, að
Januz Czerwinsky, landsliös-
þjálfari, hefur gert stóra hluti á
skömmum tlma — þessi snjalli
Pólverji er búinn aö byggja upp
mjög sterka heild, þar sem allir
leikmenn liðsins leika þýöingar-
mikil hlutverk og gefa ekkert eft-
ir, fyrr en I fulla hnefana. Leikur
liðsins er að verða heilsteyptur,
þó að ýmislegt komi fram, sem
þarf að lagfæra. Það er mjög
ánægjulegt að sjá hvað varnar-
leikurinn er oröinn sterkur, og er
óhættað segja, aö ölafur H. Jóns-
son eigi stóran þátt i þvl — þessi
kraftmikli leikmaður stjórnar
varnarleiknum af mikilli snilld,
og kraftur hans og baráttugleði
smitar út frá sér.
Viö höfum nú eignazt landslið,
sem getur staðizt hvaða þjóð sem
er snúning. —SOS.