Tíminn - 26.02.1977, Side 5
Laugardagur 26. febriiar 1977
5
Siglufjörður
§fg|
MÓ — Reykjavlk — t dag verttnr
500 m löng skfttalyfta tekin I
notkun á Siglufirði. Hún hefur
verift sett upp frammi i firtti fyr-
irofan Hól, en þar eru afbragtts
skiðabrekkur og landsmót
skíttamanna verftur halditt þar
um páskana. Lyftan er rafdrif-
in, og siðar er ætlunin að reisa
hús við neðri enda hennar þar
sem verður aðstaða fyrir dóm-
ara og aðra starfsmenn á
skiðamótum. Þar verður
spennistöð einnig komið fyrir og
öðrum nauðsynlegum rafbún-
aði. Kostnaður við lyftuna með
húsi og öllu tilheyrandi er áætl-
aður 15 millj. kr.
Skíöamenn á Siglufirði hafa
unnið að uppsetningu lyftunnar
i sjálfboðavinnu, en þar er mik-
ill skiðaáhugi og hugsa menn
gott til glóöarinnar að fá þessa
bættu aöstöðu. Undirstöður und-
%Í;
Siglfirð-
ingar
undirbúa
lands-
mótið
Ný skiðalyfta um
1 notkun 1 dag
ir möstur lyftunnar voru
steyptar sl. sumar og var þyrla
Landhelgisgæzlunnar fengin til
þess að flytja steypuefnið upp I
brekkurnar.
Siglfiröingar eiga aðra 300 m
langa skiðalyftu, sem er færan-
leg. Hugmyndin er sú að koma
henni fyrir ofan við þessa nýju
föstu lyftu og opnast þá stór-
kostlegir möguleikar fyrir
sklðamenn ofar i fjallinu.
Dráttarvél var notuð til þess
að flytja efni upp að skiða-
lyftunni og hafa menn unnið
af kappi að uppsetningu lyft-
unnar undanfarnar vikur.
Mikill snjór er nú á Sigiufirði
og bliöuveður dag hvern, og
ungir sem aldnir hafa tekið
fram skiöin. Timam MÓ.
Félag
sykursjúkra á
Norðurlandi:
Keppt
að sömu
aðstöðu
ogá
göngu-
deildinni
í Reykja
vik
Félagið Samhjálp var stofn-
að á Akureyri að tilhlutun
nokkurra sykursjúklinga 25.
jan. 1970 og var fyrsta þeirrar
tegundar hér á landi. Félags-
svæðið nær yfir Norðurland.
Þann 20. febr. s.l. hélt félag-
iö aöalfund. Voru þar rifj-
uö upp eftirfarandi atriði úr
sögu þess.
Það hefur alls haldið 20
félagsfundi, auk stjórnar-
funda. Það hefur fengið lækna
sjúkrahússins á fundi til að
fræða félagana um sykursýki
og varnir gegn henni. 1 féíag-
inu eru nú 75 félagar en nokkr-
Framhald á bls. 23
Sálnahugmyndir,
trú og galdur
eftir Harald Olafsson lektor
Félagsvisindadeild Háskóla
tslands og Bókaútgáfan órn
og órlygur hafa nýlega gefið
út ritið Tvær ritgerðir eftir
Harald Ólafsson lektor. Rit-
gerðirnar fjalla um sálnahug-
myndir i frumstæðum trúar-
brögðum, trú, töfra og gald-
ur.
Fyrri ritgerðin skiptist i eft-
irfarandi kafla: Allra sálna
messa, Sálnatrú frumstæðra
þjóða, Dalakúturinn, Shaman-
isminn, Hamfarir, Shaman og
hlutverk hans, Amma Tornar-
suk, Lifsál og lausasál, og
Framhaldslif sálarinnar.
Siðari ritgerðin greinist i
kaflana Trú og töfrar, Megin
hluta: mana, Bannhelgin, Boð
og bönn tengd trúnni, Galdra-
menn hjá Azande og Allt staf-
ar af göldrum. Höfundur fjall-
ar um fyrrgreind efni með til-
visun til f jölda islenzkra og er-
lendra dæma og kenninga
mannfræöinga.
Tvær ritgeröir eftir Harald
Ólafsson er þriðja ritið I rit-
röðinni lslenzk þjóöfélags-
fræöi. Áður hafa komið út
Jafnrétti kynjanna og Islenzk
verkalýöshreyfing 1920-1930.
úðavík
Illa heyrist í
útvarpinu. Lítið
sést á skjánum
HG-Súðavik — — Sjónvarps og
hljóövarpssendingar hafa veriö
með lakasta móti hér I Súöavlk að
undanförnu. Sjónvarpssendi var
komið fyrir til bráöabirgöa fyrir
nokkrum árum, en þó næst
geislinn ekki á öllum bæjum I
hreppnum. A þeim stöðum sem
sjónvarpið sést, hefur móttakan
verið meö allra versta móti þaö
sem a f er vetri og reyndar nokkuö
algengt, að það sjáist ekki tlmum
saman. T.d. slökknaöi á Kastljósi
þvi, sem átti að lýsa á Geirfinns-
málið og stundum sést varla
nokkuð nema snjór, sem annars
hefur verið lítið af hér I vetur.
Hljóövarpssendingar nást hér
helzt frá FM stöð á Bæjum, en
einhverra óþekktra orsaka
vegna, þá viröist þessi stöö ekki
senda út nema með höppum og
glöppum og þótt sent sé út á FM
frá Bæjum, kemur fyrir að sendi-
tiðnin er svo breytileg, aö sifellt
þarf að vera að stilla tækin.
Langbylgjan er svo veik hér, aö
oftast yfirgnæfa hana einhverjar
truflanir, sem eru hvimleitt
meðlæti meö dagskránni.
Hér brennur sú spurning á
vörum manna, hvort hægt sé að
selja þessa lélegu vöru á fullu
verði. Ef svo er mætti þá ekki að
minnsta kosti biðja velviröingar á
þvi, aö sendirinn er bilaður, eins
og gert er, þegar aörir en strjál-
býlismenn eiga I hlut.
Tímamyndin
8 i
í,*.