Tíminn - 16.02.1977, Side 7

Tíminn - 16.02.1977, Side 7
Miðvikudagur 16. febrúar 1977 7 Að prófa mannvirkin fyrir fram Frostþol steinsteypu og slagregnsþol glugga og annars byggingarefnis mælt í tveim skópum HV-Reykjavik — Viö höfum hérna tvo skápa, þar sem viö getum prófaö byggingarefni og byggingareiningar, meö tilliti til veöurþols þeirra og veörun- ar. Annars vegar er hér skápur sem viö notum til aö prófa stein- steypu og frostþol hennar, hins vegar „veöurskápur” þar sem viö prófum þol glugga og annarra byggingareininga gagnvart veöri og vindum, sagöi Hákon ólafsson, verk- fræöingur hjá Rannsóknastofn- un byggingariönaöarins, i viötali viö Timann I gær. 1 fyrrnefnda skápnum, þar sem viö prófum steinsteypuna, sagöi Hákon ennfremurf fer hitastigiöniður í þrjátiu gráöa frost og upp i tuttugu stiga hita, Hver hringur tekur um fjórar klukkustundir, þannig aö á hverjum sólarhring fer hita- stigiö sex hringi, en stööluö þolprófun á steypu er þrjú hundruö hringir, þannig aö hver prófun tekur á þriöja mánuö. Prófanir af þessu tagi eru geröar, áöur en lagt er út i framkvæmdir viö mikil og kostnaöarsöm mannvirki, til dæmis virkjanir. Prófuö eru ýmis efni i steypunni, svo og Viö slagregnsskápinn, þar sem verlö er aö prófa glugga. blöndunarhlutföll, og ef þau ekki uppfylla ákveönar kröfur um frostþol er þeim hafnaö. Siöan er okkur send reglulega sýnishorn af steypu þeirri sem notuö er I mannvirkin, þannig að viö fylgjumst meö þvi hvernig steypan, sem fer i þau, er. Þaö er ákaflega misjafnt hvernig frostið fer meö steypu en þaö liggur i augum uppi, aö ef hún springur mikiö og losnar sundur, þá er hún óhæf. 1 siðarnefnda skápnum, sem er slagregnsskápur, getum viö framkallaö vind sem sam- svarar fárviöri, þaö fer yfir tólf vindstig, svo og látiö rigningu fýlgja. Með honum er ætlaö aö gera samanburöarprófanir á þétt- leika mismunandi samskeyta, gera prófanir á gluggum, þétt- leika opnanlegra glugga meö og án þéttilista, svo og isetningu glers. Ennfremur er skápurinn notaöur sem hjálpartæki viö hönnun ýmissa samskeyta og val hagkvæmra lausna. Auk þess aö prófa glugga og samskeyti má einnig nota hann til aö prófa hleöslustein, sem notaöur er i hús, en hann er ekki vatnsheldur, og veröur oft vart viö lekavandamál i hlöönum húsum. I sambandi viö þennan slag- regnsskáp má geta þess, aö við vonumst til aö geta innan skamms hafiö athuganir á raunverulegum slagregnskrafti 'hér, þaö er athuganir á þvi hvernig veöurfar hér er hvaö hann varöar. Veöurstofan tekur ekki meö i sinar mælingar slag- regniö, þaö er regn sem er sam- fara vindi, en það gæti veriö gott aö vita nánar um tilvist þess, þannig aö viö gætum ákvaröaö athuganir okkar i samræmi viö þaö. Loks má svo geta þess, aö viö vonumst til þess aö fá aö hefja prófanir á fleiri áhrifavöldum náttúrunnar á mannvirki, til dæmis jaröskjálftum. Þaö er þó ljóst, aö undirbúningur aö þvi tekur nokkur ár og þvi er all- langt þar til athuganir af sliku tagi hefjast fyrir alvöru. HASKOLAKORINN í TONLEIKAFERÐ TIL BRETLANDS Fimmtu háskólatónleikar vetrarins verða haldnir I Félags- stofnun stúdenta við Hringbraut á laugardaginn. Háskólakórinn syngur islenzka og erlenda tónlist, bæöi kirkju- lega og veraldlega, Rut Mgnús- son stjórnar. A dagskrá veröa m.a. verk eftir Jón Asgeirsson, Gúnnar Reyni Sveinsson, Róbert A. Ottósson og skozk þjóðlög. Mikiö annriki er nú fram undan hjá Háskólakórnum. Auk há- skólatónleikanna heldur kórinn sjálfstæöa tónleika I Félagsstofn- un stúdenta aö kvöldi mánudags- ins 21. febrúar. Þá fer kórinn i tónleikaferð til Bretlands 26. febrúar. Fyrst syngur kórinn i Carlisle á Noröur-Englandi, heimaborg stjórnandans. Siöan fer kórinn til fimm skozkra há- skólaborga, Stirling, Edinborgar, Dundee, St. Andrews og Aber- deen. Einnig er áformaö aö söng- ur kórsins veröi hljóöritaöur hjá brezka rikisútvarpinu. 40 sidiur sunnu Hákon meö steinsteypustrending, sem ekki stóöst prófiö. Strendingurinn er sprunginn i gegn og hefur auk þess molnaö nokkuö. Frostiö hefur meöal annars klofiö niöur grjótiö sem f steypunni er. Frostskápurinn I baksýn. Tólf vindstig og rigningardemba aö auki dynja á gluggakrflinu, sem veröur aö standast átökin, ef þaö á aö finna náö fyrir augum rannsóknarmanna. 60. þing USAH Áherzla lögð á unglinga- stefnt að starfrækslu starfið Mó-Reykjavik — A laugar- daginn var 60. þing Ung- mennasambands Austur-Hún- vetninga haldiö aö Húnavöll- úm. Þingiö sátu fulltrúar frá öllum félögum innan sam- bandsins auk gesta en þeir voru Hafsteinn Þorvaldsson form. UMFÍ, Sigurður Geirdal framkvæmdastjóri UMFÍ, Hermann Guömundsson framkvæmdastjóri 1S1 og Pét- ur Eysteinsson fyrrv. fram- kvæmdastjóri USAH. 1 skýrslu fyrirárið 1976, sem lögö var fram á þinginu kom fram aö áherzla var lögö á aukna starfsemi fyrir ungl- inga og keppendur voru sendir á mót fyrir yngstu aldurs- flokkana. Stóöu unglingarnir sig vel og uröu keppendur frá sambandinu Islandsmeistarar I þremur greinum frjálsra iþrótta á meistaramóti yngri aldursflokkanna. Þá náöu knattspyrnumenn ungmennabúða betri árangri en þeirhafa náö undanfarin ár, og liö sam- bandsins varö i þriöja sæti i Bikarkeppni FRl, þriðju deild, en sú keppni var háö á Blönduósi og annaöist U.S.A.H. framkvæmd keppn- innar. Félagsmálanámskeiö var haldiö i sýslunni i fyrravetur og hlutu 128 þátttakendur viö- urkenningu fyrir aö sækja það námskeiö. Fjölbreytt Húnavaka var haldin aö venju og I sambandi við þá skemmtun var ritiö Húnavaka gefiö út i sextánda sinn. Var þaö á þriöja hundraö siöur aö stærö, prentaö hjá POB á Akureyri. A þinginu voru fjölmargar tillögur samþykktar, sem marka munu stefnu stjórnar á næsta ári.M.a. var samþykkt aö koma á fót sumarbúöum fyrir unglinga næsta sumar. næsta sumar Sú starfsemi er nýjung i starfi sambandsins. NU er aö hefjast spuminga- keppni, Sveitastjórnir svara, á vegum sambandsins og taka allar sveitarstjórnir i héraö- inu þátt i þeirri keppni. Húna- vakan hefst slðan siöasta vetr- ardag, en ekki er enn séö fyrir hvaða efni þar veröur á boö- stólum. 17. árgangur ritsins Húnavöku er að verða tilbúinn til prentunar, og mun hann koma út á Húnavöku. Cr stjórn sambandsins gengu á þinginu Magnús Sig- urðsson, Hnjúki og Sævar Bjarnason, Skagaströnd, en I þeirra staö voru kjörnir Guö- mundur Haukur Sigurösson, Skagaströnd og Sigurður Þor- leifsson, Hvammi. Aörir i stjórn eru Magnús Ólafsson, Sveinsstööum form., Páll Kristinsson, Blönduósi og Karl Lúöviksson, Húnavöllum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.