Tíminn - 16.04.1977, Side 13

Tíminn - 16.04.1977, Side 13
E3 13 Laugardagur 16. aprll 1977 Wmmm 13 son.Persónur og leikendur: Jan/Stefán Jónsson, pabbi Jans?Guömundur Pálsson, veitingamaöur?Ami Tryggvason, skólastjdr- inn/Bjarni Steingrimsson, lögregluþjónn/Valdimar Helgason, Brian/Árni Bene- diktsson, Llsa/Svanhildur óskarsdóttir, Tina/Hrafn- hildur Guömundsdóttir, frk. Jarl/Jónfna H. Jónsdóttir, raddir og skólaböm/Eyþór Arnalds, Iöunn Leósdóttir, Linda Björk Hilmarsdóttir, Guömundur Klemenzson og Kntitur R. Magnússon. 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki . Til- kynningar. 19.35 Ekki beinlinis Böövar Guömundsson spjallar viö ' Lilju Hallgrlmsdóttur tön- listarkennara og Einar Kristjánsson rithöfund frá Hermundarfelli um heima og geima. 20.15 Tvær italskar fiölusónöt- ur frá gömlum tima Nathan Milstein leikur Sónötu i g- moll „Djöflatrillu-sónöt- una” eftir Giuseppe Tartini og Sónötu I A-dúr op. 2 nr. 2 eftir Antonio Vivaldi, . Leon Pommers leikur meö á pianó. 20.35 1 ævinnar rás Guöjón Friöriksson blaöamaöur ræöir viö Guömund Sæmundsson bólstrara i Reykjavik. 21.00 Hljómskáiamúsik Guö- mundur Gilsson kynnir. 21.30 „Vaidsmaöur og vand- ræöahrútur”, smásaga eftir Guömund G Hagalin Höf- undur les. .00 Fréttir .15 Veöurfregnir Dansiög 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Laugardagur 16. april 17.00 íþróttir (L aö hl.) Umsjónarmaöur Bjarni Felix- son. 18.35 Karius og Baktus.Leik- rit eftir Thorbjörn Egner. Leikstjóri Hélgi Sktilason. Leikendur Borgar Garöars- son og Sigriöur Hagalin. Siöast á dagskrá 25. ágúst 1974. 19.00 íþróttir (L aö hl.) Hlé 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Læknir á ferö og flugi. Breskur gamanmynda- flokkur. Þýöandi Stefán Jökulsson. 20.55 Úr einu i annaö.Umsjón armenn Berglind Asgeirs- dóttir og Björn Vignir Sig- urpálsson. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. 22.00 Fangarnir I Altona (The Condemned of Altona) Bandarisk blómynd frá ár- inu 1963, byggö á samnefndu leikriti eftir Jean-Paul Satre. Leikritiö var sýnt I Iönó áriö 1963. Leikstjóri Vittorio De Sica. Aöalhlut- verk Sophia Loren, Maximilian Schell, Freder- ic March og Robert Wagner. Sagan gerist I Altona einu úthverfi Hamborgar áriö 1961. Stóriöjuhöldur kemst aö þvi, að krabbamein er aö leiöa hann til dauða. Hann hefur átt þrjti börn, Franz , sem lést skömmu eftir striöslok, dótturina Leni sem býr hjá fööur sinum, og sonurinn Werner hefur eng— inn samskipti átt viö fööur sinn um langt skeiö. Nú fær Werner boö frá fööur sinum um aö taka að sér stjórn fyrirtækisins. Þýöandi Kristmann Eiösson. 23.50 Dagskrárlok. framhaldssagan framhaldssagan framhaldssagan framhaldssagan Frú Harris fer til Parísar © eftir Paul Gallico BEA-maðurinn, sem hafði það starf að aðstoða ferðafólkið, sem varð alveg ringlað á leiðarenda, leit á hattinn, veskið allt of stóra skóna, líflegu, prakkaralegu augun og vissi samstundis, hvað hún var. — Almáttugur! sagði hann lágt við sjálfan sig. — Hreingerningakona frá London! Hvað í ósköpun- um er hún að gera í París? Það getur varla verið svo mikill skortur á heimilishjálp hér. Hann tók eftir að hún var óörugg um sig, leit á farþegalistann og gat rétt til aftur. Hann gekk til hennar, tók ofan og spurði: — Get ég hjálpað yður eitthvað, frú Harris? Líf legu götustráksaugun rannsökuðu hann gaum- gæf ilega í leit að siðferðislegri mengun eða útlend- um prakkaraskap. En hún varð næstum fyrir von- brigðum, þegar hún ákvað að hann líktist ósköp venjulegum Englendingi. Þar sem framkoma hans var kurteisleg og vinaleg, sagði hún varkár: — Já hérna, getur fólk líka talað góða, gamaldags ensku hérna fyrir handan? — Ég ætti aðgeta það, svaraði BEA-maðurinn,— Ég er nefnilega enskur. En ég held að þú munir uppgötva að f lestir hérna tala dálitla ensku, svo þú getur bjargað þér. Ég sé að þú ferð heim aftur með okkur í kvöld klukkan ellefu. Viltu fara á einhvern ákveðinn stað núna? Frú Harris íhugaði andartak, hvað hún gæti trúað ókunnugum manni fyrir miklu, og svaraði svo ákveðin: — Ég vil bara fá leigubíl, ef þér haf ið ekk- ert á móti því. Ég hef mín tíu pund! — Já, sagði maðurinn. — En þá er bezt fyrir þig að skipta einhverju af þeim i franska peninga. Eitt pund er um það bil þúsund frankar. Við búðarborð þarna í salnum breyttust nokkrir af grænu pundseðlunum hennar f rú Harris í þunna, snjáða snepla með tölunni 1000 á og nokkra óhreina hundraðfrankapeninga úr áli. Frú Harris fylltist réttlátri gremju. — Hvað er þetta eiginlega? sðurði hún.— Kallið þið þetta pen- inga? Þetta er eins og að handf jalla leikfangapen- inga! BEA-maðurinn brosti. — Já, þeir eru það á sinn hátt, en stjórnin hefur einkaleyfi á að búa þá til. Frakkar hafa ennþá ekki tekið eftir þessu. En þeir erugildir. Hann leiddi hana gegnum mannþröngina út á gangstéttina og kom henni fyrir í leigubíl. — Hvert á ég að biðja hann að aka þér? Frú Harris rétti úr mjóu bakinu, þannig að hún sat bein eins og kústskaft með rauðu rósina vísandi beint í norður og andlitssvip eins og hertogaynja. — Biðjið hann að aka mér að kjólaverzlun Christians Dior, sagði hún. BEA-maðurinn starði á hana og neitaði að trúa sínum eigin eyrum. — Fyrirgefðu frú Harris, en hvað var það sem þú sagðir? — Kjólaverzlun Diors, þér heyrðuð það vel! BEA-maðurinn hafði raunverulega heyrt það og þó hann væri vanur öllum tegundum vandamála og einkennilegum atvikum, gat hann einfaldlega ekki skilið, hvaða tengsl gátu verið milli hreingerninga- konu frá London og glæsilegustu tískuverzlunar heimsins, svo hann hikaði enn. Ætlarðu ekki að hafast eitthvað að? spurði frú Harris í skipunartón. — Hvers vegna er það svona undarlegtaðdama vilji kaupa sér kjól í París? Skjálfandi á beinunum sagði BEA-maðurinn við bílstjórann á frönsku: — Akið frúnni til Christian Dior í Avenue Montáigne, og ef þér reynið að plata út úr henni svo mikið sem sentímu, þá sé ég um, að þér fáið aldrei starf hér aftur. Þegar f rú Harris var farin, gekk hann inn í bygg- inguna aftur og hristi höf uðið alla leiðina. Þetta var það skrítnasta, sem hann hafði séð. Meðan frú Harris sat í leigubílnum með ákafan hjartslátt af spenningi, fór hún að hugsa til London og bað þess í hljóði, að frú Butterfield tækist að leysa verkefni sitt. Listinn yf ir viðskiptavini frú Harris, sem að vísu gat tekið skyndilegum breytingum — þar sem hún gat fyrirvaralaust afneitað einhverjum þeirra, en þeir aldrei henni —var yfirleitt jafnstór að vöxtum. Fyrir suma vann hún marga tima á dag og aðra að- eins þrisvar í viku. Hún vann tíu tima daglega, f rá klukkan átta að morgni til sex að kvöldi og hálfan laugardaginn fyrir sérstaklega góða viðskiptavini. Þetta var dagskráin allar fimmtíu og tvær vikur ársins. Þar sem ekki voru fleiri klukkustundir í vinnudeginum, voru viðskiptavinirnir sex til átta á dag og vinnustaðurinn fína hverfið við Eaton og Beigrave Square. Þegar hún var á annað borð kom- in þangað á morgnana, gekk hún milli húsa og var fljót í förum. Þarna var majór Wallace, piparsveinninn henn- ar, sem hún dekraði auðvitað við auk þess sem hún hlustaði með áhuga á sögur hans af mörgum og margvislegum ástarævintýrum fyrri daga. Hún kunni líka vel að meta frú Schreiber, sem var að vísu dálítið ringluð og gift Londonfulltrúa kvikmyndafélags í Hollywood. Hjartanleg fram- koma hennar og gjaf mildi, sem kom fram á marg- an hátt, hafði sigrað hjartá frú Harris. Þá „vitjaði" hún hjá lafði Dant, sem var gift iðn- aðarbarón og átti íbúð í London auk óðals úti í sveit. Myndir af lafðinni á veiðimannadansleikjum eða i góðgerðarveizlum var alltaf öðru hverju að finna í blöðunum, og af því að frú Harris ákaflega stolt. Það voru fleiri, rússnesk kona af innflytjenda- ættum, Wyszinska, sem frú Harris dáði vegna sér- vizku hennar, ung hjón, næstelzti sonur óðals- eiganda, sem átti dásamlega íbúð að mati frú Harris, af því allir hlutirnir voru svo fallegir, frú Ford Foulks, fráskilin kona, sem átti í fórum sin- um ótakmarkað safn af slúðursögum það sem vellrikum iðjuleysingjum gat dottið í hug að taka sér fyrir hendur, og margir aðrir, til dæmis litla leikkonan ungfrú Pamela Penrose, sem barðist fyrir því að öðlast viðurkenningu á starfi sínu í tveggja herbergjaíbúð í húsasundi. Hjá öllu þessu fólki vann frú Harris ein. En i neyðartilfellum gat hún leitað til vinkonu sinnar, frú Violet Butterfield, sem líka var ekkja og hrein- gerningakona, en var andstæða frú Harris að þvi leyti að henni hætti til að líta hlutina of dökkum augum, hvenær sem minnsta tækifæri gafst. Frú Butterf ield, sem var álíka stór og stæðileg og „Nti ætla ég aö koma Wilson á óvart þegar hann heldur aö hann sé búinn aö loka öllu vandlega.” DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.