Tíminn - 26.02.1977, Blaðsíða 13

Tíminn - 26.02.1977, Blaðsíða 13
Laugardagur 26. febrúar 1977 13 15.00 t tónsiniðjunni Atli Heimir Sveinsson sér um þáttinn (16) 16.00 Fréttir. Veöurfregnir. 16.10 B-hluti heimsmeistara- keppninnar i handknattleik: tsland-Portúgal / (Jtvarp frá Klagenfurt i Austurrlki Jón Asgeirsson lýsir slöari hálfleik. 16.45 tslenzkt mál Dr. Jakob Benediktsson talar. 17.05 Létt tónlist 17.30 Framhaldsleikrit barna og unglinga: „Kötturinn Kolfinnur” eftir Barböru Sleigh (Aöur útv. 1957-58) ÞýöandiHulda Valtýsdóttir. Leikstjóri Hulda Valtýs- dóttir. Leikendur I fjóröa þætti: Helgi Skúlason, Kristin Anna Þórarinsdótt- ir, Steindór Hjörleifsson, Guörún Stephensen, Edda Kvaran og Jóhann Pálsson. 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Gerningar Hannes Giss- urarson sér um þáttinn 20.10 Sinfónia nr. 2 I C-dúr op. 61 eftir SchumannSuisse Romande hljómsveitin leik- ur, Wolfgang Sawallischstj. Frá útvarpinu i Bern. 20.45 „Afmæiisdagurinn” smásaga eftir Finn Söeborg Þýðandinn Halldór Stefáns- son les. 21.10 Hljómskálamúsik frá út- varpinu I Köln Guömundur Gilsson kynnir 21.40 Allt i grænum sjó Stoliö, stælt og skrumskælt af Hrafni Pálssyni og Jörundi Guömundssyni. Gestur þáttarins ókunnur. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Lestur Passiusálma (18) 22.25 Danslög 23.55 Fréttir. Dagskrárlok sjónvarp 17.00 Holi er hreyfing. Norsk- ur myndaflokkur um léttar likamsæfingar einkum ætl- aöar fólki, sem komiö er af léttasta skeiöi. Þýöandi og þulur Sigrún Stefánsdóttir. (Nordvision — Norska sjón- varpiö) 17.15 tþróttir. Umsjónarmaö- ur Bjarni Felixson. 18.35 Emil I Kattholti. Sænsk- ur myndaflokkur. Krabba- veiöar og aörar ánægju- stundir. Þýöandi Jóhanna Jóhannsdóttir. Sögumaöur Ragnheiöur Steindórsdóttir. 19.00 tþróttir Hlé 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Hótei Tindastóll. Bresk- ur gamanmyndaflokkur. 2. þáttur. Þýöandi Stefán Jökulsson. 20.55 Filafjölskyldan. Siöari hluti breskrar heimilda- myndar um hátterni fila I þjóögaröinum viö Many- ara-vatn I Tansanlu. Þýö- andi og þulur Gylfi Pálsson. 21.20 Amerlkumaður I Paris (An American in Paris). Bandarisk dans- og söngva- mynd frá árinu 1951. Leik- stjóri Vincente Minelli. Tón- list George Gershwin. Aöal- hlutverk Gene Kelly og Leslie Caron. Jerry Mulli- gan er bandariskur listmál- ari, sem býr i Paris. Hann veröur ástfanginn af ungri stúlku, en hún er trúlofuö. Jerry kynnist auöugri konu, sem styöur viö bakiö á efni- legum listamönnum, og kemur hún honum á fram- færi. Þýöandi Dórá Haf- steinsdóttir. 23.10 Dagskrárlok. Hættulegt ferðalag eftir Maris Carr okkur þótti öllum vænt um hann. Hann hefði orðið himinlifandi að sjá þig komna hingað. Mig langar bara til aðsegja þér, að þér er óhætt að treysta á okkur Will. Við höf um aldrei eignazt börn sjálf og það er svo leiðin- legt, að ung og falleg stúlka eins og þú skulir vera ein í heiminum og foreldralaus. — Þetta er sannarlega indælt af þér, sagði Penny varkár. Hún vissi ekki hvernig bregðast skuli við svona mikilli umhyggju frá ókunnri manneskju. — En ég er vön að hugsa um mig sjálf, sagði hún feimin. — Það var mikið áfall að frétta lát föður míns, en ég er óðum að jafna mig. Þú þarft ekki að hafa neina auka fyrir höfn mín vegna. — Æ, þarna hef ur mér tekist að gera þig vandræða- lega. Það er tungan, sem alltaf hleypur með mig í gön- ur. Fanny brosti. — Allir eru vanir mér og hlusta ekki á helminginn af því sem ég blaðra og þú skalt bara reyna að gera það líka. En mér finnst þægilegt að hafa þig hérna. Við erum samstæður hópur, en fyrir utan mig og Júlíu eru aðeins tvær hvítar konur eftir hérna. Grace er gift Neil og á von á barni eftir tvo mánuði. Hún vonast til að komast héðan fyrir fæðinguna. Hitt parið, Nellieog Bill eru öldungar eins og við Will. Við kvíðum því að fara héðan. — Það getur ekki verið gaman fyrir Grace að vera hérna í slíku ástandi, sagði Penny alvarleg. — Gæti hún ekki farið til strandarinnar í tíma? — Það sagði Mike líka, en hún vill ekki fara f rá Neil og hann er ómissandi eins og er. Hann vinnur hérna á plantekrunni. Hér eru líklega sex eða sjö menn fyrir ut- an Vincent. Hann var aðstoðarmaður föður þins og hefur hugsað sér að vera hér áfram, þegar hinir taka við félaginu. Ég er viss um að þér geðjast vel að honum. Hann er Portúgali og framúrskarandi kurteis og elskulegur. Hann hefur rekið læknisstofuna síð- an...Hún snöggþagnaði og setti upp vandræðasvip. — Þarna sérðu, tungan hleypur með mig aftur. Fyrir- gefðu, vina mín! — Gerirekkert, svaraði Penny og brosti.— Fáðu þér sæti og segðu mér f rá læknisstof unni. Er tækjabúnaður þar góður? Fanný dró til stól og settist við hliðina á Penný. — Já, þótt f urðulegt megi teljast er útbúnaðurinn mjög góður. Þar er meira að segja lítil skurðstofa, sem komið hef ur að góðum notum, því miður.... Slys vilja alltaf til öðru hverju. En þú getur farið þangað og séð hana sjálf. Vincent verður glaður að hitta þig. Hann mat föður þinn mjög mikils. — Mike sagði mér að faðir rninn hefði ekki mikið verið hérna. Hann kaust víst heldur að vitja sjúklinga sinna. — Það var bara eftir að Mike varð yfirmaður hér. Fyrri yfirmaðurinn var ósammála föður þínum í því máli og lét hann vera sem mest hér á plantekrunni. — Þá f innst mér leittað Mike skyldi hafa látið undan óskum pabba. Annars hefði hann kannski verið á lífi núna, ef einhver hefði gætt þess að hann ofreyndi sig ekki. Fanny Price færði sig til á stólnum — Ég held, að hann hafi skýrt þetta rangt fyrir þér. Mike gerði allt sem hann gat til að hjálpa gamla lækninum. Faðir þinn taldi það lífsköllun sína að hjálpa Indíánunum og hon- um fannst ekki rétt, að þeir væru án lækniseftirlits. — Hjálpaði hann þá þeim innfæddu hérna í kring? Penny varð undrandi. — En ég hélt, að margir ætt- flokkarnir væru enn óvinveittir hvítum mönnum. Það er ekki undarlegt þótt fyrri yf irmaðurinn haf i haft sitt að segja. Pabbi átti líka að vera læknir félagsins. — Hann vanrækti okkur alls ekki. í rauninni betrum- bætti hann margt hérna. Hjá félaginu starfa margir innfæddir. Það var bara eðlilegt að kunnátta föður (Díns kæmi mörgum til góða. Indíánarnir fóru að koma hing- að frá þorpum í margra mílna f jarlægð. Penny andvarpaði. — Ég býst við að hann haf i reynt að gera ailt sjálf ur. Það er ekki f urða þó það reyndist honum ofraun að lokum. — Ég held að hann hafi þekkt takmörk sin. Hann kom á fót tveimur öðrum læknisstofum og sá um að ráða hæft starfsfólk. Þú getur ekki sagt, að hann hafi reynt að f ramkvæma hið ómögulega. Allt var nákvæm- lega skipulagt og hann f jármagnaði það sjálf ur. Félag- iðgreiddi ekki eyri, en naut þó allra kostanna. — Heppilegt, að faðir minn var auðugur, sagði Penny hugsandi. — Mér þykir það leitt, Fanný, en ég hef aldrei vitað neitt um þetta. Hann skrifaði mér, að hann hefði gert áætlanir, en skýrði þær aldrei nánar. Hann var reyndar fremur pennalatur og eins og svo margir læknar, skrifaði hann afskaplega illa. — Þú heyrir ekki nema gott um hann hér. Leitt að þú skyldir ekki koma fyrr og geta hitt hann éður en hann lézt. Penný hrukkaði ennið. — Mig langaði svo mikið til þess, en pabba tókst alltaf að telja mig á að vera kyrr. Ég held stundum, að hann hafi ekki viljað fá mig hingað. Fanný hló. — Þar skjáltlast þér hrapallega. Hann var alltaf að tala um þig. En ég skil hvers vegna hann vildi ekki að þú kæmir. Hann var áreiðanlega hræddur um að þú þyldir ekki loftslagið. Hann minntist einhvern- tíma á að líf ið í hitabeltinu ætti sök á veikindum móður þinnar, sem drógu hana loks ti dauða. — Það er rétt. Þau bjuggu þá í Macapa og ég var í skóla í Englandi. Ég fór einu sinni til pabba í heimsókn, áður en hann fór að vinna hér. Það var i síðasta sinn, sem ég sá hann. Fanný kinkaði kolli. — Það er erfitt fyrir konu að taka slíka ákvörðun. Venjulega ræður eiginmaðurinn og börnin verða eftir hjá vinum eða ættingjum í Eng- landi. Penny brosti.— En ég var var ekki óánægð. Frænka mín var mér mjög góð og ég átti marga vini. Svo gat ég alltaf huggað mig við að einhvern tíma færi ég til pabba og skapaði honum reglulegt heimilj. Ég hugsaði með mér, að þegar hann hefði einu sinni hitt mig, hefði hann ekki hjarta til að senda mig burtu. Hún andvarp- aði. — Jæja, en þetta er allt liðið og það þýðir ekki að trega það. Ég er fegin að ég kom hingað. Ég hefði aldrei skilið hann eða starfsskilyrði hans, ef ég hefði verið um kyrrt heima. — Satt segirðu! Fanný brosti. — Þú ert hugrökk og skynsöm stúlka. Hún stóð snögglega upp. — Jæja látum okkur gera þetta svolítið notalegra fyrir þig hérna. Komdu með mér að sækja rúmfatnað og eitthvað f leira handa þér. Þú getur skoðað þig svolítið um í leiðinni. Það borgar sig ekki að treysta á Júlíu. Hún heldur að mestu til í rúminu. — Hvernig var eiginlega maðurinn hennar? spurði Penny forvitin, þegarþær gengu yf ir torgið. Jörðin var brennheit og sveið fætur hennar gegn um þunna skósól- ana og Penny var fegin, þegar þær komu inn í skugga kofanna hinum megin. Annaðhvort hafði Fanný ekki „Veiztu Gína, ég^ vann köku- kappátiö og vissi ekki einu sinni, aö keppni stæöi yfir!” DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.