Tíminn - 15.02.1977, Blaðsíða 7

Tíminn - 15.02.1977, Blaðsíða 7
Þriöjudagur 15. febrúar 1977 7 Áður óþekkt lög eftir Kaldalóns Nýlega komu út áttunda og ni- unda heftiö I söngvasafni Sig- valda Kaldalóns tónskálds og læknis. 1 heftum þessum er að finna 27 einsöngslög, 26 kórlög, valsinn „Þrá,” „Ljóð án orða”, sem eru í útsetningu Carl Bill- ich. Langflest þessara nýút- komnu sönglaga hafa aldrei heyrzt áður, og er þvi hér um áður óþekkt framlag Sigvalda Kaldalóns til söngiðkunar að æða. Páll Halldórsson organ- leikari annaðist nótnaritun, en Hallgrimur Jakobsson kennari skrifaði texta. Setning fyrir- sagna og prentun er unnin af Litbrá. Aður hafa komið út sjö hefti með 143 sönglögum Sigvalda, hið fyrsta þeirra kom út árið 1916 og það sjöunda árið 1971. Eins og kunnugt er, var Sig- valdi Kaldalóns læknir að mennt og gegndi hann embætti héraðslæknis frá Ármúla við Isafjaröardjúp, Flatey á Breiðafirði og Grindavik. A þessum stöðum samdi Sigvaldi mörg sinna beztu laga, en ferill hans sem tónskálds nær yfir meira en 40 ára tímabil, eða frá þvi rétt eftir aldamótin og fram undir siðustu æviár, en Sigvaldi Kaldalóns lézt árið 1946, sextiu og fimm ára að aldri. A fyrstu árum sinum sem tón- skáld samdi hann til dæmis hið vinsæla lag „A Sprengisandi”, og lagiö „Heimir” er einnig I hópi þeirra laga, sem fyrst komuúr. Lög eins og „Vorvind- ur” og „Island ögrum skoriö” eru frá þvi um 1930, en af siðari lögum hans má nefna „Suður- nesjamenn” og „Hamraborg- in”. A þeim tima er Sigvaldi fer að semja sin lög, var fátt um Is- lenzk sönglög og féll þvl ferskur og frjór hugur Sigvalda vel að þörfum söngþyrstrar þjóðar. Og liðlega sjötiu árum eftir aö Sig- valdi byrjar að fást við laga- smiði, birtast enn eftir hann ný sönglög og tónverk, sem fæst hafa heyrzt áður, og eru þessi áður óþekktu tónverk hans 56 að tölu. Er ekki að efa að lög þessi eiga eftir að heyrast á næstunni nú, er þeim hefur veriö komið á framfæri, en útgáfa tónverka þessara er jafnframt lokaþáttur útg. nýrra sönglaga eftir Sig- valda Kaldalóns, og eru útkom- in tónverk hans 204 talsins. út- gefandi er Kaldalónsútgáfan. uiog suður um helgina Gerið skammdegið skemmtilegt! Leitið upplýsinga hjá skrifstofum og umboðum um land allt. FLUCFÉLAC ÍSLANDS tNNANLANDSFLUG Suður til Reykjavíkur vilja flestir fara öðru hverju. Nú er það hægt fyrir hóflegt verð. Þar geta allir fundið eitthvað við sitt.hæfi til að gera ferðina ánægjulega. Margir hafa notað helgarferðirnar og kunnað vel að meta. Flugfélag fslands býður upp á sérstakar helgarferðir allan veturinn fram undir páska: Ferðina og dvöl á góðum gististað á hagstæðu verði. Út á land, til dæmis í Sólarkaffið fyrir vestan, á Sæluvikuna á Sauðár- króki eða þorrablót fyrir austan, til keppni í skák eða í heimsókn til kunningja. Víða er hægt að fara á skíði. „60% ALLRA PLOTUSPILARA KOMA FRÁ BSR bds 95 plötuspilari.Verð kr. 39.900. + tónhöfuð. Hagstætt hlutfall milli gæöa, tæknilegra eigin- leika og verðs er skýr- ingin á þessum einstaka framleiöslu- og sölu- árangri. Margir helstu hljóm- tækjaframleiðendur veraldar nota BSR plötu- spilaraverk í framleiöslu sína og selja undir eigin vörumerkjum. Við kaupum beint frá BSR SAMUALDAR NESCO HUÓMTÆKJASAMSTÆÐUR Leiðandi fyrirtæki á sviði sjónvarps útvarps og hljómtækja VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10. SÍMAR: 27788,19192.19150.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.